Morgunblaðið - 16.11.1984, Síða 32
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984
31
◄
Emilía BJörg
Björnsdóttir
Þetta er ein af fyrstu
myndunum sem ég
tók af syni minum,
Kristni Birni, u.þ.b. 15 mln-
útna gömlum á Fæðingar-
deild Landspltalans. Það er
pabbinn, Sigfús Haraldsson,
sem fylgist áhugasamur með
mælingunni, en sonurinn
reyndist vera 51 sm.
Ragnar Th.
Sigurösson
Það hafði eitthvert smáslys orðið pegar ég smellti pessari
16 mynd af Hilmari Þórami á Sunnuborg '79. Var þá að
^ * koma úr vinnunni, með myndavélina á öxlinni, en yfirleitt
tek ég allar heimilismyndir á góöa Polaroid-myndavél. Persónu-
lega hef ég oft meira gaman af barnamyndum þar sem krakkarnir
eru ekki uppstilltir og skælbrosandi, eins og oft vill verða. g ■
Sæberg
Þetta er sá fjöl-
H skyldumeðlimur
^ * sem ég hef mynd-
að hvað mest i gegnum ár-
in, Margrét Þórðardóttir
systir min. Hún var 14 ára
þegar þessi mynd var tekin,
við húsarústir I Hafnarfirði
sumarið '83. Seinna var ég
i klukkutfma aö stækka
myndina upp 150x70 sm,
þar til ég var ánægður með
hana. Myndin endaði sfðan
sem jólagjöf til H H
fyrirsætunnar. 9 9
Friðþjófur
Helgason
H | Ég tók þessa mynd af kon-
9 9 unni, Guðfinnu Svav-
arsdóttur, með Þórdlsi Eik
og Helga Berg, haustið '82. Myndin
er tekin úti á svölum hjá okkur, en
þar hafði ég komið fyrir „smá-stúd-
lói“ og sett Ijóskastara inn I herbergi
krakkanna, þannig að þeir lýstu út á
svalirnar i gegnum glugga.