Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 43
MORGUNÉLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 19S4
115
Grænland:
Landsþing-
ið vill ekki
kjarnavopn
GrenUndi, 15. nóvember. Frá Nils Jörgen
Brann, fréttariUira Mbl.
GRÆNLENSKA landsþingið var
einhuga um að lýsa því yfir að Græn-
land væri kjarnorkuvopnalaust
svæði og ennfremur var samþykkt
að banna ferðir fiugvéla og skipa
með kjarnorkuvopn í grænlenskri
löghelgi, jafnt á friðar- sem stríðs-
tímum.
Þessi samþykkt landsþingsins
verður nú lögð fyrir dönsku
stjórnina en samkvæmt heima-
stjórnarlögunum eru öryggis- og
varnarmál á hennar könnu. Eins
og fyrr segir voru flokkarnir þrír
sammála í þessu efni en tillagan
kom frá vinstri flokknum Inuit
Ataqatigiit, sem einnig vildi
banna allar rannsóknir og leit að
úrani á Grænlandi. Á það vildu þó
stóru flokkarnir tveir ekki fallast.
Jonathan Motzfeldt formaður
landstjórnarinnar sagði að nauð-
synlegt væri að halda áfram þeim
rannsóknum sem nú færu fram, til
að hægt væri að gera sér grein
fyrir hve mikið og hvar úranið
væri.
Sovétríkin:
Hvítasunnu-
menn í hung-
urverkfalli
ALLUR söfnuður hvítasunnumanna
í smábænum Tjugujevka, sem er
fyrir noröaustan Vladivostok í Sov-
étríkjunum, hóf hungurverkfall í
fyrradag til að árétta kröfu sína um,
að fá að flytjast til Vestur-Þýska-
lands, að því er Slaviska missionen í
Stokkhólmi greindi frá í skeyti, sem
Mbl. barst í gær.
Fólkið í hópnum, sem er 60 að
tölu, er af þýskum uppruna. Það
sendi beiðni um, að fá að flytja frá
Sovétríkjunum fyrir ári, en henni
var synjað og síðan hefur það sætt
ofsóknum af hálfu yfirvalda.
Fólkið hyggst vera mánuð í
hungurverkfallinu ef yfirvöld
koma ekki til móts við það. Það
hefur sent sambandsstjórninni í
Bonn bréf og beðið hana að hlut-
ast til um beiðni sína, en ekki er
vitað hvaða viðtökur það hefur
fengið.
LITGREINING MEÐ
CROSFIELD
540
LASER
LYKILLINN AÐ VANDADRI
LITPRENTUN
MYNDAMÓT HF.
— Einingahús —
Allar geröir af einbýlishúsum, sumarhúsum og bílskúrum
úr timbri. Hönnuö eftir óskum kaupenda. Leitiö tilboöa
— teikningar og allar upplýsingar á staönum.
Samtak hf., húseiningar Múlasel hf. Reykjavík
Selfossi Sðlusfcrifatofa.
Verkamiöta. Síöumúla 4, í hm».
Sími 99-2333. Sími 686433.
PRÚTTMARKAÐUR
Safnaöarfélags Áskirkju veröur í dag, 18. nóvember, kl. 16.00 í safnaöarheimilinu viö Vesturbrún.
Mikiö af góöum munum s.s. húsgögn, heimilistæki, föt o.fl.
mmmmmmaKmm
mmmmmm