Morgunblaðið - 04.12.1984, Page 60
60
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984
Eldur í íbúð
á Laugavegi:
Kona flutt í
slysadeild
FULLORÐIN kona var flutt í
slysadeild eftir að mikill reykur
kom upp í íbúð hennar, en pottur
gleymdist á eldavél. Slökkviliðið
var kallað á vettvang laust eftir
klukkan hálffjögur í fyrrinótt.
Konan var frammi á gangi þegar
slökkviliðsmenn komu á vettvang
og var hún flutt í sjúkrabifreið í
slysadeild.
Ibúðin var loftræst og
skemmdir eru óverulegar.
Skömmu áður kom upp eldur á
upptökuheimilinu í Kópavogi að
Kópavogsbraut 17. Eldur var
laus í náttborði í herbergi
vistmanns. Greiðlega gekk að
slökkva eldinn, en talsverðar
skemmdir urðu á herberginu af
völdum reyks og hita. Rann-
sóknarlögregla ríkisins rann-
sakar eldsupptök.
Morgunblaðid/Júlíus.
Fullorðin kona var flutt í slysadeild, eftir að pottur hafði gleymst á eldavél og mikinn reyk lagði um íbúð hennar.
1 **
Hörpumálning fæst í eftirtöldum
Álfbóll, Kópavogi
Brynja
BYKO, Kópavogi
BYKO, Hafnarfirði
Byggingav.versl.
Tryggva Hannessonar
Dröfn, Hafnarfírði
Dvergur, Hafnarfírði
Ellingsen
Gos
Húsasmiðjan
J.L Byggingavörur
Hamraborg 7
Laugavegi 29
Nýbýlavegi 6
Dalshraun 15
Síðumúla 37
Strandgata 75
Brekkugata 2
Ánanaustum
Nethyl 3
Súðarvogi 3
Hringbraut 119
verslunum á Reykjavíkusvæöinu:
Kjörval, Mosfellssveit
Litaver
Liturinn
Málarabúðin
Málarinn
Málmur, Hafnarfirði
Málningavörur
Málning og Járnvörur
Mikligarður
Pétur Hjaltested
Slippbúðin
Smiðsbúð, Garðabæ
Þverholti
Grensásvegi 18
Síðumúla 15
Vesturgata 21
Grensásvegi 11
Reykjavíkurvegi 50
Ingólfsstræti 5
Síðumúla 4
Holtagarðar 108
Suðurlandsbraut 12
Mýrargata 2
Smiðsbúð 8
„Á valdi
ástarinnar“
— ný saga eftir
Barböru Cartland
ÚT ER komin hjá bókaútgáfunni
Skuggsjá, Hafnarfírði, ný bók eftir
Barböru Cartland, sem nefnist „Á
valdi ástarinnar". Þetta er ellefta
bókin, sem Skuggsjá gefur út eftir
Barböru Cartland.
í frétt frá útgefanda segir svo
um efni sögunnar: „Lafði Vesta
Cressington-Font ferðast til ríkis-
ins Katonu til að hitta prinsinn,
sem þar er við völd og hún hefur
gengið að eiga með aðstoð stað-
gengils í London. Við komuna til
Katonu tekur hinn myndarlegi
greifi, Miklos, á móti henni, og
hann segir henni, að bylting hafi
verið reynd og að hún eigi strax að
snúa aftur til Englands. Vesta
neitar því og segir, að hennar sess
sé við hlið prinsins, og gegn vilja
sínum tekur greifinn að sér að
fylgja henni til Djilas, höfuðborg-
ar Katonu. Það verður viðburðarík
ferð og hætturnar leynast við
hvert fótmál þeirra, en á leiðinni
laðast þau hvort að öðru, Vesta og
greifinn. En hver var hann, þessi
dularfulli greifi?“
Á valdi ástarinnar er 168 bls. að
stærð. Bókin var sett og prentuð í
Prentbergi hf. og bundin í Bókfelli
hf. Sigurður Steinsson þýddi bók-
ina.
/ ^ BAKHARA , -|
ftartland
Ávaldi
ástarinnar
Aimanak 1985:
Samfelld
útgáfa
frá 1837
ÚT ER komið Almanak fvrir fs-
land 1985, sem Háskóli Islands
gefur út. Þetta er 149. árgangur
ritsins, sem komið hefur út sam-
fellt síðan 1837. Dr. Þorsteinn
Sæmundsson stjarnfræðingur hjá
Raunvísindastofnun Háskólans
hefur reiknað almanakið og búið
það til prentunar. Ritið er 88 bls.
að stærð.
Auk dagatals með upplýsing-
um um flóð og gang himintungla
flytur almanakið margvíslegan
fróðleik. I heild er yfirbragð
ritsins svipað og undanfarin ár,
en ýmsar töflur og teikningar
hafa verið endurskoðaðar með
hliðsjón af nýjustu upplýsing-
um. Sem dæmi má nefna kort
sem sýnir núverandi stefnu átt-
avitanálar (misvísun) á íslandi,
ALMANAK
scm er fyrsla ár cftir hlaupár
og fyrsta ár eftir sumarauka
Reiknað hcfur
og búid til prentunar
Þorsteinn Sœmundsson Ph. D.
Raunvísindastofnun Háskólans
nýtt kort yfir veðurathugun-
arstöðvar og breytta skilgrein-
ingu á lengdareiningunni metra
í yfirliti um mælieiningar. Af
nýju efni má nefna mynd sem
sýnir fjölda sólbletta í mánuði
hverjum undanfarin 40 ár.
Við prentun almanaksins hef-
ur verið beitt þeirri tækni að
láta tölvu annast setninguna á
sjálfvirkan hátt. Þetta gildir um
allar töflur í almanakinu og
nokkuð af almennum texta.
Hingað til hafa setjarar þurft
að taka við töflum, t.d. um gang
himintungla, sem reiknaðar
hafa verið í tölvu og setja þær
handvirkt. Þar sem tölurnar í
almanakinu eru býsna margar,
hefur þetta verið seinlegt verk
og kostað mikinn prófarkalest-
ur.
í ár mun Háskólinn sjálfur
annast sölu almanaksins og
dreifingu þess til bóksala, en
það verkefni var áður í höndum
Bókaútgáfu Menningarsjóðs og
Þjóðvinafélagsins samkvæmt
samningi við Háskólann. Eftir
sem áður mun Þjóðvinafélagið
hafa heimild til að gefa út Al-
manak Háskólans sem hluta af
eigin almanaki, enda löng hefð
fyrir þvi.