Morgunblaðið - 18.11.1984, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
105
Einar Gestsson
Hœli — Minning
Einar Gestsson bóndi á Hæli í
Gnúpverjahreppi lést á heimili
sínu aðfaranótt 14. október. Hann
var jarðsettur á Stóra-Núpi 20.
október, að viðstöddu fjölmenni.
Langri baráttu er lokið, sem ekki
gat endað nema á einn veg.
Einar fæddist á Hæli 15. októ-
ber 1908, næst elstur af börnum
Gests Einarssonar bónda á Hæli
og Margrétar Gísladóttur, konu
hans. Tíu ára gamall missti Einar
föður sinn og atvikin höguðu því
svo til, að ungur að árum fór hann
að standa fyrir búi hjá móður
sinni. Að undanskildri skólavist í
Flensborgarskóla og árs dvöl í
Noregi við landbúnaðarstörf hefur
Einar búið á Hæli eða nær sextíu
ár, ekki er ólíklegt að sú ábyrgð
sem Einar axlaði að standa fyrir
búi á ungum aldri á erfiðum tím
um hafi mótað nokkuð skapgerð
hans og þroska og hann orðið fyrr
fulltíða maður með ríkari ábyrgð-
artilfinningu en algengt var.
Þegar ég var á ellefta ári fór
Einar á Hæli að venja komur sín-
ar að Mástungu. í fyrstu vissi ég
ekki hverju þetta sætti en komst
fljótlega á snoðir um, að Halla
systir min átti þar hlut að máli.
Og þegar mér skildist að Einar
„Lykkjufall“
skáldsaga eftir
Agnesjónu Maitsland
BÓKAÚTGÁFAN Idunn hefur sent
frá sér nýja skáldsögu, „Lykkju-
fall“. Höfundur er Agnesjóna Maits-
land, og er þetta fyrsta bók hennar.
„Lykkjufall er spennandi og
raunsæ nútímasaga um unga sjó-
mannskonu sem fellir sig illa við
hversdagslífið," segir m.a. á kápu-
síðu. „Maður hennar dvelur lang-
dvölum burtu og Kata leitar hugg-
unar í félagsskap nærtækari
karlmanna — sem og Bakkusar. —
Þótt höfundur fjalli af raunsæi
um persónur sínar og hlífi þeim í
engu, þá er umhyggja hans áber-
andi og væntumþykja. Kata getur
ekki útskýrt allar sínar gjörðir og
eflaust kannast margur lesandinn
við drauma hennar, vonir og
freistingar sem auðvelt er að falla
fyrir.“
Bókin er 88 bls. að stærð.
Landamæri
og ást
Maputo, 16. nóvember. AP.
RÍKISSTJÓRN Mósambík hefur
ákveðið að mósambískir karlar
sem giftast útlenskum konum
geti ekki lengur átt sæti í ríkis-
stjórn cða skipað háar stöður
innan stjórnarflokksins, Frelimo.
Mósambiskar konur, sem
giftast útlendingum, glata þar
með borgararéttindum sínum í
Mósambík. Börn mósambískra
karla og útlenskra kvenna fá
ekki að gegna herþjónustu í
Mósambík „vegna hinnar út-
breiddu njósnastarfsemi", að
því er forseti landsins, Samora
Machel, sagði á kvenna-
ráðstefnu í Maputo fyrir
skömmu.
Fróóleikur og
skemmtun
fyrirháa sem lága!
ætlaði að nema Höllu á brott af
heimilinu leist mér ekkert á blik-
una, auk þess sem mér féllu hreint
ekki vel ýmsar hispurslausar at-
hugasemdir hans og tilsvör. Þetta
breyttist síðar.
Enda þótt Einar á Hæli væri
fyrst og fremst bóndi átti hann
fjölmörg önnur hugðarefni og
áhugamál. Hann ræktaði jörð sína
og búfé af dugnaði og kostgæfni og
hafði góðan arð af búi sínu, fylgd-
ist vel með og tileinkaði sér nýj-
ungar og tækni í búskap, þó aldrei
nema að vel athugðu máli, en var
jafnframt fastheldinn á gamla og
góða siði og venjur. Honum þótti
sómi að teljast til íslenskrar
bændastéttar, hafði mikinn metn-
að fyrir hennar hönd og var skjót-
ur til svara ef honum þótti ómak-
lega að bændum vegið. Ásamt
búskapnum gegndi Einar margs
konar félagsmálastörfum að
mestu á sviði búnaðarmála og
naut sín þá vel skörp dómgreind
hans, áhugi og hæfileiki að sjá að-
alatriði hvers máls. Einar á Hæli
myndaði sér ákveðnar skoðanir á
málefnum, átti hægt með að koma
þeim á framfæri í ljósu og glöggu
máli og fylgdi þeim eftir við hvern
sem var og hvar sem var. Hann
fór aldrei í kringum hlutina held-
ur kom beint framan að mönnum
og málefnum. Hreinskilni og
beinskeytt gagnrýni voru ríkir
þættir í skapgerð hans, oft bland-
in glettni og gamansemi.
Það er kannski ekki alltaf auð-
veldasta leiðin að koma til dyr-
anna eins og maður er klæddur og
segja það sem manni býr í brjósti
og fyrir kom, að mér þótti ekki
auðvelt að verða fyrir hispurs-
lausri gagnrýni Einars, en þeim
mun betra var að fá frá honum
viðurkenningarorð, þar sem
treysta mátti, að hann meinti það
sem hann sagði. Hann var rækt-
unarmaður, ekki aðeins jarðar og
búfjár, heldur og þess mannlífs,
sem í kringum hann var og við það
notaði hann sínar eigin aðferðir.
Einar á Hæli var ritfær vel, las
mikið og var vandfýsinn á bækur,
hafði mikið yndi af ljóðum, enda
vel hagmæltúr sjálfur. Hann var
greindur og gjörhugull alvöru-
maður, þótt glettni og gamansemi
væri honum einnig ofarlega í hug.
Á góðum stundum var hann
manna skemmtilegastur og hrók-
ur alls fagnaðar. Hann hafði
næmt auga fyrir umhverfi sínu og
mannlífi og tók ætíð virkan þátt í
lífi og starfi, meðan þrek og heilsa
entust.
En Einar hefur ekki staðið einn.
Ung gafst Halla honum og hefur
staðið við hlið hans síðan á hverju
sem hefur gengið, í blíðu og stríðu,
uns yfir lauk. Þau eignuðust fimm
mannvænleg bðrn, sem eru á lífi
og tveir synir þeirra hafa tekið við
búi á Hæli. Til Einars og Höllu
var gott að koma, á heimili þeirra
ríkti glaðværð og frjáslegt viðmót
og þó jafnframt festa og öryggi.
En skin og skúrir hafa skipst á
hjá Einari og Höllu og mörgum
mun minnisstæður 19. janúar 1959
er íbúðarhúsið á Hæli brann á ör-
skammri stund. Einar var við
endurskoðunarstörf hjá Búnað-
arbankanum í Reykjavík, þegar
bruninn varð, en Halla var heima.
Bæði tóku þau þessu áfalli með
miklu jafnaðargeði og styrk og
þökkuðu forsjóninni að ekki skildi
verða slys á fólki. Það atvikaðist
svo að við Halla urðum samferða
frá brunarústunum ásamt syni
þeirra ungum sem að vonum barst
lítt af. Dökk af sóti úr þessum vá-
lega eldsvoða svaraði hún syni
þeirra á þessa leið: Við skulum
ekki gráta, það verður byggður
nýr bær. Og aftur var byggður nýr
bær á Hæli og saman hjálpuðust
þau að Einar og Halla að byggja
upp heimilið að nýju, þakklát
hvort fyrir annað.
Ég þakka Einari langa og
trausta vináttu í minn garð og
fjölskyldu minnar, Höllu, börnum
þeirra og öllum, sem stóðu Einari
nær óska ég friðar og farsældar.
Haraldur Bjarnason
A EINNI
SEKÚNDU..
PRENTAR GEMINI
ALLT STAFRÓFID
FJORUM SINNUM
* Gemini nálaprentararnir frá Star vinna afar hratt. 120 stafir á hverri sekúndu — allt stafrófið
4 sinnum og gott betur — er þeim leikur einn.
* Gemini prentararnir hafa sitt eigið minni. Þeir geyma því og prenta upplýsingar um leið og
þeir létta á minni tölvunnar sem þeir eru tengdir við. Gemini prentararnir skila skýrri og
áferðarfallegri prentun með íslensku letri í mörgum stærðum og leturgerðum —
á rúllupappír, gataðan tölvupappír og lausar arkir.
* Þú tengir Gemini prentara jafnt við litlar og stórar tölvur af flestum gerðum og verðið er
ótrúlega hagstætt.
GEMINHOXi
kostar aðeins kr. 13.400,-
(með vinnslubreiddina 21 sm.)
GEMIN115Xi
kostar aðeins kr. 19.850.-
(með vinnslubreiddina 38 sm.)
Hérer tækifærið fyrirþá sem
vilja eignast alvöru prentara.
\ TOLVUDEILD
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
%
Hverfisgötu 33 — Simi 20560
Pósthölf 377