Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 8
80 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 DOMSMAI Víetnam kemur fyrir réttinn IBandaríkjunum hefur að undan- fornu verið sannkölluð skriða af bókum og heimildamyndum um Ví- etnamstríðið og svo vill líka til, að í síðasta mánuði var tekið fyrir í rétt- arsölum New York-borgar málið „Westmoreland hershöfðingi gegn (’BS-sjónvarpsstöðinni“, 120 milljón dollara skaðabótamál, sem er líklegt til að valda meiri og heiftarlegri deil- um um stríðsreksturinn en átt hafa sér stað frá því síðasti bandaríski hermaðurinn yfirgaf Saigon árið 1975. { 90 mínútna heimildamynd í CBS-sjónvarpsstöðinni, „Otaldi óvinurinn, blekkingin í Víetnam", var því haldið fram, að árið 1%7 hefði Westmoreland og aðrir hátt- settir menn gefið af ráðnum hug upp miklu lægri tölur um styrk óvinarins en voru í raun, til þess að menn héldu að Bandaríkja- menn væru að vinna stríðið og þess vegna nauðsynlegt að halda því áfram til enda. Var þvi einnig haldið fram, að CIA hefði haft annað og réttara mat á óvinahernum áður en Norður-Víetnamar hófu Tet- sóknina í janúar 1968 en þær tölur hins vegar verið faldar af pólitísk- um ástæðum. Þessu andmælir Westmoreland hershöfðingi. í þessum réttarhöldum mun vafalaust koma vel í ljós mismun- andi mat Pentagons og CIA á styrk Víet Cong og Norður- Víetnama — Pentagon sagði 300.000 hermenn en CIA 600.000 — en auk þess mun mikið verða rætt um þær aðferðir, sem CBS beitir við fréttaöflunina. Ef Westmoreland ber sigur úr býtum er hætt við, að það muni hafa mik- il áhrif á framtíð rannsóknar- blaöamennskunnar í Bandaríkjun- um. Sum bandarísku blaðanna og sjónvarpsstöðvanna eru nú þegar dálítið á varðbergi gagnvart þess- ari blaðamennsku, ekki vegna þess, sem hún leiðir í ljós, heldur WESTTMORELAND: „Hagræddi“ hann sannleikanum? vegna kostnaðarsamra meiðyrða- mála, sem hafa fylgt í kjölfarið. Sú stefna virðist líka vera ríkjandi í réttarkerfinu, að blaðamennirnir séu yfirleitt sökudólgurinn. Þetta mál rifjar einnig upp deil- urnar milli hersins og fjölmiðl- anna um það hvar stríðið tapaðist — á vígvellinum eða fyrir framan sjónvarpsskerminn þar sem fólk var matað kvöld eftir kvöld á blóð- ugum valnum. Herinn segir, að þessar myndir hafi rænt hann stuðningi almennings en CBS heldur því fram, að vegna til- búinna talna Westmorelands hafi Tet-sóknin orðið jafn mikið áfall og hún varð og stuðlað að hugar- farsbreytingu meðal fólks. Jafnvel þótt Westmoreland vinni fyrstu lotuna, sem ætti að koma í Ijós innan þriggja mánaða, verður hann líka að vinna fyrir áfrýjunarréttinum. Sagan sýnir hins vegar, að þeir, sem áfrýja í meiðyrðamáli, fá oftast nær hlut sinn réttan. Hvor tveggja málsaðilinn hefur haft samband við meira en 100 lík- leg vitni, bæði hermenn og borg- ara, og kynnt sér skýrslur og skjöl upp á meira en 250.000 síður. Bara rökfærsla Westmorelands ein er upp á 1995 síður. — PETER PRINGLE GOMAÐIR Víðar fálkaþjóf- ar en á Fróni Seint í síðasta mánuði stöðvuðu franskir tollverðir Mercedes Benz-bifreið, sem hafði verið leigð með ökumanni, á þjóðbrautinni skammt frá borginni Metz. Við leit í bílnum fundu þeir þrjá veiðifálka, sem verið var að reyna að smygla úr landL Þessi þýska fröken, eins og menn muna kannski, var staðin að eggja- þjófnaði hér uppi á fslandi. Rann- sóknarlögregumaður fylgir henni til yfirbeyrslu. Fálkarnir, sem eru metnir hver á 120—240 þús. ísl. kr., voru í far- angri fjögurra Araba, sendi- ráðsmanna frá Abu Dhabi, og þeir höfðu ekkert i höndunum, sem sannaði, að þeir væru löglegir eig- endur fuglanna eða mættu flytja þá úr landi. f Frakklandi eru fálk- ar friðaðir að mestu með lögum frá 1976 um dýrategundir, sem eru í hættu. Fuglarnir voru teknir af Aröb- unum og komið í gæslu hjá dýra- verndarfélagi meðan á mál- rekstrinum gegn þeim stendur. Voru þeir látnir borga háa sekt á staðnum fyrir brot á Washing- tonsamþykktinni um sjaldgæfar dýrategundir en að því búnu leyft að fara aftur til Parísar. Þótt lög til verndar fálkum hafi verið hert mjög á síðustu árum hefur ólögleg fálkasala til Araba- ríkjanna við Persaflóa stöðugt verið að færast í vöxt. Eru það einkum Þjóðverjar, sem hafa lagt þessa iðju fyrir sig, og hafa þeir margoft verið staðnir að því að stela fálkaeggjum í Vogesafjöll- um. Eru þeir jafnan vel búnir við þjófnaðinn, með kaðalstiga og önnur tæki, sem annars eru notuð við hellaskoðun og í fjallgöngum. Eggin hafa þeir með sér til Þýska- lands, setja þau í útungunarvél og þegar unginn er kominn nokkuð á legg er hann seldur fyrir of fjár á svarta fálkamarkaðnum. í Frakklandi eru tvö félög, með um 200 félagsmenn samtals, sem stunda fálkaveiðar á löglegan hátt. Kostar leyfið rúmar 3000 kr. SAFNAÐARLIF Sælureiturlnn er varlnn meö vélbyssum Rajneeshpruam í Oregon er að- setur Bhagwan Shree Rajn- eesh trúarleiðtoga. Daglega og á slaginu tvö síðdegis ekur hann glæsikerru sinni utn bærinn og þá brosa við honum þúsundir áhang- enda hans, sem dansa og syngja og ausa rósum í áttina að bíl hans. Ekki eru allir samt á einu máli um ágæti trúfélags Bhagwan, sem hefur innan vébanda sinna um 300.000 meðiimi hvaðanæva úr heiminum. Aðalbækistöðvar þess eru í Rajneeshpuram, en þar tvöfaldaðist íbúatalan í septem- ber síðastliðnum og er nú orðin 4.000. Fólkið hefur komið víðs vegar að úr Bandaríkjunum, Los Angeles, New York og Chicago og ýmsum öðrum fjarlægum borg- um. Hér er einkum um að ræða flækinga, strokubörn og ýmsa aðra, sem hvergi hafa átt höfði sínu að halla. Ma Anand Sheela, sem er helzti ráðjafi trúarleiðtogans og eini talsmaður hans, hefur lagt á ráð- in um þessa fólksflutninga og séð um framkvæmd þeirra. Þessi kvenskörungur hefur þráfaldlega hótað því að hart verði látið mæta hörðu, ef yfirvöld reyni að hafa afskipti af samfélaginu sem þarna er. Því var komið á fót árið 1981 og nam kostnaðurinn um 100 milHónum dollara. „Eg er þess albúin að láta lífið fyrir þennan stað,“ sagði hún í viðtali fyrir skömmu. „Ef fólki mínu og gestum okkar verður gert mein, þá læt ég drepa 15 fyrir hvern einn og mér er al- vara.“ Þeir sem búa í þessu samfélagi hafa komið sér upp vopnabúri til að koma í veg fyrir að þeir verði reknir frá Oregon. Þeir hafa á að skipa sérstökum „friðarsveitum" gráum fyrir járnum. Þegar trú- arleiðtoginn fer í sína daglegu ökuferð í einhverjum af þeim 47 Rolls Royce-bílum sem hann á, fylgir honum sérstakur bíll búinn vélbyssum, sem skaga út um gluggana. Þá er það ekki óalgengt að Ma Anand sé á ferli með skammbyssu sína. Aðkomufólkið hefur verið lokk- að með loforðum um nýtt líf, mat og húsaskjól. Þá hefur því verið lofað lausn frá glæpaverkum og eiturlyfjum og allt er þetta endurgjaldslaust. Það þarf jafn- vel ekki að vinna handtak. Ma Anand er afar smávaxin kona af indíánakyni. Hún hefur starfað af lífi og sál í trúflokkn- um undanfarin 12 ár og er sem fyrr segir einkaritari Bhagwan leiðtoga. Hún er jafnframt tals- maður hans en hann sór þagnar- eið árið 1981. „Þetta fólk er fórnarlömb þjóð- félagsins," segir hún. „Við finn- um til sektar og ábyrgðartilfinn- og aðild að öðru hvoru félaginu, sem er skylda, tæpar 50.000 kr. Arabar, sem hafa ofurást á veiði- fálkum en eiga í erfiðleikum með að ná í þá, eru hins vegar tilbúnir til að borga miklu meira. Svarta- markaðsverðið er þó mjög mis- munandi. Allt að 800.000 kr. fyrir geirfálkann, um 370.000 kr. fyrir vargfálkann og nærri 190.000 kr. fyrir förufálkann. — JOAN HARRISON 1 ingar gagnvart því. Bhagwan brýnir fyrir okkur að við eigum að veita þurfandi fólki hlutdeild í því sem við eigum.“ Þegar samfélag trúflokksins var sett á stofn voru íbúar smá- bæjarins Antelope reknir á brott. Þeir búa nú annars staðar í Wasco-héraði og segja að Ma An- and hafi smalað aðkomufólkinu til bæjarins í sérstökum tilgangi. Fyrir henni hafi vakað að afla trúflokknum nýrra kjósenda til að ná völdum í héraðinu. Ma Anand varaði nýlega við því að jarðýturnar yrðu rauðar af blóði hennar ef minnsta tilraun yrði gerð til þess að brjóta niður blómlegt samfélag hennar, en þar hafa m.a. verið reist ný hús, gisti- hús með 60 herbergjum, auk þess sem fagrir garðar hafa verið skipulagðir. „Þeir krossfestu Jesúm, þeir eitruðu fyrir Sókrates og nú ætla þeir að taka Bhagwan," segir hún. Eigi að síður hefur hinum trúuðu verið tjáð, að naumast verði heimsendir áður en þetta geti gerst. Þrisvar sinnum á þremur árum hefur leiðtoginn látið Ma Anand boða þennan spádóm sinn um hrakfarir mannkynsins. Nýlega lýsti hann til dæmis yfir því að tveir þriðju hlutar mannkyns myndu innan skamms tíma láta lífið af sjúkdómum AIDS, sem er ólæknandi og berst einkum manna á milli við kynferðislegt samneyti. — WILLIAM SCOBIE SLYS Ekki veröur feigum foröaö Isumar sem leið dó maður nokkur á einum fínasta veitingastaðnum í Los Angeles og er það helst í frásögur fær- andi viö dauðsfall hans hvað það var framúrskarandi óvirðulegt. Út af þessu hafa nú hlotist mikil málaferli þar sem afkomendur hins látna krefj- ast nokkurra milljóna dollara í skaðabætur. Þegar Arthur Tanash, eig- andi Condor-klúbbsins, kom þangað einn morguninn um klukkan tíu heyrði hann hálf- kæfðar stunur og bænaróp ber- ast til sín einhvers staðar ofan úr rjáfrinu og leit því upp til að sjá hverju þetta sætti. Þá sá hann, að píanó, sem hægt var að lyfta og láta síga með vökvabúnaði og notað á kvöld- in til að flytja í salinn ber- brjósta pianóleikara, var fast klemmt upp við loftið og dingl- uðu út af því tvenn fótapör. Þurfti þá ekki mikið ímyndun- arafl til að geta sér til um hvað væri á milli píanósins og lofts- ins. „Svo virðist," sagði talsmað- ur lögreglunnar, „sem aðstoð- arframkvæmdastjóri klúbbs- ins, hr. James Ferrozzo, hafi eftir lokun efnt til ástarleikja ofan á píanóinu með einni starfsstúlkunni. Annað hvort þeirra hefur svo f ógáti komið við stjórnbúnaðinn og þau ekki tekið eftir því þegar píanóið lyftist upp í loft.“ Starfsstúlkan var fast klemmd undir „Jimmy skegg- karli Ferrozzo" þegar að var komið en samt sem áður ómeidd þótt hún hefði verið f þessari óskemmtilegu stellingu í fimm klukkustundir. Ferr- ozzo hafði hins vegar látist úr köfnun. Tvær dætur Ferrozzos hafa nú höfðað má á hendur klúbbn- um og framleiðanda píanó- lyftunnar og vilja fá fimm milljónir dollara í bætur fyrir föður sinn. Segja þær, að lyftu- búnaðurinn hafi verið gallaður og ekkert öryggi á honum til að hindra að píanóið færi alla leið upp í loft. — WILLIAM SCOBIE
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.