Morgunblaðið - 03.01.1985, Síða 3

Morgunblaðið - 03.01.1985, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1985 3 # # A/S FREiA SENÐIR OLLUM ISLENVtNGUM BiSTU NYJARSKVEDJUR MEÐ PARRUETI FYRIR VIÐSK/PTIN Á UVNU ÁRI! Urn lad og við óskum landsmönnutn árs og friðar, tilkynnisl hér með að íslenzka Verzlunarfélagið hf Ármúla 24, Reykjavík . hefur tekið við einkautnhoði hérlendis fynr konfekt og seelgati framleitt af A/S FREIA, Oslo, Noregi.tk > * . P R is iéM kubbc ir kæmust vart hjá þvi að fá yfir sig reyk, þar sem þeir sætu sjaldnast við eitt og sama borð allt kvöldið. Þorvaldur Garðar Kristjáns- son, forseti Sameinaös Alþingis, sagði að sem fyrr væri óheimilt að reykja í þingsölum, vinnustað þingmanna. Kvaðst hann á þessu stigi málsins ekki hafa neitt frekar um málið að segja. Gerist ekki allt á einum degi Samkvæmt lögunum um tób- aksvarnir skulu heilbrigðis- nefndir og Vinnueftirlit ríkisins fylgjast með því að áðurnefnd ákvæði laganna séu virt. Eyjólf- ur Sæmundsson, framkv.stj. Vinnueftirlitsins, sem annast eftirlit með þessum málum á vinnustöðum, sagði í samtali við blm. að vonir væru bundnar við að sem best samkomulag næðist innan fyrirtækjanna sjálfra um framkvæmd þessara mála. Stjórnendum um 1.400 fyrir- tækja hefur þegar verið sent bréf þar sem þeim er bent á skyldur þeirra samkvæmt lög- um. Sagði Eyjólfur að þó að lög tækju gildi gerðist ekki allt á einum degi heldur væri þetta spurning um viðhorf manna til málsins. Fullnægjandi fram- kvæmd yrði ekki unnt að koma á fyrr en veruleg fræðslustarfsemi hefði átt sér stað. Sagði Eyjólfur að unnið væri að setningu nánari reglna um tóbaksvarnir á vinnu- stöðum eins og lög kveða á um að gert verði. Þó að slíkar reglur lægju ekki fyrir ættu menn þó að geta ieyst þessi mál að verulegu leyti í samræmi við markmið laganna um tóbaksvarnir á vinnustöðum, sem er að þeir sem ekki reykja verði ekki fyrir heilsutjóni og óþægindum af völdum tóbaksreyks. Víða reykt í trássi við lögin um tóbaksvarnir 1. JANÚAR sl. tólcu gildi lög um tóbaksvarnir sem m.a. fela það í sér að nú eru tóbaksreykingar óheimilar í þeim hluta fyrírtækja og stofnana þar sem almenningur leitar eftir afgreiðslu og þjónustu. Þetta gildir þó ekki um veitinga- og skemmtistaði en þó skulu þeir hafa afmarkaðan fjölda veitingaborða fyrír gesti sína þar sem tóbaksreykingar eru bannaðar. Blm. hafði tal af nokkrum yfirmönnum fyrirtækja og veitingahúsa borg- arinnar í gær og kom þá í Ijós að þar var nær alls staðar reykt sem áður og aðeins höfðu verið sett upp upp skilti á einum veitingastaðanna um að reykingar væru bannaðar, skv. ákvæðum laganna. Enn reykt á Hlemmi Samkvæmt lögunum er nú óheimilt að reykja í biðskýlum SVR við Hlemmtorg og Lækjar- torg en er blm. og ljósmyndara bar þar að garði í gær reyktu menn þar í mestu makindum sem áður. Sveinn Björnsson, for- stjóri SVR, sagði í samtali við Morgunblaðið að enn væri lítið farið að hugsa um framkvæmd laganna hjá SVR og þvi ekki bú- ið að banna reykingar i biðskýl- unum. Verður málið tekið til at- hugunar á næstunni en enn mun vera óljóst með hvaða hætti banninu um tóbaksreykingar verður framfylgt. Á eftir að verða erfítt í framkvæmd Kvikmyndahús heyra undir skemmtistaði og skv. lögunum skal vera afmarkað svæði i þeim salarkynnum þar sem reykingar eru leyfðar, fyrir þá sem ekki reykja. Friðbert Pálsson, fram- kv.stj. Háskólabíós, sagði að óráðið væri hvernig brugðist yrði við lögunum í Háskólabíói en a.m.k. yrði anddyrið hjá miðasölunni ekki notað sem reykingasvæði. Karl Schiöth, að- stoðarframkv.stjóri Stjörnubíós, sagði að ekki væri enn farið að ræða framkvæmdir laganna i bí- óinu en líklegast yrði í framtíð- inni einungis leyft að reykja á efri pallinum hjá sælgætissöl- unni. Erfítt aö forðast reykinn I veitingahúsum er víðast reykt sem áður. Jón Erlendsson, annar eigenda hins nýja veit- ingahúss Fógetans, sagði í sam- tali við blm. að enn væri óráðið hvernig brugðist yrði við nýju lögunum. Sagði hann að það ætti liklega eftir að reynast erfitt að forðast reykingar í húsnæðinu þar sem það væri á einni hæö og reykurinn bærist því um allt. Þó yrðu sennilega merkt nokkur borð sem ekki mætti reykja við. Morgunblaðiö/Bjarni. í biðskýli SVR vió Helltorg voru í gær engin skilti uppi um að reykingar séu þar óheimilar og þar reykja menn sem áður. Á veitingahúsinu Torfunni var búið að merkja þrjú borðanna þannig að ekki mætti reykja við þau. örn Baldursson eigandi Torfunnar sagði að auðvelt væri að bæta við „reyklausum* borð- um ef gestir óskuðu eftir því. ólafur Laufdal, famkvæmda- stjóri veitingahúsanna Holly- wood og Broadway, sagði að það væri trú hans að það ætti eftir að verða erfitt að framfylgja nýsettu lögunum. Kvaðst hann hafa velt málinu lítið fyrir sér en Hklegast léti hann merkja hluta borðanna á skemmtistöð- unum sem ekki væri hægt að reykja við. Sagði ólafur að gest- ÓSA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.