Morgunblaðið - 16.11.1984, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984
17
Sjáifstæðir sjúkraþjálfarar:
„Viljum fá að verð-
leggja okkar vinnu sjálf‘
Komin er upp deila um launa-
greiAslur millí sjúkraþjálfara sem
starfa sjálfstætt annars vegar og
Tryggingastofnunar ríkisins og
Sjúkrasamlags Reykjavíkur hins
vegar. Telja sjúkraþjálfarar að þess-
ar stofnanir greiði sér ekki laun að
fullu fyrir hluta þeirrar vinnu sem
þeir inna af hendi.
„Hér eru um 12—13% félags-
manna okkar að ræða og málið
BANDARÍSK flugmálaynrvöld hafa
gefið út skrá yfir þær tegundir
hljóðdeyfa á flugvélahreyfla, sem
taldir eru fullnægja kröfum um há-
vaðamörk á flugvöllum. Flugleiðir,
sem fá undanþágu frá nýjum reglum
um hávaðamengun er taka eiga gildi
um áramót, munu kaupa hljóðdeyfa
á að minnsta kosti tvær þotur sínar
frá einum þeirra framleiðenda sem
yfirvöld vestra hafa viðurkennt, að
því er Leifur Magnússon, fram-
kvæmdastjóri hjá Flugleiðum, sagði
í gær.
snýst í raun um það, að sjúkra-
þjálfarar sem starfa sjálfstætt
vilja fá greitt samkvæmt þeim
taxta sem þeir setja upp, að þeim
sé treyst fyrir því að setja rétt
verð á sína þjónustu, en sjúkra-
samlögin ákveði ekki hvert verðið
á að vera,“ sagði Kristín Guð-
mundsdóttir, formaður Sjúkra-
þjálfarafélags íslands, í samtali
við blm. Mbl.
í októberhefti svissneska flug-
málatimaritsins Interavia er frétt
um að McDonnell Douglas-flug-
vélaverksmiðjurnar, sem m.a.
hafa smíðað Atlantshafsvélar
Flugleiða, hafi varað flugfélög við
að setja hljóðdeyfa á hreyfla
Douglas-véla sinna þar sem ekki
sé sannað að deyfarnir standist
þær kröfur, er bandarísk flug-
málayfirvöld muni gera. Leifur
Magnússon sagði að þessi viðvör-
un verksmiðjanna hafi verið send
út í bréfi á síðasta ári i framhaldi
„í samningum Sjúkrasamlags
Reykjavíkur og tryggingastofnun-
ar, sem jafnframt er umboðsaðili
fyrir sjúkrasamlögin úti á landi,
við Félag íslenskra sjúkraþjálfara,
eru fjórir taxtar. Fyrir þjónustu
við þá sjúklinga sem trygginga-
stofnun borgar 100% fyrir er
sjálfstæðum sjúkraþjálfurum
greitt samkvæmt taxta nr. 3. En
fyrir þjónustu við þá sjúklinga,
af yfirlýsingum forráðamanna
verksmiðjanna um að þeir myndu
ekki stuðla að framleiðslu flug-
véla, er ekki stæðust strangari
kröfur en gert var ráð fyrir við
framleiðslu hljóðdeyfa fyrr á
þessu ári. „Þetta er gömul frétt
hjá Interavia," sagði Leifur. „Að
sjálfsögðu kaupir ekkert flugfélag
hljóðdeyfa, sem ekki standast
ströngustu kröfur.“
sem borga sjálfir 40% gjaldsins,
hefur hefur Sjúkrasamlag Reykja-
víkur ákveðið að greiða aðeins
samkvæmt taxta nr. 2. og mér er
kunnugt um að sjúkrasamlögin
eru að samræma afstöðu sína í
þessum efnum," sagði Kristín.
„1 þessum lægri greiðslum er
ekki tekið tillit til þess tíma sem
sjúklingurinn er í meðferð, heldur
aðeins þess tíma, sem sjúkraþjálf-
arinn heldur í hendina á honum,
ef svo má að orði komast.
Það hefur áður gerst, að sjúkra-
þjálfarar hafa tekið við lægri
greiðslu en reikningar þeirra hafa
hljóðað upp á, en þar með er ekki
sagt að við sættum okkur við
þessa afgreiðslu mála til frambúð-
ar. Við höfum reyndar lengi óskað
eftir endurskoðun á samningi
okkar við fyrrgreinda aðila, en
hann var undirritaður 1980,“ sagði
Kristín Guðmundsdóttir. „En
óskir okkar um viðræður um
samninginn hafa ekki verið teknar
til greina."
Er deildarstjóri sjúkratrygg-
ingadeildar Tryggingastofnunar
ríkisins, Kristján Guðjónsson, var
inntur álits á ummælum for-
manns sjúkraþjálfarafélagsins
kvaðst hann kannast við málið og
yrði líkast til haldinn fundur um
það „innanhúss“ nk. fimmtudag.
„Það hefur orðið skyndileg
stökkbreyting á reikningum
sjúkraþjálfara og þeir eru allt í
einu farnir að nota dýrari taxta í
ríkara mæli en áður hefur verið,“
sagði Kristján. „En við sem þurf-
um að standa skil á greiðslum af
almannafé verðum að koma í veg
fyrir að verið sé að bruðla mc*
það.“
Basar Kven-
félags Hall-
grímskirkju
BASAR Kvenfélags Hallgrímskirkju
verður haldin í safnaðarheimili
kirkjunnar á morgun (laugardag) og
hefst kl. 14. Þar verður margt góðra
muna á boðstólum, svo sem verið
hefir á undanförnum árum. Fólk er
hvatt til að koma og gera góð kaup
og styrkja gott málefni.
Byggingu Hallgrímskirkju miðar
vel áfram um þessar mundir, og er
það von forsvarsmanna hennar, aö
smíðinni verði lokið á árinu 1986, á
tvö hundruð ára afmæli Reykjavík-
urborgar. Kvenfélag kirkjunnar
hefir í tímans rás lagt fram mikið fé
í byggingarsjóð kirkjunnar.
(Frétt frá Hallgrímskirkju.)
Hávaðatakmörk á flugvöllum í USA:
Aðeins keyptir hljóðdeyfar sem
standast ströngustu kröfur
Kirkjudagur Óháða
safnaðarins á sunnudag
SUNNUDAGINN 18. nóvember er
árlegur kirkjudagur Óháða safnað-
arins og hefst hann með guðsþjón-
ustu kl. 14.
Við messuna mun Jóhanna El-
ínborg Sveinsdóttir syngja ein-
söng og Jónas Þórir Dagbjartsson
leika einleik á fiðlu. Organisti er
Jónas Þórir. Safnaðarpresturinn
sr. Baldur Kristjánsson prédikar
og þjónar fyrir altari og Jónas
Þórir leikur á orgelið. Eftir messu
verða kaffiveitingar sem kvenfé-
lag safnaðarins sér um. Einnig
verður kvikmyndasýning fyrir
börn.
Óháði söfnuðurinn stendur nú á
vissum tímamótum, þar sem sr.
Emil Björnsson lét af þjónustu á
árinu, eftir 34 ára starf, og nýr
prestur tók við. Eins og áður eru
reglulegar messur annan hvern
sunnudag, en aðra sunnudaga eru
sérstakar barnamessur. Á þessu
ári hefur verið unnið að endurbót-
um á kirkjunni að innan og til
stendur að taka hana í gegn að
utan þegar komandi vetur linar
tök sín.
Velunnarar kirkjunnar eru
hvattir til að koma á sunnudaginn
og styrkja þannig söfnuðinn, en
Óháði söfnuðurinn er fríkirkju-
söfnuður, þ.e. ekki í neinum skipu-
lagslegum tengslum við þjóðkirkj-
una, en trúargrundvöllur sá sami.
Og að sjálfsögðu eru allir vel-
komnir eins og ævinlega.
Sr. Baldur Kristjánsson
Kirkjur á
landsbyggðinni
Messur á
sunnudag
EGILSSTAÐAKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11 og messa kl.
14. Eivind Fröen frá Noregi
prédikar. Sóknarprestur.
BÍLDUDALSKIRKJA: Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Umræðufund-
ur kl. 14 í skólanum. Umræðu-
efni: Skírnin. Sr. Dalla Þórð-
ardóttir.
KIRKJUHVOLSPRESTAKALL:
Sunnudagaskóli í Hábæjar-
kirkju kl. 10.30. Guðsþjónusta
í Kálfholtskirkju kl. 14. Guðs-
þjónusta í Árbæjarkirkju kl.
16. Jakob Ágúst Hjálmarsson.
VÍKURPRESTAKALL: Kirkju-
skóli í Vík á morgun, laugar-
dag, kl. 11. Samverustund
fyrir aldraða í félagsheimilinu
Eyrarlandi kl. 14. Guðsþjón-
usta sunnudag í Reyniskirkju
kl. 14. Aðalsafnaðarfundur
eftir messu. Sóknarprestur.
ISLENSKUR
HÚSBÚNAÐUR
Langholtsvegi 111 sími 686605
í stað þess að fara á tíu staði
þarftu nú aðeins að fara á einn stað til að sjá úrval
íslenskra húsgagna og húsbúnaðar.
íslenskur húsbúnaður sparar þér tíma og fyrirhöfn
og auðveldar þér val á íslenskum húsbúnaði
í háum gæðaflokki.
Aðeins 30% útborgun og eftirstöðvar lánaðar
í allt að sex mánuði.
Eftirtalin fyrirtæki eru aðilar að (slenskum húsbúnaði:
Álafoss, Axis, Epal, Gamla Kompaníið, Húsgagnaiðjan Hvolsvelli, Iðnaðardeild
Sambandsins, Málmsteypa Ámunda Sigurðssonar, Stálhúsgagnagerð Steinars,
Topphúsgögn (Smíðastofa Eyjólfs Eðvaldssonar) og Trésmiðjan Víðir.