Morgunblaðið - 17.11.1984, Page 20

Morgunblaðið - 17.11.1984, Page 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 1984 Skoðanakönnun í Irska lýðveldinu: Ekki meirihluti með sameiningu ríkjanna Djfliui, 16. ■ótember. AP. SKOÐANAKÖNNUN sem gerð v»r í írska lýðveldinu bendir til þess að meirihluti lýðveldisbúa telii það ekki lausn á vanda Norður Írlands að sameina ríkin tvö. Það var virt- asta dagblað lýðveldisins sem gekkst fyrir könnuninni og birti niðurstöður sínar á síðum sínum. Spurningin sem lögð var fyrir 1317 manns var þessi: „Er samein- að Iralnd eina lausn á vanda Norð- ur írlands?" Játandi svöruðu ein- ungis 31 prósent. 57 prósent að- spurðra töldu aðrar leiðir jafn „Móðir mín fegurst" — segir Ungfrú heimur 1984 Loadon, 16. ■ivember. AP. „FEGURSTA kona beims er móðir mín. Ég er stolt fyrir hennar hönd og þjóðar minnar," sagði Astrid Herr- era, stúlkan frá Venezúela, sem í gærkvöldi var kjörin Ungfrú heimur í fegurðarsamkeppni í Royal Albert Hall í London. Ungfrú heimur, sem er 21 árs gamall sálarfræðinemi, búsett í Caracas, drakk mjólk á blaða- mannafundinum í morgun, en ekki kampavín, eins og fyrri sigurveg- arar hafa gert. Hún kvaðst vera jarðbundin og ekki leggja það í vana sinn að byggja skýjaborgir. Blaðamenn voru að vonum spur- ulir um einkahagi ungfrú Herrera. Hún sagðist eiga marga góða vini, en væri þó ekki á föstu með nein- um pilti. „Draumaprinsinn er drengur góður og heiðarlegur, hann þarf ekki endilega að vera glæsimenni í útiliti," sagði hún. góðar eða betri. 12 prósent höfðu ekki mótaða skoðun á málinu. önnur spurning fylgdi, hvort lýðveldisbúar væru reiðubúnir að gangast að hverju sem meirihluti Kaþólikka á Norður írlandi kæmi sér saman um varðandi tengsl við lýðveldið. Játandi svöruðu 54 pró- sent, neitandi 36 prósent á þeirri forsendu að sameinað írland hlyti að vera það sem stefna bæri að. 10 prósent voru óákveðnir. Þá var meirihluti aðspurðra hlynntur því að stjórnvöld í lýð- veldinu hefðu ítök í öryggismálum Norður Irlands. Þessi mynd er tekin þegar Zia Ul-Haq forseti Pakistans (t.v.), átti fund með Zial Singh forseta Indlands, er hinn fyrrnefndi kom til að vera viðstaddur útför Indiru Gandhi forsætisráðherra. Indland: Sendiherra heim ERLENT Nýjy Delhí, 16. oÓTember. AP. SENDIHERRA Indlands í Pakistan hefur verið kallaður heim í kjölfar ásakana um að pakistönsk yfirvöld hafi látið viðgangast að aðskilnað- armenn úr hópi síka réðust á ind- verskan embættismann, að því er opinberar beimildir hermdu í dag. Þá segir frá því í frétt í dagblað- Mitterrand viðurkennir að Líbýumenn séu enn í Chad Park, 16. aÍTember. AP. Francois Mitterrand Frakklands- forseti játti því í dag að Líbýumenn hefðu ekki lokið brottflutningi herja sinna frá Chad, en sagði að brott- flutningur héldi áfram. Mitterrand skýrði frá þessu á blaðamannafundi í Elysee-höll- inni í dag í kjölfar óvænts fundar þeirra Khadafy Líbýuleiðtoga á eynni Krít í gær. Frakkar og Líbýumenn gáfu út sameiginlega tilkynningu á laug- ardag um að gagnkvæmur brott- flutningur herja þeirra hefði átt sér stað, en í vikunni opinberuðu bandarískir embættismenn að Líbýuhermenn væru enn í stöðv- um sínum í norðurhluta Chad. Mitterrand sagði að samkvæmt þeim upplýsingum er hann hefði haldbærar þá væru ef til vill tvö eða þrjú herfylki líbýskra her- manna án þungavopna eða flug- véla, og væru því ekki búin til árása. GROHE Ladylux - Ladyline: r~' „Þetta er minna herlið en ákveðnar útlendar heimildir her- ma, en meira en ætti að vera,“ sagði Mitterrand. Talið er að milli 300 og 400 hermenn séu í líbýsku herfylki og því séu um 1.200 her- menn enn eftir í Chad. Embættismenn i Chad segja að þrjár Herkúles C-130 flutninga- flugvélar og 13 litlar SF260 árás- arflugvélar, sem smíðaðar eru á ftalíu, hafi verið í herstöðinni Fada í norðurhluta landsins fyrr í vikunni. Mitterrand sagði þá Khadafy orðið sammála um að ekki einn einasti hermaður, franskur eða líbýskur, yrði eftir í Chad. inu Hindustan Times í dag, að fyrrverandi starfsmaður i ind- versku utanríkisþjónustunni hafi greitt banamanni Indiru Gandhi 100.000 dollara fyrir að ráða for- sætisráðherrann af dögum. Enn fremur hefur því verið haldið fram í nokkrum indverskum blöð- um, að banatilræðið hafi verið hlekkur í víðtæku samsæri, e.t.v. með þátttöku erlendis frá. Stjórn- völd hafa ekkert látið frá sér fara um málið. Heimkvaðning sendiherrans frá Pakistan gæti gefið til kynna að í hönd fari nýtt spennutímabil í samskiptum þessara gömlu fjand- þjóða, þrátt fyrir yfirlýsingar Rajivs Gandhis forsætisráðherra og Zia Ul-Haq, forseta Pakistans, um að þeir vildu bæta sambandið. K.D. Sharma sendiherra kom til Nýju Delhí í gær og gekk þegar á fund forsætisráðherrans til þess að gefa skýrslu um atburðinn sem heimkvaðningunni olli, en hann átti sér stað í Lahore í Austur- Pakistan í síðustu viku. Nytt fjölhæft heimllistækl I eldhúsið RR BYGCINGAVÖRUR HE Svetlana Stalín á blaðamannafundi í Moskvu: Nafn mitt notað sem æsileg markaðsvara MmAm, 16. aórember. AP. SVETLANA, dóttir Jósefs Stalín, sagði á blaðamannafundi í Moskvu í dag, að hún befði snúið aftur til Sovétríkjanna til að hitta börn sín og barnabörn, og vegna þess að hún hefði verið orðin upp- gefin á lífinu á Vesturlöndum. Það var sovéska utanríkis- ráðuneytið, sem boðaði útvalinn hóp fréttamanna á fundinn með aðeins tveggja tíma fyrirvara. f yfirlýsingu.sem Svetlana las á fundinum, kom fram að engar stjórnmálalegar ástæður lægju að baki ákvörðun hennar að snúa heim. Hún neitaði að svara spurningu þess efnis hvort hún væri fallin frá þeirri gagnrýni á Sovétskipulagið, sem hún setti fram í bókum, blaðagreinum og viðtölum á útlegðarárum sínum. Svetlana kvaðst hafa haft samband við sovéska sendiráðið í London 11. september sl. og óskað eftir því að fá að flytjast til Sovétríkjanna á ný. Hún sagði að getgátur i vestrænum blöðum þess efnis, að hún hefði verið neydd til að snúa aftur, væru með öllu tilhæfulausar. Svetlana sagði, að lífið í „hin- um svonefnda frjálsa heimi", eins og hún orðaði það, hefði reynst öðru vísi en hún hefði lát- ið sig dreyma um. „Ég lenti í höndum kaupsýslumanna, lög- fræðinga, stjórnmálamanna og útgefenda, sem notuðu nafn mitt og nafn föður míns sem æsilega vöru á markaði," sagði hún. „Eg varð helsta gæludýr bandarísku leyniþjónustunnar," sagði Svetl- ana, „og erindrekar hennar reyndu jafnvel að segja mér hvað ég ætti að skrifa og hvern- Á fundinum var vikið að Olgu, hinni þrettán ára gömlu dóttur Svetlönu og fyrrum eiginmanns hennar i Bandaríkjunum, arkit- ektsins William Peters, sem lát- ið hefur í ljós áhyggjur af högum hennar. Svetlana sagði að eftir skilnaðinn hefði hún fengið for- sjá Olgu og teldi eðlilegast að hún fylgdi sér. Olga hefði verið mjög amerísk I sér, en hefði Svetlana Stalín breyst mikið árin tvö sem þær mæðgur bjuggu á Englandi. Hún sagði að þegar Olga fullorðnað- ist yrði það að sjálfsögðu hennar sjálfrar að taka ákvörðun um hvar hún vildi búa. Svetlana bað vestræna frétta- menn í Moskvu að láta sig fram- vegis í friði. Hún hefði ekkert meira við þá að tala. rði.K FÓLK I LEIKSKÖLA EFTIR .LAHD 0G SYNIR' JAMES rixx hlaapaiSjn sem dó úr hjartaslagi Metsölutímaritiö MANNLÍF Meöal ofnis: • Einkaviðtal við Jesse Jackson blökku- mannaleiðtoga í Bandaríkjunum. • Grein um breytt viðhorf til kynlífs á 9. áratugnum. • Óvenjulegt viötal viö Svavar Gestsson alþingismann. • Þekkt pör klæða sig uppá í tískuþætti. • Svipmynd af Styrmi Gunnarssyni rit- stjóra Morgunblaösins. • Innlent og erlent fólk í fréttum. • Greinar um bókmenntir og listir. • Grein um Bobby Físher fyrrum heims- meistara í skák. • Lífsstíll, merkileg hótel, skoðanakann- anir, sakamál og margt annað, vandað, fjölbreytt og skemmtilegt efni. FÆST í BÓKA- OG BLAÐSÖLU- VERSLUNUM UM ALLT LAND MANNLÍF metsölutímarit, áskriftarsímar 91- 687474 og 687479

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.