Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 47
MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 119 KAN GEFUR ÚT HLJÓMPLÖTU: „Við erum hljómsveit Vestfjarða“ Kúplingar i f lesta bíla Höfum einnig kúplingsbarka, kúplingslegur og kúplingskol. Viögeröarsett f kúplingsdælur og hjöruliöskrossar. (fflfinaust kt Siöumúla 7-9, simi 82722. The Complete Ctutch. Félagarnir í hljómsveitinni Kan frá Bolungarvík, talið fri vinstri, Hilmar Valgarðsaon, Finnbogi Kristinsson, Herbert Gudmundsaon, AlfreÓ Erlingsson og Magnús Hivaróarson. Við erum hljómsveit Vest- fjarða, sögðu félagarnir í hljómsveitinni Kan frá Bolung- arvík, þegar blm. spjallaði við þá. Hljómsveitina skipa Herbert Guð- mundsson, söngvari, Magnús Há- varðarson, gítar, Finnbogi Krist- insson, bassa, Hilmar Valgarðs- son, trommur, og Alfreð Erlings- son sem spilar á hljómborð. Hljómsveitin hefur nú starfað í 2 ár og hefur nýlega gefið út plöt- una í ræktinni. Þeir félagar spila dreifbýlisrokk, vinsælustu lögin hverju sinni, auk nokkurra frum- saminna laga. öll lögin á plötunni eru eftir þá félaga. í sumar höfum við spilað vítt og breitt um alla Vestfirði, og gekk það mjög vel. Síðan æfðum við stíft í einn mánuð í Hnffsdal fyrir plötuupptökuna. Upptökustjóri hjá okkur var Tómas Tómasson. Hann er mjög góður. Herbert Guðmundsson er eng- inn nýgræðingur í poppinu. Hann hefur starfað í fjölda hljómsveita, eins og Pelican, Dynamit, Eik og Tilveru, svo nokkrar séu nefndar. Ég var búinn að vera í fríi frá skemmtanabransanum í 5 ár, þeg- ar Finnbogi bauð mér að koma vestur. Ég sló til, og var þar strax ofsalega góður fílingur. Hver er helsti munurinn á að spila núna og þegar þú varst að byrja? Það er náttúrlega fyrst og fremst tæknibyltingin. Möguleik- arnir eru svo margfalt meiri núna, og við notfærðum okkur þá eins og við mögulega gátum á plötunni. Lifandi tónlist er aftur að ná sér á strik. Með tilkomu allra þessara bjórstaða skapast tækifæri fyrir unga tónlistarmenn að koma fram. Það er enginn smáræðis munur á Reykjavík nú og fyrir tveimur árum. Fjölbreytnin í skemmtanalífinu er svo miklu meiri en þegar ég var að byrja. Er skemmtilegra að spila á sveitaböllum en hér í bænum? Það er alltaf skemmtilegt að spila, alls staðar. En auðvitað fer það svolítið eftir andanum í saln- um. Að vísu er allt öðruvísi að spila á böllum í Reykjavík og á sveitaböllum, sagði Herbert. Al- freð var ekki sammála þessu. Hann sagði að það væri miklu skemmtilegra að spila á sveita- böllum. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1904—1984 Austfiröingamót 1984, afmælisfagnaöur, á Hótel Sögu föstudaginn 23. nóvember. Dagskrá: Grímur M. Helgason, formaöur félagsins, flytur ávarp. Jónas Pétursson, fyrrum alþingismaöur, heiöurs- gestur fagnaöarins, heldur ræöu. Lárus Sveinsson og Ingibjörg Lárusdóttir leika saman á trompet og píanó. Kátir karlar??? Jóhann Már Jóhannsson syngur einsöng viö und- irleik Guöjóns Pálssonar. Gísli P. Blöndal fulltrúi stjórnar fagnaöinum. Hljómsveit Magnúsar Kjartanssonar leikur fyrir dansi til kl. 3 eftir miönætti. Húsiö opnað kl. 19.00. Dagskrá hefst stundvíslega kl. 20.00. Aögöngumiöar veröa seldir í anddyri Hótels Sögu miðvikudaginn 21. og fimmtudaginn 22. nóvember milli kl. 17.00 og 19.00. Borö tekin frá um leiö. Sarasota, Florida, U.S.A. Tvö lúxusherbergi og tvö baöherb. í íbúöablokk til leigu. Hægt er aö synda í Mexíkóflóa eöa í okkar fallegu sundlaug og fara í tennis. Frábærir veitingastaöir og öll önnur þjónusta fyrir feröamenn. Skrifiö eöa hringiö eftir upplýsingabæklingi. Sarasota Surf & Racqnet Club, 5900 Midnight Pass Road, Sarasota, Fl. 33581. Sími 1-813-349-2200. Málverkauppboð veröur aö Hótel Sögu sunnudaginn 18. nóv- ember nk. kl. 20.30. Myndirnar veröa til sýnis sunnudaginn 18. nóvember kl. 14.00—18.00 aö Hótel Sögu. Sade sigrar hjörtun Einhver alvinsælasta söngkonan í Bretlandi um þessar mundir heitir Sade, nígerísk í föðurætt en ensk í móður- ættina. Nú á dögunum fór hún í mikla hljómleikaferð um landið og var hvarvetna uppselt löngu áður en hljómleikarnir voru haldnir. Foreldrar Sade bjuggu saman í Nígeríu þar til hún var fimm ára gömul en þá tók móðirin saman föggur sínar og komst úr landi með börnin. í Nígeríu ríkti algert karlmannaveldi og því þótti það mikil minnkun fyrir föðurinn þegar konan hljópst frá honum. „Mamma hefði aldrei fengið umráðarétt yfir okkur börnunum og þess vegna varð hún að hafa hraðann á. Farangurinn var bara ein ferðataska og það voru mikil um- skipti að koma til Englands úr hitasvækj- unni í Afríku. Þetta var árið 1963 og svo vildi til, að það var snjór á jörðu þegar við komum. Það fannst okkur skrítið," segir Sade. Móðir Sade giftist aftur en samkomu- lagið milli Sade og fóstra hennar var slæmt. 17 ára gömul fór hún að heiman og gerðist ljósmyndafyrirsæta og upp úr því fór vegur hennar smám saman vaxandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.