Morgunblaðið - 03.01.1985, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.01.1985, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985 29 nga eru muð heild brattan að sækja, enda „löng leið frá Islandi til himnaríkis" eins og kerlingu varð að orði þegar hún loksins komst að hinu gullna hliði. Ár aldraðra og ár fatlaðra varð hvort tveggja til að auka skilning manna á stöðu þessara þjóðfélagshópa. Ár barnsins verða öll ár framtíðar. Um- hyggja fyrir þeim ætti hverja stund að vera ómæld. Þá verða ekki heldur umferðaröryggismál nokkru sinni of mikið til um- ræðu. Þegar nú nýtt ár gengur í garð er komið að alþjóðaári æskunn- ar. Því hafa verið valin einkunn- arorðin: Þátttaka — þróun — friður. Engin þjóðareign er dýrmætari en heilbrigð æska. Á velferð æskunnar veltur fram- tíðarheill allra samfélaga. Eitt helsta einkenni þess að vera ungur er eftirvænting. Að vænta þess að framtíðin verði björt og ánægjuleg. Slík jákvæð eftir- vænting hefur sennilega alltaf einkennt flesta á æskuárum. Við gerum okkur háleitar vonir um að framtíðin færi okkur ham- ingju en einnig tilbreytingu og ævintýri. Því miður á þetta ekki við um alla. Ávallt er til nokkur hópur þeirra er kallast ungir, sem ekki finnst vera bjart fram undan. Sumir alast upp í gráma fátæktar og erfiðra heimilisað- stæðna, aðrir í svartnætti ffkni- efna og óreglu. Enn öðrum finnst framtíðin óviss í ljósi þeirrar þekkingar sem tortímt getur öllu lífi á jörðinni. Kannski er bjartsýnin, sem oft er eignuð æskunni, nú um stund- ir minni en áður. Vandamálin sem steðja að sýnast ef til vill óyfirstíganlegri. Sagt hefur ver- ið að besta uppeldisaðferðin gagnvart unglingum sé að ala siálfan sig upp samtímis. Áminningar komi að litlu haldi, heldur hitt að þeir sjái að við gerum það sjálf sem við vildum áminna þá um að gera. Það verð- ur sennilega erfitt að ala hina ungu upp til friðar nema þeir fullorðnu hafi fyrir þeim friðinn. Verk okkar og athafnir sem full- tíða teljumst eru sannarlega misgóð og ekki er allt til eftir- breytni. Því er fátt mikilvægara en að ungt fólk temji sér sjálf- stæði og dómgreind til að lesa gott frá illu og áræði til að ákveða í samræmi við sjálfstæði sitt. Sjálfstæði og kjarkur eru tveir eiginleikar sem nauðsynlegir eru til að losna úr viðjum ótta og bölsýni. Sjálfstæði til að stand- ast þegar reynt er að leggja á okkur annarlega fjötra, sem þjóð eða sem einstaklinga, og kjark til að lifa með sverð tortímingar hangandi yfir höfðum okkar. Mesta mannfyrtlitning sem hugsast getur Einn er sá vandi sem ungt fólk í landi okkar þarfnast bæði sjálfstæðis og kjarks til að glima við, vandi sem við höfum fram að þessu helst lesið um í erlend- um blöðum, en virðist nú vera að færast nær okkar ströndum en áður. Það er fíkniefnavandinn. Sá sem hefur slík efni innan seilingar þarf á öllu sjálfstæði sínu að halda til að taka afstöðu — og kjark til þess að hafna þeg- ar lagt er að honum. Enn sem fyrr er sjálfstæði og áræði það veganesti sem æskan þarf á að halda þegar að því kemur að erfa landið. Ekkert er of gott fyrir æskuna og einlæg er sú ósk að það megi lánast að tryggja henni öryggi friðar svo hún fái litið björtum augum til framtíðar sinnar. Ofar öllu ber að tryggja æsku okkar menntun og upplýsingu, eftir því sem hug- ur hvers og eins stendur til. Með- al nútímaþjóða er hætt við að íslendingar framtíðar lendi úti í mýri, sé menntun og þekking ekki sem víðtækust og víðsýnust og veitt öllum sem vilja þiggja. Það skal itrekað að mikil ábyrgð hvílir á herðum þroskaðra manna og að leiða æskufólki fyrir sjónir hættu og tortíming- armátt eiturlyfja. Þeim skelfi- lega flótta frá raunveruleik- anum, sem fer eins og faraldur um heimsbyggðina og hefur í för með sér heilsuleysi og dauða, má líkja við ógnir styrjaldar. óskilj- anlegast alls siðleysis er að nokkur skuli geta fengið sig til að flytja í blóra við lög eiturlyf til landsins og að ota í auðg- unarskyni því að mönnum sem hætta er á að geri þá að reköld- um. Það er mesta mannfyrirlitn- ing sem hugsast getur. Það lesefni sem dýpst áhrif hafði á mig á liðnu ári er bók sem nefnist „Ekkert mál“. Þar er sögð reynslusaga sonar og föður af þeirri skelfilegu áþján og óhamingju sem leiðir af eitur- lyfjaneyslu, uggleysi foreldra áður en þeim verður ljóst hvernig komið er, bók um djúpa örvæntingu en jafnframt um mikla skynsemi um hvernig taka eigi á málum og reyna að bjarga. Það þarf mikinn kjark til að skrifa slíka játningabók, kjark sem í felst mikil ábyrgðartil- finning og mannúð, því með henni er öllum öðrum veitt leið- beinandi viðvörun. Mér er í mun á þessum áramótum að beina enn þeim óskum til æskunnar og allra þjóðfélagsþegna { landinu að staldra ávallt við og hugleiða afleiðingar, þegar freisting verð- ur á vegi sem kann að leiða til óláns. Lög og reglur hafa verið settar til þess að þjóðin geti lifað saman í öryggi og leit að sameig- inlegri hamingju. Lögbrot eru ekki einkamál neins einstak- lings. Þau velta oftar en ella óhamingju yfir fjölda saklauss fólks, og fyrnast seint í lífi þess sem valdur er. Ljóst er að mjög mörg óhæfuverk í samfélaginu eru framin undir annarlegum áhrifum þar sem dómgreind af- brotamanns er skert. Birta og bjartsýni höfð í stafni Góðir landsmenn. Sérhvert smáatriði í framferði okkar skiptir máli, orð, athafnir, sam- staða. Fyrir skömmu birtist í erlendu stórblaði viðtal við eitt af öndvegisskáldum okkar, ólaf Jóhann Sigurðsson. Fyrirsögnin hljóðaði á þennan veg: „Ég heyri til mannkyninu og vil bæta líf rnanna." Það stafar birtu af slík- um orðum og þeirri lífsafstöðu sem í þeim felst. Hvernig fáum við bætt líf manna? Við því hygg ég að aðeins sé eitt svar. Með réttlætiskennd og góðmennsku og tillitssemi og hógværð í orð- um og lífsháttum. Með hækkandi sól skal birta og bjartsýni höfð í stafni okkur öllum til örvunar. Séu þeir sem eru heilbrigðir og sterkir á besta aldri með óskert vinnuþrek þjak- aðir af bölsýni, hvernig er þá unnt að gera sér vonir um betri tíma? Ég óska öllum landsmönnum árs og friðar. Megi farsæld fylgja landi voru og þjóð. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir MICHAEL GOLDSMITH Lögfræðingar ganga um götur Karachi og mótmæla herlögum. Verður einsflokksríki komið á í Pakistan? ÞJÓÐARLEIÐTOGI Pakistans, Mohammad Zia Ul-Haq hershöfðingi, hefur gert stjórn sína lögmæta með því að setja á svið þjóðaratkvæða- greiðslu, sem hann segir að 98 af hundraði kjósenda hafí tekið þátt í, og hyggst nú treysta stöðu sína enn betur með því að koma á laggirnar islamskri fjöldahreyfíngu ofstækisfullra stuðningsmanna sinna. Hreinræktuð herforingja- stjórn víkur þannig smátt og smátt til hliðar og velskipu- lagðir stuðningsmenn Zia kunna að lokum að mynda kjarna stjórnarflokks í einsflokksríki. Ziasinnar komu fyrst fram opinberlega margir saman í bar- áttunni fyrir þjóðaratkvæða- greiðsluna. Þá gengu þeir um göturnar, fóru með múhameðsk- ar bænir og báru fána, áróðurs- borða, flugmiða, sem varpað hafði verið til jarðar úr flugvél- um, og hátalara i eigu ríkisins. Þeir boðuðu enga pólitíska stefnu aðra en þá að hvetja fólk til að styðja Zia og Islam. Pak- istanar eru 68 milljónir talsins og 95% þeirra eru múham- eðstrúar. Allir stjórnmálaflokkar í Pak- istan hafa verið bannaðir síðan Zia hrifsaði til sín völdin í her- byltingu 1977. Þeim var strang- lega bannað að berjast gegn Zia í baráttunni fyrir þjóðaratkvæð- ið 19. desember og gegn þjóðar- atkvæðagreiðslunni sjálfri. Þó hefur Zia gefið i skyn að fjölda- hreyfing er styddi ríkisstjórn hans og tilraunir hans til að „breyta lögum Pakistans til samræmis við boðorð Islams" yrði undanþegin banninu við starfsemi stjórnmálaflokka. Leiðtogar stjórnarandstöð- unnar, sem starfar neðanjarðar, fordæmdu þjóðaratkvæða- greiðsluna á þeirri forsendu að hún væri „einstakt svindl" og héldu því fram — án áþreifan- legra sannana — að kjörsóknin hefði í raun og veru verið innan við fimm af hundraði. Ríkis- stjórnin hélt því fram að kjör- sóknin hefði verið 62 af hundr- aði, en vestrænir stjórnarerind- rekar áætluðu að hún hefði verið innan við 40 af hundraði. Það sýndi pólitiskt getuleysi stjórnarandstöðunnar að hún gat ekki truflað þjóðaratkvæða- greiðsluna og komið í veg fyrir að Zia var kosinn mótatkvæða- laust. Fyrir bragðið hefst nú fyrsta löglega kjörtímabil hans sem forseta Pakistans. Eftir þjóðaratkvæðið er hann skuldbundinn til þess afhenda völdin í hendur þjóðkjörnum fulltrúum. Hann hefur lofað að efna til kosninga 1985, en án þess að stofna stöðu sinni sem forseta í hættu. Æðsti „þjóð- kjörni fulltrúinn" verður greini- lega hann sjálfur. Og hann er ákveðinn í því að búa svo um hnútana að hann geti beitt neitunarvaldi gegn öll- um ákvörðunum væntanlegs þjóðþings, þótt það verði hálf- gerð afgreiðslustofnun. Banninu við starfsemi stjórn- arandstöðuflokkanna, sem eru klofnir, verður ekki aflétt í væntanlegri kosningabaráttu. Zia hefur margoft varað við því að herlögum verði ekki aflétt fyrr en eftir kosningarnar — án þess að hann hafi skuldbundið sig til að tilgreina ákveðinn dag. Um leið býr sú ónefnda fjölda- hreyfing, sem hann kom á lagg- irnar til að auka fylgi sitt i þjóð- aratkvæðagreiðslunni, sig undir að tryggja honum sama yfir- burðasigurinn í þingkosningun- um og hann hlaut í þjóðarat- kvæðinu. Leiðtogar stjórnarandstöð- unnar segja að stefna Zia beri keim af fasisma og segja að þeir séu staðráðnir í að stöðva allar tilraunir hans er stefni í þá átt. Með fyrri reynslu í huga mun sameiginlegur máttur 500.000 manna hers landsins og fjölda- hreyfingar Zia gera tilraunir þeirra að engu. Valdakerfi Zia hefur nú þegar vald yfir stórum hluta kjósenda með pólitískri fyrirgreiðslu og með fulltingi heraflans, geysi- stórs skrifstofubákns og þjóð- nýttra iðngreina. Hann hefur án nokkurs vafa tryggt sér stuðning stórs hluta íbúa sveitanna, sem eru mjög trúaðir og að miklu leyti ólæsir, með islamskri stefnu sinni — m.a. með því að framfylgja dóm- um um að þjófar séu aflimaðir og lauslátar konur grýttar til bana. Aðeins minnihluti menntaðs fólks í borgum og íbúar Sind- héraðs, sem hafa frá gamalli tíð verið andvígir stjórnvöldum, eru eindregið á móti honum. Fréttaritið „Islamic Times“, sem fylgir Zia að málum, gaf í skyn hvað við tæki með því að leggja til nýlega að stjórnin samþykkti val allra frambjóð- enda í væntanlegum þingkosn- ingum áður en þær færu fram til þess að vinza úr „spillt, óheiðar- legt og andislamskt fólk“. Og það hvatti Zia til að breyta kosningareglunum til þess að koma í veg fyrir að nokkrir úr hópi einnar milljónar opinberra starfsmanna landsins yrðu kosn- ir á þing. Opinberum starfs- mönnum, sem eru af eðlilegum ástæðum háðir opinberum þrýstingi, er bannað að bjóða sig fram til þings samkvæmt stjórn- arskrá frá 1973, sem Zia hefur lofað að endurreisa. Með þjóðaratkvæðinu er lög- mál Islams orðið „opinber hug- myndafræði" Pakistans. Og þar sem ekki er til að dreifa vold- ugri, sjálfstæðri prestastétt í Pakistan hefur Zia sjálfur tekið sér vald til að ákveða hvað sé islamskt og hvað ekki. „Það sem er nú mest aðkall- andi,“ sagði „Islamic Times", „er að sýna heiminum í raun að is- lamskt stjórnarform getur gert múhameðskt ríki að óvinnandi virki Islam."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.