Morgunblaðið - 04.12.1984, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
ÚTVARP / S JÓN VARP
Dynasty
Einn daginn á leiðinni heim frá
vinnu rek ég augun í flennistóra
veggauglýsingu, utaná Hagkaup.
Raunar er þessi auglýsing af-
skaplega fáorð og telur aðeins eitt
orð, enska nafnorðið: DYNASTY.
Án skýringa er þessu orði flengt á
vegg rétt eins og heimsfrægu
vörumerki á borð við Bens-
stjörnuna eða Shell-skelina. Enda
þarfnast þetta enskættaða nafn-
orð ekki frekari útskýringar því
hér er verið að auglýsa þann sjón-
varpsþátt, er hvað mestum vin-
sældum hefir átt að fagna vestan
hafs og austan, frá því DALLAS
var og hét. Ég verð að segja fyrir
mig, að ég var orðinn hundleiður á
DALLAS undir það síðasta, enda
var þátturinn þá ekki orðinn svip-
ur hjá sjón. Hins vegar hefði ég
vel getað hugsað mér að horfa á
hið nýja „Dallas" í mynd Dynasty.
Það er að segja ef Dynasty hefði
birst á skerminum sem hluti af
útsendu efni íslenska sjónvarpsins
en ekki í vídeoleigu þar sem þátta-
röðin kostar sennilega álíka og
árgjald Ríkisútvarps/sjónvarps.
Siónvarpið
bregst
En þarna brást einmitt íslenska
sjónvarpið hrapallega. Því ber
skylda til að festa kaup á þáttum,
sem eru svo víðfrægir, að nægir að
líma nafn þeirra á vegg í auglýs-
ingaskyni, annars grípa bara aðrir
gæsina og nóg virðist af fólki sem
hefir efni á að leigja slíka þætti —
tvo í viku — af myndbandaleigun-
um. Venjulegt fólk hefir naumast
efni á slíku, og því er það réttlætis-
mál í voru litla landi, að hér sitji
allir við sama borð hvað varðar
sjónvarpsefni af ætt Dynasty.
Slíkir þættir eru ætlaðir öllum
fjöldanum, en ekki fáum útvöld-
um, þótt þeir fjalli um hina fáu
útvöldu. En það er allt annar
handleggur, að skoða í imbakass-
anum heim hinna ríku en að finna
fyrir honum með fyrrgreindum
hætti. Það kemur raunar fram í
rabbi Sigurjóns Sighvatssonar við
Dynasty-stjörnuna Joan Collins
(Alexis Carrington) í nýjasta hefti
Nýs Lífs, að hún telur helstu
ástæðurnar fyrir vinsældum þátt-
anna vera sú innsýn er þeir veita
lýðnum inní heim ríka fólksins,
eða eins og Joan segir orðrétt:
Fólk hefur ánægju af því að
skyggnast inn i aðra veröld og sjá
að fólk í þeirri veröld á ekki síður
við vandamál að etja en það sjálft.
Vandi hins
auralausa
Já vissulega á ríka fólkið við
vandamál að stríða, eins og við
sáum svo glöggt í Dallas, en það er
líka erfitt að vera fátækur, eins og
sést best á sjónvarpinu okkar. Og
hvað haldiði að gerist, þegar kap-
alsjónvarpsstöðin rís sem hlýtur
að gerast í náinni framtíð, því
vart er nú lagt svo rafmagn í hús
að ekki fylgi með kapall fyrir sjón-
varp. Ég held að þá sópist allir
„stjörnuþættirnir“ frá Ríkissjón-
varpinu svifaseina, og að sú „rás“
verði í ætt við útvarpsrás númer
eitt sem aðallega sinnir eldri kyn-
slóðinni. Við skulum hafa þetta í
huga, þegar rætt verður um þjón-
ustusvæði hinnar nýju sjónvarps-
stöðvar. Landsbyggðarfólkið á í
framtíðinni ekki að þurfa að
kaupa „stjörnuþættina" dýrum
dómum af myndbandaleigunum,
frekar en við hin á höfuðborgar-
svæðinu. Markmiðið með fjölgun
sjónvarpsstöðva hér á landi hlýtur
að vera það, að dreifa fjölþættara
sjónvarpsefni en nú býðst til allra
landsmanna, á svipuðum kjörum.
Ólafur M.
Jóhannesson
20
f kvöld verður sýndur 7.
þáttur myndaflokksins um
Afríku. Á myndinni má sjá
mann af Bantu-þjóðflokki í
Kenýa.
Þjóðernis-
stefnan
eflist
■i í sjöunda þætti
40 breska heim-
ildamyndaþátt-
arins um Afríku, sem
sýndur verður í kvöld,
verður fjallað um baráttu
Afríkuríkja fyrir sjálf-
stæði. Meginuppistaða
þáttarins er Ghana. Einn-
ig verður fjallað um bar-
áttuna í Kenýa, Alsír og
harmleikinn í belgísku
Kongó, ásamt því sem
fjallað verður um tilraun-
ir Kenyatta og Nyerere til
að sameina Afríkumenn í
baráttunni. Meginhluti
Afríku fékk sjálfstæði sitt
á friðsaman hátt, en því
var ekki að heilsa með
portúgölsku nýlendurnar,
en þar varð vopnaskak
töluvert. Umsjónarmaður
þáttanna, Basil Davidson,
ræðir við margt fólk í
þessum þætti, þ.á m. Sam-
ora Machel, hershöfðingja
í Mozambique. Basil veltir
því einnig fyrir sér hversu
langt muni líða þar til síð-
asta vígi hvítu mannanna
við stjórnvöl, Suður-
Afríka, muni falla. Þýð-
andi og þulur þáttanna er
Þorsteinn Helgason.
Veiðin
mikla
í kvöld verður
OA()0 fluttur 5. þátt-
ur framhalds-
leikritsins „Antílópu-
söngvarinn" eftir Ruth
Underhill í útvarpsleik-
gerð Ingebrigts Davik.
Þessi þáttur nefnist
„Veiðin mikla".
í síðasta þætti varð
Hunt-fjölskyldan að gef-
ast upp við að halda
áfram ferð sinni yfir fjöll-
in því vetur var að ganga i
garð. Því urðu allir fegnir
þegar Tógó gamli, afi
Numma, kom og bauð
þeim vetursetu í búðum
sínum. Á hverjum degi
komu þangað hópar indí-
ána utan af sléttunni og
von bráðar var þar risið
upp allstórt indíánaþorp.
Mikill annatími fór nú í
hönd við veiðar og aðra
birgðasöfnun fyrir vetur-
Einsöngur
útvarpssal
■■■■ Ragnheiður
O | 05 Guðmundsdótt-
& A ir messósópran
syngur í kvöld níu lög eft-
ir fimm höfunda. Laga-
höfundar þessir eru: Ey-
þór Stefánsson, Karl 0.
Runólfsson, María Mark-
an, Þórarinn Guðmunds-
son og Sigvaldi Kaldalóns.
Að sögn Ragnheiðar syng-
ur hún tvö lög eftir Maríu
og hafa þau ekki verið
flutt áður. „María hefur
verið iðin við að semja að
undanförnu og lögin
hennar eru yndisleg,"
sagði Ragnheiður, sem
nam söng í nokkur ár hjá
Hunt-fjölskyldan ætlar að dvelja í indíánaþorpinu í vetur, þvf það er orðið of áliðið til að
reyna að komast yfir fjöllin.
mn.
Leikendur í 5. þætti eru:
Steindór Hjörleifsson,
Kristbjörg Kjeld, Stefán
Jónsson, Þóra Guðrún
Þórsdóttir, Árni Bene-
diktsson, Hákon Waage
og Kjuergej Alexandra.
Leikstjóri er Þórhallur
Sigurðsson. Tæknimenn:
Friðrik Stefánsson og
Hörður Jónsson.
Ragnheiður Guðmundsdótt-
ir söngkona sem í kvöld
flytur nokkur lög í útvarpi,
þ.á m. tvö ný lög eftir
Maríu Markan.
Maríu. Fyrir utan lög
Maríu flytur Ragnheiður
þekktari lög, s.s. Þú eina
hjartans yndið mitt eftir
Sigvalda Kaldalóns og
Mánaskin eftir Eyþór
Stefánsson.
Amerísk tónlist
%
■■■■ Kristján Sigur-
1 /» 00 jónsson verður
10 með þjóðlaga-
þátt sinn á dagskrá rásar
2 í dag. Hann kvaðst ætla
að halda áfram þar sem
frá var horfið í síðasta
þætti og kynna ameríska
tónlist. „Það halda margir
að amerísk tónlist sé
steingeld iðnaðarfram-
leiðsla, en reyndin er sú
að tónlistarlíf er þar mjög
blómlegt og minni útgáfu-
fyrirtæki sinna því betur
en þau stærri," sagði
Kristján. „Ég ætla að
leika af plötu með Nitty
Gritty Dirt Band en plötu
þessa tóku þeir upp árið
1971 í Nashville og fengu
til liðs við sig marga
kunna menn. Auk þess
leik ég lög með Hickory
i WBT
Kristján Sigurjónsson, um-
sjónarmaður Þjóðlagaþátt-
ar.
Wind, sem er frá Mary-
land-fylki, en tónlist
þeirra er blanda af blue-
grass-tónlist og írskri
þjóðlagatónlist. Ýmsir
fleiri láta heyra í sér, en
fleira tel ég ekki upp að
sinni.“
UTVARP
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn. A virkum degi.
7.25 Leikfimi.
8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15
Veðurfregnir. Morgunorð —
Bjarni Guðleifsson á Möðiu-
völlum talar.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna.
.Músin I Sunnuhllð og vinir
hennar" eftir Margréti Jóns-
dóttur. Sigurður Skúlason les
(2).
920 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
10.45 .Ljáðu mér eyra“.
Málmfrlður Sigurðardóttir á
Jaðri sér um þáttinn.
(RÚVAK.)
11.15 Við Pollinn.
Umsjón: Gestur E. Jónas-
son. (RÚVAK.)
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
1220 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
letkar
1320 Barnagaman.
Umsjón: Helgi Már Barða-
son.
13.30 .Nýtt og nýlegt erlent
popp.”
14.00 A bókamarkaðinum.
Andrés Björnsson sér um
lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
14.30 Miðdegistónleikar.
Sinfón/uhljómsveit Lundúna
leikur .Carmen-svltu" nr. 1
eftir Georges Bizet: Neville
Marriner stj.
14.45 Upptaktur
— Guömundur Benedikts-
son.
1520 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
1620 Slðdegistónleikar.
a. Sinfónfa nr. 5 I Es-dúr op.
82 eftir Jean Sibelius. Kon-
unglega fllharmonlusveitin I
Lundúnum leikur; Loris
Tjeknavorian stj.
b. Lokakafli Sinfónlu nr. 1
eftir Gustav Mahler. Con-
certgebouw-hljómsveitin I
Amsterdam leikur; Bernhard
ÞRIÐJUDAGUR
4. desember
Haitink stj.
17.10 Slödegisútvarp.
Tilkynningar.
18.45 Veðurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50. Daglegt mál. Sigurður
G. Tómasson flytur þáttinn.
20.00 Barna- og unglingaleikrit:
„Antilópusöngvarinn" ettir
Ruth Underhill. 5. þáttur:
Veiðin mikla. Aður útvarpaö
1978.
Þýðandi: Siguröur Gunnars-
son. Leikstjóri: Þórhallur Sig-
urösson. Leikendur: Steindór
Hjörleifsson, Kristbjörg Kjeld,
Hákon Waage, Kjuregei Al-
exandra, Stefán Jónsson,
Þóra Guðrún Þórsdóttir og
Arni Benediktsson.
20.30 Lestur úr nýjum barna-
og unglingabókum. Umsjón:
Gunnvðr Braga. Kynnir: Sig-
urlaug M. Jónasdóttir.
21.05 Einsöngur I útvarpssal.
Ragnheiður Guðmundsdóttir
syngur Iðg eftir Eyþór Stef-
ánsson, Karl O. Runólfsson,
Marlu Markan, Þórarin Guð-
mundsson og Sigvalda
Kaldalóns. Ölafur Vignir
Albertsson leikur á planó.
SJÓNVARP
1925 Sú kemur tlö
Þriðji þáttur.
Franskur teiknimyndaflokkur
I þrettán þáttum um geim-
feröaævintýri. Þýöandi og
sögumaður Guöni Kolbeins-
son. Lesari með honum er
Lilja Bergsteinsdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Saga Afrlku
7. Þjóöernisstefna eflist
ÞRIÐJUDAGUR
4. desember
Breskur heimildamynda-
flokkur i átta þáttum.
I þessum þætti fjallar Basil
Davidson um sjálfstæðisbar-
áttuna I nýlendum Evrópu-
rikja I Afriku. Þýðandi og
þulur Þorsteinn Helgason.
21.50 Njósnarinn Reilly
9. Eftirmáli
Breskur framhaldsmynda-
flokkur i tólf þáttum.
Sovétmenn hugsa Reilly
þegjandi þörfina eftir sam-
særiö gegn Lenln sem þó fór
út um þúfur. Leynilögreglan
sendir flugumann á eftir hon-
um til Lundúna. Þýðandi
Kristmann Eiösson.
22.45 Kastljós
Þáttur um erlend málefni.
Umsjónarmaður Ogmundur
Jónasson.
2320 Fréttir I dagskrárlok
2120 Útvarpssagan: Grettis
saga. Oskar Halldórsson les
(9).
2200 Tónleikar.
2215 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Orð kvöldsins.
2225 Kvöldtónleikar.
Gustav Mahler 3. hluti. „Des
Knaben Wunderhorn" ________
Llnur skýrast. Sigurður Eln-
arsson sér um þáttinn.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
RAS 2
ÞRIÐJUDAGUR
4. desember
10.00—1200 Morgunþáttur
Múslk og meöiæti
Stjórnandi: Páll Þorsteim
son.
14.00—15.00 Vagg og velta
Létt lög leikin af hljómplö
um.
Stjórnandi: Glsli Sveir
Loftsson.
15.00—16.00 Með slnu lagi
Lög leikin af Islenskui
hljómplötum.
Stjórnandi: Svavar Gests.
16.00—17.00 Þjóölagaþáttur
Komið við vltt og breitt
heimi þjóðlagatónlistarinnai
Stjórnandi: Kristján Sigu
jónsson.
17.00—18.00 Frlstund
Unglingaþáttur.
Stjórnandi: Eðvarð Ingólfi
son.