Morgunblaðið - 18.11.1984, Side 2
74
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
Anæstu mánuðum er
ekki að efa, að augu
margra munu beinast
að því, hvernig Rajiv
Gandhi spjarar sig í því erfiða
og margslungna verki sem nú
hefur verið hlaðið á herðar hon-
um. Það þarf ekki að fjölyrða
um, að Rajiv er talinn strang-
heiðarlegur maður, alvörugefinn
nokkuð og hefur reynzt aðsóps-
meiri í stjórnun Congress I síðan
hann lét undan þrábeiðni móður
sinnar að hefja afskipti af
stjórnmálum. Hann þykir slyng-
ur samningamaður og margir
sem til starfa hans þekkja segja
að fólk átti sig ekki á því, hversu
ákveðinn hann er og fylginn sér,
vegna þess að hann hafi alltaf
staðið í skugga bróðurins Sanjay
og móður sinnar. Raunar bendir
flest til þess að hann hafi sjálfur
valið sér það hlutskipti og hann
undi sér prýðilega sem flugstjóri
hjá indverska flugfélaginu og
hefur raunar játað, að stundum
sakni hann starfsins þar. Hann
kynnti sig aldrei fyrir farþegum
sem Rajiv Gandhi, heldur alltaf
sem Rajiv flugstjóri. Það segir
sína sögu um að honum var ekk-
ert áfram um að nota nafnið
Gandhi til að vekja á sér athygli.
Hann hefur látið í ljós andúð á
alls konar tilstandi sem þykir
sjálfsagt að sýna honum, hann
verður beinlínis vandræðalegur
og finnst óþægilegt, þegar fólk
hefur varpað sér með öndina í
hálsinum fyrir fætur honum og
nánast ákallað hann eins og goð-
um líka persónu. Hann segir að
persónudýrkun í hvaða mynd
sem hún birtist sé eitur í sínum
beinum. Og persónudýrkun eigi
sízt heima á Indlandi, þar sem
vandamálin séu af þeim toga, að
forystumenn eigi að takast á við
SVIPMYND Á SUNNUDEGI/ Rajiv Gandhi
Rajiv Gandhi
Þrátt fyrir að honum blöskraði
harðræði sem almenningi var
sýnt, stóð hann eins og klettur
við hlið móður sinnar þegar hún
þurfti á því að halda og sam-
gladdist henni, þegar hún sópaði
aftur til sín völdunum árið 1980.
Þau Rajiv og Sonia tóku þó
engan þátt í kosningaferðum né
ræðuhöldum. Utan vinnutíma er
Rajiv sagður vilja hlusta á góða
tónlist — hefur mikið dálæti á
Mozart — og lesa bækur. Sagt
var að þau hjón hefðu verið að
hugsa um að flytjast úr landi til
að losna undan þeim klafa sem
stjórnmálaafskipti Indiru og
Sanjay voru þeim. En þegar
Sanjay fórst í flugslysi vorið
1980, sneri Indira sér til eldri
sonarins og eggjaði hann lög-
eggjan að ganga til samstarfs
við sig og taka við þar sem bróð-
ir hans hafði frá horfið. Rajiv
var tregur til en síðan lét hann
til leiðast, vann þingsæti San-
jays og þegar hann hafði nú á
annað borð ákveðið að hefja af-
skipti af stjórnmálum, virtist
hann ganga til þess heill og
óskiptur.
Miklar deilur urðu um þetta
leyti innan fjölskyldunnar, því
að ekkja Sanjays, Maneka, hafði
vonazt eftir að erfa þingsæti
hans. Málalyktir urðu að fullur
fjandskapur varð með henni og
Indiru og Rajiv hlaut glæsilega
kosningu.
Rajiv Gandhi er einn fárra
stjórnmálamanna indverskra
sem aldrei hefur flækzt inn í
neins konar spillingu og óreiðu.
Hann er stundum kallaður
„herra hreinn" vegna þess hve
ærlegur hann er. Hann gerir
kröfur til að aðrir séu það líka og
taki hann til hendinni i röðum
indverskra stjórnmálamanna og
víðar til upprætingar spillingu
sem er þar landlæg, má búast við
ýmsum tíðindum.
En fyrst og fremst er að reyna
Óráðin gáta en kannski að-
sópsmeiri en menn hyggja
þau og leysa þau, en ekki leggja
allt kapp á að mata sinn eigin
krók eða baða sig upp úr frægð-
arljóma.
Margir hafa orðið til þess síð-
ustu daga að draga í efa getu
Rajivs til þess að stjórna Ind-
landi og hamrað er á því hversu
takmarkaða reynslu hann hafi.
Það er vissulega öldungis rétt,
stjórnmálastörf hans ná aðeins
fjögur ár aftur í tímann eða
varla það. En á móti má svo
benda á að hann hefur efalaust
fylgzt nánar með störfum móður
sinnar en menn gera sér í fljótu
bragði grein fyrir. Hann og kona
hans hafa frá því þau giftu sig
búið á heimili Indiru. Og ekki
skyldi gleymt að minna á, að
Indira Gandhi var á sínum tíma
málamiðlunarforsætisráðherra,
vegna þess að forystumenn
Congressflokksins gátu ekki
komið sér saman um eftirmann
Shastris þegar hann lézt 1966.
Indira hafði þá gegnt ráðherra-
dómi við góðan orðstír, en ekki
meira en svo. Hún var af ráða-
mönnum Congressflokksins talin
góður kostur af því að hún yrði
auðsveip og þekk og myndi í hví-
vetna láta að stjórn. Það datt
engum í hug að hún gæti stjórn-
að. Hvað þá að hún vildi stjórna.
Svo að menn skyldu ekki van-
meta Rajiv Gandhi þess vegna,
heldur gefa honum tækifæri áð-
ur en menn kveða upp þann dóm,
að hann sé óhæfur sakir þess
hann skorti reynslu. Hann þykir
hafa komið fram af myndugleik
og sýnt yfirvegun og skörungs-
skap þessar tvær vikur sem eru
liðnar frá morði móður hans.
Rajiv Gandhi hefur alltaf ver-
ið heldur alvörugefinn maður,
hæglátur og prúður. Hann var
tveimur árum eldri en Sanjay
sem fljótlega sýndi mikla met-
orðagirnd og bakaði sér hatur og
aðdáun á skömmu lífshlaupi
sínu. Rajiv hefur aldrei verið
umdeildur, af þeirri einföldu
ástæðu, að hann hefur lítið haft
sig í frammi og sakir þess að
Indira dró aldrei neina dul á að
hún hefði öllu meira dálæti á
hinum óstýriláta yngri syni sín-
um.
Rajiv Gandhi er fæddur 29.
ágúst 1944 og er því nýlega fer-
tugur. Eftir skólanám í Indlandi
hélt hann til Cambridge til náms
en lauk ekki prófi vegna þess
hann ákvað að snúa sér að því að
læra að fljúga. Þegar hann var
við nám í Cambridge kynntist
hann ítalskri stúlku, Soniu, og
fengu þau treglega samþykki
Indiru Gandhi til að giftast. Síð-
ar munu samskipti tengdamóður
og tengdadóttur hafa orðið frið-
söm og hin ágætustu. Á heimil-
inu voru einnig bróðir hans,
Sanjay, og Maneka kona hans,
en samband þeirra bræðra var
ekki náið.
Svo er sagt að Rajiv hafi
gramizt mjög mikið þegar hann
fylgdist með aðgerðum móður
sinnar og bróður eftir að neyðar-
ástandslögin voru sett í landinu
árið 1975. Fáum blandaðist hug-
ur um að Sanjay ætti ekki síður
þátt i því að þau voru sett, enda
reiddi Indira sig í æ ríkari mæli
á umdeilda dómgreind Sanjay.
að bera smyrsl á sárin, sem hafa
orðið eftir morðið á Indiru.
Hatrið milli hindúa og síkha er
djúpstætt og á sér lengri aðdrag-
anda en árásin á gullna hofið í
Amritsar. Og það eru ekki aðeins
deilur um aukna sjálfsstjórn til
handa síkhum í Punjab. I flest-
um fylkjum landsins eru deilur,
stéttadeilur, trúmáladeilur,
tungumáladeilur og svo mætti
lengi telja. Það þarf mikla
kænsku, mikla þrautseigju og
mikla vitsmuni til að leiða Ind-
verja, fjölmennustu lýðræðis-
þjóð heims, inn á braut framfara
sem gæti verið fyrirboði lánlegri
tíðar en þessi sundraða þjóð hef-
ur búið við allar götur frá því
hún fékk sjálfstæði.
texti: Jóhanna Kristjónsdóttir
NÝJA LlNAN FRÁ ORION
Gardínuhúsið
Falleg ódýr dralonefni — bómullarefni — breiö ítölsk
efni — damask — velour — vaxdúkar — handklæöi,
jólaefni og jólaplast og fl. og fl. Vönduö vara, góö
þjónusta.
0SamMnmtmusS&
Iðnaðarhúsinu
Hallveigarstíg 1,
sími 22245.
_________________________