Morgunblaðið - 16.11.1984, Side 52

Morgunblaðið - 16.11.1984, Side 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 16. NÓVEMBER 1984 fólk í fréttum Jimmy Carter, fyrrum Bandaríkjaforseti, hefur látið lítið að sér kveða í pólitík- inni síðan hann lét af embætti. Um tíma vann hann að því að rita endurminningar sínar og sinnti svo þess utan búskapnum þvi að hann er jarðhnetubóndi í Georgíuríki eins og kunnugt er. Seint í sumar og í haust var Jimmy Carter ekki að finna á hnetuökrunum i Georgíu heldur í gömlu húsi i niðurníddu hverfi i New York-borg. Þar vann hann ásamt öðru fólki á vegum kristi- legra samtaka, sem kallast „Húsnæði fyrir heimilislausa" og beita sér fyrir ódýrum hús- byggingum fyrir fátækt fólk í Bandarikjunum og 11 öðrum löndum. „Við Rosalynn vorum að velta þvi fyrir okkur að fara i sumar- frí til Jómfrúreyja, en svo ákváðum við, að það væri betra að verja þvi á þennan hátt. Við sjáum heldur ekki eftir því. Þetta hefur verið eftirminni- legasti timi i lífi mínu,“ sagði Carter þegar hann var tekinn tali við vinnuna. Carter mætti fyrsta morgun- inn með öryggishjálm og tré- smiðssvuntu og tilbúinn i slag- inn, en það ætlaði þó ekki að ganga vel fyrir hann að koma sér að verki. Húsið, sem verið var að gera upp, er í hverfi þar sem svertingjar og fólk af spænskum ættum er fjölmennt, og söfnuð- ust margir fyrir utan og hrópuðu „Jimmy, Jimmy", þannig að Carter mátti til með að heilsa upp á fólkið og gefa nokkrar eig- inhandaráritanir. Carter gerði þó öllum ljóst, að hann væri ekki kominn til að tala, heldur vinna og fyrr en varði var hann kominn með hamar í hönd og rafmagnssög og byrjaður af fullum krafti við að skipta um fúna bita, leggja i gólf og gera við þakið. Að þessu vann hann af slfkri fagmennsku að allir undruðust og vissu þó flest- ir, að Carter er hinn mesti völ- undur i höndunum. Rosalynn, kona hans, lagði líka gjörva hönd að verki, keyrði hjólbörur, bar inn borð og sópaði gólfin þegar henni fannst ekki gengið nógu vel um vinnustað- inn. Binn eftirmiðdaginn, þegar vinnufélagar Carters voru enn með hamrana á lofti, gekk hann nokkuð frá húsinu og hitti þar gamla konu, sem stumraði yfir svörtum potti. Þar undir berum himni var hún að elda sér mat, egg og maískorn. Fimm mánuð- um áður, þegar Carter kom til að kynna sér fyrirhugaðar fram- kvæmdir við húsið, hafði hann hitt þessa sömu konu og rann honum þá til rifja hlutskipti hennar og annars gamals fólks i fátækrahverfum stórborganna, fólks, sem hvergi á höfði sínu að halla nema í yfirgefnum og hálf- hrundum húsum. Framlag Carters til þessara mála má meta í öðru en hamars- höggum og hefluðum borðum. Það var augljóst, að íbúunum í hverfinu fannst mikið til um, að fyrrverandi forseti skyldi vilja leggja þeim lið á þennan hátt og eygðu í því nokkurn vonarneista. „Þetta er dásamlegt," sagði einn íbúanna, Aron Williams, en hans fólk hefur búið í hverfinu í áratugi. „Þegar þessu verki er lokið veit ég að eitthvað gerist. Ég veit ekki hvað, bara að það verður eitthvað dásamlegt.“ FRANK ZAPPA AÐ FARA AF STAÐ AFTUR Myndin er ekki af einum Marx- bræðranna eins og ætla mætti heldur er hér á ferðinni sá nafntogaði maður Frank Zappa. Fyrir nokkru efndi hann til mikillar veislu á Kam- ikaze-klúbbnum í New York og hélt þar hátíð- legt 20 ára afmæli sitt sem rokktónlistar- maður. Zappa hefur raunar verið alveg að- gerðarlaus síðustu tvö árin en nú er hann sem sagt að fara af stað aftur með endur- nýjuðum krafti. LÁNAÐI LINDU LEGGINA SÍNA JIMMY CARTER í BYGGINGAVINNU Víðar hægt að vinna vel en í Hvíta húsinu Einn vinnufólaga Carters fékk sór dálitinn blund aó vinnu lokinni en Carter notaði tímann til aö kíkja í blöðin. Carter heilsar hór upp ó heimilislausa konu en hlutskipti hennar átti ekki minnstan þótt í að hann gerðist sjólfboðaliöi ó vegum samtakanna „Húsnssði fyrir heimilislausa". Um miðjan september sl. var farið að sýna í Bandríkjun- um nýjan sjónvarpsþátt, sem „Glitter" heitir og fjallar um blaðamenn og annað starfslið á samnefndu tímariti. Með aðalhlut- verkið fer Linda Evans, sem gert hefur garðinn frægan í „Dynasty“-þáttunum. Linda er hin föngulegasta kona en þrátt fyrir það vildu áhrofendur ekki trúa því, að það væri alltaf hún sjálf sem sæist í myndinni. Spunnust út af þessu miklar deilur og loksins sáu framleiðendur sig tilneydda til að upplýsa málið. Ahorfendur höfðu rétt fyrir sér, þegar aðeins sást i leggi Lindu fékk hún þá lán- aða hjá Önnu Leight London og einu sinni fékk hún lánaða í heilu lagi unga stúlku að nafni Quin Kessler, sem þykir líkjast Lindu mjög mikið. „Ég er leggjalöng og falleg og ekkert lík Lindu. Hún er að vísu laglegasta kona, en min fótastærð er 4, hennar líklega 8 eða 8Vfe,“ sagði London í lítillæti sinu þegar hún var spurð um leggjaleikinn i myndinni. Quin Kessler kom fram sem Linda en Anna Leigh London lól sér nægja að lóna henni leggina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.