Morgunblaðið - 16.11.1984, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÓSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984
*
Abendingar
frá stjórn
Skotveiðifé-
lags Islands
ÞETTA er sá árstími, þegar
menn fara til fjalla til veiða.
Sverrir Scheving Thorsteinsson,
formaður Skotveiðifélags ís-
lands, hafði samband við Morg-
unblaðið og vildi, að gefnu til-
efni, koma nokkrum ábending-
um frá stjórn félagsins til þeirra
sem veiðar stunda:
í fyrsta lagi bendir hann á að
öll veiði af vélknúnum farar-
tækjum, t.d. snjósleðum, er
stranglega bönnuð. í öðru lagi
hvetur stjórn Skotveiðifélagsins
menn til þess að fylla út rjúpna-
veiðiskýrslur. Sverrir sagði einn-
ig að mjög mikilvægt væri að
gæta þess að allur útbúnaður sé
nægilegur og í góðu lagi þegar
lagt er af stað í veiðiferð. Stjórn
félagsins telur mjög mikilvægt
að allir veiðimenn virði rétt
landeigenda.
Reykjavíkur-
borg afsalar
sér arfi
REYKJAVÍKURBORG hefur af-
salað sér eignarhluta í jörðinni
Ásgarði í Grímsnesi, sem Sigur-
liði Kristinsson arfleiddi borg-
ina að á sínum tíma.
Að sögn Davíðs Oddssonar
borgarstjóra var arfurinn skil-
yrtur og átti borgin samkvæmt
þeim skilyrðum að setja á stofn
unglingaheimili á sínum eignar-
hluta. Mál þróuðust hins vegar
þannig að hreppurinn nýtti for-
kaupsrétt að jörðinni og átti
borgin að fá ákveðna peninga-
upphæð út úr búinu. Þar af leið-
andi gat borgin ekki uppfyllt
óskir arfleiðanda og því hefði
verið ákveðið að þiggja ekki arf-
inn sagði Davíð.
Aðveitustöd hjá
Prestbakka
Á NÆSTTA ári verður hafist
handa um uppsetningu aðveitu-
stöðvar hjá Prestbakka á Síðu og
er áætlað að framkvæmdum
Ijúki að áliðnu sumri eða um
haustið sama ár.
Þetta kom fram í svari iðn-
aðarráðherra, Sverris Her-
mannssonar, við fyrirspurn frá
Margréti S. Frímannsdóttur,
Alþýðubandalagi.
Aðveitustöðin verður sam-
eign Rafmagnsveitna ríkisins
og Landsvirkjunar.
starfsgreinum!
Álver íslenzka álfélagsins hf. í Straumsvík. Ljóamynd/Arnór i Garti.
Milljónasta áltonnið framleitt í Straumsvík:
Framleidsluverdmætid 40 milljarðar
miðað við núverandi markaðsverð
MIÐVIKUDAGINN 7. nóvember sl. náðist merkur áfangi í sögu álvers-
ins í Straumsvík, en þann dag var milljónasta tonnið af áli framleitt í
kerskálunum þar. Áætlað var að þessi áfangi næðist fyrr á árinu en vegna
rafmagnsskömmtunar til fyrirtækisins fyrir nokkrum árum og vegna þess
að draga þurfti úr framleiðslu á þessu ári vegna sölutregðu, var milljón-
asta tonnið framleitt seinna en ella hefði orðið.
1 tilefni af þessum áfanga hjá
ÍSAL, var öllum starfsmönnum
fyrirtækisins boðið til veizlu.
Þrískipta varð veizluhöldunum
vegna mikils fjölda starfsmanna
og hins að unnið er á vöktum í
álverinu allan sólarhringinn.
Ragnar S. Halldórsson forstjóri
flutti nokkur orð og kom eftir-
farandi fram í ávarpi hans m.a.:
„Verðmæti þessara milljón
tonna er i dag um 1200 milljón
dollara (40 milljarðar íslenzkra
króna innsk. Mbl.), var fyrir einu
ári um 1600 milljónir dollara og
fyrir tveimur árum um 900
milljónir. Sýnir þetta vel, hvað
sveiflur hafa verið miklar á ál-
markaði á undanförnum árum.
ÍSAL hefur nú starfað í rúm
15 ár. Afkastageta fyrsta áfanga
verksmiðjunnar var um 33 þús-
und tonn á ári, og með honum
einum hefði því tekið um 30 ár
að framleiða milljón tonn, en
eins og ykkur öllum er kunnugt
hefur þremur áföngum verið
bætt við frá árinu 1969, og skráð
afkastageta er nú um 88 þúsund
tonn á ári.
Þáttur í samkomulagi því sem
undirrituð voru á mánudag á
milli Alusuisse og ríkisstjórnar-
innar, er könnun á frekari
stækkun verksmiðjunnar. Er þar
gert ráð fyrir stækkun um
fimmtíu af hundraði, og gæti þá
tveggja milljón tonna markið
náöst árið 1993, og yrðu afköstin
tvöfölduð, næðust tvær milljónir
tonna árið 1991. Hér er miðað
við þriggja ára byggingartíma.
Svo skemmtilega vill til, að
einmitt í dag lagði Sverrir Her-
mannsson, iðnaðarráðherra,
samkomulagið fyrir Alþingi.
Með því er endir bundinn á þær
deilur, sem fyrrverandi iðnað-
arráðherra hóf á ofanverðum
vetri 1980. í fjölmiðlum hefur
ranglega verið skýrt frá því, að
ÍSAL greiði skaðabætur að upp-
hæð 3 milljónir dollara. Hið
rétta er, að skattinneign ÍSAL
hjá ríkissjóði verður lækkuð um
3 milljónir dollara, sem sam-
svarar vöxtum af inneigninni frá
1975, þegar síðast var samið.
Þetta var samþykkt með tilliti
til þess mikla kostnaðar, sem
áframhaldandi málaferli hefðu
haft í för með sér, og vegna þess,
sem skiptir miklu máli, að leyfi
hefur fengizt til stækkunar, að
nánari skilyrðum uppfylltum.
Ríkisstjórnin hefur jafnframt
lýst yfir, að Alusuisse og ÍSAL
hafi ekki í neinu brotið gegn
fyrri samningum, það er ágrein-
ingurinn var um skilning á
samningsákvæðum.
Alls hafa um 2800 manns
starfað hjá fyrirtækinu. Fyrstu
árin var veruleg hreyfing á hluta
starfsmanna, en þetta hefur
breytzt mjög hin síðari ár. Nú
starfa hjá fyrirtækinu um 610
menn, og þar af hafa um 330
starfað í 10 ár eða lengur, og
meðal starfsaldur allra starfs-
manna fyrirtækisins er rúm 10
Starfsmenn álversins fagna milljónasta áltonninu.
ár. Segir þetta sína sögu um, að
hér líki mönnum vel að vinna.
En margt fleira hefur áunnizt
á þessum 15 árum en að skapa
mikil verðmæti fyrir fyrirtæki,
starfsmenn og þjóðfélag. Reynsl-
an, sem starfsmenn hafa fengið
við nýjan iðnað, er mikils virði,
og þeir hafa átt frumkvæði að
tækninýjungum, sem teknar
hafa verið upp hjá öðrum fyrir-
tækjum í þessum iðnaði. Sam-
skipti okkar við önnur fyrirtæki
í öðrum löndum hafa leitt til
þess, að nú er litið á íslendinga
sem fullgilda í þessum iðnaði.
Þetta mun auðvelda uppbygg-
ingu iðnaðar í landinu í framtíð-
inni, til hagsældar fyrir þjóðina
alla.
í samskiptamálum stjórnenda
og starfsmanna ÍSAL hefur
grunnur verið lagður að mörgum
nýjungum á því sviði, sem hafa
orðið öðrum fyrirmynd, og einn-
ig leitt til nýrra löggjafarreglna.
Hjá því verður ekki komizt í
stóru fyrirtæki, að ágreiningur
verði um ýmis mál. Fram til
þessa hefur ávallt tekizt að leysa
slíkan ágreining farsællega, og
sú er von okkar, að svo verði
einnig í framtíðinni.
Aldrei reynir eins á starfs-
menn og þegar erfiðleikar steðja
að í rekstri eða utanaðkomandi
áhrif valda vandkvæðum. öll
slík próf hafa starfsmenn ÍSAL
staðizt með hinni mestu prýði.
Góð samskipti, farsæl lausn
ágreiningsmála og snögg við-
brögð við erfiðleikum hafa stuðl-
að að viðgangi fyrirtækisins og
þessum áfanga, sem nú hefur
náðst. Fyrir allt þetta vil ég
flytja starfsmönnum ÍSAL beztu
þakkir, svo og öðrum þeim, sem
hafa stuðlað að framgangi fyrir-
tækisins."
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
Aukatónleikar
í Háskólabíói fimmtudaginn 22. nóvember kl. 20.30.
Stjórnandi: Robert Henderson. Einsöngvari: Thomas Carey. Verkefni: Atriöi úr amerískum söngleikjum.
Aðgöngumiöar í Bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar og Lárusar Blöndal og ístóni, Freyjugötu 1.
Sinfóníuhljómsveit íslands.