Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 127 Ætti Bergman að vera áfram hjá Bogie? Þú ræður. Ný tækni gefur áhorfendum kost á að breyta sögu- þræði kvikmvndarinnar á meðan þeir borfa á hana. að koma mönnum, sem vinna hjá kvikmyndaeftirlitinu í bobba, vegna þess að það fer alveg eftir áhorfendunum í það og það skiptið hvort myndin eigi að vera bðnnuð innan 12 ára eða 16. Evans segir að nú sé verið að vinna að endurbótum á „Mynda- val“-búnaðinum, sem fela m.a.- í sér að atriðin, sem áhorfendur geta valið um, birtast samtímis á tjaldinu. Samkvæmt því sem Ev- ans þessi segir hefur hin nýja tækni þegar vakið feiknaathygli og áhorfendur hafa beðið tímun- um saman í biðröðum til þess að geta nú loksins fengið að ráða gerð myndarinnar sjálfir. — ai. Greystoke: Konungur apanna Það er svolítið öðruvísi Tarzan- mynd, sem gengur í bíóhúsunum út í heimi þessa dagana, en við eigum að venjast frá því Weissmtiller urraði: „Mí Tarzan — Jú Jane“ á þrjúsýn- ingum. Hún heitir þvf langa nafni, Greystoke: The Legend of Tarzan Lord of the Apes, sem allt eins má þýða: „Greystoke: Þjóðsagan um Tarzan konung apanna. Leikstjóri myndarinnar er Hugh Hudson, sem gerði garðinn frægan með Chariots of Fire hér um árið, og skartar hún einvalaliði breskra leikara þ.á m. Ian Holm, James Fox (sem lék George Orwell í mánudagsleikriti sjónvarpsins fyrir skömmu), Nigel Davenport, Cheryl Campbell og Sir Ralph Richardson. Að auki má nefna sjálfan konung apanna, Christopher Lambert, sem er ekki bara grannur og vel gefinn heldur Frakki að auki. „Greystoke" er númer 44 í röð Tarzanmynda, sem gerðar hafa verið í gegnum tíðina eða á þessari öld. Fyrsta Tarzanmyndin var raunar gerð á fyrsta tug þessarar f r Richard Farnsworth er nú á hátindi frægðar sinnar, 64 ára. Hér er hann í myndinni The Gray Fox, sem athygli vakti á síðustu kvikmyndahátíð. Hún var fyrsta myndin þar sem Farns- worth fór með aðalhlutverkið. Fyrst jólamyndirnar ber á góma, má geta þess að á meðal þeirra sem okkur verður boðið uppá eru að öll- um líkindum The Never Endiny Story, Romancing The Stone og ísl. kvikmyndin Sandur, sem verður jólamynd Austurbæjarbíós. Ogein- hver minntist á Gremlim ... aldar. „Greystoke" er gerð eftir frumútgáfu Edgar Rice Burroughs á bókinni Tarzan of the Apes, sem út kom árið 1912. Hún hefst á fæð- ingu Tarzans en foreldrar hans verða skipreka undan vestur- strönd Afríku. Tarzan er bjargað af apanum Kala og alinn upp í stórum apahópi, sem hann á eftir að verða leiðtogi fyrir. Það er ekki fyrr en Tarzan er orðinn ungur maður (api) að hann hittir aðra menn. Sá fyrsti er Belgíumaður- inn Phillipe d’Arnot en hann er foringi breskra leiðangursmanna, sem dvergaþjóðflokkur drepur. Tarzan bjargar d’Arnot og Belg- inn geldur honum greiðasemina með því að kenna honum að tala og hegða sér eins og manneskja. Seinna fylgir d’Arnot unga mann- inum til Skotlands þegar kemur í ljós að Tarzan er í rauninni rétt- nefndur sjöundi jarl af Greystoke. En það er arfur, sem Tarzan á erf- itt með að fella sig við. „Eins og Abraham og Liddell í „Chariots", getur hann ekki eða hann neitar að beygja sig að regl- um samfélagsins," segir leikstjór- inn Hudson. „Hann er fyrst og fremst trúr sjálfum sér.“ Og hann heldur áfram: „Tarzan er sönn ævintýrapersóna, dásamlega sam- ansettur maður, laus við kröfur þjóðfélagsins, en i snertingu við náttúruna. Og ég vildi að minn Tarzan yrði að glíma við valið á milli arfs forfeðra sinna eða hins frumstæða og hættulega frum- skógar.“ Tarzan litli elst upp meðal apa í frumskógum Afríku. Tarzan (Lambert) bjargar „apaföður) sínum úr dýragarði í London. Apamál Hudson valdi Christopher Lam- bert, sem er 26 ára, fæddur í New York, af frönsku foreldri, alinn upp í Genf og lærður í París, úr hópi 49 annarra umsækjenda um hlutverkið. Helst hefði Hudson víst viljað fara með heila hópinn i dýragarð í París svo þeir gætu Belgíumaðurinn (Ian Holm) kennir Tarzan (Christopher Lambert) nokk- ur undirstöðuatriði mannlegrar hegðunar f myndinni Greystoke: The Legend of Tarzan Lord of the Apes. fylgst með öpunum þar og hermt eftir þeim, en það var talað um fyrir honum. Lambert var sendur í háskólann í Washington-ríki þar sem hannf ékk að fylgjast náið með öpum á rannsóknarstofu skól- ans í þeim tilgangi að nema apa- mál. Hann náð þeim árangri í fræðigreininni að aparnir voru farnir að svara honum ef hann yrti á þá. Það var nóg til að gera Hudson ánægðan. En Lambert vr fullgrannur fyrir hlutverkið svo hann þurfti að bæta á sig nokkr- um kílóum til að gera leikstjórann enn ánægðari. „Ég var mjór þegar ég fékk hlutverkið — núna er ég sterkleg- ur,“ segir Lambert. „En ég er á engan hátt eins og Charles Atlas. Ef ég hefði þurft að vera eins og Miles O’Keffe í Tarzanmynd Bo Dereks, hefði ég alls ekki tekið að mér hlutverkið." Þar sem Tarzan er þar er Jane og sú sem leikur Jane í umræddri mynd heitir Andie MacDowell og er 25 ára fyrirsæta frá New York. Þrátt fyrir ákaflega mikinn frama á fyrirsætusviðinu ákvað hún að leggja það starf á hilluna þegar henni bauðst hlutverkið í „Grey- stoke“. Hún fór í prufutökur hjá Hudson og Steven Spielberg (fyrir aðalhlutverkið á móti Harrison Ford í Indiana Jones and the Temple of Doom). Hudson tók þegar ákvörðun um að hún léki Jane og Spielberg óskaði honum til hamingju með valið. „Þegar ég var krakki langaði mig alltaf til að horfa á Tarzan- mynd eftir hádegi á sunnudögum ... Ég man ekki eftir neinni sér- stakri útgáfu af Jane, en ég man að ég kunni verulega vel við Tarz- an.“ — ai „Veldu þér mynd“ Vildir þú ekki að Ingrid Bergman hefði verið hjá Humphrey Bogart í ('asablanca? Ef starfsmenn hjá Sharp-myndum mættu einhverju ráða, gætir þú fengið að velja endinn á myndinni þeirri. Þetta Sharp-fyrirtæki kynnti nýlega kvikmyndatækni, sem þeir kalla „Reactivision" eða bara „Choice-A-Rama“, sem erfitt er að þýða yfir á íslensku en mætti kannski kalla „Myndaval". Grundvallaratriði varðandi þessa nýju tækni er þátttaka áhorfenda. I fyrstu (og einu) kvikmynd Sharp-fyrirtækisins (en það starf- ar í Boston í Bandaríkjunum og vinnur við framleiðslu og dreif- ingu kvikmynda), „Farvel vonda veröld", eiga áhorfendur þess kost með vissu millibili, að velja það sem þeir vilja sjá næst á tjaldinu, velja á milli ólíkrar framvindu söguþráðarins í myndinni. Klöpp, stöpp og gól áhorfenda setja þetta nýja og merkilega tæki í gang og það atriðið, sem orsakar mesta hávaðann, situr eftir í sýningar- vélinni. Nú má segja sem svo að þetta sé heldur ótrúleg vitleysa allt saman, en forstjóri fyrirtækisins segir að hér sé um mjög frambærilega tækni að ræða og að það sé þegar farið að veita félagsfræðilegar upplýsingar. Neil Evans, en það er nafn forstjórans, segir að áhorf- endur upp til sveita velji sér t.d. gjörólíkan söguþráð í myndinni en áhorfendur í stórborg gera. Borg- arbúar virðast vera meira fyrir ofbeldi og kynlíf en sveitamenn- irnir. Þessi nýja tækni á einnig eftir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.