Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 24
96 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 Við slátrun var sá siður lengi viðhafður hérlendis að kljúfa hjartað í kross og skera kross í lifrina, og hélst sá siður fram á þessa öld. Óhljóðs- eyru — ólánseyru — Ullinseyru. Menn greinir á um nafnið á þess- um hluta hjartans. Margir kenna þau við fornt goð, norrænt, sem hét Ullur, en ég minnist þess frá bernsku minni að þetta voru köll- uð ólánseyru. í Þjóðsögunum seg- ir: „Aldrei skal borða ullinseyru úr kind, því hver sem það gerir verður skrafinn." (Lausmáll). Hvort satt er, skal ósagt látið en hitt er víst að þessi svokölluðu eyru voru ætíð skorin af og fleygt. Gollurhús er eins konar poki utan um hjartað, var það notað utan um pylsu sem þótti hið mesta hnossgæti. I Kvennafræðaranum segir: „Gollurshúsinu skal snúa við, þannig að fitan snúi inn, og troða svo í það mögru kjöti ásamt ögn af salti, sauma síðan fyrir það, sjóða það og súrsa." Búin voru til bjúgu úr lungum, hjörtum og kjöti, einnig voru hjörtu notuð í kæfu með lungum, vélindum, kjöti og mör. Hjörtu voru einnig soðin og geymd í súr. Engar heimildir hefi ég um að lifur hafi verið notuð öðru vísi en í lifrarpylsu. Lifur og hjörtu eru mjög hollur og ódýr matur, og ætti fólk að temja sér að hafa það á borðum einu sinni í viku. Við notum nútímalegar aðferðir við matreiðslu á lifur og hjörtum og byrjum á djúpsteiktum hjörtum, sem eru hið mesta ljúfmeti, meir og fljótmatreidd. Hreinsun á hjörtum fyrir matreiðslu Skolið hjörtun undir rennandi vatni, þerrið síðan með eldhúspappír. Fjarlægið fituvefinn efst á þeim. Klippið síðan taugar og æðar úr þeim með skærum. Skolið aftur og þerrið með eldhúspappír. Hjörtu þurfa langa suðu. Hreinsun á lifur fyrir matreiðslu Skolið lifrina undir rennandi vatni, þerrið síðan með eldhúspappír. Takið af henni himnuna, ef þið getið. Skerið lifrina síðan í örþunnar sneiðar á ská. Fjarlægið allar taugar og æðar. Sjððið lifur sem minnst. Djúpsteikt hjörtu Handa 6. 6 hjörtu 1 dl matarolía f löginn 4 msk. sítrónusafi 1'Æ tsk. fínt salt Vi tsk. pipar 1 msk. soyasósa lk dl salsaprontasósa (má sleppa) 10 dropar tabaskósósa 5 dl matarolía til að steikja úr 1. Hreinsið hjörtun eins og sagt er hér að framan. 2. Skerið hjörtun í sneiðar eða rif. Hafið sneiðarnar frekar þunnar. 3. Blandið saman matarolíu, sítrónusafa, salti, pipar, soyasósu, salsaprontasósu og tabaskósósu. 4. Leggið hjartasneiðarnar í löginn, látið löginn þekja þær alveg. Látið standa á eldhúsborðinu í 2 klst. 5. Hitið olíuna, þerrið sneiðarnar með eldhúspappir og steikið í feitinni í 3—4 mínútur á hvorri hlið. 6. Leggið á eldhúspappir sem sogar feitina í sig. Meðlæti: Brauð smurt hvítlauks-dill-rjómaosti og hitað. Hjörtu fyllt með beikoni, eplum og sveskjum 5 hjörtu 2—3 sneiðar beikon 1 epli, helst súrt 10 steinlausar sveskjur 1 Vi tsk. salt Vi tsk. hvítur pipar 2 kúfaðar msk. rjómaostur án bragðefna 1. Hreinsið hjörtun eins og sagt er hér að framan. 2. Skerið beikonið í smábita, rífið eplið og skerið sveskj- urnar smátt. Blandið þessu öllu saman. 3. Stráið salti og pipar inn í hjörtun. 4. Setjið beikon/epli/sveskjur inn í hjörtun og saumið saman með bómullargarni. 5. Hitið matarolíuna á pðnnu og steikið hjörtun í henni, þar til góð brúning er komin á þau. 6. Raðið hjörtunum þétt í lítinn pott. Látið opið á hjört- unum snúa upp. Hellið 2 dl af vatni í pottinn. Stráið afganginum af saltinu og piparnum yfir hjörtun og sjóðið við hægan hita í l'k klst. Bætið meira vatni í pottinn, ef ykkur finnst það þurfa, en lögurinn þarf ekki að ná alveg yfir hjörtun. 7. Takið hjörtun úr pottinum og skerið í sneiðar, setjið á fat. 8. Hrærið rjómaostinn út í soðið og hellið yfir hjörtun. Meðlæti: Soðin hrísgrjón. Lifur með beikoni, eplum og banönum Handa 4. 1 lifur, u.þ.b. 600 g 1 tsk. salt Vi tsk. nýmalaður pipar 4 stórar sneiðar beikon 2 epli, helst græn 2 bananar safi úr 'k sítrónu 2 msk. matarolía + 2 tsk. smjör til að steikja úr. 1. Hreinsið lifrina eins og segir hér að framan. 2. Skerið beikonið í litla bita. Hitið pönnu og harðsteikið beikonið. Setjið á disk og geymið. Þvoið ekki pönnuna. 3. Skerið eplin í tvennt og takið úr þeim kjarnann. 4. Skerið bananana i tvennt langsum, afhýðið þá ekki. 5. Penslið eplin og bananana með sitrónusafanum. Setj- ið síðan í heitan bakarofn, 180°C og steikið í 15 mínút- ur. 6. Setjið matarolíu og smjör saman við beikonfeitina og hitið pönnuna. 7. Steikið lifrina í feitinni í 4 mínútur á hvorri hlið. Stráið salti og pipar yfir hana, þegar þið hafið snúið henni við. 8. Setjið lifrina á fat, stráið beikoninu yfir. Setjið fatið inn í bakarofninn í 5 mínútur. 9. Raðið eplunum og banönunum utan með lifrinni á fatið. Meðlæti: Hrísgrjón, soðin með turmerik, sem er sterk- gult krydd. Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON Hjörtu og lifur Tilboð óskast Tilboö óskast í Bronco II (XLT) árgerö 1984 og Bronco árgerö 1981. Bifreiöirnar veröa á útboöi þriöjudaginn 20. nóvember nk. kl. 12—15 að Grensásvegi 9. Ennfremur veröur boöin út Scania dráttarbifreiö árgerð 1971, ásamt fleiri bifreiöum. Sala Varnarliðseigna. Styrktarsjóður ekkna og munaðarlausra barna íslenskra lækna Umsóknir um styrk úr sjóönum þurfa aö hafa bor- ist til einhvers okkar undirritaöra fyrir 26. nóvem- ber nk. Björn Þ. Þórdaraon, Sörlaakjóli 78, 107 Baykjavík. Kjartan Jóhannaaon, Þinghólabraut 27, 200 Kópavogur. Lárua Halgaaon, Hvaaaaloiti 143, 108 Roykjavík.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.