Morgunblaðið - 02.12.1984, Síða 66

Morgunblaðið - 02.12.1984, Síða 66
66 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 1984 Ragnhildur Guð- mundsdóttir - Minning Fædd 10. ágúst 1919 Diin 26. nóvember 1984 Á morgun, mánudag, verður til moldar borin mððursystir mín, Ragnhildur Guðmundsdóttir. Hún fæddist 10. ágúst 1919 í Gerðum í Garði, dóttir hjónanna Unu G.Þ. Þorsteinsdóttur frá Meiðastöðum í Garði og Guðmundar Björnsson- ar kaupmanns ættuðum úr Bisk- upstungum. Ragnhildur var elst systra sinna, en eftir lifa Birna og Krist- ín. Fyrstu árin bjuggu foreldrar hennar i Garðinum, en fluttu síð- an til Reykjavíkur. Var Guðmund- ur faðir hennar heilsulítill um árabil og þegar Ragnhildur var á 15. ári lést hann og stóð Una þá eftir með dæturnar þrjár. Getur hver maður séð að ekki hefur það alltaf verið dans á rósum hjá þeim mæðgum og það á krepputímum. Ragnhildur giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Sigurði Gunn- ari Sigurðssyni vélstjóra, 23. júní 1945 og eignuðust þau tvo syni, Guömund garðyrkjubónda á Flúð- um í Hrunamannahreppi, kvænt- an Helgu Halldórsdóttur og eiga þau tvö börn. Yngri sonurinn er Sigurður Ágúst brunavörður, kvæntur Guðrúnu Björnsdóttur og eiga þau þrjár dætur. Nú þegar Ragnhildur móður- systir mín er horfin sjónum okkar verður mér litið til barna- og ungl- ingsára minna, en þá dvaldi ég hjá þeim hjónum öll sumur og einnig einn vetur. Þau hjónin bjuggu þá í Dælustöðinni á Reykjum I Mos- fellssveit, þar sem Gunnar var vél- stjóri. Var ég þarna hjá þeim við mikið ástríki sem þeirra eigið barn. Ávallt var mikill gestagang- ur hjá þeim hjónum enda höfðu þau sérstaklega gaman af að taka á móti gestum. Árið 1954 veiktist Ragnhildur af sykursýki aðeins 35 ára gömul. Segir það sig sjálft að ekki var alltaf auðvelt hjá henni enda hún oft veik, bæði heima og í sjúkra- húsum. Þau fluttu til borgarinnar árið 1958 þegar Gunnar varð vara- slökkviliðsstjóri í Reykjavík. Síð- ustu 10 árin hafa verið Ragnhildi mjög erfið, því heilsan hefur verið t Elskuleg eigínkona mín, móöír okkar, tengdamóöir, tengdadóttir og amma, RAGNHILDUR GUÐMUND8DÓTTIR, Ásgaröi 75, veröur jarösungin frá Bústaöakirkju mánudaginn 3. desember kl. 13.30. 8iguröur Gunnar Sigurösaon, Guömundur Sigurösson, Helga G. Halldórsdóttir, Sigurður Ágúst Sigurösson, Guðrún Björk Bjðrnsdóttir, Gfsllna Siguröardóttir og barnabðrn. t F.iginkona min, móöir okkar og tengdamóöir, SVANHILDUR ÓSK TORFADÓTTIR, Melgeröi 35, Kópavogi veröur jarösungin frá Fossvogsklrkju þriöjudaginn 4. desember kl. 15.00. Sverrir Sigurjónsson, Guörún Linda Sverrisdóttir, Sverrir Már Sverrisson, Margrót Grímsdóttir, Ásgeir Skúlason. t Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaölr, tengdasonur og afi, MARKÚS BENJAMfN ÞORGEIRSSON, björgunarnetahönnuöur, Hvaleyrarbraut 7, Hafnarfiröi, verður jarösunginn frá Þjóökirkjunni í Hafnarflröi þriöjudaginn 4. desember kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaölr, en þefm sem vildu minnast hans er bent á Slysavarnafélag fslands. Helena Rakel Magnúsdóttir, Katrín Markúsdóttir, Pótur Th. Pótursson, María Markúsdóttir, Birgir Kjartansson, Maria Magnúsdóttir, og barnabörn. t Faöir okkar, tengdafaöir og afi, HARALDUR Þ. RICHTER fró Sólbergi vió Langholtsveg, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 3. desember kl. 13.30. Sofffa E. Richter, Baldur Kjartansson, Samúel Richter, Sígurjón Ricther, Vera Kristjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginkona mfn. t ÁSLAUG LÖVE, Grenimel 29, Reykjavfk, veröur jarösunginn frá Frfkirkjunnl í Reykjavik, þriöjudaginn 4. desember kl. 15.00. Rangar Sigurösson. t Eiginkona min, dóttir, móöir og tengdamóöir, GRETA SVEINSSON, Noröurtúni 28, Bessastaóahreppi, veröur jarösungin frá Bessastaöakirkju þriöjudaginn 4. desember kl. 13.30. Jón Sveinsson, Else Christiansen, Pétur Jónsson, Jóhanna Guöjónsdóttir, Elsa Jónsdóttir, Erlendur Pólsson, Þorsteinn Jónsson, Ragnheiöur Guölaugsdóttir, Karl H. Jónsson, Katrfn Jónsdóttir. t Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, SVANHVÍTAR SVEINSDÓTTUR, Vfk f Mýrdal. Sveinn H. Brynjólfsson, Matthildur Einarsdóttir, Garöar Einarsson, Svanhvft E. Einarsdóttir, Svanhvft M. Sveinsdóttir, barnabörn og Tove M. Hvaale, Hanna Hannesdóttir, Reynir M. Samúelsson, Smóri Tómasson, barnabarnabörn. t Þökkum sýnda samúö við andlát og útför móöur okkar og tengda- móöur, SIGÞRÚÐAR GUOJÓNSDÓTTUR, Flókagötu 33. Jón Ólafsson, Guójón Ólafsson, Gunnar órn Ólafsson, Ólafur Helgi Ólafsson, ofl Ólöf Björnsdóttir, Áslaug Sigurgrfmsdóttir, Sofffa Pétursdóttir, Margrét Thorlacius barnabörn. Innilegt þakklæti fyrlr auösýnda samúö og kærleik vlö andlát og útför fööur míns, sonar, bróöur, vinar og frænda, HARDAR STEINGRÍMSSONAR, Sogavegi 158, Reykjavfk. Jón Hjörtur Haröarson, Kristfn Kristjónsdóttir, Steingrfmur Bjarnason, Bóröur Steingrfmsson, Kristjón Steingrfmsson, Linda Björk Bjarnadóttir, Laufey Steingrfmsdóttir, Erlingur Steingrfmsson, Steinþór Steingrfmsson, Kristfn Steingrfmsdóttir, Þórhallur Steingrfmsson, Gunnar örn Stefngrfmsson, Lilja Steingrfmsdóttir, Ólína K. Ermert, Marianne Albrechtsen. Judy Wesley, Steinunn Þorsteinsdóttir, k Hannes Einarsson, Vilborg Sigurjónsdóttir, Hulda Arn. Steinsdóttir, Jóhann P. Jónsson, Þorgeröur Halldórsdóttir, Björk Magnúsdóttir, Bóra Steingrfmsdóttir, Therence Lee Ermert, ATHYGLI skal vakin á því, aö afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. I minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. afar léleg. öll þessi ár heyrði ég hana aldrei kvarta, þótt oft væri ærin ástæða til enda vildi hún ekki íþyngja öðrum með sinum veikindum. í ágústmánuði sl. veiktist hún af illkynjuðum sjúkdómi, sem dró hana til dauða og hefur hún verið nær óslitið á sjúkrahúsi síðan. Ekki verður Gunnari fullþakkað það ástríki sem hann sýndi henni í öllu hennar veikindastríði allt til hinstu stundar. Um leið og ég kveð Ragnhildi hinztu kveðju og óska henni guðs- blessunar, þakka ég henni allt það sem hún hefur gert fyrir mig. Ég og fjölskylda mín sendum Gunn- ari og fjölskyldu hans okkar inni- legustu samúðarkveðjur og biðj- um góðan guð að gefa þeim styrk. Tóta Á morgun, mánudaginn 3. des- ember verður tengdamóðir okkar, Ragnhildur Guðmundsdóttir, kvödd hinstu kveðju eftir erfiða sjúkdómslegu. Með örfáum orðum langar okkur að þakka fyrir marg- ar ánægjulegar samverustundir á undanförnum árum. Ragnhildur giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Sigurði Gunn- ari Sigurðssyni, fv. varaslökkvi- liðsstjóra í Reykjavík, hinn 23. júní 1945 og eignuðust þau tvo syni, Guðmund, fæddan 1948, og Sigurð Ágúst, fæddan 1953. Við kynntumst þeim hjónum fyrir u.þ.b. fjórtán árum og tóku þau okkur sérstaklega vel, eins og um þeirra eigin dætur væri að ræða. Ragnhildur hafði orð á því að nú hefði hún fengið liðsstyrk því að hún væri illa sett í þessu karlaveldi sínu. Á þessum árum hafði heilsuleysi þegar sett mark sitt á Ragnhildi, þó að hún kæmist vel sinna ferða. Síðustu árin átti hún mjög erfitt með gang og var öðrum háð um flesta hluti, en hún lét ekki hugfallast og kvartaði aldrei. Hún tók öllu mótlæti með stakri ró. Stundum fannst manni að hún hefði sætt sig um of við sitt hlutskipti, berðist ekki nóg en hún benti réttilega á að sjálfsvorkunn og sífelld óánægja gerði illt verra. Ragnhildur hafði yndi af bók- um, las mikið og var sérstaklega minnug. Hinstu kveðju senda barnabörn- in 5, íris Björk, Ragnhildur, Birna Sif, Stefán Ari og Ragnhildur, ömmu sinni og munu þau sakna þess að sjá ekki ömmu sína í eld- húskróknum þegar þau koma í Ásgarðinn. Innilegar samúðarkveðjur send- um við kærum tengdaföður okkar, sem alla tíð hefur staðið eins og klettur við hlið Ragnhildar. Hvíli hún í friði. „Þú reyndir stríð við sjúkdóma, sorg og mein, en sálin þín var fðgur, góð og hrein, — með barnsins hjarta/barnsins von og þrá, sem barn nú færðu drottin þinn að sjá. Og vel þú guðs þíns kunnir kærleiks mál, - þú kunnir ekki að hata nokkra sál; þó fyrir brauð þú fengir tinnustein, þú fékkst ekki um það, barst það með þér ein. Ó, sofðu, sofðu dauðans ljúfa dúr! — Sjáðu, dagur fagur stígur hafi úr og ber þig heim á morgunroðans rönd, á rósum ljósum búna sæluströnd!" (G.G.) Helga og Guðrún LITGREINING MED CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AD VANDADRI LITPRENTUN MYNDAMÓT HF

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.