Morgunblaðið - 03.01.1985, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.01.1985, Qupperneq 1
56 SIÐUR STOFNAÐ 1913 1. tbl. 72. árg. FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985 Prentsmiðja Morgunblaðsins Sovésk stýriflaug á syeimi yfir Noregi Gamla árið kvatt Þaö gekk á ýmsu um heim allan er gamla árið var kvatt og þaö nýja boðið velkomið. Hjá ungu mönnun- um á myndinni var gleðin við völd, myndin er tekin í Lundúnaborg og pilturinn lengst til vinstri er lögregluþjónn. Þeir létu sér ekki nægja að taka ofan, heldur skiptust þeir einnig á höfuðfötum. Símamynd/AP. - hvarf svo yfir finnsku landamærin Oh16. 2. juúr. Krá Ju Erik Lure frétUmUrm Mbl. SOVÉSK stýriflaug rauf norska lofthelgi nyrst í landinu á föstudaginn var, flaug áleiðis yfir finnsku landamærin og hvarf þar sjónum heimamanna. Finnar sögðu jafnframt, að „óþekkt loftfar" hefði rofið lofthelgi sína á þessum stað á sama tíma, en höfðu ekki fleiri orð um það. Talið er að sovéskt herskip eða kafbátur í Barentshafi hafi skotið flauginni og það sé í hæsta máta ólíklegt að hún hafi verið hlaðin sprengiefni. Það var Frederik Bull Hansen, yfirmaður norska heraflans, sem greindi frá þessu í dag og bætti hann við að norsk stjórnvöld myndu koma á framfæri harðorð- um mótmælum, því ugg hefði sett að Norðmönnum við svo gáleysis- legar æfingar Sovétmanna með vígvél af þessu tagi. Stýriflaugin var lágt á lofti er hún barst frá austri til vesturs, yfir Pasvikána og Rustvatn við finnsk/norsku landamærin. Síðan breytti flaugin um stefnu og hvarf yfir til Finn- lands og telja Norðmenn trúlegt að hún hafi komið þar niður, en einnig mögulegt að hún hafi ekki hrapað fyrr en á sovéskri grund. Bull Hansen sagði ennfremur, að Norðmenn hefðu alloft fylgst með flugi sovéskra stýriflauga þar nyrðra, einkum í Barentshafi, en þetta sé i fyrsta skipti sem ein slík rýfur lofthelgina. Hann taldi ekki ástæðu til að gera of mikið veður út af málinu, trúlegast væri að flaugin hefði „villst af leið“. Fasta vinnur á geislunaræxlum New Vorfc, 2. juáar. AP. VÍSINDAMENN við „Veterans Administration Medical Center“ í Bronx í New York hafa komist að merkri niðurstöðu í rannsóknum sfn- um á krabbameinsæxlum sem mynd- ast vegna geislunar. Rannsókn þeirra hefur leitt í Ijós að bæði er hægt að koma í veg fyrir siík æxli og lækna þau með því að draga úr fæðuneyslu. Að vísu hefur þetta einungis verið athugað á rannsóknarstofurottum enn sem komið er, en vísindamenn- irnir eru þó afar bjartsýnir á að beita megi þessari læknisaðferð á fólk þeg- ar fram líða stundir. Boeingþota finnst ekki U Prz, Bólivíu. 2. janúar. AP. BOEING 747-þota frá bandaríska fiugfélaginu Eastern Airways fórst í Andesfjöllum I morgun. Hún var í áætlunarflugi frá Asuncion í Para- guay til La Paz í Bólivíu og voru aðeins rúmar 10 minútur þar til hún átti að lenda í La Paz þegar sam- band við hana rofnaði. 29 manns voru um borð, 19 farþegar og 10 manna áhöfn. Þotunnar var leitað úr lofti og á láði í allan dag, en það fannst ekki svo mikið sem ein skrúfa úr henni og voru skilyrði til leitar þó góð. Erfitt er þó um vik í Andes- fjöllum, djúpir dalir, hamragöng skriður og skorningar. Eitt sinn um miðjan daginn töldu menn sig hafa fundið brak, en það fékkst ekki staðfest og á endanum var talið að glampað hafi af berg- myndunum í sólinni. Síðast er fréttist hafði ekkert breyst, þotan var ófundin. Ludwik Gross, sem borið hefur hitann og þungann af rannsóknun- um, sagði m.a.: „Þetta er glæný vitneskja og við erum afar spennt- ir, við bjuggumst ekki við jafn ríkulegum árangri og raun hefur borið vitni.“ Gross sagði einnig, að þegar á fjórða áratugnum hafi vís- indamenn fundið út að samdráttur í fæðu gæti dregið úr krabbameini í músum, en í þeim tilvikum var um mýs að ræða sem höfðu sjálfar fengið æxlin, en ekki fyrir tilstilli geislunar. Þá sagði Gross að lokum að það teldist jafnan til tiðinda er nýjar lækningar næðu til fleiri dýrategunda en einnar. Sérstak- lega væri þetta gleðileg þróun þar sem nú væri krabbamein annars vegar. Fundur Shultz og Gromykos: Stórveldin undirbúa sig af miklu kappi Palm Springs, Vitíkaninu og Monkvu, 2. juúnr. AP. BEÐIÐ ER með óþreyju fundar þeirra Andrei Gromyko og George Shultz, utanríkisráðherra Sovétríkjanna og Bandaríkjanna, sem haldinn verður í Genf á mánudag. Á fundinum mun skýrast hvort stórveldin tvö hefji á nýjan leik viðræður um fækkun kjarnorkuvígvéla. Ronald Reagan forseti Banda- ríkjanna átti á nýársdag langan fund með Shultz, Caspar Wein- berger varnarmálaráðherra og að- alráðgjafa sínum Robert McFar- lane þar sem Shultz voru lagðar línurnar. Lftið er vitað um hvað Shultz muni hafa fram að færa á fundinum með Gromyko, en þó hefur lekið út, að hann muni stinga upp á þvf að aðskildar við- ræður verði um varnarvopn ann- ars vegar og sóknarvopn hins veg- Þá er óljóst hvernig ar. Bandarikjamenn muni taka i kröfu Rússa um að hætta beri rannsóknum á því að koma upp kjarnorkuvopnavarnarkerfi f geimnum. Andrei Gromyko sagði í til- kynningu sem barst frá hinni opinberu fréttastofu Tass, að hann vonist til þess að Bandarfkjamenn lýsi sig reiðubúna til „uppbyggi- legra viðræðna," eins og hann komst að orði. Morðið á séra Popieluszko: Gefið í skyn að aðstoðar- ráðherra sé vitorðsmaður Torun, PólUndi. 2. janúar. AP. RÉTTARHÖLDIN yfir mönnunum, sem hafa játað að hafa rænt og myrt pólska prestinn Popieluzsko, héldu áfram f Torun í dag og bar liðþjálfinn Chmielewski vitni. Hann staðfesti vitnisburð liðþjálfans Pekala þess eðlis, að Piotrovski höfuðsmaður hefði staðfest f orði við þá báða, að ránið og morðið væri á vitorði háttsettra valdamanna og þeim hafi verið lofað að þeir yrðu ekki látnir svara til saka. Chmielewski sagði að í upphafi hafi átt að ræna séra Popieluzsko til þess að hræða hann til undir- gefni, en presturinn var harður talsmaður Samstöðu, hinna ólög- legu en sterku verkalýðssamtaka f Póllandi. í upphafi hafi verið viss hætta, því presturinn var heilsu- veill og því hafi hann spurt höf- uðsmanninn hvað myndi gerast ef Popieluszko gæfi upp öndina í prísundinni. „Piotrovski sagðist verða að ráðfæra sig við sér æðri menn um það mál, og ég var við- staddur er hann hringdi á skrif- stofu Adams Pietruszka ofursta í innanríkisráðuneytinu, en hann var þá ekki við,“ sagði Chmiel- ewski. Hann sagði siðan, að tveimur dögum siðar hefði Piotro- vski sagt sér að hann hefði fengið „leyfi til að láta til skarar skriða,“ eins og hann komst að orði og hefði höfuðsmaðurinn Piotrovski gefið berlega í skyn að hann hefði leyfið frá háttsettum ráða- mönnum, „t.d. aðstoðarráðherra eða þvíumlíku," sagði Chmielewski. Þá sagði sakborningurinn, að Piotrovski hefði lagt mikla áherslu á að Popieluzsko yrði drepinn og varpað í uppistöðulón- ið og hefði hann í raun vart trúað því að það yrði ofan á fyrr en þeir voru að koma líki prestsins fyrir f köldu vatninu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.