Morgunblaðið - 04.12.1984, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
Erlent áhættufé
í íslenzkri at-
vinnuuppbyggingu
—Kaflar úr „jómfrúrræðu“ Björns Líndal
BJÖRN Líndal, fyrsti varaþingmað-
ur Framsóknarflokks í Reykjavík,
flutti jómfrúrræðu sína á þingi sl.
fimmtudag, er hann mælti fyrir und-
irbúningi að löggjöf um fjárfestingar
erlendra aðila hér á landi. f upphafi
ræðu sinnar sagði hann m.a.:
„Það er hverju orði sannara að
erlendar lántökur eru komnar að
hættumörkum sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu, einkum þegar
litið er til þess að í heild hafa lán-
tökurnar ekki skilað sér í auknum
hagvexti og að fjórða hver króna
af útflutningstekjum þjóðarinnar
mun á þessu ári ganga til greiðslu
erlendra skulda. Það er einnig
staðreynd sem horfast verður í
augu við að erlent fjármagn er
undirstaða þess að unnt sé að efla
lifsnauðsynlega nýsköpun í at-
vinnulífi hér á landi.
Þessar tvær staðreyndir rekast
harkalega hvor á aðra og því er
mikilvægt að brjóta nýjar leiðir. I
því efni er mikilvægt að löggjaf-
inn, Alþingi, geri upp við sig hvort
til greina komi að ná erlendu fjár-
magni hingað til lands í auknum
mæli í formi fjárfestinga erlendra
Nokkrar umræður urðu um
stjórnarfrumvarp um nýja físk-
verðsákvörðun nú þegar — til sam-
ræmis við launaþróun sem orðið
hefur í landinu. Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra, lét orð
falla efnislega á þá leið í þessari
umræðu, að stjórnarflokkarnir
stefndu að framlengingu orlofs
vísitölunnar, eða víxlhækkana vísi-
tölu og verðlags í dýrtíðarþróun
fyrri ára. Þá kom fram í máli sjáv-
arútvegsráðherra að nú færi fram
úttekt á rekstrarstöðu sjávarút-
aðila í atvinnufyrirtækjum. Er þá
bæði átt við fjárfestingar með
stofnun nýrra fyrirtækja og þátt-
töku í starfandi fyrirtækjum. Eins
og síðar verður komið að vantar
mikið á að skýr stefna sé fyrir
hendi á þessu sviði í íslenskri
löggjöf.“
Síðan fjallaði Björn um nauðsyn
löggjafar um þátttöku erlends
áhættufjár í atvinnuuppbyggingu
hér. Um það efni sagði hann m.a.:
„Fleira kemur til sem gerir lög-
gjöf af þessu tagi nauðsynlega. Is-
lensk lagaákvæði er að þessu lúta
finnast á víð og dreif um allt laga-
safnið. Þessi ákvæði eiga fátt sam-
eiginlegt nema það að þau sýna
svo ekki verður um villst að lög-
gjafinn hefur látið undir höfuð
vegsgreina (Þjóðhagsstofnun) í
tengslum við væntanlega ákvörðun
um nýtt fiskverð, en sú ákvörðun
hljóti að taka mið af þrennu: 1)
rekstrarstöðunni, 2) markaðs-
þróun, þ.e. verði útflutningsfram-
leiðslu, 3) almennri launaþróun í
landinu.
Niðurstöður myndu væntan-
lega liggja fyrir síðar í þessari
viku.
Svavar Gestsson (Abl.) krafð-
izt upplýsinga um vísitöluáform
stjórnvalda, sem óneitanlega
leggjast að marka skýra stefnu
gagnvart fjárfestingum erlendra
aðila í atvinnufyrirtækjum hér á
landi. Einkum á þetta við á sviði
iðnaðar, verslunar og þjónustu en
síst að því er varðar útgerð.
Það er að vísu rétt að atvinnu-
rekstur í iðnaði, verslun og ýmiss
konar þjónustu er háður leyfi
stjórnvalda og skilyrðum um ís-
lenskt ríkisfang, búetu hér á landi
og stundum meirihlutaeign ís-
lendinga á hlutafé. Á hinn bóginn
er löggjöfin þannig úr garði gerð
að stjórnvöld hafa víðtækar heim-
ildir til að veita undanþágur frá
þessum skilyrðum. Þegar reynt er
að grafast fyrir um það hvaða
hugmyndir löggjafinn hefur gert
sér um beitingu á þessum undan-
þágum er litlar sem engar skýr-
hefðu mikið að segja varðandi
kaupmáttartryggingu í landinu.
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra, kvað stjórnar-
flokkanna ekki hafa legið á þeim
vilja sinum að viðhalda verð-
bólguvörnum, m.a. með því að
halda vísitölu áfram utan
tengsla. Þeir hafi jafnframt
kunngjört að þeir muni hafi sam-
band við aðila vinnumarkaðarins
áður en frumvarp um þetta efni
komi fram. Ýmsar annir í þjóð-
félaginu, kjarasamningar, ASÍ-
þing o.fl. valdi þvi, að þetta sam-
ráð hafi dregizt. Að því sé þó
stefnt mjög bráðlega.
ingar að hafa, hvorki í lagafrum-
vörpum né umræðum á þingi.
Þetta á jafnt við um lög um ein-
stakar atvinnugreinar, lög um
eignarrétt og afnotarétt fasteigna
og lög um hlutafélög.
Þetta viljaleysi felur í sér mikið
valdaframsal af hálfu Alþingis til
framkvæmdavaldsins. Samkvæmt
gildandi lögum verða einstök
stjórnvöld að móta sjálf þá stefnu
sem þau kjósa ð fylgja í þessum
efnum. Þetta getur ekki alltaf ver-
ið auðvelt og því má búast við því
að umsóknir erlendra aðila um
undanþágur til þess að geta fjár-
fest hér verði sendar til umsagnar
hagsmunasamtaka. Það virkar ef
til vill vel við fyrstu sýn en miðað
við ríkjandi ástand og þá einkum
afstöðuleysi löggjafans er ekki
fjarri lagi að ætla að þessar um-
sagnir geti í næstu framtíð haft
úrslitaáhrif á það hvort undan-
þága sé veitt. Það þýðir að hags-
munasamtök fari að ráða miklu
um framvinduna i þessum málum
sem Alþingi á með réttu að móta.
Úr þessu þarf að bæta og mér
virðist að setning heildarlöggjafar
um fjárfestingar erlendra aðila í
atvinnufyrirtækjum hér á landi sé
vel til þess fallin. Meginkostur
þess að setja ein lög um þessar
fjárfestingar er fólgin í auðveldari
og skilvirkari framkvæmd þeirrar
stefnu sem lögin koma til með að
marka. M.a. yrði yfirstjórn þess-
ara mála i höndum eins aðila i
stað margra eins og nú tíðkast en
flest sérákvæði í lögum um þessar
fjárfestingar yrðu felld úr gildi.
Það skal einnig tekið fram að
lög af þessu tagi þurfa ekki að
hafa að geyma nákvæmlega sömu
reglur um allar fjárfestingar er-
lendra aðila án tillits til þess
hvers konar atvinnurekstur um
væri að ræða. Það er heldur ekki
nauðsynlegt að láta sömu reglur
gilda um allar fjárfestingar án til-
lits til þess hve stórar þær eru. Að
mínu mati er mikilvægast að auð-
velda erlendar fjárfestingar í
þeim atvinnugreinum sem tengj-
ast beint því yfirlýsta markmiði
ríkisstjórnarinnar að efla nýsköp-
un í atvinnulífinu."
Fyrirlestur
um Þjórsárver
FIMMTUDAGINN 6. desember
næstkomandi, flytur dr. Þóra Ellen
1‘órhallsdóttir fyrirlestur með lit-
skyggnum um jurtalíf og vistfræði
Þjórsárvera. Fyrirlesturinn verður
haldinn í fyrirlestrarsal Raunvís-
indadeildar Háskólans á Hjarðar-
haga 2—4 og hefst kl. 20.30.
Fyrirlesturinn er haldinn á veg-
um Fuglaverndarfél. íslands segir
í fréttatilk. og segir síðan: Eins og
vitað er, eru Þjórsárver eitt af
náttúruundrum íslands, sífrera-
túndrusvæði með miklu fugla- og
jurtalífi. Dr. Þóra hefur undanfar-
in ár rannsakað Þjórsárverin með
tilliti til þess að hægt sé að forðast
skemmd svæðisins af virkjana-
framkvæmdum.
öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
William Arkin
í Háskólanum
WILLIAM Arkin flytur fyrirlestur í
boði félagsvísindadeildar Háskóla
íslands klukkan 20.30 í dag, þriðju-
daginn 4. desember, í stofu 102 í
Lögbergi, húsi lagadeildar.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku. Fyrirlesturinn nefnist „Ice-
land’s Position in U.S. Security
Policy (Staða íslands í öryggis-
stefnu Bandaríkjanna).
William Arkin starfar við Insti-
tute for Policy Studies í Wash-
ington D.C. Arkin hefur umsjón
með rannsóknaverkefni stofnun-
arinnar um „vígbúnaðakapp-
hlaupið og kjarnorkuvopn". Arkin
er höfundur margra tímarits-
greina og meðhöfundur nokkurra
bóka.
Jólagjöf
frá jóla-
sveininum
SÍÐUSTU daga hafa verið borin í
hús í Reykjavík jólagjafaspjöld
Norðurpóls sf. Fyrirtækið hefur í
nokkur ár gefið fólki hérlendis og
erlendis kost á að senda ungum vin-
um sínum ódýra jólagjöf frá sjálfum
jólasveininum.
f ár hafa þegar borizt þúsundir
pantana frá fjarlægum löndum
eins og Ástralíu, Nýja Sjálandi og
Filippseyjum og einnig frá ná-
grönnum i V-Evrópu. Víða erlend-
is hafa JC-klúbbar séð um söluna í
samvinnu við JC á fslandi.
Ralfkeppni með
teningaspifi
KOMIÐ ER á markað „Ljóma-
rallspilið" og er það Birgir Viðar
Halldórsson, rallkappi, sem gefur
spilið út. Byggt er á þeim reglum,
sem farið er eftir á slíkum ökumót-
um og er lögð áherzla á að komast
eins nálægt raunveruleikanum og
hægt er miðað við að hér er um ten-
ingaspil að ræða.
Um 80 atvikamiðar fylgja spil-
inu og byggt er á því, sem gerzt
hefur á rallmótum hérlendis á
liðnum árum og yfirleitt í léttum
dúr. Einfaldar reglur fylgja spil-
inu og eru þær um leið kynning á
íþróttinni.
Auglýsingastofan Augljós sá
um teikningar og hönnun á spil-
inu. Selfell hf. í Reykjavík sér um
dreifingu.
Barnabótaauki — sjúkratryggingar-
gjald — Framkvæmdasjóður aldraðra
Barnabótaauki
Fram er komið frumvarp um
framlengingu sérstaks barna-
bótaauka, sem fyrst var greiddur
í ár og þá kr. 12.000.— með
hverju barni, þ.e.a.s. að hann
verði einnig greiddur á þessu ári.
Samkvæmt frumvarpinu hækk-
ar bótaaukinn um 25% og verður
kr. 15.000.—. Fjármálaráðherra
hefur þegar mælt fyrir þessu
frumvarpi.
Sjúkratryggingargjald
Þá hefur fjármálaráðherra
lagt fram frumvarp þess efnis að
á árinu 1985 verði lagt á sérstakt
sjúkratryggingargjald með sama
hætti og gert var á grundvelli
ákvæða laga nr. 80/1983 á árinu
1984. Gert er ráð fyrir að inn-
heimt sjúkratryggingargjald
1985 nemi samtals 150 m.kr., en
áætlað er að innheimta 1984
nemi 125 m.kr. Gengið er út frá
því að skattbyrði vegna sjúkra-
tryggingargjalds verði óbreytt
hlutfa.ll af tekjum gjaldenda á
greiðsluári, milli áranna 1984 og
1985.
Frádráttarliðir hækka
Fram hefur verið lagt stjórn-
arfrumvarp, þess efnis, að frá-
dráttarliðir skv. 26. gr. laga um
tekjustofna sveitarfélaga, nr.
73/1980, hækki um 25% til sam-
ræmis við hækkun launa milli
áranna 1984 og 1985.
Lög um máiefni aldraðra
Loks hefur ríkisstjórnin lagt
fram frumvarp til breytinga á
lögum um málefni aldraðra. Sem
kunnugt er greiðir hver skatt-
skyldur gjaldandi, sem ekki hef-
ur náð 75 ára aldri, skatt til
framkvæmdasjóðs aldraðra.
Gjald þetta verður kr. 580,— ár-
ið 1985. Sjóðurinn er í vörzlu
Tryggingastofnunar ríkisins en
lýtur sérstakri stjórn.
Samkvæmt frumvarpinu skal
hlutverk sjóðsins vera:
• Að styrkja byggingu þjón-
ustuíbúða og verndaðra þjón-
ustuíbúða fyrir aldraða.
• Að styrkja byggingu dvalar-
heimila fyrir aldraðra.
• Að styrkja byggingu hjúkrun-
arrýmis fyrir aldraða á vegum
einkaaðila.
• Að styrkja breytingar og
endurbætur á dvalarstofnunum
aldraðra, sem nauðsynlegar eru
og leiða af ákvæðum laganna.
• Önnur verkefni, sem sjóðs-
stjórn mælir með og ráðherra
samþykkir.
„Sjóðsstjórn er heimilt að
verja 30% tekna Framkvæmda-
sjóðs aldraðra til styrktar bygg-
•ngu hjúkrunarrýmis á vegum
sveitarfélaga. Styrkurinn skal
við uppgjör dragast frá heild-
arhyggi ngarkostnaði
Þetta síðast talda atriði þýðir
að „fjármögnun hjúkrunarrýmis
á vegum sveitarfélaga" er í rík-
ara mæli „færð að nýju til fjár-
veitinganefndar". Einnig er gert
ráð fyrir að fulltrúi frá fjárveit-
inganefnd taki sæti í samstarfs-
nefnd um málefni aldraðra.
IMAG
Rekstrarstaða sjávar-
útvegsgreina könnuð
— Vísitalan áfram í útlegð