Morgunblaðið - 04.12.1984, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
59
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
~ TIL FÖSTUDAGS
Hvað meinar ríkisstjórnin?
Jóhann Þórólfsson skrifar:
Hvað meina ráðherrarnir í
ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar með þessu sparnað-
arhjali?
Hvergi sýnir hún það í ríkis-
rekstrinum. Ætlast hún kannski
til þess að lægst launuðu stétt-
irnar herði enn sultarólarnar
eins og þeir kalla það.
Væri ekki ráð að eitthvert
dagblaðanna upplýsti kjósendur
um það, hve mikið hvert ráðu-
neyti fer með á ári í utanlands-
ferðir, eða hverju eytt er í
veisluhöld, þegar erlendir ráð-
herrar koma til landsins. Allt
þetta borga skattgreiðendur. Of-
an á þetta bætist svo alls konar
kostnaður, bifreiðakostnað ráð-
herranna, þar sem hver maður
hefur sinn bílstjóra. Einnig eru
þrír menn á fullum launum við
að opna og loka dyrum fyrir
„Hvað meina ráðherrarnir í ríkis-
stjórn Steingríms Hermannssonar
með þessu sparnaðarhjali?“ spyr
Jóhann Þórólfsson í bréfi sínu.
þessa menn. Einnig þrír menn til
að bera bréf og ná í þá til viðtals.
Hvað er með útvarp og sjón-
varp? Þar er starfsfólkið eins
margt og dagskrárliðirnir.
Svona mætti lengi telja, en ég
læt þetta nægja. Það er alltof
mikið af eiginhagsmunamönnum
á þingi. Betur að þeir væru allir
eins þjóðhollir og vinur minn
Sverrir Hermannsson. Það er
maður sem ekki er að hugsa um
eigin hag. Sama er að segja um
vin minn Helga Seljan. Hann er
þjóðhollur fulltrúi Austfirðinga.
Þeir eru heppnir að eiga svo
góða fulltrúa.
En ég endurtek. Það er til
skammar, hvernig ríkisvaldið
hefur ráðist á lægst launaða
fólkið.
Og að endingu: Ég sé ekki
fram á annað en við eigum eftir
að verða nýlenda þeirra í Amer-
íku. Þeir fara að hirða okkur upp
í skuldir. — Þetta læt ég nægja
núna.
Árni Helgason segir í bréfi sínu, að margt hafi farið úrskeiðis á Sauðárkróki síðan útsala áfengis hófst þar.
Hallar undan fæti
Árni Helgason í Stykkishólmi
skrifar:
Ég minnist þess sem ungur
drengur að hið fyrsta sem ég
heyrði um Sauðárkrók var hversu
traust menningarlíf væri þar og
sú menning væri með ívafi krist-
indóms og bindindis. Góðtempl-
arareglan stóð þar með miklum
blóma, boðaði fagurt mannlíf og
bræðralag. Forystumenn þar vildu
gera æskuna, efnivið framtíðar-
innar, sem sterkasta í stormviðr-
um lífsins. Ég man að mikill ljómi
stóð þá um nafn Jóns Björnssonar
skólastjóra og það að verðleikum.
Hann var þar í fararbroddi og
studdi af ráðum og dáð hið frjóa
starf, fórnaði kirkju- og bindind-
ismálum miklum tíma frá erfiðu
starfi og mannmörgu heimili.
Mörg fleiri nöfn bar þá hátt í
menningarlífi Sauðkrækinga og
vert væri að minnast á fleiri en
það bíður síns tíma. En á engan er
hallað þótt nafn Jóns sé talið í
fremstu röð. Þá var nú gaman að
vera á Sauðárkróki, sagði einn
vinur minn mér.
Mér kemur þetta í hug er ég
heyri í fjölmiðlum fréttir af þeirri
öfugþróun sem nú ríkir þar í fíkni-
efnamálum. Lögreglan upplýsir að
eftir að útsala Áfengisverslunar
ríkisins var opnuð þar hafi fjölda-
margt farið á verri veg, afbrot
aukist, gripdeildir og alls konar
spellvirki og annað af hinum verri
toga magnast. Og svo má bæta við
ýmsu sem fram hjá lögreglu fer en
hefir slæm áhrif á heimilislífið.
En er við öðru að búast? Hefir
ekki reynslan kennt okkur að eins
og menn sá svo uppskera þeir?
Hvað myndi Jón Björnsson segja
ef hann mætti líta upp úr gröf
sinni? Á sama tíma og Sauðkræk-
ingar reisa þessum öndvegismanni
veglegan minnisvarða sem þakk-
læti fyrir störf hans í þágu bæjar-
félagsins leiða þeir inn þá ófreskju
sem Jón varði ævi sinni í að
vernda Sauðkrækinga fyrir. Það
er ekki öll vitleysan eins.
Selfoss var einn þeirra staða
sem fékk áfengisútsölu í fyrra.
Fyrirmenn bæjarins töldu eins og
fyrirmenn Sauðárkróks að menn-
ingu og manndómi væri best borg-
ið undir veldi vímuefna. Ég geri
ráð fyrir að sama útkoma verði
þar.
En hart er að vita til þess að
þeir sem eiga að hlúa að nytja-
gróðri skuli rækta illgresi. Og svo
furða menn sig á hvernig þjóðlíf
okkar er núna. Menn eru stundum
lengi að læra af reynslunni. Og nú
er komið að ólafsvík. Þar hefir
bæjarstjórn samþykkt fyrir sitt
leyti að leyfa bjórstofur. Reynslan
er heldur ömurleg af þvílíkum
fyrirtækjum og þeir sem vilja
þjóðinni vel benda á hin gruggugu
spor.
Menn hefðu haldið að hugsandi
menn sæju annað til blessunar
sínum borgurum en þetta en því
miður er staðreyndin sú að jafnvel
þeir sem eiga að gæta að og
vernda heilbrigði manna eru
fremstir í flokki með að leiða
þennan ófögnuð í bæinn.
Ég vil ekki trúa því fyrr en í
fulla hnefana að þessir forystu-
menn eigi ekki eftir að endurskoða
sínar gerðir og ólafsvíkurkaup-
staður megi vera laus við þessa
plágu. Menn vita og hafa sann-
reynt að öl er böl. Er það ekki
einkennilegt hve margir, jafnvel
skynsamir menn, láta sig hafa það
að veita þessu vímuefni brautar-
gengi? Það fer ekki milli mála að
áfengisauðvaldið er eitt sterkasta
aflið í heiminum. Þess vegna á hið
góða í vök að verjast.
En hvernig væri nú að forystu-
sveit bjórstofuhugmyndar í
Ólafsvík sneri blaðinu við og
stofnaði baráttusveit gegn alls
konar vímuefnum og gerði þannig
bæinn sinn að andlegu velferðar-
ríki.
Það er til mikils að vinna.
\\\\\\\\V \
Varahlutir í
gamla góða
rússann
Y
\ \
\V
X \
Eigum fyrirliggjandi boddy-hluti áN
GAZ-69 á sérstöku tilboösverði,
takmarkaöar birgöir.
i *' «• j l
1 Æ
\
Köflótt efni
Röndótt efni
Einlit efni
Sparið og saumiö sjálf
Saumaöu
fallega jakka úr köflóttu eða einlitu
ullarefni
Allt til sauma