Morgunblaðið - 16.11.1984, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984
5
Valtýr Péturs-
son listmálari
fær starfslaun
borgarinnar
STJÓRN Kjarvalsstaða samþykkti
á fundi sínum 6. þ.m. aö veita
Valtý Péturssyni listmálara starfs-
laun Reykjavíkurborgar í eitt ár
frá I. desember nk.
20 umsóknir bárust um
starfslaunin. Þetta er í fimmta
sinn sem Reykjavikurborg veitir
þessi starfslaun. Fyrstur hlaut
þau Magnús Tómasson 1981, síð-
an Bragi Ásgeirsson 1982, þá
Messíana Tómasdóttir og Ing-
unn Eydal 1983, en þær fengu
Valtýr Pétursson
starfslaun í 6 mánuði hvor, og
loks Ásgerður Búadóttir fyrir
árið 1984.
Ljóðasafn Þorsteins
frá Hamri komið út
IÐUNN hefur gefið út Ljóðasafn
eftir Þorstein frá Hamri. Guðrún
Svava Svavarsdóttir myndskreytti.
Þetta er sjötta bókin í flokki Iðunn-
ar af Ijóðasöfnum helstu samtíð-
arskálda, en allar eru þær skreyttar
myndum kunnra myndlistarmanna.
Ljóðasafn Þorsteins frá Hamri
hefur að geyma allar Ijóðabækur
hans til þessa, átta að tölu. Ljóð-
in eru til orðin á liðlega aldar-
fjórðungi, 1956—’82. Fyrstu bók
sína, f svörtum kufli, gaf hann út
tvítugur, 1958, og birtist hún hér
i endurskoðaðri gerð. Síðan kom
Tannfé handa nýjum heimi
Félagsfundur VR samþykkti samningana:
Skorar á ríkisstjórnina að tryggja kaupmáttinn
NÝGERÐIR kjarasamningar Vershin-
armannafélags Reykjavíkur og Vinnu-
veitendasambands fslands voru sam-
þykktir í leynilegri atkvæðagreiðslu á
félagsfundi hjá VR á miðvikudags-
kvöldið. 80 greiddu atkvæði með
samningunum, 20 voru á móti, en 16
seðlar voru auðir.
Magnús L. Sveinsson formaður
Verslunarmannafélags Reykjavík-
ur, sagði i samtali við Mbl. að lokn-
um fundinum, að þar hefði komið
fram nokkur gagnrýni á að samn-
ingurinn fæli ekki í sér ákvæði um
kaupmáttartryggingu og kvaðst
Magnús hafa borið þar fram svo-
hljóðandi tillögu:
„Félagsfundur í Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur, haldinn
að Hótel Sögu 1984, skorar á ríkis-
stjórnina að neyta allra tiltækra
ráða til þess að tryggja kaupmátt
þeirra kjarasamninga, sem nú hafa
verið gerðir. Fundurinn vill benda
á, að við gildistöku hins nýja kjara-
samnings verða launataxtar félags-
manna Verslunarmannafélags
Reykjavíkur frá 14.000 til 23.000
krónur á mánuði. Slík laun mega
ekki við því að kaupmáttur þeirra
skerðist enda vandséð, að þau þurfi
að valda verðbólgu f þjóðfélaginu.”
Tillagan var samþykkt einróma.
tveimur árum siðar. „Segja má að
með þriðju bókinni, Lifandi
manna landi, 1962, hafi Þorsteinn
náð fullum þroska sem skáld,"
segir í kynningu forlagsins. „Þar
hefur ljóðstíll hans öðlast per-
sónulegan tón og fyllingu, jafn-
vægi sem síðan hefur orðið æ ör-
uggara. Málfar hans er auðugt og
blæbrigðaríkt, sækir næringu í
alþýðumál og gamlar bókmennt-
ir, ekki síst þjóðsögur og þjóð-
kvæði. Næstu bækur, Langnætti
á Kaldadal og Jórvík, eru til
marks um það. Þessari arfleifð er
Þorsteinn einkar samlifur og hún
hefur nýst honum til að yrkja
ljóð sem í hnitmiðun máís og
mynda birta næmt skyn á lífs-
vanda samtíðarinnar. Ljóðform
hans er með ýmsu móti, laust eða
bundið eftir atvikum, en það hef-
ur orðið æ hnitmiöaðra eins og
sjá má í síðustu bókunum, Veðra-
hjálmi, Fiðrinu úr sæng Dala-
drottningar og Spjótalögum á
spegil. 1 hógværð sinni og lág-
mæltri skírskotun hitta ljóð
Þorsteins tíðum beint á kviku
hins ráðvillta nútímamanns. Inn-
hverfur heimur þeirra verður les-
andanum einkennilega nákom-
inn.“
Auk ljóðanna hefur Þorsteinn
frá Hamri birt þrjár skáldsögur,
sagnaþætti, og fengist nokkuð við
þýðingar. Ljóðasafn Þorsteins er
með sama sniði og fyrri söfnin í
flokknum, en þau eru eftir Hann-
es Pétursson, Stefán Hörð
Grímsson, Sigfús Daðason,
Hannes Sigfússon og Einar
Braga. Ljóðasafn Þorsteins er
mest að vöxtum þessara bóka, 350
blaðsíður að stærð. Oddi prent-
aði.
INNLENT