Morgunblaðið - 04.12.1984, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
29
Mikil myndbanda-
fíkn Norðmanna
Ofdó. 3. desember. Norinform.
HINN almenni myndsegulbandseig-
andi í Noregi eyðir að meðaltali and-
virði 207 dollara í myndbönd til að
svala myndbandafíkn sinni ár hvert.
Er það hæsta meðaltal sem vitað er
um í Evrópu, en til samanburðar má
nefna, að Svíar eyða aðeins að með-
altali um helmingi þeirrar upphæðar.
Þetta kom fram í aiþjóðlegri könnun
sem gerð hefur verið.
Þessar tölur sýna fram á að
meðalmyndbandaáhorfandi í Nor-
egi horfir á 70 myndbönd á ári.
Hins vegar eru sveiflurnar miklar,
þannig glápa margir á allt að 200
myndir á ári hverju. Finnar eru í
öðru sæti í þessum efnum, Danir í
þriðja sæti, en eru nokkuð langt á
eftir Norðmönnum í þessum efn-
um.
Bjarne Næss, formaður sam-
taka myndbandainnflytjenda,
sagði eina helstu skýringuna vera
hve norska sjónvarpið sé slakt og
bendir á að könnunin sýni fram á
að þar sem 60 prósent myndseg-
ulbandaeigenda i öðrum löndum
nota tæki sín til að taka upp sjón-
varpsefni, sé raunin öfug í Noregi,
þar sé hverfandi að myndsegul-
bönd séu notuð til slíks brúks.
Næss sagði jafnframt, að mynd-
bandatitlar í Noregi væru nú um
3.000 talsins, en þeir myndu ef-
laust fara í 4.000 á næsta ári. Til
samanburðar má geta, að norsk
kvikmyndahús frumsýna að jafn-
aði 260 nýjar kvikmyndir í landinu
ár hvert. Þessar tölur verða allar
heldur skrýtnar er að er gáð, að
einungis um 21 prósent norskra
heimila hefur myndsegulband
innan veggja, eða um 250.000 af 4
milljónum Norðmanna.
ERLENT
Morðið á Indiru Gandhi:
Samsæris-
manna leitað
Deihí, 3. desember. AP.
INDVERSKA lögreglan leitar
tveggja manna, sem grunaðir eru um
aðild að morðinu á Indiru Gandhi,
en um helgina var bróðir annars
morðingjans handtekinn og sakaður
um aðild að morðtilræðinu.
Annar morðingjanna, Satwant
Singh, játaði á sig morðið í síðustu
viku, en hinn, Beant Singh, var
drepinn skömmu eftir tilræðið. Er
nú leitað frænda hans og rann-
sóknarlögreglumanns, sem grun-
aðir eru um aðild að samsærinu.
Satwant Singh sagði við yfir-
heyrslur að hann hefði gengið í lið
með Beant Singh eftir að stjórn-
arherinn fjarlægði síkha í blóðug-
um átökum úr Gullna hofinu í
Amritsar í júní sl.
Beant Singh er sagður hafa
svarið eið í hofinu í sumar og heit-
ið því þar að vega Indiru. Lögðu
þeir á ráðin um morðið í fyrstu
viku október, en tókst ekki að láta
til skarar skríða fyrr en 31. októ-
ber.
Simamynd/AP.
Þessi mynd er af Jeff Tree, sem rekur leigubifreiðastöð þá er David Wilkie starfaði við, en tveir verkfallsverðir
námuverkamanna myrtu Wilkie er hann ók starfandi námumanni til vinnu sinnar á sunnudaginn. Tree gekk í skarð
Wilkies í dag og ók sama námumanninum, Dai Williams, til vinnu. Williams er hettuklæddur fyrir aftan Tree.
Útsendari dómstóis:
Náði ekki sjóð námu-
manna í Lúxemborg
Lundúnum. 3. denember. AP.
LÖGFRÆÐINGUR sem breskir
dómstólar höfðu skipað til að leggja
hald á 4,3 milljónir punda sem
breska Námumannasambandið á í
banka í Luxemborg, fór þangað fýlu-
ferð í dag. Bankastjórar Nobiz-Fin-
anz-bankans neituðu að ræða við
Herbert Brewer, en svo heitir lög-
fræðingurinn. Sjóðurinn var hluti af
8,9 milljónum punda sem dómstól-
arnir höfðu krafist að lagt yrði hald
á eftir að námumannsambandið
hafði neitað að greiða sekt.
Arthur Scargill leiðtogi námu-
Fundur Varsjárbandalags-
ríkjanna í Austur-Berlín
MoHkvu, 3. desember. AP.
ANDREI Gromyko, utanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, kom í dag til
Austur-Berlínar til fundar við utan-
ríkisráðherra hinna Varsjárbanda-
lagsríkjanna. Talið er, að aðalvið-
fangsefni þessa fundar verði fyrir-
hugaðar viðræður Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna um takmarkanir á
kjarnorkuvopnum.
Áformað er, að þeir Gromyko og
George Shultz utanríkisráðherra
Bandaríkjanna komi saman til
fundar í Genf 7.-8. janúar nk. og
leggi þar drög að fyrirkomulagi á
viðræðum milli Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna um kjarnorkuvopn.
Bæði ríkin hafa látið í ljós áhuga á
að hefja slíkar viðræður á ný, eftir
að Ronald Reagan var endurkjör-
inn forseti Bandaríkjanna.
Fréttaljósmyndurum var aðeins
heimilað að taka myndir af utan-
ríkisráðherrum Varsjárbanda-
lagsríkjanna í 5 mínútur í dag, er
þeir voru seztir að ráðstefnuborð-
inu. Engar spurningar voru hins
vegar lagðar fyrir ráðherrana.
Fundurinn er haldinn í sérstökum
fundarsal í norðurhluta Austur-
Berlínar og gætir fjöldi öryggis-
varða fundarstaðarins. Auk Sovét-
rikjanna eiga Austur-Þýzkaland,
Pólland, Tékkóslóvakía, Ungverja-
land, Rúmenia og Búlgaría aðild
að Varsjárbandalaginu.
manna ávarpaði fjöldafund stétt-
arbræðra sinna í dag og fagnaði
gangi mála i Luxemborg. Hann
bætti svo við að hið 9 mánaða
gamla verkfall væri síður en svo í
andaslitrunum, ekkert gæti stöðv-
að námuverkamenn í Bretlandi í
að berjast fyrir rétti sínum, „rétt-
inum til að vinna", eins og Scargill
sagði.
Við stórslysi lá í morgun, er
verkfallsverðir vörpuðu meters
löngum stálfleyg fram af umferð-
arbrú og ofan á vörubifreið sem
flutti sprengiefni að kolanámu í
Derbyshire. Fleygurinn klauf þak-
ið á bifreiðinni og hafnaði á milli
ökumannsins og farþega hans.
Hvorugan sakaði, en litlu munaði.
Sams konar atvik kostaði leigubíl-
stjóra lífið á föstudaginn, en hann
var að aka námumanni til vinnu
sinnar er steypustaur var varpað
ofan af brú og inn um framrúðuna
á bílnum. Tveir verkfallsverðir
hafa verið handteknir og ásakaðir
um morð.
Fahd konungur
Lýðræði boðað
í Saudi-Arabíu
Landúnum. 3. deuemb«r. AP.
BRESKT vikurit hafði eftir Fahd
konungi Saudi-Arabíu í dag, að „inn-
an 3 til 4 mánuða yrði komið á fót í
landinu ráðgjafaþingi“, eins og hann
sagði sjálfur. Sagði Fahd þetta lið í
að koma á lýðræði í landinu.
„Hugmyndin er að með tíman-
um muni þetta þing starfa eins og
önnur þing í lýðræðisríkjum, en
við munum samt fara hægt í sak-
irnar til þess að gera ekki mistök,"
sagði konungurinn ennfremur og
bætti við að skipað yrði í þingsæt-
in í fyrstu, en eftir tvö ár yrði
gengið til kosninga í landinu.
„Þetta er söguleg þróun í kon-
ungsríki okkar," sagði konungur
að lokum.
Afganistan:
„Þeir verða að iðrast þess
að hafa ráðist á okkur“
Peshawar, PakisUn. 3. deaember. AP.
SOVÉTMENN hafa hert mjög aðgerðir sínar gegn afgönskum and-
spyrnumönnum í landinu í seinni tíð, breytt baráttuaðferðum sínum til að
ná betri árangri. Þrátt fyrir það er staðan erfið og andspyrnumenn virðast
jafnan eflast við hverja raun þó nærri þeim sé gengið. Sérfræðingar telja
að Sovétmenn séu engu betur settir nú heldur en fyrir 5 árum er þeir
sendu fjölmennt herlið sitt til landsins. Telja þeir að allt að 20.000
sovéskir hermenn hafi fallið í átökum í landinu og tugir þúsunda stjórn-
arhermanna.
Afganskir andspyrnuforingjar
og vestrænir stjórnarerindrekar
á þessum slóðum virðast sam-
mála um að andspyrnunni muni
aldrei takast að hrekja Sovét-
menn úr landinu, það eina sem
geti orðið til þess sé ákvörðun
Rússa sjálfra. „Við munum aldr-
ei láta þá í friði, þeir verða að
iðrast þess að hafa ráðist á
okkur,“ er haft eftir einum and-
spyrnuleiðtoga.
I seinni tíð hafa Sovétmenn
gripið til nýrra aðferða. Þær
hafa byrjað á því að sprengju-
flugvélar varpa sprengjum á
þorp og stöðvar andspyrnu-
manna úr mikilli hæð, síðan
svífa sérþjálfaðir sovéskir her-
menn til jarðar í fallhlífum.
Andspyrnumennirnir hafa góða
leyniþjónustu þannig að þeir eru
oft á bak og burt er sovésku her-
mennirnir mæta á staðinn, en þá
halda þeir síðarnefndu þess í
stað í þorpin og jafna þar allt við
jörðu og drepa það fólk sem til
næst. „Þeir reyna að hræða fólk-
ið til þess að það aðstoði okkur
ekki, en það þýðir ekki neitt,
fólkið í þorpunum eru fjölskyld-
ur okkar og taka þátt í barátt-
unni, við höfum sýnt að þeir geta
ekki beygt okkur og því munum
við halda áfram að koma við
kaunin á þeim og neyða þá til
pólitísks samkomulags," er haft
eftir fyrrgreindum andspyrnu-
leiðtoga. Krafa andspyrnu-
manna er að sovéskt herlið
hverfi úr landi og við stjórnvöln-
um taki stjórn sem andspyrnu-
hóparnir geti sætt sig við.
En baráttan er dýru verði
keypt, Sovétmennirnir eru sagð-
ir treysta æ minna á stjórnar-
herinn þar sem liðsmenn hans
eiga það til að ganga til liðs við
andspyrnuna og í framvarða-
sveitunum eru sagðir menn sem
einskis svífast. Alls eru afgansk-
ir flóttamenn nú um 6 milljónir,
eða þriðjungur þjóðarinnar og
flestir búa þeir við mikinn skort,
enda er það ein árangursríkasta
bardagaaðferðin gegn andspyrn-
unni, að brenna akra og eyði-
leggja uppskeru. Það bitnar auð-
vitað á andspyrnumönnum, en
verr kemur það þó niður á flótta-
fólki, gamalmennum, konum og
börnum.
Andspyrnumenn strita þó
áfram og telja sig sjá árangur
baráttunnar. Sá leiðtogi þeirra
sem áður hefur verið vitnað í
sagði nýlega frá sovéskum
hershöfðingja sem andspyrnu-
menn handtóku í Panshjerdal
fyrir nokkru. „Hann gaf okkur
gullnámu af upplýsingum, m.a.
sagði hann liðsandann meðal
Rússa vera fyrir neðan allar
hellur, liðhlaupar væru margir
og fjöldi þeirra skipti á byssum
sínum til að fá eiturlyf.