Morgunblaðið - 04.12.1984, Page 2

Morgunblaðið - 04.12.1984, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984 Aðventuhátíð- ir um land allt Boeing 737-100-þotan, sem Arnarflug keypti og seldi sl. fostudag með 346.500 dollara hagnaði. Myndin var tekin á flugvelli í Túnis í sumar, þegar vélin var máluð í litum flugfélagsins Tunis Air. Arnarflug kaupir og selur Boeing 737: Hagnaðist um 14 . á MARGAR kirkjur landsins hafa tek- ið upp þann sið að halda sérstakar aðventusamkomur fyrir jólin. Sam- komur þessar eru með öðru sniði en guðþjónustur og var Bernharður Guðmundsson, fréttafulltrúi þjóð- kirkjunnar, inntur nánar eftir þvi. „Nú halda vel flestir söfnuðir landsins aðventuhátíðir", sagði Bernharður, „og hefur aðsókn ver- ið mjög góð. Þessar hátíðir eru haldnar til að fólk geti undirbúið sig andlega fyrir jólahátíðina og eru sungnir aðventusöngvar og flutt erindi. Það er mikil áhersla lögð á almennan söng og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá hve margar fjölskyldur koma saman á slíkar hátíðir." Bernharður Guðmundsson sagði, að það virtist sem fólk væri farið að huga meira að aðventunni en áður var. „Fyrir jólin er oft mikill asatími, svo fólki finnst eðlilega gott að geta haft það notalegt eina kvöldstund", sagði hann. „Ýmsir siðir erlendis frá hafa líka rutt sér til rúms, t.d. er nú æ algengara að fólk bjóði til sín kunningjum og gefi þeim heitt kakó og piparkökur á aðventunni. Aðventutónlist, að- ventukransar og aðventuljós eru nú algeng og þannig hefur aðvent- Sjálfstæðisflokkur: Miðstjórnar- fundur í dag MIÐSTJÓRN Sjálfstæóisflokksins kemur saman til fundar kl. 16 í dag. Á dagskrá eru, aó sögn Þorsteins Pálssonar formanns flokksins, stjórnmálaviðhorfið og flokksstarfió. Á fundinum, sem er reglulegur, verður samkvæmt heimildum Mbl. auk áðurgreindra málaflokka rædd staða ríkisstjórnarinnar og ýmis innanflokksmál. Skýrsla um ratsjárstöðvar SKÝRSI.A um ratsjárstöóvar á ís- landi verður kynnt opinberlega í dag, að sögn utanríkisráðherra, Geirs Hallgrímssonar. Utanríkisráðherra sagði, að skýrslan hefði verið lögð fyrir utanríkismálanefnd Alþingis i gærmorgun og yrði síðan kynnt opinberlega í dag. an öðlast sterkari ítök í fólki en áður“. Flestir söfnuðir landsins ætla að halda aðventuhátíðir og eru þær oftast að kvöldlagi, en sumir söfnuðir halda þó slíkar samkom- ur síðdegis og auðveldar það fólki að taka yngstu meðlimi fjölskyld- unnar með sér, að sögn Bernharðs Guðmundssonar, fréttafulltrúa þjóðkirkjunnar. Maí með metsölu 47,85 krónur að með- altali fyrir kfló SKUTTOGARINN Maí frá Hafnar firði fékk í ger hesta meðalverð fyrir ísfisk í Bretlandi, sem til þessa hefur fengizt. Aflinn var aðallega þorskur og meðalverð í íslcnzkum krónum 47,85 eða um eitt pund. Er verð þetta það hæsta, hvort sem mið- að er við krónur eða pund, sam- kvæmt upplýsingum LÍÚ. Maí seldi alls 89,4 lestir í Grimsby. Heildarverð var 4.277.100 krónur og meðalverð eins og áður sagði 47,85. Þá seldi Stál- vík SI 106 lestir í Hull. Heildar- verð var 4.757.100 krónur, meðal- verð 44,68. Loks seldi Ingólfur Arnarson RE 159,7 lestir í Cux- haven. Heildarverð var 4.901.800 krónur, meðalverð 30,68. Mannslát um borð í Eyrarfossi 61 ÁRS gamall maður lést við vinnu sína um borð í Kyrarfossi, skipi Eim- skipafélags íslands, í Sundahöfn í gærkvöldi. Lögreglunni barst til- kynning um að vinnuslys hefði orðið um borð í skipinu, því sterk formal- ínslykt var í loftinu og var óttast að maðurinn hefði látist af þess völd- um. Ekki er hægt að segja til um dánarorsök fyrr en niðurstöður krufningar liggja fyrir, en líklegt er talið, að maðurinn hafi orðið bráðkvaddur við vinnu sína. ARNARFLUG hagnaðist um tæplega 14 milljón krónur á því að kaupa og selja strax aftur Boeing 727-100-flugvél, sem félagið hafði á leigu frá bandarísku flugfélagi og notaði í leiguflug í Nígeríu og Túnis. Samningur um kaup vélarinnar á 2.378.500 Bandaríkjadali var gerður á föstudaginn og síðar þann sama dag var vélin seld öðru bandarísku fyrirtæki fyrir 2.725.000 dali, að því er segir í fréttatilkynningu frá Arn- arflugi. Mismunurinn, sem reiknast sem hreinn hagnaður, er 346.500 dalir. Vélin verður afhent nýjum eig- endum sínum vestra 20. þessa mánaðar. Þeir Gunnar Þorvalds- son flugstjóri og Guðmundur Hauksson fjármálastjóri hafa dvalist í Bandaríkjunum að und- anförnu og undirrituðu samning- ana fyrir hönd Arnarflugs. Leiguflugi Arnarflugs í Túnis lauk í lok október sl. Stóð það i sjö mánuði og voru fluttir alls 51.463 farþegar. Flugvélin, sem er 124 sæta, lenti í 24 borgum í Evrópu og Afríku á þessum tíma. íslenskir flugstjórar voru með vélinni allan tímann og íslenskir flugvirkjar önnuðust viðhald. Túnismenn hafa rætt við fulltrúa Arnarflugs um möguleika á leiguverkefnum næsta sumar, þá með flugvél af gerðinni Boeing 373, eins og þeirri AXEL Thorsteinsson rithöfundur og blaðamaður lést í fyrrinótt í Sjúkra- húsi Suðurlands á Selfossi. Hann var á 90. aldursári. Axel fæddist í Reykjavík 5. mars 1895, sonur Steingríms Thorsteins- sonar, rektors og skálds, og Birgittu Guðríðar Eiríksdóttur. Hann varð búfræðingur frá Hvanneyri 1913 og stundaöi síðan nám í lýöháskólan- um á Eiðsvelli í Noregi 1916—1917. Á árunum 1918—1923 dvaldist Axel i Bandaríkjunum og Kanada og var m.a. sjálfboöaliði í Kanada- her í Evrópu í lok fyrri heimsstyrj- aldarinnar. Eftir heimkomuna gaf hann út Sunnudagsblaðið i Reykja- vík og vann síðan hjá Morgunblað- inu og Visi, þar sem hann var að- stoðarritstjóri um langt árabil. Jafnframt blaðamennsku kenndi hann ensku við Stýrimannaskólann sem Arnarflug notar nú í áætlun- arflugi milli íslands og Evrópu- landa. t í Reykjavík og var fréttaritari Ríkisútvarpsins 1938—1946. For- stöðumaður Fréttastofu Blaða- mannafélags Islands var hann á meðan hún starfaði, 1924—1938, og varð síðan morgunfréttamaður og fréttaþulur Ríkisútvarpsins allt fram til ársins 1973. Axel var afkastamikil! rithöfundur og þýð- andi alla ævi. Hann sendi frá sér margar bækur, hina síðustu 1978. Hann var ritstjóri og útgefandi tímaritsins Rökkurs frá 1922 til dauöadags. Fyrri kona hans var Jeanne Faf- ins frá Liege í Belgíu, sem hann átti meö þrjá syni. Þau skildu. Jeanne lést sl. sumar. Sfðari kona Axels Thorsteinssonar var Sigríður Þor- geirsdóttir frá Reykjavík, sem látin er fyrir allmörgum árum. Þau áttu tvo syni. Auk sonanna átti Axel eina dóttur. Axel var síðasti íslendingurinn, sem hafði átt afa fæddan á 18. öld; það var Bjarni Thorsteinsson amt- maður, sem fæddist 3. mars 1781 og lést 3. nóvember 1876. Faðir Axels, Steingrímur Thorsteinsson skáld fæddist 19. maí 1831 og lést 21. ág- úst 1913. Axel Thorsteinsson var heiðurs- félagi Blaöamannafélags íslands. Ríkissjóður: Enn óvissa um tekjuöflun 2. umræða um fjárlagafrumvarpið á fimmtudag í næstu viku Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins befur ekki afgreitt frá sinni hálfu, hvernig um 250 millj. kr. skuli aflað til tekjuliðar fjárlaga, en tillögu rík- iastjórnarinnar um 0,5% hækkun söluskatts í þessu skyni var mjög illa tekið af einstökum þingmönn- um. Kkki var minnst á mál þetta á þingflokksfundi f gær að sögn Ólafs G. Kinarssonar formanns þing- flokksins, en Pálmi Jónsson for- maður fjárveitinganefndar segist stefna að annarri umræðu um fjár- lagafrumvarpið fimmtudaginn 13. desember, þ.e. í næstu viku. Albert Guðmundsson sagði að hann hefði ekki gert neina tillögu um 0,5% hækkun söluskatts, aftur á móti væri það ein af þeim leiðum sem ræddar hefðu verið. Aðeins eru tæpar þrjár vikur til jóla og fyrirséð að allar breýt- ingartillögur við fjárlagafrum- varpið þurfa að vera komnar fram fyrir miðja næstu viku, þ.e. fyrir aðra umræöu. Pálmi Jónsson sagði, að honum væri ekki kunn- ugt um af hverju þingflokkur hans hefði ekki afgreitt málið. Að fjárveitinganefnd snéri afgreiðsla gjaldaliða fjárlagafrumvarpsins, tekjuöflunarleiðin væri mál rikis- stjórnarinnar og þingflokkanna. Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins sagðist ekki hafa hugmynd um hvernig þessi mál stæöu. Hann sagöi rétt vera, að þingflokkurinn hefði ekki af- greitt tillögur hér að lútandi, en það væri fjármálaráðherra að svara fyrir af hverju. „Þú verður að spyrja fjármáíaráðherra af hverju tillögur hans eru ekki af- greiddar. Fjármálaráðherra fer með fjármál ríkisins. Þau eru ekki mitt mál.“ Forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, sagði að þingflokk- ur Framsóknarflokksins hefði gengið frá máli þessu af sinni hálfu, en þetta væri mál fjár- málaráðherra að svara fyrir. Hann kvaðst telja, að þetta hefði eitthvað með þingflokk Sjálfstæð- isflokksins að gera og að spyrja yrði aðra en sig um þá hluti. Ólafur G. Einarsson formaður þingflokks Sjálfstæðisflokksins sagði, að um það hefði orðið sam- komulag milli hans og fjármála- ráðherra, að taka fjárlagadæmið ekki fyrir á þingflokksfundi í gær. Væntanlega yrði málið tekið fyrir á aukafundi í vikunni, eða nk. mánudag. Hann sagði að höfuð- umgerð tekjuöflunarleiðarinnar lægi fyrir og hefði fjármálaráð- herra m.a. gert tillögu um 0,5% hækkun söluskatts. Málið væri hins vegar ekki afgreitt, en al- gengt væri, að tekjuöflunarhlið fjárlaga væri ekki endanlega af- greidd fyrr en milli annarrar og þriðju umræðu á Alþingi. Fjármálaráðherra, Albert Guð- mundsson, neitaði því aö hann hefði gert nokkra tillögu um 0,5% söluskattshækkun. Aftur á móti væri það ein af þeim leiðum sem ræddar hefðu verið f trúnaði. Hann sagði að þeirri leiö heföi verið illa tekið og nú væri verið að ræða hvort aðrar leiðir væru fær- ar. Hann kvaðst ætíð hafa verið á móti skattahækkunum en aftur á móti gæti þetta orðið sú leið sem farin yrði. Hann sagði ennfremur, að málið yrði rætt I ríkisstjórn árdegis og þá kæmi í ljós hvort einstakir ráðherrar treystu sér til frekari niðurskurðar. Hann reikn- aði með að þingflokkur Sjálfstæð- í.iflokksins ræddi málið sfðan á rmrgun, miðvikudag. Axel Thorsteinsson blaðamaður látinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.