Morgunblaðið - 02.12.1984, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984
Landbúnaðarvörur:
Grundvallarverð
hækkar um 11,8%
GRUNDVALLARVERÐ landbúnad-
arvara hækkar um 11,8% frá og með
fyrsta desember samkvæmt útreikn-
ingi sexmannanefndarinnar, sem
fyrir iá um hádegið í gær. Útsöluverð
einstakra afurða hafði þá ekki enn
verið reiknað ÚL
Að sögn Gunnars Guðbjartsson-
ar verður ekki alveg sama hækkun
á afurðum, sérstaklega kjöti. Þ6
munu beztu gæðaflokkar kjöts
annaðhvort hækka um 11,8% eða
minna, en lakari flokkarnir eitt-
hvað meira. Mjólkin hækkar hins
vegar um 11,8%. Gunnar sagði í
samtali við Morgunblaðið um há-
degisbilið í gær, að enn ætti eftir
að ganga frá útsöluverði einstakra
afurðaflokka, en það miðaðist
meðal annars við það hvort niður-
greiðslum yrði breytt eða ekki.
Harvester selur
landbúnaðartækja-
verksmiðjur sínar
Alþjóðafyrirtækið Tenneco hefur
keypt iandbúnaðartækjaverksmiðjur
International Harvester, en Harvest-
er hefur verið rekið með tapi mörg
undanfarin ár og hafði áður selt iðn-
aðartækjaverksmiðjur sínar. Tenn-
eco fól dótturfyrirtæki sínu, Case,
umsjón með framleiðsiu og sölu
landbúnaðarvélanna. Umboðsaðili
Case á fslandi er fyrirtækið Vélar og
þjónusta hf.
Samband ísl. samvinnufélaga
hefur undangengna áratugi verið
umboðsaðili International Harv-
ester en stór hluti hérlendra land-
búnaðartækja eru frá því fyrir-
tæki. Bjarni Sighvatsson, sölu-
stjóri Véla og þjónustu, sagði í
viðtali við Mbl., að þeim væri ekki
kunnugt um hvernig Case hygðist
standa að landbúnaðartækjafram-
leiðslunni, hvort þeir framleiddu
áfram undir nafni Harvester, eða í
sínu eigin nafni. Þeim hefði ein-
Loðnuveiðin:
Víkingur
AK með
1.300 lestir
FÁ SKIP voru að loðnuveiðum á
Uugardag, aðallega vegna helgarfría
sjómanna. Að sögn Loðnunefndar
munu þau skip, sem voru á miðun-
um aðfaranótt laugardagsins öll
hafa fengið góðan afla.
Mjög góð veiði var á föstudag,
en þá tilkynntu 28 skip um sam-
tals 21.500 lesta afla. Auk þeirra
skipa, sem áður hefur verið getið i
Morgunblaðinu, tilkynnti Guð-
mundur RE um afla, 950 lestir, á
föstudag.
Skömmu fyrir hádegi á laugar-
dag höfðu eftirtalin skip tilkynnt
um afla, samtals 5.500 lestir: Beit-
ir NK, 1.350, Svanur RE, 680,
Þórður Jónasson EA, 520, Sæberg
SU, 630, Víkingur AK, 1.300, Al-
bert GK, 600 og Erling KE, 420
lestir.
vörðungu verið tilkynnt um kaup
Tenneco og yfirtöku Case á Int-
ernational Harvester.
Þess má geta, að Globus hf.
hafði um árabil umboð fyrir drátt-
arvélar frá David Brown. Tenneco
keypti það fyrirtæki fyrir nokkr-
um árum. f dag hefur fyrirtækið
Vélar og þjónusta umboð fyrir
þær dráttarvélar, eða frá síðustu
áramótum, þegar Case tók við
framleiðslu þeirra og sðlu undir
eigin nafni.
MorgaabtaM/Ani Sæberg
Dansmeistari
Sigurvegari í „Diskó freestyle“-
-keppni 18 ára og eldri sem fram
fór I Klúbbnum á Töstudags-
kvöld varð Rúrik Viðar Vatnars-
son. Verðlaunin afhenti brezki
dansarinn Vernol John. Rúrik
verður fulltrúi íslands í Heims-
meistarakeppni í diskódansi
sem haldin verður I London í
desember.
LEIFUR Breiðfjörð listamaður
hefur nú lagt síðustu hönd á
útfærslu listaverks síns í kór-
glugga Bústaðakirkju en hann
er 14,5 metra hár.
Leifur sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði
byrjað á verkinu fyrir þremur
árum. „í rauninni byrjaði ég að
hugsa um það fyrir löngu,“ sagði
Leifur. „Lokaprófsverkefnið mitt
1967 var einmitt tillaga að
steindum gluggum í Bústaða-
kirkju og studdist ég þá einungis
við teikningar af kirkjunni, þar
sem rétt var byrjað að vinna við
hana. Ég hef unnið verkið í
þremur áföngum og var nú að
ljúka við efsta hlutann. Allt
glerið, sem að hluta til er steint,
var keypt í Þýskalandi. Eigin-
kona mín, Sigríður Jóhannsdótt-
ir myndvefari, hefur hjálpað
mér mjög mikið því hún sá um
alla blýlögnina." Kvaðst Leifur
hafa hlotið þriðju verðlaun fyrir
þetta verk í alþjóðlegri sam-
keppni í Kaliforniu, „Fragile Art
’83“, en þangað sendi hann lit-
skyggnur og teikningar af því.
Aðspurður sagði Leifur að
þetta væri stærsta verk sem
hann hefði lokið við fram að
þessu. „Ég er langt kominn með
listaverk í kórglugga Dómkirkj-
unnar í Edinborg og verður það
viðamesta verkið sem ég hef
unnið. Þrír húsgagnasmíða-
meistarar hafa sett listaverkið á
sinn stað, þeir Karl Maack, Frið-
rik Friðriksson og Björn Böðv-
arsson. Hafa þeir unnið verk sitt
frábærlega vel og ekki misst
eina einustu rúðu. Kann ég þeim
mínar bestu þakkir,“ sagði Leif-
ur Breiðfjörð.
Séra ólafur Skúlason, vigslu-
biskup og sóknarprestur í Bú-
staðakirkju sagði að nú væri
langþráðum áfanga náð. „í raun-
Morgunblaðiö/Friðþjófur
Á myndinni eru talið frá vinstri: Leifur Breiðfjörð listamaður, Ottó A.
Michelsen safnaðarfulltrúi, Ásbjörn Björnsson formaður sóknarnefndar,
séra Ólafur Skúlason vígslubiskup og sóknarprestur og Óskar Magnús-
son kirkjuvörður. Á bak við þá eru húsgagnasmíðameistarar að Ijúka við
að koma listaverkinu fyrir.
Listaverk Leifs Breiðfjörð í
kórglugga Bústaðakirkju fullunnið
Kirkjan 13 ára í dag
inni stóð ekki til að ljúka
verkinu fyrr en undir jól en Leifi
tókst að ljúka því í tæka tíð fyrir
13 ára afmæli kirkjunnar sem er
í dag,“ sagði séra ölafur. „Verð-
ur kórglugginn því vígður við
messu og á eftir býður kvenfé-
lagið upp á kaffi.
Næsta verkefni sóknarinnar
er að huga að lýsingu á kór-
gluggann því hún skiptir geysi-
legu máli svo verkið fái notið sín.
Leifur hefur þegar unnið tillögur
að steindu gleri { alla glugga
kirkjunnar og er nú næst á
dagskrá að taka ákvörðun urr
hvort að við höldum áfram með
gluggana eða snúum okkur að
því að kaupa stærra orgel. Ég vil
að endingu færa listamanninum
Leifi Breiðfjörð og húsgagna-
smíðameisturunum þremur
fyllstu þakkir fyrir ákaflega vel
unnið starf," sagði séra ólafur
Skúlason.
Salan á Bjama Bene-
diktssyni samþykkt
Nafninu breytt í Merkúr RE 800
BORGARRÁÐ samþykkti á fundi
sínum föstudag, kaupsamning
sem fyrir lá um sölu i skuttogaran-
um Bjarna Benediktssyni. Var kaup-
samningurinn samþykktur með fjór-
um samhljóða atkvæðum, Sigurjón
Pétursson, Alþýðubandalagi, sat hjá.
Áður hafði samningurinn verið sam-
þykktur í útgerðarráði BÚR með
fjórum samhljóða atkvæðum.
Tillaga Sigurðar E. Guðmunds-
sonar þess efnis að falla frá sölu á
togaranum og breyta honum í
frystiskip var felld með öllum at-
kvæðum. Samkvæmt samningnum
er söluverð skipsins tæpar 77
milljónir króna og eru kaupendur
Kristinn S. Kristinsson og Krist-
inn Gunnarsson og munu þeir
stofna nýtt hlutafélag um útgerð
skipsins. Ákveðið hefur verið að
setja frystibúnað um borð í togar-
ann og gera hann út sem frysti-
togara bæði til flökunar og heil-
frystingar á fiski og rækju. Nafnið
Bjarni Benediktsson fylgir ekki
með í kaupunum, en Kristinn S.
Kristinsson sagði i samtali við
Morgunblaðið í gær, að ákveðið
hefði verið að nefna skipið Merk-
úr, RE 800.
Fjölmiðlanotkun unglinga í Reykjavík:
Helmingur hlustar á
NÆR ALLIR reykvískir unglingar, eða 98% þeirra, hlusta á Rás 2 í Ríkisútv-
arpinn. Tveir af hverjum þremur unglingum horfa á sjónvarp daglega og
myndsegulband er til á þriðja hverju heimili í Reykjavík. Þetta kemur fram
í könnun, sem Adolf H. Emilsson vann í janúar sl., og var verkefni hans til
lokaprófs í fjölmiðlafræðum við háskólann í Gautaborg i Svíþjóð. Könnunin
náði til 400 unglinga á skólaaldri.
Adolf hefur einnig kannað fé-
lags- og stéttarlega stöðu ungl-
inga í Reykjavík. Könnun hans
leiðir í ljós að meira en helming-
ur unglinga í höfuðborginni
hlustar reglulega á fréttir í út-
varpi. Þeir sem hlusta mest á
fréttir eiga langskólagengna feð-
ur og búa í einbýlishúsum. 99%
unglinga horfir á sjónvarp í
hverri viku, % hlutar daglega.
Piltar horfa meira á sjónvarp en
stúlkur og eftir því sem þau eld-
ast minnkar sjónvarpsnotkunin.
Börn langskólagenginna feðra
horfa heldur minna á sjónvarp
en önnur og þau, sem standa sig
illa í skóla, horfa mun minna á
sjónvarp en önnur.
Hvað varðar myndbandanotk-
un (video) þá eru myndbands-
tæki til á þriðja hverju heimili í
fréttir
borginni. Þar sem fyrir eru
heimavinnandi húsmæður eru
myndbandstæki til á öðru hverju
heimili. Um helmingur unglinga
horfir örsjaldan á myndbönd,
7% þeirra nota þau daglega. Þeir
sem horfa mest á þannig efni
búa í úthverfum borgarinnar,
eiga lítt menntaða feður og
heimavinnandi mæður, segir í
niðurstöðum könnunar Adolfs
H. Emilssonar.
Deilt um sölu-
skattshækkun
HÖRÐ andstaða er meðal einstakra
þingmanna Sjálfstæðisflokksins
gegn tillögu ríkisstjórnarinnar um
‘/i% söluskattshækkun sem tekjuöfl-
unarlið f fjárlagadæminu. Reiknað
er með að söluskattshækkunin gefl
um 250 millj. kr.
Samkvæmt heimildum Mbl. hef-
ur þingflokkur Framsóknarflokks-
ins þegar samþykkt söluskatts-
hækkunina. Þingflokkur Sjálf-
stæðisflokksins ræddi mál þetta
siðast á föstudag i fyrri viku, án
niðurstöðu, en einstakir þingmenn
hafa lýst því yfir, að þeir muni alls
ekki samþykkja söluskattshækk-
un.