Morgunblaðið - 18.11.1984, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 18.11.1984, Qupperneq 52
124 MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 • 19tl Univrtol Syndicof v Mtr er cd\Jeg samc«. ÝwJab þfer fínnst _ \>Ckb ex kQ sem verb cé> Kaf<a. þa5 íyr'ir augunurvií" Ast er... ... að bíða eftir bréfi frá honum. TM Reg. U.S. P«t. Off — all ríghts r®s«rv«<J * 1979 Los Angetes Times Syndtcate Segðu burrr burrr! Maðurinn minn skilur mig ekki! HÖGNI HREKKVÍSI „Er þessi maður ekki af heiminum?" Rósa B. Blöndals skrifar: „Er þessi maður ekki af heimin- um?“ Þannig spurði barn fyrir mörgum árum. — Það var kveld. Þá var vetur. Fimm ára drengur var háttaður í rúm afa sins. Sími var við rúmið. Síminn hringdi. Barnið svaraði. — Ég kom og sá á svip drengsins, að kveðja viðmael- andans gladdi hann strax. Síðan sást meiri og meiri undrun og birta í svip barnsins, eins og þegar sálin vaknar. Ég heyrði á svörum drengsins að viðtalið var óvenjulegt og merkilegt, þvi að svipur hans varð sifellt bjartari og ávallt enn meira hissa, þangað til hann segir allt í einu: „Er þessi maður ekki af heim- inum?“ Þá heyrði ég lifandi og skemmtilegan hlátur í símanum. — Það var herra Sigurbjörn Ein- arsson, þáverandi biskupinn yfir íslandi, sem hló. Nú kom út fyrir jólin, í fyrra- vetur, bók, sem geymir og gefur þau svör, sem vekja sál og hugsun barnsins, bók, sem heitir „Af hverju afi? Bókin er í raun og veru for- eidra-handbók. Hún er líka nauð- synleg handbók fyrir barna- kennara. Ég hef oft heyrt foreldra og stundum kennara spyrja: Hvernig á ég að svara spurningum Þessir hringdu . . . Heitt og kalt ekki í Hafnarstræti Hallveig hringdi: í Velvakanda á miðvikudag er lítil klausa undir fyrirsögn- inni „Hvar er Grófin?“ Mér finnst gæta nokkurs misskiln- ings í grein þessari, því þar er sagt, að Heitt og kait hafi verið á árum áður í húsinu þar sem bókaverslun Snæbjarnar er nú. Það er ekki rétt, Heitt og kalt var i húsinu þar sem Eros er núna. Það er oft sagt að það hús sé við Hafnarstræti 4, en það er einnig rangt, það til- heyrir Veltusundi. Mér er vel kunnugt um þetta, því ég er alin upp í húsinu Hafnarstræti 4. Rósa B. Blöndals álítur, að bók Sig- urbjörns Einaresonar, „Af hverju afi“ etti að kenna { grunnskólum landsins. barnanna um Guð, um heiminn, lífið og tilveruna? „Af hverju afi?“ gefur góð svör við þessum spurningum. Og bókin leysir ýmsar flækjur í sambandi við þær spurningar barnsins, sem enginn maður hefur fullnægjandi svör við, þótt barnið spyrji af lif- andi hugsun, ferskri greind og af þeirri djúpu alvöru, sem barn býr yfir. Bók biskupsins er mjög lifandi, litrík og skemmtileg, sem vænta má. Hún er holl fyrir unga sál, sem er að vakna í gömlum heimi, sem er samt sem áður hverjum nýkomnum manni nýr. Bók biskupsins er handbók þjóðhátta og þjóðlífs, bæði í trú og félagsfræði liðins tíma, leidd inn i nútfð. Ungur maður koma séra Sigur- björn Einarsson inn í vort þjóðlíf og fékk þjóðina alla til þess að hlusta á Passíusálma í útvarpi, svo sem það hét þá, áður en sjón- varpið olli hljóðvarpi á útvarpinu. Og hann fékk þjóðina til að hlusta á Vídalíns-kenningu. Á séra Sigurbjörn Einarsson hlustuðu unglingar, sem annars vildu ekki heyra stólræður. Hann varð á fáum árum ástmögur þjóð- arinnar. „Helstu trúarbrögð heims“, önn- ur bók Sigurbjarnar, er ekki fræðilegt torf, heldur alhliða upp- byggjandi skemmtilestur, sem þó er fræðigrein, vel til fallin handa gagnfræðaskólum. Heimskringla ætti siðan að vera lesin i efsta bekk gagnfræðaskóla, eins og hver önnur framhaldssaga. Það hefur áreiðanlega betri áhrif á tungutak nemenda en aukið málfræði-stagl. Hér set ég eina frásögn af þvf, hvernig Sigurbjörn biskup náði tií barna i stólræðu. — Sex ára drengur sat við hlið mér i kirkju. Prédikarinn var Sigurbjörn bisk- up. — Textinn var ekkjan í Nain. Sem vænta mátti vissi barnið, sem hjá mér sat, að maður má ekki hvislast á i kirkju. En það fór nú samt i þessu tilfelli fyrir litla drengnum, eins og erkibiskupi í Lundi, sem leit við i kirkjunni, þegar hann heyrði Jón ögmunds- son syngja. — Þegar Sigurbjörn biskup hafði um stund talað um ekkjuna i Nain, þá tók drengurinn litli hægt í öxlina á mér og vildi hvísla. Ég beygði mig, því að ég veitti því athygli, að barnið fylgd- ist vel með ræðunni. — Hann spurði: Hvar er hún? — Ég spurði á móti, mjög lágt: Meinarðu ekkjan? Já, svaraði barnið. Mér hafði sýnst hann áður vera að svipast um i kirkjunni. — Við getum nú ekki séð hana hérna, hvfslaði ég. Bisk- upinn er að lýsa liðnum atburði, þegar ekkjan mætti Jesú, og Jesús gaf henni aftur dána soninn lif- andi. Ég tek fáein orð hér úr bókinni Af hverju afi? Um afa sinn, ömmu og foreldra segir hann við börnin. „Nú eru þau öll dáin.“ — „Af hverju?“ spyr barnið. — „Við köllum það að deyja, þegar við verðum að fara burt af jörðinni. Það verða allir að gera, þegar þar að kemur.“ —Af hverju?“ spyr barnið. Hann svar- ar: „Bráðum þarft þú að fara að sofa. Við verðum að sofna á kvöld- in, þegar við erum orðin þreytt. Þegar við erum búin að sofa, vökn- um við aftur. Þá er kominn morg- unn.“ — Síðan heldur samtalið áfram í myndum. Best að lesa bók- ina sjálfa. Hún er ekki nema 90 blaðsíður. Það er mikið efni á þeim blaðsiðum. Ég var að vona, að þeir, sem ráða þvi í þessu þjóðfélagi, hvaða bækur eru þýddar hvert ár af is- lensku á hin Norðurlandamálin, hefðu tekið eftir þessari merkilegu bók biskupsins, Af hverju afi? Bók- in er alveg nýjung að gerð, alveg sérstök. Þannig efni og efnismeð- ferð hef ég ekki fyrr séð meðal íslenskra bóka. Ég hef ekki heldur hitt á neina svipaða bók á öðrum Norðurlandamálum. „Af hverju afi“? er góð gjöf handa börnum, unglingum og for- eldrum. Útgáfan sjálf hefði mátt vera fallegri, þar á ég bæði við hlutföll bókarinnar og kápumynd. Svo mikinn auð, sem bókin geymir, þá hún skilið fagurt form. Sumum kann að detta i hug eft- ir að hafa lesið bókina „Er þessi maður ekki af heiminum?“ Fleiri útvarpsstöðvar Sigurjón Sigurdsson skrifar: „Nokkur blaðaskrif hafa að und- anförnu orðið um breytingar þær, sem tveir nafngreindir útvarps- þulir hafa gert á efni því, sem þeir fá í hendur. Ekki koma þær aðgerðir á óvart, því að fréttamenn á viðkomandi stofnunum munu fyrir löngu hafa óskað þess, að efni það sem vissir þulir fá í hendur frá þeim, yrði jafnan tekið upp á segulbönd. Þá er og alkunna og víðfrægt, er ákveðnir og nafngreindir starfs- menn útvarpsins tóku sig til og útvörpuðu án heimildar útvarps- ráðs frá útifundi, er þeir boðuðu til í þeim tilgangi að mótmæla byggingu húss hér í borg. Af þess tilefni tel ég rétt að koma á framfæri eftirfarandi frásögn kunningja míns, sem er maður prúður og sannorður: Svo bar til fyrir fáum árum, að kunningi minn þurfti að annast útför aldraðs ættingja. Fór hann þá m.a. á auglýsingastofu útvarps- ins með vélritaða auglýsingu um útförina. Undirritunin var: að- standendur. Stúlka sú, er þarna var við afgreiðslu, kvaðst ekki taka við auglýsingu með þeirri undirskrift. Var hún þá spurð um ástæður þess. Og þar stóð ekki á svari: Þulirnir vilja ekki lesa þetta orð. (???) Kunningi minn er mað- ur hógvær og friðsamur og gerði ekki athugasemdir en sagði mér þó (og e.t.v. fleirum) frá þessum atburði síðar. Sem sagt: Þulir neita að lesa út- fararauglýsingar ef þær eru ekki þeim að skapi (varla hafa þó þulur talið orðið aðstandendur vonda ís- Ienzku, því að í þáttum sem þeir semja og flytja sjálfir, er allt mor- andi af erlendum orðskrípum, sem dynja sí og æ í eyrum hlustenda). — Tími er því til þess kominn, að fá fleiri útvarpsstöðvar, þar sem vissar ættir og fjölskyldur gera sig ekki of digrar. Enda sannaðist á verkfallsdögum að margir geta gert eins vel og jafnvel betur.“ m I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.