Morgunblaðið - 03.01.1985, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANtJAR 1985
Ibúðalánareikningar í Verslunarbankanum:
íbúðakaupendur
geta fengið allt að
700 þús. til 10 ára
VERSLUNARBANKI íslands hefur ákveðid að bjóða nýjan innlánsreikning
fyrir fólk sem stefnir að íbúðakaupum og er hann tengdur rétti til lántöku og
nefnist íbúðalánareikningur. Sparnaöartími er tvö til fimm ár. Reikningurinn
ber hæstu innlánsvexti bankans og er hægt að spara hvaða upphæð sem er og
jafnframt mismunandi upphæðir á milli mánaða. Lánshlutfallið er frá 150%
upp í 200 %af sparnaði með vöxtum eða verðbótum upp að vissu hámarki sem
er á bilinu 400 til 700 þúsund kr. og endurgreiðslutími er þrjú til tíu ár.
„íbúðalánareikningurinn er eignast eigin íbúð og bankarnir
fyrst og fremst hugsaður fyrir hafa ekki heldur brúað mismun-
ungt fólk sem stefnir að kaupum á
eigin íbúð en reikningurinn er
einnig hugsaður fyrir alla aðra
sem vilja eignast sína eigin ibúð
eða þá sem eru að kaupa stærra
húsnæði eða eru að framkvæma
meiriháttar viðhald á eldri eign.
Með íbúðalánunum gefst fólki
kostur á að fá hærri bankalán til
lengri tíma en tíðkast hefur i is-
lenskum bönkum,“ sagði Þórður
Sverrisson, deildarstjóri mark-
aðsdeildar Verslunarbankans, í
samtali við blaðamann Mbl. þegar
hann var inntur eftir þessari
nýbreytni Verslunarbankans.
Þórður sagði um ástæður þess
að Verslunarbankinn býður þenn-
an reikning: „Á undanförnum ár-
um hefur lánshlutfall af kaup-
verði fasteigna verið að minnka,
sem hefur þýtt að erfiðara hefur
verið fyrir fólk að eignast sína eig-
in íbúð. Húsnæðismálalán og lif-
eyrissjóðslán hafa ekki fullnægt
lánsþörf þeirra sem viljað hafa
inn. Tilkoma íbúðalánareiknings-
ins er tilraun Verslunarbankans
til að koma til móts við þessa
ófullnægðu þörf og óskir um hærri
lán til lengri tíma um leið og þetta
er hvatning til aukins sparnaðar."
íbúðalánin bera hæstu útlána-
vexti bankans eins og þau eru
hverju sinni og greiðist mánaðar-
lega af þeim. Sem dæmi um mögu-
leika til lána má nefna að 5 þús-
und króna sparnaður á mánuði i 2
ár veitir rétt til 235 þúsund kr.
láns og hefur sparandi þá 392 þús-
und kr. til ráðstöfunar. Endur-
greiðslutími þessa láns er 3 ár og
mánaðargreiðslur rúmar 9 þúsund
kr. Með 3 þúsund kr. sparnaði i 5
ár vinnur fólk sér rétt til há-
marksláns sem í dag er 700 þús-
und kr. og verður ráðstöfunarfé
sparenda, það er lán og sparifé
með vöxtum, rúm milljón. Lánið
endurgreiðist á 10 árum með rúm-
um 15 þúsund kr. mánaðargreiðsl-
um.
Metársfagnaður
í Kísiliðjunni
MýTatnaHveit, 2. juúar.
ÁRIÐ 1984 var metár hjá Kísiliðj- starfsfólk og rúmgóð matar- og
unni hf. í framleiðslu. Heildarfram-
leiðslan var 27.240 tonn af kísilgúr
sem er það mesta á einu ári frá því
verksmiðjan tók til starfa árið 1967.
Árið 1983 var annað mesta fram-
leiðsluárið, þá voru framleidd 25.500
tonn af kísilgúr.
Laugardaginn 29. desember, þeg-
ar framleiðslan var orðin 27 þúsund
tonn og séð í hvað stefndi, var
starfsfólki verksmiðjunnar og gest-
um boðið upp á veitingar í hinni nýju
kaffistofu fyrirtækisins.
Við það tækifæri gat Hákon
Björnsson framkvæmdastjóri Kís-
iliðjunnar þess að frá upphafi
væri búið að framleiða 330—340
þúsund tonn af kísilgúr í verk-
smiðjunni. Jafnframt taldi Hákon
söluhorfur nú mjög góðar og
mætti segja að framleiðslan hafi
selst nánast eftir hendinni. Svo
sem kunnugt er hefur Kísiliðjan
verið rekin með nokkrum halla
undanfarin ár. Nú er hinsvegar
vonast til að árið 1984 verði fyrir-
tækinu hagstætt.
Síðastliðin tvö ár hefur verið
unnið að nýbyggingu hjá Kísiliðj-
unni. Er það hin vandaðasta bygg-
ing. Þar verður ágæt aðstaða svo
sem sturtur og fataskápar fyrir
kaffistofa. Byggingu þessari er nú
að verða lokið. Starfsfólk Kísilið-
junnar er í dag 70—80 manns. Má
af því sjá hversu mikilvægt þetta
fyrirtæki er byggðarlaginu.
— Kristján
HorKunblaðift/Skapti Hallgrimsson
Nýársbarnið á Akureyri
FyrsU barn ársins sem Mbl. hafði spurnir af í gær, fæddist á Akureyri einni klukkustund og fimm mín. eftir
áramót — kl. 01.05 á nýársnótt. Það var stúlkubarn, sem mældist 51 sm á lengd og 3130 grömm á þyngd.
Foreldrar „nýársbarnsins" eru Dóra Margrét Ólafsdóttir, skrifstofustúlka, og Arni Freyr Antonsson, skipa-
smiður. Þau eru búsett á Akureyri. Það var Freydís Laxdal, Ijósmóðir, sem tók á móti barninu.
Mæðgunum, Dóru og þeirri nýfæddu, heilsaðist vel er blaðamaður Morgunblaðsins heilsaði upp á þær á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri í gærdag og smellti af þeim mynd, með foðurnum, sem var í heimsókn.
Forsætisráðherra um nýjar efnahagsaðgerðir:
Jafnvel að vænta fyrir
samkomudag Alþingis
Forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, segir, að vænta megi
frétta af nýjum efnahagsaðgerðum
stjórnvalda á næstunni, jafnvel áður
en þing kemur saman á ný að loknu
jólaleyfi þingmanna 28. janúar nk.
Kísiliðjan við Mývatn.
Steingrímur var spurður hvaða
efnahagsaðgerðir hann væri að
boða, en í áramótaávarpi sínu
sagði hann m.a. að ríkisstjórnin
yrði að endurskoða efnahags-
stefnu sína í upphafi nýs árs.
Hann svaraði: „Það er vitanlega
orðið allt annað upp á teningnum
núna en stjórnarflokkarnir vonuð-
ust til og Ijóst, að á þeim málum
verður að taka með öðrum ráðum
en ætlunin var að nægja mundu í
skikkanlegu efnahagsástandi. Um
það er verið að ræða, en ég get
ekki sagt meira um málið á þessu
stigi.“
Forsætisráðherra var þá spurð-
ur, hvort hafinn væri undirbún-
ingur að þeim þríhliða viðræðum
stjórnvalda, launþega og atvinnu-
rekenda vegna kjarasamninga á
árinu, sem hann hefur boðað.
J4ei, hann er ekki hafinn, en ég
tel og hef áður sagt að við þessar
breyttu aðstæður verði stjórnvöld
að koma miklu ákveðnar inn f gerð
kjarasamninga en við höfðum
vonast til að þyrfti. Ég er þeirrar
skoðunar að slíkar viðræður eigi
að hefjast fljótt og þá í tengslum
við endurskoðun á hinum ýmsu
tekjustofnum ríkisins sem eru f
gangi, bæði varðandi tekjuskatt,
tolla og virðisaukaskatt."
Forsætisráðherra var í lokin
spurður, hvenær vænta mætti
ákvarðana um nýjar efnahagsað-
gerðir. Hann sagðist vonast til að
ýmislegt kæmi í ljós áður en Al-
þingi kemur saman á ný eftir jóla-
leyfi þingmanna, en því lýkur 28.
janúar nk.
Sigurvin Baldvinsson
Fórst í
bílslysi í
Gilsfirdi
Maðurinn sem beið bana á föstu-
dag er bifreið fauk út af veginum
skammt frá Ólafsdal í Gilsfirði
hét Sigurvin Baldvinsson. Hann
var 31 árs bóndi á Gilsfjarðar-
brekku í Geiradalshreppi f Aust-
ur-Barðastrandarsýslu. Hann læt-
ur eftir sig eiginkonu og tvö ung
börn.