Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 6
78
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
xvt/ji IdI
23577
6t/ndwm. X f>óíi fc/vfu.
1()7 tfs‘t<Mur ^ rrrMmj "i/r™
fo Sœsrsfe/f kerrmulif'
JANE. WiKSTfZOM 06 A//HA WAHLGREN
a( (fW
i t
jjíjineLk^
Fræðslufundir
um Mið-Ameríku
HALDNIR verða á næstunni 5
fræðslufundir um Mið-Ameríku á
vegum El Salvador-nefndarinnar á
í.slandi. Verða fundirnir f Sóknar-
salnum, Freyjugötu 27.
Hefjast fundirnir nk. mánudag
og verða sem hér segir:
Mánudaginn 19. nóv. kl. 20.30.
Nicaragua. Fyrirlestrar og
myndasýning: Einar ólafsson og
Torfi Hjartarson. Sigurður Hjart-
arson segir nýjustu fréttir af
kosningunum.
Fimmtudagurinn 22. nóvember,
kl. 20. Staða Mið-Ameríku gagn-
vart Bandaríkjunum: Sigurður
Hjartarson.
Laugardagurinn 8. desember kl.
14. E1 Salvador: Einar ólafsson og
Ragnar Stefánsson.
I janúar verður fundur um
Hondúras, Guatemala og Costa
Rica: Snæbjörn Pálsson, Torfi
Hjartarson og Hólmfríður Garð-
arsdóttir.
Snemma í febrúar verður svo
fundur um Karabísku eyjarnar,
einkum Kúbu og Grenada: Ingi-
björg Haraldsdóttir og Kristina
Björklund.
Á fundunum verða myndasýn-
ingar, tónlist, kaffihlé og umræð-
ur. Allir eru velkomnir.
Frá Italíu:
Köflóttir kjólar
Köflóttar buxur
Köflóttar skyrtur
Jakkar
Kápur
Frá Finnlandi:
Loöskinnshúfur
Útigallar
Úlpur
Kápur
Frá Frakklandi:
Ungbarnafatnaður
Jogginggallar
Buxur
Peysur
Náttföt
Náttsloppar
ENGÍABORNIN
Sprengdu kók-
verksmiðjuna
HoffoU, ( olombíu 16. DÓTember. AP.
VINSTRI sinnaðir skæruliðar,
klæddir búningi stjórnarhersins,
sprengdu í loft upp verksmiðjur
Coca Cola í bænum Barrancaberm-
eja. Manntjón varð ekkert, en eigna-
tjón gæifurlegt.
ónafngreindur talsmaður hers-
ins sagði skæruliðanna hafa verið
12 talsins og gráa fyrir járnum.
Þeir hafi tjáð öryggisvörðum að
þeim hafi verið falin gæsla
ákveðna nótt vegna ótta við að-
gerðir starfsmanna verksmiðj-
unnar sem hafa krafist hærra
kaups síðustu vikurnar. Var
skæruliðunum trúað og hleypt
inn. Komu þeir þá fyrir sprengjum
sínum og hurfu að því búnu út I
nóttina. Þarna var á ferð eina af
fimm skæruliðahreyfingum sem
ekki hefur fallist á vopnahlé við
stjórnarherinn.
KÆRIRÐU ÞIG UM LÁGA
RAFMAGNSREIKNINGA?
OSRAM
Ijós og lampar eyöa broti af því rafmagni sem venjuleg
Ijós eyða og lýsa þó margfalt meira. OSRAM flúorsent
Ijós eyða 11 wöttum þegar þau bera 75 watta birtu. Svo
endast þau miklu lengur.
OSRAM CIRCOLUX ” stílhreint,
fallegt Ijós sem fæst í ýmsum útfærslum, hentar
stundum í eldhús, stundum í stofu eða hvar annars
staðar sem er - allt eftir þínum smekk.
Raftækjaverslunin H.G. Guöjónsson
Stigahlíö 45—47 — Suóurveri — Sími 37637
OSRAM
LJÓSLIFANDI ORKUSPARNAÐUR
OCTAVO 10 12