Morgunblaðið - 04.12.1984, Qupperneq 45
Að kippa
því í liðinn
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
45
Erlendar
bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Elizabeth Jane Howard: Getting
it Right.
Út. Hamish Hamilton.
Gavin er hárgreiðslumeistari
í London, býr heima hjá foreldr-
um sínum og lifir ansi viðburða-
snauðu lífi. Hann fer í vinnuna
og er duglegur að klippa og laga
hár á viðskiptavinum, heldur
heimleiðis, reynir að borða óæt-
an mat móður sinnar og kemur
sér í rúmið og sefur þangað til
hann þarf að vakna til vinnu
næsta dag. Einu sinni í viku fer
hann þó í óperuna með Harry
vini sínum og stundum fer hann
með foreldrum sínum í leiðin-
legar heimsóknir til systur sinn-
ar og fjölskyldu hennar. Hann
er þrjátíu og eins árs og hann
hefur aldrei komið nálægt
kvenmanni. Eiginlega er það
ekki af áhugaleysi, öllu fremur
að einhvern veginn hefur tíminn
bara hlaupið frá honum og svo
er hann uppburðarlítill, aukin
heldur hefur hann minnimátt-
Elizabet Jane Howard.
arkennd vegna þess að hann er
alltaf öðru hverju að fá ungl-
ingabólur í andlitið, sem eru
ekki beinlínis til prýði.
En svo fer allt í einu eitthvað
að gerast í lífi Gavins. Hann fer
í samkvæmi með Harry vini sín-
um, sem reynist afdrifaríkt. Þar
kynnist hann skrítinni veru
Minervu, sem eltir hann heim og
til að bjarga málunum segir
hann foreldrum sínum að hún sé
af aðalsfólki og breytir það nátt-
úrlega heldur betur viðtökunum
á heimilinu. En Minerva reynist
svo vera af áðalsfólki — heldur
ógeðfelldu þegar allt kemur
til alls. Hann kemst í þessu
sama samkvæmi í kynni við Jo-
an, sem er með appelsínurauða
hárkollu og sólgleraugu, en
reynist vera óörugg brúneyg
stúlka sem getur ekki haldið í
manninn sinn. Samskiptin við
Joan breyta lífi Gavins heldur
betur og sjálfstraustið er að
koma. Hann fer að gefa sam-
starfsstúlku sinni á hár-
greiðslustofunni, Jenny, auga og
það lítur út fyrir að þau ætli að
rugla saman reitum sínum um
þær mundir að bókinni lýkur.
Hér er á ferð öldungis frábær
bók, sem er í senn ádeilubók,
biönduð skemmtilegum húmor
og slatta af nöturleika: mann-
eskjan er alltaf ein og getur-ekki
reitt sig á neinn þegar í nauð-
irnar rekur. Elizabeth Jane
Howard wakti, að ég held, veru-
lega athygli á sér með bókinni
Odd Girl Out fyrir nokkrum ár-
um, sem var mjög læsileg. Þessi
tekur henni fram í mörgu,
stundum er stutt milli gráts og
hláturs við lestur hennar.
LUX-KEF-SFO
Alla miövikudaga
Boeing747-200F
Flutningsgeta: I20tonn
Flugtimi:
Keflavík - San Fransisco 8 klst
Cargolux hefur hafiö vikulegar
áætlunarferöir milli Luxemborgar
og San Fransisco/Seattle á
vesturströnd Bandaríkjanna meö
viökomu á íslandi.
Viö þaö opnast miklir möguleikar í
vöruflutningum milli íslands og
annarra landa.
Flutningamiölun COSMOS á íslandi er
umboösaöili Cargolux hér á (slandi.
Hafiö samband, leitiö upplýsinga
um nýjar lausnir á flutningamálum.
III IMS< VUIIII S
C0SA40S-
Á ÉM ASII nr
UMBOÐSMENN UM ALLAN HEIM
HAFNARHÚSINU, 101 REYKJAVlK, SlMI (911-15384