Morgunblaðið - 16.11.1984, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984
Takið eftir
Vorum aö fá nýja sendingu af okkar
vinsælu Kínavörum. Verð viö allra
hæfi
Handmalaðir nálapuöar 36
Gleraugnahús 93
Applk. gestahandklæöi 98
Skrautdúkkur 349
Silkislæöur 407
Dömuskinnhanskar 598
Barnaskór 147
Barnanáttföt 429
Dömunáttföt 859
Dömu- og herrasloppar.
stuttir 702
Dömu- og herrasloppar, Síöir895
Opið á laugardögum
CHIMVÖEVe SJÓNVAL
Kirkjustræti 8 - Sími 22600
iwSmh
ímrmw
— 'v^, ' A r—<7~
^kwp
jimssgM
f&J1
-71^ //^»
Viltu rýfjy upp
stafsetninguna?
Mjög margir finna til óöryggis þegar
skrifa á bréf, útbúa skýrslu eða skrifa
fundargerð.
Margar og flóknar ritreglur þvælast fyrir
og eru til eintómra leiðinda - á meðan
viðkomandi hefur þær ekki á valdi sínu.
Þessu viljum við breyta. Við viljum auka
öryggi þitt gagnvart stafsetningunni og
um leið frelsi þitt til að tjá þig skriflega.
Þess vegna efnum við til
10 daga námskeiðs
í stafsetningu
dagana 26. nóvember - 9. desember.
Kennt verður frá kl. 16.00-18.00 alla virka daga.
Kennarar Kristín Jónsdóttir og Lilja Hilmarsdóttir.
Verð kr. 3.500.- (öll kennslugögn innifalin).
20% afsláttur fyrir félaga í Stjórnunarfélagi íslands.
BRALTIARHOUI4
Þátttaka tilkynnist eftir kL 13.00
í síma 10004-11109
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir JÓHÖNNU KRISTJÓNSDÓTTUR
Sikhar í flóttamannabúöum í Delhí.
Indland:
Á hvaða nótur verður slegið
þegar kosningabaráttan hefst?
Þó að kyrrð sé nú nokkurn veginn komin á í Indlandi um sinn, óttast
margir að lítið megi út af bera til að allt fari í bál og brand á ný með
hörmulegum afleiðingum. Rajiv Gandhi hefur þótt sýna stjórnkænsku
þessa fyrstu erfiðu daga, meðal annars í vali þeirra sem næstir honum
munu starfa. Það val virðist beinast að því að sem fulltrúar sem flestra
stétta og trúflokka fái að láta rödd sína hljóma — hvort svo sem á þá
rödd verður hlustað og eftir henni farið.
Erlendir fréttamenn furða
sig á því, hversu lítið hefur
verið sagt frá rannsókn morðs-
ins á Indiru Gandhi. Vitað er að
annar tilræðismannanna, Sat-
want Singh, er á lífi, og hann
mun hafa greint frá þvi við yfir-
heyrslur, að morðið væri aðeins
einn liður f víðtæku samsæri og
síðan ætti að koma röðin aö nú-
verandi forsætisráðherra. Lög-
reglan er sögð vera að leita að
þriðja manninum, sikha sem
gengur undir nafninu Giani.
Hann tók eið af Satwant Singh
og Batwant Singh um aö drepa
Indiru og son hennar. Giani
þessi er fylgismaður Jarnail
Singh Bhindranwale, leiðtoga
sikha-skæruliðanna í Punjab
sem féll í atlögunni á Gullna
musterið í Amritsar í júnímán-
uði. Talið er að Giani hafi farið
úr landi um það bil tíu dögum
fyrir morðið til að draga athygl-
ina frá sér og er að svo komnu
ekki vitað hvar hann er niður-
kominn.
Menn hafa einnig æskt skýr-
inga á því, hvernig það mátti
vera að hinn morðinginn, Bat-
want Singh, snerist á sveif með
hryðjuverkamönnum sikha.
Hann hafði verið öryggisvörður
Indiru í átta ár og var meðal
þeirra samstarfsmanna hennar í
öryggisvörzlunni, sem hún bar
mest traust til og sýndi honum
viðurkenningu sína í því að
hækka hann f tign, svo að hann
var kominn í innsta hring örygg-
issveitanna.
Þó er ekki vafi á að Rajiv
Gandhi muni krefjast þess að
málið verði upplýst. Sjálfur hef-
ur hann sagt, að hann treysti
lögreglu mæta vel til þess að
honum sé ljóst, að nú þurfi að
taka til hendinni svo að ind-
verska þjóðin splundrist ekki í
hatri og innbyrðis átökum eftir
morðið.
Rajiv Gandhi fór meðal ann-
ars um þau hverfi í Nýju og
Gömlu Delhí, sem hvað verst
urðu úti f ofsóknum hindúa á
Rajiv Gandhi
hendur sikhum eftir atburðinn
þann 31. október. Hann hefur
kunngert að ákveðið hafi verið
að greiða bætur fyrir og í ávörp-
um sfnum til þjóðarinnar hefur
hann ítrekað nú sfðustu daga, að
það sé meira en ósanngjarnt, það
sé beinlinis miskunnarlaust að
setja alla sikha undir einn hatt
og kenna þeim öllum um morðið.
Rajiv er einnig nauðsyn á að
sýna sikhum það í verki, að hann
meini þessi orð sín. Sikhar hafa
lengi verið áhrifamiklir á Ind-
landi, þótt þeir séu ekki nema
fáeinar milljónir af um 7—800
milljóna manna þjóð. Þeir hafa
verið aðsópsmiklir f viðskiptalíf-
inu og sihkar eru einnig sagðir
beztu bændur landsins og hafa
átt hvað drýgstan þátt í að rækt-
un blómstrar þar í fylkinu og
hefur farið langt í áttina til þess
að Indverjar séu sjálfum sér
nægir um undirstöðumatvæla-
tegundir.
Stjórnmálamenn á Vestur-
löndum segja auðvitað eins og
aðrir að Rajiv Gandhi sé ger-
samlega óskrifað blað og með
öllu sé óvíst, hvort hann nái því
markmiði sfnu að sameina Ind-
verja og bæta stöðu stétta og
hópa án þess það verði á kostnað
annarra stétta og hópa. Hins
vegar sögðu ýmsir stjórnmála-
menn, sem komu til Delhí að
vera við útför Indiru og ræddu
síðan við Gandhi, að hann hefði
virzt mun skörulegri og ákveðn-
ari í framkomu og tali en þeir
höfðu átt von á. Þá þykir það
jákvætt að Rajiv hefur ekki hik-
að við að gera mannabreytingar
í hinum ýmsu embættum, það er
kannski dálítið umdeilt sums
staðar, en þykir styrkleikamerki
engu að síður.
Eins og fram hefur komið f
fréttum ætlar Rajiv Gandhi að
efna til kosninga f landinu f des-
ember, um mánuði fyrr en fyrir-
hugað hafði verið. Stjórnar-
andstaðan sem hafði myndað
kosningabandalag, sérstaklega
gegn Indiru Gandhi, hefur á síð-
ustu vikum ekki haft sig að ráði
f frammi, af augljósum ástæð-
um. Þó er trúlegt að senn fari
menn að hugsa sé til hreyfings
og það verður án efa nokkrum
erfiðleikum bundið fyrir stjórn-
arandstöðuna að reka harða
kosningabaráttu gegn Rajiv
Gandhi. Mannorð hans er
óflekkað, hann nýtur samúðar
vegna fráfalls móður sinnar og
fyrir að þurfa nú að axla þyngri
byrðar en flestir. Hann er góður
ræðumaður og gæti sýnt á sér
ýmsar nýjar hliðar á næstunni
sem benda til að kannski hafi
það hreint ekki verið svo slæm
ráðstöfun að hann tæki við.
Maneka Gandhi, mágkona hans,
hefur að svo komnu ekki ítrekað
að hún muni bjóða sig fram i
sama kjördæmi og Rajiv. Fram
til þess tíma, að Indira var myrt,
hafði Maneka lýst því margsinn-
is yfir. Engum blandast hugur
um að sú ákvörðun var fremur
sprottin af hatri í garð tengda-
móðurinnar og með því að
klekkja á Rajiv myndi hún
klekkja á Indiru. Nú er Indira
ekki lengur. Þá er spurningin
hvað Maneka gerir og hvort hún
leitar eftir sáttum við tengda-
fjölskylduna. Það er einnig for-
vitnilegt að fylgjast með hvaða
áhrif Rama Rao muni hafa í
kosningabaráttunni. Og það
verður fróðlegt íhugunarefni
svona almennt, hvernig áróður
stjórnarandstaðan reynir að
reka gegn Rajiv Gandhi.
(Heimildir mj. Obeerrer, Indim Timen o.fl.)