Morgunblaðið - 17.11.1984, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1984
ÚTVARP / S JÓN VARP
Rhoda
Fimmtudagsleikritið að þessu
sinni nefndist: „Aí illri rót“,
sem er þýðing Karls Á. Úlfssonar
á heiti leikverksins: The Bad Seed,
er sá ágæti bandaríski leikhöfund-
ur Maxwell Anderson (1888—1959)
samdi 1954. Eins og heitið gefur til
kynna er hér á ferðinni spennu-
verk. Segir verkið frá lítilli stúlku,
Thodu Pennmark, er virðist hafa
þegið í arf ríka glæpahneigð. Nóg
um það, ég ætla ekki að eyða hér
dýrmætu plássi í að rekja efnis-
þráð þessa ágæta verks, sem í
meðförum leiklistardeildarinnar
öðlaðist nýja og dýpri merkingu.
En þeir hjá leiklistardeildinni
höfðu verið svo hugulsamir, að
senda fjölmiðlarýninum eintak af
þýðingu Karls Ágústs. Kann ég
þeim bestu þakkir fyrir sendi-
nguna, þótt hún hefði nú mátt
berast fyrr um bréfalúguna.
Eins og þau
gömlu góðu . . .
Hvað um það, texti þessa ágæta
verks Andersons öðlaðist einsog
ég sagði hér fyrr „nýja og dýpri
merkingu", þá leikarar höfðu farið
um hann höndum undir leiðsögn
Kjartans Ragnarssonar. Tek ég
undir með áköfum útvarpshlust-
anda er andvarpaði að lokinni út-
sendingu fimmtudagsieikritsins:
Þetta er bara eins og gömlu góðu
fimmtudagsleikritin. Sá hitti al-
deilis naglann á höfuðið. 1 það
minnsta varð fjölmiðlagagnrýn-
andanum hugsað þessa kvöldstund
til þeirra gömlu góðu daga, er lítill
drengur sat uppvið Philips-
lampatæki, í þröngum firði milli
hárra fjalla, og mátti ekki missa
af einu orði af munni leikaranna.
Grænleit ljóstýra tækisins varp-
aði duiarfullri birtu á heimilis-
fólkið og ekki minnkaði spennan
við stöðugt ískur og hvískur er-
lendra útvarpsstöðva, er stundum
skutu framandi orðum inn í sam-
töl þeirra Rúriks, Vals og
Ævars...
Hljómbotn
reynslunnar. . .
Það heyrðist að vísu ekki hið
minnsta ískur í „hljóðgerfluðu"
hæfí-tæki fjölmiðlarýnisins
fyrrgreint fimmtudagskveld, en
það kom ekki að sök; „gamla góða
stemmningin ríkti“, ekki síst
vegna fimiegrar snörunar Karls
Ágústs á áhrifamiklum og leik-
rænum texta Andersons. Ekki
spillti leikstjórn Kjartans Ragn-
arssonar, sem gætti þess að tak-
marka áhrifahljóð (er meðal ann-
ars komu úr smiðju Magnúsar B.
Jóhannssonar) þannig að textinn
nyti sín, hreinn og ómengaður.
Þegar svo er háttað Ieikstjórn og
leikgerð, sem Karl Ágúst bar hér
ábyrgð á, er það rödd leikarans
sem ber uppi spennuna. Þar skipta
hárfín blæbrigði og áherslur höf-
uðmáli. Sveigjanleiki raddarinnar
og sú tilfinning er liggur að baki
hverju orði, hverri setningu skipt-
ir líka miklu. En það eru ekki bara
orðin og setningarnar, er flóa af
munni leikaranna er skipta hér
máli, þögnin er oft mikill áhrifa-
valdur f útvarpsleikriti. Þar er
Rúrik Haraldsson meistari. En
hann var á fimmtudagskveldið var
í hlutverki Bravo, afa Rhodu. Er-
lingur Gíslason sem fjölskylduvin-
urinn Lasker náði og býsna langt
með lágspili raddarinnar. Hinir
yngri úr hópi ieikara eiga flestir
hverjir margt ólært í þessu efni.
Rödd þeirra hefir eigi öðlast þann
hljómbotn er reynslan ein smíðar.
Þó náði Viðar Eggertsson hér að
aðlaga rödd sína hlutverki dusil-
mennisins Le Roy, og ekki má
gleyma önnu Sólveigu Þorsteins-
dóttur sem lifði sig fullkomlega
inní hlutverk Kristínar, mömmu
hinna ógæfusömu Rhodu Penn-
mark.
ólafur M. Jóhannesson
Marléne Jobert leikur eitt
aðalhlutverk í kvikmynd
sjónvarpsins í kvöld, Bófi,
en besta skinn.
Bófi,
en besta
skinn
^■■^1 Sjónvarpið sýn-
OQ 00 *r > kvöld tvær
bíómyndir, þá
fyrri kl. 21.10 og nefnist
hún Norma Rae. Hún
fjallar um einstæða móð-
ur, sem vinnur í spuna-
verksmiðju í smábæ í
Suðurríkjum Bandaríkj-
anna. Aðkomumaður
hyggst setja á fót verka-
lýðsfélag þar og verður þá
uppi fótur og fit í bænum.
Norma verður ein fárra til
að leggja málstaðnum lið,
en hún á eftir að lenda í
ýmsum erfiðleikum vegna
þeirrar ákvörðunar sinn-
ar. Með hlutverk Normu
fer Sally Fields. Síðari
mynd sjónvarpsins hefst
kl. 23.00 og er það
svissnesk-frönsk bíómynd
frá 1974, sem nefnist
„Bófi, en besta skinn“.
Með aðalhlutverk fara
Marlené Jobert, Gérard
Depardieu og Dominique
Labourier. Myndin fjallar
um ungan mann, sem lifir
Ijúfu fjölskyldulífi, en á
sér annað líf sem grímu-
klæddur bófi. Hann eign-
ast vinkonu og lifir því
tvöföldu lífi á allan hátt.
Þýðandi myndarinnar er
Ólöf Pétursdóttir, en
myndin tekur tæpa tvo
klukkutíma i sýningu.
í sælureit
■■ 1 kvöld sýnir
40 sjónvarpið ann-
an þátt breska
gamanmyndaflokksins i
sælureit. í síðasta þætti
gerðist það helst, að
Good-hjónin ákváðu að
reyna að breyta lífsstíl
sínum svo um munaði.
Þau hyggjast lifa á eigin
framleiðslu og Tom Good
lætur hendur standa fram
úr ermum við að plægja
upp grasflötina þeirra, á
meðan Barbara Good sér
um að útvega hænsni og
geitur og annað, sem
nauðsynlegt þykir til
búskaparins. Næstu þætt-
ir fjalla um hvernig slíkur
búskapur gengur inni í
miðri Lundúnaborg, en
svo mikið er víst, að ná-
grannar Good-hjónanna,
Leadbetter-hjónin, eru
furðu lostin yfir tiltæk-
inu. Með aðalhlutverk í
þáttum þessum fara Rich-
ard Brier3 og Felicity
Kendall, en þýðingu ann-
ast Jóhanna Þráinsdóttir.
Richard Briers og Felicity
Kendall leika Good-hjónin,
Tom og Barböru, sem ætla
sér aó hverfa aftur til nátt-
úrunnar.
Tónleikar Hamrahlíðarkórsins
■I Eins og fram
00 hefur komið í
fréttum vann
Hamrahlíðarkórinn, und-
ir stjórn Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur, 1. verðlaun í
flokki æskukóra í 19. al-
þjóðlegri keppni Evrópu-
sambands útvarpsstöðva,
„Let the people sing“, sem
haldin var í Köln í vor. Af
þessu tilefni mun Ríkis-
útvarpið, samstarfsaðili
útvarpsstöðvanna í Evr-
ópu, efna til hátíðartón-
leika í Hátíðarsal
Menntaskólans við
Hamrahlíð kl. 17 í dag og
ÚTVARP
verður útvarpað beint frá
tónleikum þessum. For-
maður alþjóðlegu dóm-
nefndarinnar, Sverre
Lind, afhendir þar
Hamrahlíðarkórnum og
stjórnanda hans sigur-
verðlaunin. Verðlaunum
þessum fylgir einnig boð
um að taka þátt i alþjóð-
legri keppni æskukóra,
sem haldin verður í Hann-
over í maí á næsta ári.
Tónleikarnir í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð í
dag standa í eina klukku-
stund og tíu mínútum bet-
ur.
L4UG4RD4GUR
17. nóvember
74» Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. Tónleikar. Þulur velur
og kynnir. 7.25 Leikfimi.
Tónleikar.
84» Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veöurfregnir. Morgunorð —
Halla KJartansdóttir talar.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.).
Tónleikar.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 Oskalög sjúklinga. Helga
Þ. Stephensen kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.)
Óskalög sjúklinga, frh.
11.20 Eitthvaö fyrir alla
Siguröur Helgason stjórnar
þætti fyrir börn.
124» Dagskrá. Tónleikar. TiF
kynningar.
12J0 Fréttir. 12.45 Veöur-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.40 Iþróttaþáttur
Umsjón: Hermann Gunn-
arsson.
144» Hér og nú
Fréttaskýringaþáttur I viku-
lokin.
15.15 Or blöndukútnum
— Sverrir Páll Erlendsson.
(RÚVAK)
164» Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
1620 íslenskt mál
Guörún Kvaran sér um þátt-
inn.
16.30 Bókaþáttur
Umsjón: Njöröur P. Njarðvik.
174» .Let the People Sing"
1984
14.45 Enska knattspyrnan
Watford — Sheffield
Wednesday
Bein útsending frá
14.55—16.45. Umsjónar-
maöur Bjarni Felixson.
17.15 Hildur
Þriöji þáttur. Endursýning.
Dönskunámskeiö I llu þátt-
um.
17.40 Iþróttir.
Umsjónarmaöur Ingólfur
Hannesson.
19.25 Bróöir minn Ljónshjarta
Annar þáttur. Sænskur
framhaldsmyndaflokkur I
fimm þáttum, gerður eftir
samnefndri 9ögu eftir Astrid
Lindgren. Þýöandi Jóhanna
Jóhannsdóttir.
Hátlöartónleikar EBU I
Menntaskólanum viö
Hamrahllð. Formaöur al-
þjóölegu dómnefndarinnar,
Sverre Lind, afhendir
Hamrahllöarkórnum verö-
launin I samkeppni æsku-
kóra 1984. (Beint útvarp.)
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
L4UG4RD4GUR
17. nóvember
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 I sælureit
Annar þáttur. Breskur gam-
anmyndaflokkur I sjö þátt-
um. Aöalhlutverk. Richard
Briers og Felicity Kendall.
Þýöandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
21.10 Norma Rae
Bandarlsk blómynd frá
1979. Leikstjóri Martin Ritt.
Aöalhlutverk: Sally Field,
Ron Leibman, Beau Bridges
og Pat Hingle. Söguhetjan er
einstæð móðir sem vinnur I
spunaverksmiöju I smábæ I
Suöurrikjum Ðandarlkjanna.
Þar verður uppi fótur og fit
1645 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöidsins.
194» Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 .Heims um ból á pásk-
um“
Stefán Jónsson flytur slöari
frásöguþátt sinn.
20.00 Utvarpssaga barnanna:
„Ævintýri úr Eyjum" eftir Jón
þegar aökomumaöur hyggst
gangast fyrir stofnun verka-
lýösfélags. Norma verður ein
fárra til aö leggja málstaön-
um liö. Þýðandi Ragna
Ragnars.
23.00 Bófi er besta skinn
(Pas si méchant gue ca)
Svissnesk-frönsk blómynd
frá 1974. Leikstjóri Claude
Goretta. Aöalhlutverk: Marl-
éne Jobert, Gérard Depardi-
eu og Dominique Labourier.
Ungur maður lifir tvöföldu llfi,
annars vegar sem Ijúfur fjöl-
skyldufaöir en hins vegar
sem grlmuklæddur ræningi.
Þýöandi Ólöf Pétursdóttir.
00.55 Dagskrárlok.
Sveinsson. Gunnar Stefáns-
son les þýöingu Freysteins
Gunnarssonar (4).
20.20 „Carmen", stuttur út-
dráttur
Maria Callas, Nicolai Gedda
o.fl. syngja með kór og
hljómsveit frönsku óperunn-
ar I Paris; Georges Prétre stj.
20.40 Austfjaröarútan
meö viökomu á Reyðarfirði.
Umsjón: Hilda Torfadóttir.
21.15 Harmonikuþáttur
Umsjón: Siguröur Alfonsson.
21.45 Hawaii — fimmtugasta
rlkiö
Umsjón: Harpa Jósefsdóttir
Amin.
22.15 Veöurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orö kvöldsins.
22.35 Heima eða heiman
Þáttur um hjartaaögeröir.
Umsjón: Onundur Björnsson.
23.15 Óperettutónlist.
23JS0 Fréttir. Dagskrárlok.
244» Næturútvarp frá rás 2 til
kl. 03.00.
RÁS 2
17. nóvember
00.50—03.00 Næturvaktin
Stjórnandi: Bertram Möller.
(Rásir 1 og 2 samtengdar kl.
24.00 og heyrist þá I rás 2
um allt land.)
SJÓNVARP