Morgunblaðið - 16.11.1984, Side 48

Morgunblaðið - 16.11.1984, Side 48
- 48 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 Sigþrúður Guðjóns- dóttir — Minning Fædd 15. desember 1908 Dáin 10. nóvember 1984 Góð, elskuleg og merkileg kona er okkur Hringskonum horfin í bili. Ég gleymi aldrei okkar fyrstu kynnum er ég ung og óreynd lenti fyrir einhvers konar tilviljun í þessum einstæða og samheldna fé- lagsskap. Síðan eru liðin ein 35 ár. Sig- -þrúður tók mér frá öndverðu sem eins konar dóttur, en um ieið sem félaga og samstarfsmanni. Síðar þótti mér sem við værum eðlis- lægar vinkonur, sama og ég fann oftlega af hennar hálfu. f öllu okkar fjölþætta starfi inn- an Hringsins, hvort sem var í fjár- öflunarnefnd, sem tíðast var erfið- ust eða skemmtinefnd, þar sem rikti mikil katína, var Sigþrúður jafnan hinn sami ljúfi, atorku- sami og virðulegi leiðtogi okkar Hringskvenna. Ég átti því láni að fagna að vinna með henni sem ritari Hringsins um nokkurt skeið. Þá kynntist ég henni bezt, bæði sem formanni og konu. Þau ár eru mér dýrmæt í minningunni. Hún var einstaklega hlý kona og góð. Heimili hennar og manns henn- ar ólafs var sérstaklega fallegt og bar vott um sígilda menningu. Gestrisni þeirra var einstök. En það var ekki ríkast í huga mér hinar veglegu veraldlegu veitingar er ég gekk þaðan, heldur hvað þau höfðu veitt mér af andlegum kær- leiksveitingum. Af hjartans þökk og með virð- ingu kveð ég vinkonu mína Sig- þrúði með söknuði. Sonum hennar og þeirra fjöl- skyldum votta ég samúð mína. Bryndís Jakobsdóttir Enginn fær flúið örlög sín. Oft kemur dauðinn sem vinur í neyð, þegar læknavísindin standa van- máttug gegn sjúkdómum. Þannig var því varið með vinkonu mína, Sigþrúði Guðjónsdóttur, sem and- aðis 10. nóv. sl. á Landakotsspít- ala, eftir tveggja vikna legu þar. Við Dúa, eins og hún var kölluð meðal vina, áttum í mörg ár sam- leið við félagsstörf í Kvenfélaginu Hringnum. Þar starfaði hún af mikilli elju og dugnaði í rúm þrjá- tíu ár. Snemma hlóðust á hana ýmis ábyrgðarstörf innan félags- ins. Hún vann í fjáröflunarnefnd, var í varastjórn í 4 ár, og for- mannsstarfi gegndi hún í 10 ár. Þá baðst hún undan endurkjöri. Það féll í minn hlut að taka við því starfi eftir hana. Ég á margar mætar minningar frá samstarfi okkar Dúu. ÖIl kynni mín af henni voru á einn veg. Hún var elskuleg, heilsteypt og samvinnuþýð kona, sem alltaf vildi láta gott af sér leiða, sönn friðsemdarmanneskja. Það voru ekki stóryrðin eða illindi frá henn- ar vörum. Dúa var mjög félags- lynd og hafði mikinn áhuga á líkn- armálum. Velferð Hringsins og Barnaspítalans voru hennar hjartans áhugamál. Hún var fé- lagi í Oddfellow-stúkunni Berg- þóru nr. 1 og í varastjórn Banda- lags kvenna. Hún var gerð að heið- ursfélaga Hringsins á 70 ára af- mæli félagsins 1974. { einkalífi sínu var Dúa mikil lánsmanneskja. Hún eignaðist góðan og umhyggjusaman eigin- mann, ólaf H. Jónsson forstjóra Alliance hf., sem látinn var nokkr- um árum á undan henni. Þau eign- uðust 4 syni, sem allir lifa móður sína. Samband þeirra og tengda- dætranna fjögurra við móður og tengdamóður tel ég að hafi verið einstaklega gott. Dúa hafði því á orði við mig hversu miklu barna- láni hún ætti að fagna. Á 75 ára afmæli sínu, 15. des- ember sl., bauð Dúa til sín vinum og kunningjum. Þar var að venju veitt af mikilli rausn, afmælis- barnið lék á alls oddi, falleg og reisnarleg, eins og drottning i ríki sínu, umvafin elsku og umhyggju sona og tengdadætra. Hún bar það ekki með sér þá að svo skammt ætti hún eftir ólifað. Ef til vill hefur hún þó haft hugboð um að hverju stefndi. Hún sagði við mig: „Maður veit aldrei hvaða afmæl- isdagur verður manns síðasti." Við Hringskonur allar, sem vor- um svo lánsamar að kynnast Dúu og starfa náið með henni, minn- umst hennar með virðingu og söknuði. Ég sendi sonum hennar og fjölskyldum þeirra, svo og bróður hennar, dr. Oddi Guðjóns- syni og hans fjölskyldu innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minn- ing Sigþrúðar Guðjónsdóttur. Kagnheiður Einarsdóttir f dag kveðjum við Hringskonur fyrrverandi formann okkar, fé- lagskonu sem stóð í forystu Kven- félagsins Hringsins um áratuga skeið. Hún var ung að árum er hún gekk í Hringinn og alltaf ung i anda þar til yfir lauk. Dúu þótti vænt um „félagið sitt“ eins og hún nefndi Hringinn. Hún var friðarboði, kona sem alltaf lagði gott til allra mála, og kom fram fyrir hönd Hringsins með miklum sóma á sinn elskulega og dömulega hátt. Mér finnst félagið okkar fátækara án Dúu. í einkalífi var Dúa mjög ham- ingjusöm. Hún sagði mér sjálf að hún hefði átt skemmtilega æsku á Bergstaðastrætinu í faðmi fjöl- skyldu, þar sem fólki þótti vænt hverju um annað. Eftir nám í Kvennaskólanum í Reykjavík dvaldi hún 2 ár i Þýskalandi og stundaði píanónám. 22. september 1931 giftist Sig- þrúður Ólafi H. Jónssyni forstjóra útgerðarfyrirtækisins Alliance hf. Þar steig hún gæfuspor, þau glæstu hjón byggðu sér bæ og eignuðust 4 mannvænlega syni. Synir hennar og tengdadætur hjálpuðu og sýndu móður sinni einstaka umhyggju, sem hún var mjög þakklát fyrir alla tíð. { félagsstarfi og á ferðalögum kynnist maður fólki vel, ég átti þvi láni að fagna að fá að njóta sam- veru Sigþrúðar á slikum stundum. ÖU hennar framkoma einkenndist af prúðmennsku og hógværð. Kannski man ég Dúu best þegar hún opnaði Barnaspítala Hrings- ins fyrir 19 árum. Lítillát, örlítið feimin, en samt eins og drottning. Þannig lifir hún í mínum huga. Guð blessi minningu mætrar konu. Sigríóur G. Johnson, formaður Hringsins. Frú Sigþrúður Guðjónsdóttir, Flókagötu 33, hefur kvatt sitt jarðvistarsvið og gengið á vit feðra sinna. Sigþrúður fæddist á Bergstöðum við Bergstaðastræti 6 hér í borg þann 15. desember 1908. Foreldrar hennar voru þau önd- vegishjónin María Guðmundsdótt- ir frá Bergstöðum og Guðjón Gamalíusson múrarameistari. Ólst Sigþrúður upp á Bergstöðum við gott atlæti ásamt tveimur bræðrum sínum, þeim Guðmundi arkitekt, sem nú er látinn, og dr. Oddi, sem einn er á lifi þeirra systkina. Eftir fermingu hóf Sig- þrúður nám í Kvennaskólanum 1 Reykjavík, undir stjórn hinnar mætu skólastýru frk. Ingibjargar H. Bjarnason, og lauk þaðan prófi með ágætiseinkun. Stundaði hún jafnframt nám í píanóleik, en síð- an hélt hún til Kiel í Þýskalandi til framhaldsnáms, það var árið 1927, og lauk þaðan prófi f tón- fræðum og píanóleik árið 1930. Mér hefur verið tjáð að þegar hún kom heim frá Þýskalandi hafi hún verið svo falleg og fáguð stúlka, að hún hafi borið af öðrum stúlkum og verið prýði í hverjum meyjar- hópi. Sigþrúður giftist þann 22. september 1931 ólafi Helga Jóns- syni, þá ungum lögfræðingi, sfðar forstjóra Alliance hf., einkasyni þeirra mætu hjóna Jóns ólafsson- ar bankastjóra og alþingismanns og konu hans Þóru Halldórsdótt- ur, Stofnuðu þau Sigþrúður og Ólafur heimili sitt við sömu götu og hún fæddist við, á Bergstaða- stræti 67, og seinna byggðu þau sér hús við Flókagötu 33, og þar var heimili þeirra til enda jarð- vistar. Þau hjónin eignuðust 4 syni, sem allir eru efnismenn, gift- ir og hafa eignast börn. Sigþrúður var mikil móðir, góð eiginkona og amma, sem synir hennar, eigin- maður og ömmubörn gátu verið hreykin af og reitt sig á f bliðu og stríðu, og var hún sú manngerð er gleymist ei þeim er voru svo lán- samir að kynnast henni og eiga við hana samskipti. Hvort það var að starfa með henni í Kvenfélagi Barnaspítala Hringsins, sem hún var sjálfkjörin til forystu hjá, eða Oddfellow-reglunni, alls staðar var hún til góðs, hin vökula gæða- t Bróöir okkar, GUÐMUNDUR HELGASON, Túngötu 18, Kaflavfk, varö bráökvaddur aö heimili sinu 14. þ.m. Matthfas Helgason, Haukur Helgason, Ólafur Helgason, Jóhanna Helgadóttir, Marfa Helgadóttir, Sígurlaug Helgadóttir. t Konan mfn. INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Framnesvegi 50, lést I Borgarspitalanum mlövikudaginn 14. nóvember. Fyrir mina hönd og barna minna, Jón H. Grfmsson. t HALLDÓR JÚLÍUSSON, Arnarholti, lést 7. nóvember. Útförin veröur gerð frá Fossvogskapellu nóvember kl. 13.30 miövikudaginn 21. Aóstandendur. Bróöir okkar. t ÁRS/ELL ÓLAFSSON fré Mýrarhúsum, veröur jarösunginn frá Akraneskirkju laugardaginn 17. nóvember kl. 11.30. Þeim sem vildu minnast hans er vinsamlega bent á dvalarheimiliö Höföa. Fyrir hönd systkina, Halldóra Ólafsdóttir. t Útför ÞORLEIFS ÓLAFS GUDMUNDSSONAR fré Bjarnarhöfn, Grænuhlfö 18, fer fram frá Fossvogskapellu þriöjudaginn 20. nóvember kl. 13.30. Ólavfa Jónsdóttir, Bergþóra Eirfksdóttir. t Alúöarþakklr fyrir auösýnda samúö og vlnarhug viö andlát og útför eiginmanns mins, fööur okkar og afa, TÓMASAR S. JÓNSSONAR, Laufvangi 16, Hafnarfiröi. Gróa Þorsteinsdóttir, Elfn Tómasdóttir, Gunnar Jónasson, Sigurlfn Tómasdóttir, Egill Bjarnason og barnabörn. t Alúöarþakkir fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför ELÍSABETAR MAGNÚSDÓTTUR, Tangagötu 9, Stykkishólmi. Kristfn S. Björnsdóttir, Guórún Björnsdóttir, Elsa Björnsdóttir, Viöar Björnsson, Hildimundur Björnsson. Benedikt Lérusson, Sveinn Davfösson, Jóhann Hannesson, Kristfn Siguröardóttir, t Þökkum auösýnda samúö viö andlát og jaröarför VALDIMARS KRISTJÁNSSONAR vélvirkja. Steinunn Valdimarsdóttir, Emil Valdimarsson, Brynjar Valdimarsson, Bolli Valdimarsson, Kjartan Valdimarsson, Kristjén Valdimarsson, Ingibjörg Árnadóftir. t Eiginkona min og móöir okkar, GUÐRÍDUR BÁRDARDÓTTIR fré Jórvfk f Alftaveri, veröur jarösungin frá Þykkvabæjarklaustursklrkju laugardaginn 17. nóveÁiber kl. 14.00. Guðmann ísleifsson og börn. Lokað i dag, föstudaginn 16. nóvember, vegna jarðarfarar SIGÞRÚÐAR GUÐJÓNSDÓTTUR. Málflutningsskrifstofa, Jón Ólafsson hrl., Skúli Pálsson hrl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.