Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 125 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 10100 KL. 11—12 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS t\y ir í einni bjórdós er sama áfengismagn og i einu rauðvínsglasi eóa „einum einfoldum" af sterkari drykkjum. Bjórinn er líka áfengur Einar Kristinn Jónsson fram- kvæmdastjóri SÁÁ vildi koma eftirfarandi á framfæri: í grein í Velvakanda fyrir skömmu talar varkár ökumaður um áfengismagn i bjór og bjór- líki. Hann minnist þar á vin sinn, sem drakk rauðvín með matnum á veitingahúsi og ók síðan heim eins og ekkert hefði í skorist. Varkár ökumaður nefnir einnig dæmi um menn sem hvolfa í sig tveimur eða þremur kollum af bjór eða bjórlíki og keyra síðan heim. Það er mjög algengur mis- skilningur, að óhætt sé að aka eftir nokkra bjóra, en sannleik- urinn er sá, að í einu bjórglasi er jafn mikið áfengismagn og í einu rauðvínsglasi eða „einum ein- földum“ af sterkari drykkjum. Helsti munurinn er sá, að áhrif bjórsins eru lengur að koma í ljós, en áfengismagnið er engu að síður jafn mikið, og sá sem neytir drykkjarins verður alveg jafn drukkinn og þeir sem drekka borðvín eða sterkari drykki. Áskorun til forseta íslands Richard Rockefeller skrifar: Ég er Bandaríkjamaður, en ekki tslendingur, en þrátt fyrir það þykir mér mjög vænt um ísland, þjóð þess og menningu. Ég geri mér grein fyrir því hvað nýafstað- in verkföll voru erfið fyrir alla ts- lendinga og þegar ég segi, að mér þyki mjög leitt að hafa ekki getað heimsótt tsland á meðan á Evr- ópuför minni stóð fyrir skömmu, þá hefur það e.t.v. ekki mikla þýð- ingu fyrir almennan borgara á ís- landi. En ég fæ aðeins eitt leyfi á ári og hafði unnið mikið til að safna fé til fararinnar, svo ég gæti heimsótt vini mína í landi ykkar, svo þetta skipti mig verulegu máli. Ég skora á forseta ykkar, Vig- dísi Finnbogadóttur, að koma í veg fyrir að verkföll sem þetta geti stöðvað mikilvægar flugsamgöng- ur í framtíðinni og að forseti sjái til þess, að slík verkföll sem stöðva nauðsynlega þjónustu verði ólög- leg. Ég er ekki auðugur maður og ég þekki og skil vel efnahagsástandið á Islandi. Kærar þakkir fyrir birt- inguna. Hvers vegna er ekki tölvuvætt? Hulda hringdi: Hvernig stendur á því, að á þessum framfaratimum, þegar flestar opinberar stofnanir tölvuvæðast til að geta unnið verkin fljótt og vel, þá eru veð- bókarvottorðin enn handskrif- uð? Þjónustan hjá borgarfóg- etaembættinu er fyrir neðan allar hellur og afar fornfáleg. Núna eftir verkfallið hefur það tekið allt að viku að fá afgreidd veðbókarvottorð, enda virðast starfsmenn embættisins snúast í kringum sjálfa sig, á milli þess sem þeir fletta í doðröntum og handskrifa upp úr þeim. Þar að auki er ekki auðvelt að þurfa að fara tvær ferðir eða fleiri í þessa stofnun, því engir strætisvagnar stöðva þarna nærri. Það er kominn tími til að borgarfógetaembættið taki við sér og átti sig á því að nú er komið árið 1984 (það er nú mesta furða, að enginn starfs- manna skuli hafa tekið eftir því, svo mjög sem þeir dýrka tölurn- ar þar). Látum nú verða af því að tölvuvæða embættið og gera öllum léttara fyrir. /Hmml A/banbou \þaó þckkisl á bragóinu 83? SIO&A V/öGPk £1/LVtWN Slitþoís- prófun áklæða Mætti bjóða þér sæti Hjá okkur er aö finna því- líkt ótrúlegt úrval af alls- konar sófasettum hornsófum svefnsófum stökum sófum og stólum Ad þú hefur aldrei séð annaö eins Láttu ekki hjá líða aö skoða úr- valið hjá okkur áður en þú leitar annað. Hagsýnn velur þaó besta. Útborgun með greiðslukorti, eftirstöðvar til 6 mánaða V/SA HÚSGAGNAHÖLUN IbILDSHÓFÐA 20 • 110 REYKJAVlK « 91-61199 og 81410
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.