Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 34
106
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
* 1854—1900
OsKAR WlLDE
Ljónið í Lundúnum
Hann er kynlegur kvistur í mannkynssög-
unni og bókmenntanna. Hann fæddist inn
í heim Viktoríu drottningar, heim sem hon-
um leið ekki of vel í. Hann var ókrýndur konungur
samræðusnilldarinnar, hetju- og fegurðardýrkun-
ar. Hann var fórnarlamb fordóma, kreddukenn-
inga um siðavendi. Hann var dýrkaður sem fagur-
keri og húmoristi, fyrirlitinn sem meinhæðinn kyn-
villingur. Saga hans er saga snillingsins á „öld
þegar heimskingjar eru teknir alvarlega“ eins og
hann sagði sjálfur.
Bernskan
Það hefur verið sagt um móður
Óskars, sem þráði mjög að eignast
dóttur, að hún hafi orðið fyrir svo
sárum vonbrigðum þegar síðari
sonurinn fæddist, að hún hafi
klætt hann í telpuföt, og þetta
hafi síðan á einhvern dularfullan
hátt ráðið miklu um kynferðislíf
hans. En þar sem móðir hans fékk
ósk sína uppfyllta þremur árum
síðar, er ólíklegt að óskar hafi
verið klæddur í telpuföt eftir að
drengir fóru að klæðast öðrum
fötum en stúlkur.
Á þeim aldri, sem börn eru
venjulegast látin fara snemma að
sofa, var óskari og Willie eldri
bróður hans leyft að vera á fótum
og kynntust þeir bræður sam-
kvæmislífinu fyrr en þeim var
hollt.
Á tíunda aldursári var Óskar
sendur til náms í Enniskillen, þar
sem bróðir hans var fyrir. Óskar
var ólíkur öðrum drengjum að
smekk og hátterni, hafði fmugust
á líkamsæfingum, leit með fyrir-
litningu á áflog og strákapör. Hins
vegar var hann víðlesinn, hirti vel
um fötin sin, gekk með pípuhatt á
virkum dögum, dáðist að sólarlag-
inu, hafði yndi af blómum og sótt-
ist eftir einveru. Þrettán ára gam-
all var hann stór eftir aldri, búra-
legur í fasi og hafði aukið óvin-
sældir sínar meðal skólafélaga,
sem upphaflega voru sprottnar af
áhugaleysi hans á öllu lfkamlegu
atgervi, með því að sýna frábæra
hugkvæmni við að uppnefna hina
drengina. Uppnefnin voru svo
hnyttin, að ailir höfðu gaman af,
nema þeir sem þau festust við. En
hann var ónízkur á þau og fór
þeim því fækkandi sem ánægjunn-
ar nutu.
Hann var frábitinn skólanámi.
„Það má kenna fólki að muna en
ekki að þroskast,“ sagði hann.
Óskar spurði kennarana margra
kænlegra spurninga, sem smám
saman komu þeim út af laginu og
fengu þá til að ræða eitthvað ann-
að skemmtilegra en námsefnið.
Um einn atburð í æsku varð
honum svo mikið, að hann orti
nokkrum árum síðar um hann
kvæði, en það var dauði systur
hans, ísólu, sem dó níu ára gömul.
óskar var óhuggandi og einmana
og sat löngum við leiði systur
sinnar i kirkjugarðinum.
Óskar átti ekki velgengni sína
við námið dugnaði að þakka, þvf
að hann var latur við námið, en
það kom ekki í veg fyrir að honum
væri veittur fjárstyrkur til fram-
haldsnáms í Trinity College í
Dyflinni, þar sem hann stundaði
nám í þrjú ár.
Stúdentarnir við skólann höfðu
flestir meiri áhuga á spilum,
drykkju, áflogum, klámsögum og
kvennafari en hellenskri menn-
ingu, samræðusnilld og lestri
klassiskra bókmennta, svo það var
ekki undarlegt, að óskar hefði
ekki meira samneyti við þá en
nauðsyn krafði. Hann bjó við
gamalt torg, hfbýli hans voru
óvistleg, og bauð hann sjaldan
neinum til sín, en athygli þeirra
fáu gesta sem þangað komu,
beindist fyrst og fremst að áber-
andi blómaskreytingum og lands-
lagsmynd, sem hann þóttist alltaf
vera að bæta. Stundum fór hann á
fund í heimspekifélagi háskólans,
en talaði sjaldan; lét bróður sinn
um að halda á loft heiðri ættar-
innar í þeim efnum.
í Trinity College fór eins og áð-
ur í gagnfræðaskólanum, að óskar
reyndist linur við námið í fyrstu,
en skaraði fram úr undir lokin.
Hann var hyskinn að eðlisfari og
hliðraði sér hjá vinnu í lengstu
lög. Frábært minni bjargaði hon-
um við námið. En þegar faðir hans
gaf í skyn að hann fengi að fara til
Oxford, sýndi hann hvað í honum
bjó og hlaut á einu ári styrk til
framhaldsnáms frá Trinity,
Berkeley-gullmedalíuna fyrir af-
burðaþekkingu í grísku og
námsstyrk sem nam 95 sterlings-
pundum árlega frá Magdalen Col-
lege í Oxford.
Erfiöur nemandi
Dvöl óskars í Oxford einkennd-
ist af uppreisnarhneigð gegn
skólastjórninni. Hann gat ekki
stillt sig um að ergja og stríða
kennurum og prófessorum skól-
ans.
óskar fór í próf í guðfræði.
Prófað var eftir stafrófsröð, svo
það kom ekki að sök þó hann kæmi
hálftíma of seint. (Þér verðið að
afsaka mig, ég hef enga reynslu í
þessum skyndiprófum, sagði
hann), en prófdómendurnir fyrt-
ust við kæruleysi hans og fengu
honum biblíuna og skipuðu að
skrifa upp 27'. kapítula postula-
sögunnar. Þegar óskar hafði
skrifað góða stund var þeim runn-
in reiðin og sögðu honum að
hætta. Klukkustund síðar var
Óskar enn að skrifa og kölluðu
þeir hann til sín. „Heyrðuð þér
ekki Wilde, að við sögðum að þér
hefðuð skrifað nóg?“ „Ó, jú víst
heyrði ég til yðar,“ svaraði óskar,
„en ég hafði of mikinn áhuga á
efninu til að hætta. Það er sagt frá
manni einum, Páli að nafni, sem
lagði af stað í sjóferð og hreppti
aftakaveður. Ég varð dauðhrædd-
ur um að hann mundi drukkna, en
vitið þér bara, herra Spooner,
hann komst lífs af. Ég varð svo
feginn að ég var kominn á fremsta
hlunn með að fara til yðar og
segja yður frá þvi.“
Við rektorinn í Oxford sagði
Wilde: „Ég er að hugsa um að gefa
háskólanum styttu af mér.“
Margt var einkennilegt í fari
Óskars. Hárið var brúnjarpt og
sítt, andlitið stórt og fölt, ennið
hátt og svipmikið, varirnar mun-
aðarlegar, augnalokin mikil.
Kunningjar hans hafa lýst augna-
litnum ýmist bláum, gulgrænum,
brúngulleitum. Andlitssvipurinn
og tal hans lýstu alltaf óraskan-
legri glaðværð. Luraskapurinn
hafði elst af honum, hann var yfir
sex fet á hæð og látbragð hans bar
vitni um sjálfsöryggi. En allt það
sem var sérkennilegt f klæðaburði
og útliti gleymdist um leið og
hann fór að tala.
Hitabeltisjurt
í mannsmynd
Óskar Wilde kemur alltaf fyrir
sjónir sem flugskarpur stúdent, að
hálfu leyti drengur, að hálfu leyti
snillingur. Tilfinningalíf hans
komst aldrei af æskuskeiði þótt
skynsemi hans næði frábærum
þroska og skarpskyggnin væri ein-
stæð. Fyrstu árin eftir að hann
lauk háskólanámi bar þó mest á
því strákslega í fari hans.
Snemma var Óskar Wilde talinn
forsprakki fagurkeranna. Fegurð-
ariðkunin fann fljótlega hljóm-
grunn f huga Óskars, sem var
bæði listrænn og óháður almenn-
ingsálitinu. Hann gerði umbætur í
klæðaburði að höfuðviðfangsefni
sínu. Áður hafði hann leitast við
að ná góðri yfirsýn yfir Iistirnar,
en þegar hann fór frá Oxford, lýsti
hann sjálfum sér sem gagnrýn-
anda allra lista og játanda fegurð-
ardýrkunar.
Síðar sagði óskar: Ekkert er
eins hættulegt og að fylgjast of vel
með tískunni. Menn geta allt í
einu orðið gamaldags.
Menn vekja fremur á sér athygli
með klæðum og blómaburði en
orðum. Aðrir fagurkerar en óskar
voru ekki eins vel settir, því að
menn geta ekki klæðst veggfóðri
og hengt utan á sig málverk.
Margir góðir Iistamenn, sem við
þessa viðleitni voru bendlaðir,
hurfu í skugga Óskars og voru
hafðir að athlægi í þokkabót. Leið
óskars til að friðþægja hégóma-
girnd sinni var einfaraleið og ber
honum glöggt vitni.
Fulltingis kvenna naut hann.
Konur dáðu hann, en karlmenn
sem þekktu hann ekki og sumir er
það gerðu, höfðu óbeit á honum,
m.a. vegna kvenhyllinnar. óskari
veittist auðvelt að ávinna sér vin-
áttu kvenna. Hann var blíðlyndur
og skjallaði. „Að skemmta eða
hneyksla kvenfólk er galdurinn,"
sagði hann.
Oskar einsetti sér að verða um-
talsefni manna, því að frægð er fé
og fé frelsi. Flestar firrurnar
sagði hann til að skemmta sjálfum
sér og hneyksla aðra. Uppsker-
unnar var ekki langt að bíða. í
febrúar 1880 birti George du
Maurier skopmyndir af honum í
Punch. Ritstjóri blaðsins, Bur-
arnd, samdi leikrit, skrummynd af
óskari Wilde, fagurkera, skrum-
ara og svikara. Stuttu síðar voru
tvö önnur leikrit svipaðs efnis
leikin í kunnum leikhúsum. Én
frægasti skopleikurinn, þar sem
Óskar var tekinn fyrir, var Pati-
ence eftir Gilbert og Sullivan og
naut fádæma vinsælda.
Tekjur hans voru samt engar
þrátt fyrir umtalið. Hann veðsetti
föðurleifðina og var stórskuldug-
ur. Ljóð eftir hann komu út árið
1881. Mörg forlög neituðu að gefa
út eftir hann, en eftir að hann tók
upp á því að auglýsa knébrækur og
annan undarlegan klæðnað, börð-
ust forlögin um handritið. Bókin
fékk lélega dóma, en seldist vel
engu að síður.
Hann hafði litlar tekjur og reit
því leikrit, en sýningum var frest-
að um stundarsakir vegna stjórn-
málaástandsins f landinu, að því
er sagt var.
Bandaríkjamenn höfðu einnig
gaman af leikritinu um Óskar,
höfðu þeir hug á að berja augum
þennan fræga fagurkera. í október
1881 barst Oskari skeyti, þar sem
hann var spurður hvort hann
fengist til að leggja upp í fyrir-
lestrarferð um Bandaríkin. „Já, ef
tilboðið er gott,“ var svarið.
„Hvað hafið þér til að gefa
upp?“ spurði tollþjónninn þegar
óskar steig á land. „Ekkert," svar-
aði Óskar, „nema snilld mína.“ Fá
tilsvör hafa borist jafn víða á eins
skömmum tíma.
Almenningur í Bandaríkjunum
virtist halda að óskar lifði á
blómum og búist var við hitabelt-
isjurt í mannsmynd. Blaðamenn
flykktust á skipsfjöl til að ná tali
af honum, en þeim varð hverft við
þegar þeir sáu hve myndarlegur
maður hann var.
Reyndar var hann síðhærður í
sægrænum lafafrakka, með sel-
skinnshettu á höfði, en jötunn að
vexti og hnefar hans allt annað en
árennilegir. Hann bjóst vitanlega
við fyrirspurnum um fyrirlestrar-
ferðina, en í stað þess spurðu
blaðamennirnir hann hvernig
hann vildi láta steikja egg, í
hverju hann svæfi og hve heitt bað
hann tæki. Svör hans lýstu svo al-
gjöru skeytingarleysi að blaða-
mennirnir leituðu til farþeganna
um bragðmeira blaðaefni.
Eftir heimkomu sína frá Banda-
ríkjunum skemmti óskar í nokkr-
um samkvæmum með frásögnum
úr ferð sinni og athugasemdum
eins og: „Bandaríkjamenn og Bret-
ar eiga flest sameiginlegt, —
nema auðvitað málið."
Gagnkvæmur
misskilningur
Það var í fyrirlestrarferð í nóv.
1883, að Óskar lofaðist stúlkunni,
sem síðar varð kona hans, Konst-
ansa Lloyd. Þau voru kynnt í
veislu fyrir ungt fólk 1881 og
felldu undir eins hugi saman.
Fundum þeirra bar næst saman
tveimur árum síðar og óskar bað
hennar. Hún gaf honum jáyrði sitt
með bréfi og sagðist vera ham-
ingjusömust allra kvenna, af þvi
að hann hefði valið hana úr þeim
kvennaskara sem dáði hann.
Konstansa var grannvaxin og
frið, fámálug en aðlaöandi. Þegar
Óskar var spurður hvers vegna
hann hefði orðið ástfanginn af
Konstönsu, svaraði hann: „Hún
talaði aldrei, og mig langaði til að
lesa hugsanir hennar.“ Eins og við
var að búast hafði hann oftast
orðið, þegar þau voru saman.
Þau voru gefin saman 29. mai
1884 í St. James-kirkju í Padding-
ton-hverfinu í Lundúnum. Mikill
mannfjöldi safnaðist þar saman,
ekki til að vera við hátíðlega at-
höfn, heldur til að sjá óvenjulega
sjón, og fólk varð ekki fyrir von-
brigðum. Brúðarkjóllinn var með
afbrigðum glæsilegur, og búning-
ur brúðarmeyjanna sex eftir þvi
sérkennilegur. Guli liturinn var
mest áberandi, nema hvað lafði
Wilde klæddist hárauðum kjól.
óskar lét skrifa sig sjentilmann í
kirkjuregistrið, en ekki rithöfund,
og 28 ára gamlan, eða ári yngri en
hann var.
Ibúð þeirra i Chelsea var full-
búin nokkrum vikum siðar.
Heimanmundur Konstönsu gerði
þeim kleift að breyta mjög fá-
brotnu húsi i afar sérkennileg
húsakynni.
óskar Wilde hefur látið nokkur
orð falla um ástina og hjónaband-
ið:
Káputeikning á verki þar sem grín
var gert af Oskari Wilde.
„Gagnkvæmur misskilningur er
besti grundvöllur hjónabandsins."
„Menn eiga alltaf að vera ást-
fangnir, þess vegna eiga þeir aldr-
ei að giftast."
„Eftir tuttugu ár af ástarævin-
týrum svipar konunni einna helst
til rústa, en eftir tuttugu ára
hjónaband er hún áþekkust al-
menningsbyggingu."
Óskar var frábitinn öllu heimil-
islífi og greip hann til fáránleg-
ustu skýringa á fjarvistum sínum
að heiman. Bréf Konstönsu lýsa
svo sem frekast má hrekkleysi
hennar. „Óskar hugsar nú vart um
annaö en golf og er 2 til 3 tfma á
dag á golfvellinum," segir hún á
einum stað. Þeir, sem iðka golf,
hefðu vafalaust orðið forviða á
lýsingum hans á leiknum.
Gamansamur
gagnrýnandi
„Ég er hrifinn af tónverkum
Wagners. Hávaðinn í þeim er svo
yfirgnæfandi að hægt er að tala
viðstöðulaust meðan þau eru leik-
in, án þess að því sé veitt athygli."
„Hljómlistarunnendur eru allra
manna ósanngjarnastir. Þeir
heimta, að menn séu mállausir,
þegar menn vilja helst vera heyrn-
arlausir."
Þessi orð lét Óskar falla um
tónlistina, en árum saman reit
hann greinar um ýmsar greinar
listanna. En hann var of blíðlynd-
ur og skopskynugur til að særa