Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
93
stundum hafa þeir litla þekkingu
á því sem þeir eru að fjalla um.
Þess vegna er ég að meatu hættur
að lesa krítík, enda yrði söngur
minn illa ruglingslegur ef ég ætti ‘
að fara eftir öllu því sem um hann
hefur verið skrifað. En vissulega
eru til hæfir krítíkerar og ég vona
að almenningur átti sig á því
hverjir skrifa af þekkingu og
raunsæi. Samt sem áður er fólkið
sjálft alltaf besti krítíkerinn, fólk-
ið í salnum sem ég er að syngja
fyrir. Ég finn það hverju sinni
hvort ég hef náð til þess. Takist
mér það er ég ánægður."
— Eigum við von á að sjá þig og
heyra á íslensku óperusviði á
næstunni?
„Nei, ekki er það í augsýn. Að
vísu stóð til að ég kæmi heim til að
syngja í Rígólettó hjá Þjóðleik-
húsinu um jólin, en þeirri upp-
færslu var af einhverjum ástæð-
um aflýst."
— Hvað með (slensku óperuna?
„Ég veit lítið hvað er að gerast
þar innan veggja, en ráðamenn
hennar hafa ekki í alvöru leitað
eftir aðstoð minni. Ég vona bara
að þeir rati réttu leiðina og styrk-
ar stoðir komist undir íslenskt
óperulíf. Hins vegar finnst mér
það ögn undarlegt, miðað við þann
mikla fjölda fólks sem sagður er i
söngnámi á íslandi, að vetur eftir
vetur skuli sjást sömu andlitin i
flestum einsöngshlutverkunum f
uppfærslum íslensku óperunnar.
Ég er ekki að segja að þessir
söngvarar standi sig ekki i stykk-
inu, en þetta getur verið hættuleg
þróun þegar til lengri tíma er litið.
Unga fólkið þarf að fá tækifæri og
það á að vera hægt að veita þvi
tækifæri til að reyna sig, þegar
jafnvel eru 30—40 sýningar á
hverri óperu.
En vonandi fæ ég tækifæri til að
syngja í fallegri óperu heima á Is-
landi fyrr en síðar. Mitt heimafólk
hefur alla tíð tekið mér vel og ég á
landar.. m mikið að þakka."
— H. enær opnast þér dyr stóru
óperuhús \nna?
„Þetta er stór spurning drengur
minn, enda get ég ekki svarað.
Mér er sagt að það geti gerst hve-
nær sem er.“
• Margar leiðir
á toppinn
— Nú veit ég að þú hefur fengið
tilboð um að gerast „varamaður"
fyrir frægustu tenóra heimsins,
sem ef til vill hefði getað gert þig
að stjörnu á einni nóttu. Hvers
vegna hefur þú hafnað þessari
leið?
„Já, það eru til margar leiðir til
að öðlast viðurkenningu, frægð og
frama innan óperunnar. Ein er sú
að gerast „varamaður" fyrir fræga
söngvara. Þeir sem velja þessa leið
verða að sitja kaldir á bekknum og
bíða þess að aðalsöngvarinn for-
fallist. Það er svo undir hælinn
lagt hvernig varamaðurinn er
upplagður þegar kallið kemur.
Hann getur verið i „stuði“ og sleg-
ið i gegn, en það er líka til að allir
þeirra framtíðardraumar hafi
hrunið á einni nóttu og sumir
lenda í því að vera varamenn allan
sinn feril. Þess vegna kaus ég að
berjast áfram af eigin rammleik.
Ég hef að undanförnu verið að
syngja hjá mjög góðum óperuhús-
um og hef raunar þegar tryggt
mér verkefni næstu tvö árin og er
með bókanir allt fram til ársins
1988. Ég trúi því ekki öðru en mér
takist að opna dyr stóru húsanna
einhvern daginn. Én þegar að þvi
kemur ætla ég að vera vel undir
það búinn að þiggja boð þeirra,
þannig að ég geti notið þar gest-
risni um langa framtíð, en ekki
bara einu sinni. Það borgar sig
nefnilega ekki að taka of stóra
bita í einu; hann má ekki vera
stærri en kokið leyfir og maður
þarf að eiga gott með að melta
hann.“
• Söngurinn fyllir
í tómarúmið
— Þú ert á ferð og flugi Krist-
ján, býrð í ferðatösku stóran hluta
úr árinu, fjarri nánustu ættingj-
um og heimahögum. Grípa þig
aldrei leiðindi eða heimþrá?
„Sem betur fer kemur það sjald-
an fyrir, en þær stundir koma þó;
ég verð leiður og mig langar heim.
Þá tek ég oftast til við að syngja
og æfa mig tímunum saman. Ég er
nefnilega ekki einn á ferð; söngur-
inn er minn ferðafélagi og hann
fyllir í það tómarúm sem af og til
myndast í sálarkytrunni. Auk þess
hef ég verið svo lánsamur, að hafa
alltaf nóg að gera. Ég hef hrein-
lega ekki haft tíma til að láta mér
leiðast."
— Punktur?
„Já, við skulum setja punktinn
hér, en þú verður að muna mig um
það að bera kveðju mína heim, til
allra þeirra sem vilja taka henni,“
sagði hinn siglaði söngvari í lok
samtalsins.
Korktöfflur úr ekta leðri
og skinnfóðruðu innleggi.
No.1. litir: hvítar, drappaöar.
No. 2. litur: hvítar. Kr. 499.00
'SKOB-Dra Egilsgötu 3.
VELTUSUNDI 1 S: 18519
21212
American
Express
Tilboðsverslunin
Barónsstíg 18.
S: 23566. '
houstor od
Aðalstræti 4 — Bankastræti
■
FRAKKLAMDI:
GÍ^bsilegi^ borð-
lampar í miklu úrvali.
Sannkölluð
stofuprýði sem
hentar vel til
b tækifærisgjafa.
V ' '
HEIMILIS- 0G RAFTÆKJADEILD
[HEKLAHF
LAUGAVEGI 170- 172 SÍMAR 11687 - 21240