Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 22
94 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 — segir meistari Alexandre í þessu viðtali við Mbl. Ekki er öllum ljóst hver er mun- urinn á Haute Coiffure og Interco- iffure, en íslenskir hárgreiðslu- meistarar eru í hvoru tveggja. Al- exandre tók fram að það væri tvennt ólíkt. Haute Coiffure legði tvisvar sinnum á ári upp nýja hár- greiðslulínu sem hárgreiðslufólk sækti svo til Parísar fullskapaða. En Intercoiffure væru samtök topphárgreiðslufólks í 35 löndum, sem fyrir 5 árum hefði komið sér upp bækistöð með safni í Þjóðar- húsinu Maison des Nations. Það fólk ynni miklu sjálfstæðara og allir legðu sitt fram. Ekki endilega að allir þurfi að fylgja alveg sama stílnum. Og hárgreiðslumeistar- arnir ynnu mikið með stóru tísku- húsunum og mótuðu hárgreiöslu á sýningarnar með nýja tískufatn- aðinum. Meistarinn varð dálítið hissa þegar hann var spurður af hverju þurfi að skapa tvisvar sinnum á ári nýja hárgreiðslu fyrir konur heimsins, skildi sýnilega ekkert í svona hugsunarhætti. Svaraði þó:„Ef ekki fer fram sífelld um- sköpun þá er tískan dauð, en hún er einmitt aflvaki og uppörvun í lífinu." Það er því í rauninni ákaflega merkilegt að komast að raun um að þar eru íslendingar, bæði sam- tök og nokkrir einstaklingar, komnir með tærnar inn fyrir og orðnir þátttakendur í tískusköp- uninni á alþjóðamælikvarða. Fyrir utan Helgu Björnsson sem lengi hefur verið einn aðalteiknar- inn hjá Louis Ferreau eru tvær íslenskar stúlkur komnar á topp- inn við hátískuna í París. Brynja Sverrisdóttir er að verða ein af eftirsóttu sýningarstúlkunum, sýndi nú í haust m.a. vortískuna hjá Scherrer, auk þess sem maður er farinn að sjá hana á tísku- myndum í stóru blöðunum. önnur íslensk stúlka, snyrtisérfræðing- urinn Jóhanna Doucet, hefur aflað sér nafns þar sem hátískan er mótuð. Farðaði á sýningunum í haust hjá Cloe. Snyrtisérfræð- ingarnir móta þá snyrtinguna í samræmi við tískustefnurnar á fatnaði og hárgreiðslu. í hárgreiðslunni eru íslenskir hárgreiðslumeistarar í alþjóða- samtökunum Intercoiffure og gegnum samtökin og forseta þeirra, meistara Alexandre, hafa þeir komist upp úr því að vera við- takendur og eru farnir að leggja til sköpunarstarfsins. Fóru ís- lensku hárgreiðslumeistararnir Bára Kemp og Elsa Haraldsdóttir til Parísar nú í haust til að vera við opnun vorsýninga stóru tísku- húsanna og undirbúning hár- greiðslunnar fyrir þær. Voru auk Alexandres með Zouari og Roma- in, sem í dag eru meðal topphár- greiðslumeistara tískuheimsins. Hárgreiðslufólk á íslandi hefur á undanförnum árum orðið i æ ríkara mæli þátttakendur í sínu fagi á alþjóðavettvangi. í sumar var þar merkur áfangi þegar Sam- band hárgreiðslu- og hárskera- meistara á íslandi gekk í Alþjóða- sambandið á aðalfundi samtak- anna í Las Vegas, en það veitir nú íslendingum færi á að senda fólk í heimsmeistarakeppnir og Evrópu- keppnir, sem þeir hafa ekki átt rétt á fyrr. Fór hópur hárskera og hárgreiðslufólks til Las Vegas. Þar á meðal var Elsa Haraldsdótt- ir, sem einnig var í París í haust vegna tískusýninganna. Ég fékk því Elsu Haraldsdóttur til að segja mér svolítið frá Parísarferð- inni i sambandi við viðtal sem ég átti við Alexandre í París í sumar. Sköpuð hárgreiðsla með tískufatnaðinum Alexandre er óumdeilanlega einn mesti áhrifamaðurinn í hár- tískunni og því umkringdur blaða- mönnum hvar sem hann fer. Hann djásn sem Alexandre hefur látið gera í hár kóngafólks og frægra kvenna og fyrir ákveðin tækifæri. Og veggina prýddu teikningar af nýjum hárgreiðslum með tísku- fatnaðinum, en hátískusýningar stóru húsanna voru þá að opna fyrir haust- og vetrartískuna. Al- exandre sér um hárgreiðsluna við sýningarfötin fyrir mörg af stóru húsunum svo sem fyrir St. Laur- ent, Channel, Ungaro, Balmaine, Patou og fleiri og loðskinna- sýningu Diors. Kvaðst raunar eiga að fara með 40 manna liði tækni- fólks og tískufólks í október til Toronto í Kanada til að sýna La Mode de Paris, þar sem þessi tískuhús væru að sjálfsögðu full- trúar Parísartískunnar. Og 14. október átti að fara með samskon- ar tískusýningu frá Frakklandi til Sviss. Raunar kom í ljós að hann er búinn að skipuleggja sýningar og þing víðs vegar um heiminn allt fram yfir þing Intercoiffure í Hong Kong sumarið 1986. Raunar hafði hann verið boðinn á Norður- landaþing hárgreiðslumeistara á fslandi sumarið 1986 og vonaðist til að það rækist ekki á. En nú Tískan er herra sem lætur hlíða sér, sagði einhver spek- ingur. En tískan er meira, hún er heilt samfélag sem lýtur sínum lögmálum. Sam- félag þeirra sem skapa fatn- að, hárgreiðslu, snyrtingu o.s.frv. Þar fer engu síður fram lita- og formsköpun en á öðrum mörkuðum lista og þar er ekki síður samkeppni um „sætin á toppnum“. I há- borg tískunnar, París, blasir þetta við og með því að kom- ast í nálægð við sköpunar- starfið opnast ný sýn. Það er líka spennandi og flókið samfélag sem þar ólgar. Og þar þykir ekki svo lítið afrek að komast áfram í hinni gíf- urlegu samkeppni og fá verkefni við mótun tískunn- ar í stóru húsunum eða að verða yfirleitt gjaldgengur á alþjóðamarkaðnum. Íslensk saratök og einstaklingar eru orðnir gjaldgengir á alþjóðavett- vangi við sköpun tískunnar. Einn þeirra er Jóhanna Doucet, sem í haust sá um snyrtinguna á tískusýn- ingu hjá Chloé í París. Hér er sýn- ingarstúlka snyrt af Jóhönnu. Texti: E.Pá. Alexandre á loðfeldasýningu Dior, en hann sér um hárgreiðsluna þar. Meistari Alexandre með forseta Intercoiffure á íslandi, Elsu Haralds- dóttur. Myndin er tekin í hárgreiðslusafninu í Húsi þjóðanna í París. er forseti alþjóðasamtakanna Int- ercoiffure, sem hafa aðalstöðvar sínar í París og hefur m.a. komið þar upp merkilegu safni um hár- greiðslu og hártísku í aldir. Blaða- maður Mbl. hitti hann snöggvast að máli á hárgreiðslustofu hans við Rond Point-torg á Champs Elysées í byrjun ágúst er hátísku- sýningarnar voru að hefjast. Þótt hárgreiðslustofa hans sé á besta stað í borginni er þar sýnilega ekki mikið lagt upp úr glæsilegum ytri búnaði, flestar hárgreiðslu- stofur á íslandi betur búnar. En þar hefur þó þótt nauðsynlegt að hafa lokaðan klefa þar sem veita má viðskiptavini þjónustu án þess að vera innan um aðra. Einkum eru það arabakonurnar sem vilja vera einar eða að fá að koma í hárgreiðslu um það leyti sem verið er að loka. Nú er þó orðið dálítið örðugt að veita þessa þjónustu þar sem sósíalistastjórnin I Frakk- landi hefur sett í reglugerð að bannað sé að hafa þjónustustaði opna fyrir sérstaka kúnna. í sýningarskápum mátti sjá alls konar kamba, spennur og höfuð- mun vera að koma í ljós að það gerir það einmitt. Hann vill koma í maí eða september, en Norður- landafólkið vill nýta þingið til sumarleyfis á íslandi í júnímán- uði. Þótt Alexandre ætlaði eins og allir aðrir Frakkar að taka sér sumarleyfi í ágústmánuði eftir að tískusýningarnar í París væru komnar af stað og eyða leyfinu að venju með konu sinni, dóttur og barnabörnum í húsi sínu á æsku- stöðvunum í St. Tropez, þá kvaðst hann samt ekki hafa getað neitað Karólínu prinsessu í Mónakó um að koma þann 20. til Monte Carlo vegna Gala-kvölds Rauða kross- ins. Enda hefði hún tekið við því af móður sinni Grace að vera verndari Intercoiffure samtak- anna. Og raunar kom í ljós að sumarleyfið hans yrði varla meira en 10 dagar þegar allir slíkir skreppitúrar voru upp taldir. „Þér sjáið að maður hefur nóg að leika sér við,“ sagði hann eftir að hafa getið þess að hann rekur hár- greiðslustofur Alexandres í París, Lúxemborg, Bruxelles, Barcelona, Mílanó og bráðlega líka í Kuwait. En þegar hann er að skapa hár- greiðslu, er hann þá að hugsa um allar konur, líka okkur hér norður frá í roki og regni? Já, allar konur, svaraði Alexandre með sannfær- ingu. „Alltaf er líka mótuð greiðsla fyrir stutt hár, sem dugar í hvaða veðurlagi sem er. Það er einmitt þess vegna sem þetta sam- starf hárgreiðslufólks, sem hæst ber í hverju landi, er svo mikil- vægt. Við hittumst öll og heyrum hljóðið hvert í öðru og fáum inn- blástur úr öllum áttum. Sköpunin fer svo fram í París, sem tekur við áhrifunum úr öllum áttum og vinnur úr þeim. Við fylgjum tísku- sköpuninni í fatnaði hér og mótum línur í hárgreiðslu sem eru í sam- ræmi við hana.“ íslenskir þátttakendur Þar komum við að þátttöku ís- lensku hárgreiðslumeistaranna í undirbúningi hárgreiðslunnar á frumsýningum tískusýninganna i París nú í haust. Intercoiffure bauð í þetta sinn fólki frá 4 þjóð- um að vinna að mótun hárgreiðsl- unnar með Frökkunum og koma með sínar hugmyndir, og svo öðr- um fjórum þjóðum til að fylgjast með undirbúningnum og sjálfu verkinu, þ.e. Svíum, Islendingum, Svisslendingum og Dönum. Næst fá svo þessar þjóðir að vera með í að koma með hugmyndir og leggja línuna, að því er Elsa Haralds- dóttir útskýrði. Alexandre vinnur fyrir mörg stærstu tískuhúsin og tekur í það verkefni með sér sitt aðstoðarfólk. Ekki bara Frakkana heldur Iíka hárgreiðslumeistara úr Intercoiffure-samtökunum frá ýmsum löndum. Og nú var íslend- ingum sem sagt í fyrsta sinn boðið að vera með í sjálfu sköpunar- starfinu, fyrst til að fylgjast með hvernig tískan yrði til og síðan til að móta hana í félagi við hina. Elsa sagði að ekki veitti af að kynnast vinnubrögðunum fyrst, því snerting Frakkanna við tísk- Joskan er uppömrn og aflvaki í lífinu ALEXANDRE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.