Morgunblaðið - 04.12.1984, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 04.12.1984, Qupperneq 64
HLEKKURIHBMSKEÐJU OPIÐ ALLA DAGA FRÁ KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTR/ETI 22 INNSTRÆTI. SÍMI 11633 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 1984 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Óvænt 10 % launahækkun BHM-manna hjá ríkínu Samningar undirritaðir á næstu dögum RíkissUrfsmenn í Bandalagi há- skólamanna (BHM) fengu margir óvsnt um 10% launahskkun um mánaðamótin — án þess aó form- lega hafi verið gengið frá nýjum kjarasamningi ríkisvaldsins og BHM. Samningaviðræður BHM og fjármálaráðuneytisins hafa staðið um nokkurt skeið en um síðustu helgi var deilunni vísað til ríkis- sáttasemjara. Þaðan fór hún beint til Kjaradóms að ósk aðila. Er nú gert ráð fyrir að nýir kjarasamn- ingar verði undirritaðir á næstu dögum, að því er Birgir Bjöm Sig- urjónsson, hagfræðingur BHM, sagði í samtali við blaðamann Mbl. í gærkvöldi. Hann sagði að í lok vikunnar hefði náðst samkomulag um nýjan kjarasamning. „Fjármálaráðu- neytið hafði þá þegar undirbúið launagreiðslur um þessi mánaða- mót í samræmi við það samkomu- lag þannig að margir fengu óvæntar launahækkanir nú,“ sagði Birgir Björn. „Kjör BHM-manna í opinberri þjónustu hafa verið í endurskoðun og hefur krafa okkar verið sú, að prósentu- og peningahækkanir yrðu samkvæmt samkomulagi ASl og VSÍ. Um það náðist ekki samkomulag enda er samnings- réttur ríkisstarfsmanna í BHM mjög takmarkaður. Engu að síður tókst að skapa samningsgrundvöll og verða launahækkanir ríkis- starfsmanna í Bandalagi háskóla- manna því væntanlega svipaðar og annarra opinberra starfs- manna,“ sagði hann. Birgir Björn Sigurjónsson sagði að þó væri sá munur á, að gildandi samningur BHM og ríkisins væri útrunninn í lok febrúar næstkom- andi og væru engar líkur á að sá samningur yrði síðan framlengdur óbreyttur til ársloka 1985. STAFF sæk- ir um lóö í Öskjuhlíð STAFF, starfsmannafélag Flugleiða, helur sótt um lóð fyrir félagsheimili í Öskjuhlíð, í um 350 m fjarlægð beint austur af byggingum Flug- leiða. Lóðin er gryfja frá hernámsár- unum sem sprengd var fyrir fjóra olíutanka. Þeir hafa nú verið fjar- lægðir og einungis standa eftir steyptar botnplötur þeirra. Gryfj- an opnast í báða enda, annars veg- ar til norðurs út að bílastæði Keiluhallarinnar og hins vegar að sunnan, þar sem hún opnast til vesturs í átt að byggingum Flug- leiða. Bergveggur gryfjunnar er um átta metra hár en heildar- lengd hennar frá norðri til suðurs er ca. 120 m og mesta breidd ca. 22 m. Að sögn Helga Þorvaldssonar, formanns STAFF, liggja teikn- ingar að félagsheimilinu ekki fyrir en ráðgert er að þar verði auk fundar- og hátíðarsalar, aðstaða til að stunda iþróttaæfingar og líkamsrækt. ELSTA MANNVIRKIHVERA GERÐIS RIFIÐ Hverageröt, 3. desember. HAFIST hefur verið handa við að rffa elsta mannvirkið í Hveragerði, en það eru fjárréttirnar sem byggðar voru fyrst árið 1847, en síðan endurbyggðar 1927 og notaðar óslitið til 1977 eða í 130 ár en þá tóku við hlutverki þeirra nýjar réttir í landi Núpa f Olfusi. Réttirnar eru hlaðnar úr hraungrýti og ekki eins vandaðar og þær sem hlaðnar eru úr torfi og grjóti, en þær hafa þó staðist jarðhræringar, eins og hinn margumtalaða Suðurlands- skjálfta 18%. En ekkert fær staðist tímans tönn né eyðingarmátt mannsins og hinar öflugu vinnuvélar nútímans. Svaninum með ólina fargað „SVANURINN var illa særður á hálsi eftir leðurólina auk þess sem að hann var vængbrotinn. Því varð að farga fuglinum," sagði Hafliði Jónsson, garð- yrkjustjóri Reykjavíkurborgar, í samtali við blm. Mbl. en í fyrir nokkru skýrði Mbl. frá svani, sem synti um Tjörnina í Reykja- vík með leðuról um hálsinn og höfðu menn reynt að koma höndum yfír fuglinn. Fuglinum var fargað fyrir nokkru. „Ljóst er að einhver hefur náð fuglinum, smeygt ólinni um háls hans, misþyrmt hon- um og vængbrotið," sagði Haf- liði Jónsson. Mdagar TIL JÓLA Loðnuverðið hækkar um 20 % NÚ HEFUR verið gengið frá nýju loðnuverði, sem gilda á frá og með 21. nóvember sfðastliðnum. Verð þetta hefur enn ekki verið gefíð út, en hækk- unin nemur 20% frá síðasta gildandi verði. Skiptaverð fyrir hverja lest verður samkvæmt því 1.275 krón- ur, en var áður 1.060. Verksmiðj- urnar greiða síðan 39% ofan á verðið til útgerðar og borga því samtals 1.773 krónur fyrir hverja iest samkvæmt nýja verðinu. Verð þetta miðast við 15% fitufrítt þurrefnisinnihald loðnunnar og 16% fitu. Verðið breytist síðan til hækkunar eða lækkunar um 79 krónur fyrir hvern hundraðshluta, sem þurrefnisinnhald breytist og um 76 krónur við breytingar á fituinnihaldi. Qlympíuskákmótið ’86 í Sameinuðu furstadæmunum: ísland hótar að vera ekki meðal þátttakenda ÍSLAND hefur hótað ásamt vestræn- um ríkjum að taka ekki þátt í næsta Olympíumóti í skák, en í gær var ákveðið á þingi Alþjóðaskáksam- bandsins, FIDE að mótið fari fram í Sameinuðu furstadæmunum við Persafíóa árið 1986. Atkvæði féllu þannig að 61 þjóð greiddi atkvæði með Sameinuðu furstadæmunum, en 25 voru á móti. Sameinuðu furstadæmin hafa lýst þvf yfír, að ísraelskir skákmenn fái ekki vega- bréfsáritun á Olympfuskákmótið. „Við mótmæltum þessari ákvörð- un FIDE og greiddum atkvæði gegn því að Olympíuskákmótið fari fram í Sameinuðu fursta- dæmunum, ef ekki verði tryggt að ísraelskir skákmenn fái vega- —verði ísrael meinuð þátttaka bréfsáritun," sagði Þorsteinn Þorsteinsson, forseti Skáksam- bands íslands í samtali við frétta- ritara Mbl. á Olympíuskákmótinu í Grikklandi. „Ef Israelsmenn fá ekki vega- bréfsáritun, þá mætum við ekki til leiks. Það er ekki einleikið hve Campomanes, forseti FIDE, hefur fylgt þessu máli fast eftir. Engu er líkara en hann ætli með þessu að klekkja á ísraelsmönnum og vest- rænum þjóðum. Haft hefur verið á orði, að FIDE fái væna peninga- upphæð frá Aröbunum fái þeir að halda mótið," sagði Þorsteinn ennfremur. Síðdegis í gær vann Jón L. Árnason maraþonskák sina við V-Þjóðverjann Hecht. Skákin varð alls 120 leikir og sýndi Jón af sér mikla hörku og tókst að tryggja íslenzku sveitinni einn vinning úr glímunni við V-Þjóðverja. ís- lenzka skáksveitin er því í 16—19. sæti ásamt Frökkum, Pólverjum og Albaníumönnum með 29 vinn- inga. Síðasta umferðin verður tefld í dag. Sjá „fsland hefði verðskuldað sig- ur gegn Sovétmönnum“ á mið- opnu.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.