Morgunblaðið - 16.11.1984, Side 46

Morgunblaðið - 16.11.1984, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 Matthías Bjamason heilbrigðisráðherra: 3$ % ríkisútgjalda til heil- brigðis- og tryggingarmála Island er í hópi ríkja sem hafa hæst hlutfall opinberrar fjármögnunar um skattakerfi ÁriA 1965 var innan við fjórðungi heildarútgjalda fjárlaga, eða 24,9% varið til beilbrigðis- og tryggingarmála. Árið 1970 var hlutfallið komið upp í 31,7%. 1975 í 33,7%. Fimm árum síðar, þegar Alþýðubandalag var í ríkisstjórn, stendur hlutfallið enn í stað, er 33,4% í ár, 1984, er 38% heildarútgjalda fjárlaga varið til heilbrigðis- og tryggingarmála og svipað hlutfall stendur 1985, samkvKmt fjárlagadrögum. A þremur árum hefur hlutfall heilbrigðis- þjónustu af þjóðarframleiðslu aukizt úr 8% í 10% Skýringin er m.a. sam- dráttur þjóðarframleiðslu en ekki í heilbrigðisþjónustu. Framangreind efnis- atríði komu fram í þingreðu Matthíasar Bjarnarsonar í gær. Hvernig fjárhagsvand- inn var leystur fyrr á árum MATTHlAS BJARNASON, heil- brigðisráðherra, sagði að öll ríkis- útgjöld, til heilbrigðisþjónustu sem annarra þátta, kölluðu á skattheimtu, eða beinar greiðslur almennings fyrir þjónustuna. Flestir muna þá tíð þegar fjár- hagsvandi almannatryggingakerf- isins var leystur með persónulegri sérsköttun einstaklinga. • Fram til 1971 greiddu menn, til viðbótar venjulegum sköttum, sérgjöld til sjúkrasamlags og al- mannatrygginga, sem svarar ná- lægt 8.000 krónum á ári fyrir hvern fullorðinn mann. • Á þessum árum vóru, fyrir utan beinar greiðslur til lækna og fyrir lyf, innheimt sérstök trygginga- iðgjöld og aðeins þau námu um 35% af heildarútgjöldum til heil- brigðis- og tryggingarmála 1971. • I dag greiða menn engin slík sérstök iðgjöld vegna heilbrigðis- þjónustu eða almannatrygginga. Annars voru menn ýmsu vanir af stjórnarandstöðuflokkum, með- an þeir áttu aðild að rfkisstjórn- um. Þegar vinstri stjórnina vant- aði peninga 1978 skellti hún á afturvirkum viðbótarskatti. Hún lagði tvisvar á tekju- og eigna- skatt það ár — á einn og sama fyrra árs gjaldstofn, hækkaði tekju- og eignaskatt á haustmán- uðum um lítil 13,5% — og full- heimti af fólki fyrir áramót. Þetta var þegar Alþýðuflokkurinn skauzt inn í ríkisstjórn f rúmt ár. Hann skauzt að visu fljótt úr stjórninni aftur. Sfðan hefur slfk afturvirk gjaldheimta ekki verið reynd. ísland í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu HEILBRIGÐISRÁÐHERRA sagði Island komið i hóp þeirra landa hvar hlutfall opiberrar fjár- mögnunar gegnum skattakerfi er hæst, eða um 90%. I þessum hópi eru m.a. Bretland og Svfþjóð. Hjá ýmsum löndum, sem fremst standa í heilbrigðis- og velferðar- þjónustu, s.s. Hollandi, Kanada og V-Þýzkalandi, er þetta hlutfall mun lægra, eða um 80%. Það er mikilvægt að almenning- ur geri sér grein fyrir því að heil- brigðisþjónusta kostar stórfé. Beinar greiðslur fyrir þjónustu, þó í litlu sé, skapa útgjaldaaðhald. Ekki var vilji fyrir því í ríkis- stjórn, þrátt fyrir mikinn sam- drátt þjóðartekna, að minnka bætur almannatrygginga. • Þvert á móti vóru bæði barna- lífeyrir og mæðralaun hækkuð mjög verulega i tengslum kjara- samninga í upphafi þessa árs. • Fram til 1. nóvember sl. námu almennar hækkanir lffeyristrygg- inga 12,4% á árinu, meðan verka- mannlaun sem viðmiðunarlaun hækkuðu aðeins um 7,1%. • Til að mæta þeim vanda sem skertar þjóðartekjar skapa okkur öllum var ákveðið 1. marz sl. að hækka einstaka bótaflokka veru- lega umfram kaupgjaldshækkan- ir. Þannig hækkaði tekjutrygging og heimilisuppbót um 22,46%, barnalífeyrir (ásamt meðlögum) Matthías Bjarnason, heilbrigðis- ráðherra. um 62,38%, mæðra- og feðralaun hækkuðu einnig (um 146% fyrir 1 barn, 83% fyrir 2 börn og 62% fyrir þrjú börn). • Þar að auki hefur ríkisstjórnin með lögum um ráðstafanir f rfkis- fjármálum 1984 breytt tekju- og eignaskattsreglum barnafólki í hag. • Þessari stefnu verður haldið áfram sagði ráðherra. „Ég hefi falið tryggingaráði að breyta regl- um við útreikning skerðingar- ákvæða vegna örorkustyrks, þann- ig, að eingöngu verði miðað við eigin tekjur en ekki, eins og verið hefur, að tekjur maka séu lagðar við tekjur umsækjanda. Þessi breyting mun taka gildi frá og með næstu áramótum. Greiðsla sjúkra- kostnaðar NOKKRAR UMRÆÐUR hafa far- ið fram um, hvort einstaklingar skuli taka meiri þátt í greiðslu sjúkrakostnaðar en nú er. Það virðist ekki ósanngjarnt að fólk, sem fer úr fullri vinnu og á fullu kaupi til skammdvalar á sjúkra- húsi, greiði einhvern lítinn hluta kostnaðar. Frá þessu var þó horf- ið, m.a. vegna kostnaðar við inn- heimtu. Hinsvegar var samkomulag um að almenningur tæki meiri þátt f greiðslu sjúkrakostnaðar utan sjúkrahúsa og í lyfjakostnaði en verið hefur. Ekki má ganga of langt í þessu efni, en skynsamleg skattlagning stuðlar að aðhaldi f lyfjanotkun og aðhaldi í læknis- þjónustu. Tilgangurinn var og sá að beina neyzlu að ódýrari inn- lendum lyfjum. Sjúkrasamlög greiða hinsvegar að fullu lyf sem er nauðsynlegt að nota við ákveðnum langvinnum sjúkdómum. Þessi fullnaðar- greiðsla nær til 126 lyfja og 118 að auki, að fegnu samþykki trúnað- arlæknis. Sjúklingar með lang- vinna sjúkdóma ættu ekki að þurfa að greiða oftar fyrir lyf en 3—4 sinnum á ári. Flestir fá þó lyf sín ókeypis. Útgjöld Trygginga- stofnunar vegna lyfja 1983 vóru 493 m.kr., auk þess sem sjúkrahús greiddu lyf fyrir 145 m.kr. Þessi þáttur er til endurskoðun- ar. Sjálfsagt er breyta reglum, ef reynsla leiðir annmarka f ljós. En það er allra hagur að hyggilega sé haldið á stjórnun málaflokka, sem þungt vega í ríkisútgjöldum, það er almennri skattheimtu, um leið ög öryggi allra er tryggt. Stuttar þingfréttir Atvinnumál fatlaðra Geir Gunnarsson (Abl.) hef- ur beint til félagsmálaráðherra fyrirspurnum um fjölda fatl- aðra, sem fengið hafa störf hjá ríkinu á grundvelli ákvæðis í lögum frá 1983. Hann spyr m.a., hvort ráðherra vilji beita sér fyrir því að í öllum auglýs- ingum um störf hjá rfkinu verði athygli fatlaðra, sem endurhæfingar hafi notið, vak- in á rétti þeirra samkvæmt til- greindu lagaákvæði. Söluskattur felldur niöur af raforku til hitaveitna? Sverrir Sveinsson o.fl. þing- menn flytja tillögu til þings- ályktunar, sem feiur ríkis- stjórninni, ef samþykkt verður, að fella niður söluskatt af raf- orku til vatnsdælingar hita- veitna. I greinargerð segir að „mikill hluti af rekstrarkostn- aði hitaveitna sé fólgin í kaup- um á raforku til dælingar á vatni“. Bygging leiguíbúða Kristin Ástgeirsdóttir (Kvl.) flytur tillögu um að ríkis- stjórnin beiti sér þegar í stað fyrir átaki f byggingu leigu- húsnæðis. Verði varið 200 m.kr. árlega til þessa verkefnis næstu árin. Sami þingmaður flytur frumvarp til breytinga á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, þess efnis, að rýmka ákvæði um leiguíbúðir, sem nú miðast við námsmenn, aldraða og öryrkja, þannig að til fleiri nái. I greinargerð með fyrra mál- inu segir að hér á landi séu stórir hópar fólks sem þurfi að leigja sér húsnæði eða hreinl- ega vilji það heldur en að eyða mörgum árum i kaupphlaup við víxla og afborganir. PLUS Puls-Aid er fáanlegt sambyggt með ESAB Mig/Mag suðuvélum eða sem sjálfstæð eining á afriðla af gerðinni LAH, LAG, LAE eða Speeder Compact. Puls-Aid er mjög auðvelt tæki í notkun. Með Puls-Aid næst framúrskarandi árangur t.d. við suðu í ál. Sprautufrír Ijósbogi og áferðarfallegar suður í öllum stellingum. Puls-Aid gefur möguleika á að nota svera víra í þunnt efni í álsuðu, sem þýðir minni kostnað í vírakaupum og óþarfi að skipta um vírsverleika við suðu á mismunandi efnisþykktum. HEÐINN VÉLAVERSLUN, SEUAVEGI2 REYKJAVÍK, SÍMI 24260 „4 VkUl«l »1 [ í .!•» 1 ESAB LAH 315 P ESAB Pétur H. Iljarnason Markaðs- stjóri Hörpu PÉTUR Hafsteinn Bjarnason við- skiptafræðingur hefur verið ráðinn markaðsstjóri hjá Málningarverk- smiðjunni Hörpu hf. Pétur er 27 ára gamall. Hann lauk prófi frá viðskiptadeild Há- skóla íslands á sölu- og markaðs- rannsóknasviði árið 1983 og hefur síðan unnið sjálfstætt að mark- aðsathugunum og ráðgjöf. Eiginkona hans er Guðrún Guð- jónsdóttir hjúkrunarfræðingur. Þau eiga tvö börn. Hér er um að ræða nýtt starf hjá Hörpu hf. Markaðsstjórinn mun hafa allvíðtækt starfssvið, en hlutverk hans verður m.a. að fylgjast með þörfum markaðsins og bæta þjónustuna gagnvart viðskiptavinum Hörpu hf. Spenntir gikkir á Skaganum Akranen, 14. nóyember. Skagaleikflokkurinn i Akranesi frumsýndi 2. nóvember sl. franska gamanleikinn „Spenntir gikkir" eft- ir Rene de Obaldia I Bíóhöllinni á Akranesi. Þýðandi er Sveinn Einars- son og leikstjóri Guðrún Ás- mundsdóttir. Leikritið segir á gamansaman hátt frá lífi landnemafjölskyldu og baráttu hennar við herskáa indíána vestur { Ameríku. Það glymja við skothvellir og indiána- öskur, en söngur og tónlist setja líka svip á sýninguna, því Jónas Árnason samdi söngtexta og valdi lög við þá. Fjögurra manna hljómsveit flytur tónlistina undir stjórn Lárusar Sighvatssonar. Bjarni Þór Bjarnason teiknaði leikmynd og sá um smíði á henni. Með helstu hlutverk fara Kristján E. Jónsson, sem leikur John Em- ery Rockefeller, heimilisföðurinn, Gerður Rafnsdóttir er Caroline kona hans, og Guðjón Þ. Krist- jánsson leikur heimilisvininn, drykkfelldan lækni. Hlynur Eggertsson sér um lýs- ingu, en alls taka um 40 manns þátt í sýningunni. Húsfyllir var á frumsýningunni og var leikstjóra, Guðrúnu Asmundsdóttur, svo og Jónasi Árnasyni og öðrum þátt- takendum vel fagnað í lokin. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðraði leik- flokkinn með nærveru sinni á ein- ni sýningunni og lét svo ummælt að sýningu lokinni að sér þætti þetta sýna ákveðinn stórhug fyrir hönd byggðarlagsins þegar tækist að koma upp leikverki sem þessu á Akranesi. Þess má geta að Leikfélag Reykjavíkur setti þetta leikrit upp fyrir nokkrum árum undir heitinu Indíánaleikur. Þú sralar lestrarþörf dagsins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.