Morgunblaðið - 03.01.1985, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985
33
Meðal þess sem gefur að Ifta á spólunni frá Hestadögum er söðulreið kvenna. Á meðfylgjandi mynd situr Freyja
Hilmarsdóttir Sörla frá Húsafelli og er hún að sjálfsögðu í söðli. Morgunblaðið/V.K.
Hestadagar í Garðabæ á myndband:
Ómetanleg heimild
um einstæðan viðburð
Hestar
Valdimar Kristinsson
UM MIÐJAN maí á þessu ári áttu
sér stað merkilegir hlutir suður í
Garðabs þegar hestamannafélagið
Andvari hélt svokallaða „Hesta-
daga“. Nú hefur verið gefin út
myndbandsspóla með þessum Hesta-
dögum og er það Andvari sem stend-
ur að útgáfunni. Hestadagar stóðu yf-
ir í þrjá daga og voru öll atriði fest á
myndband og síðan valið úr það
besta og sett á fimmtíu mínútna
spólu.
Meginefni spólunnar saraan-
stendur af því sem kallað var Topp-
sýning, en í henni voru sýndir gæð-
ingar sem staðið hafa framarlega á
stórmótum síðustu ára, afkvæmi
stóðhestsins Náttfara 776 frá
Ytra-Dalsgerði ásamt honum sjálf-
um. Þá var Félag tamningamanna
með hópsýningaratriði, Evrópu-
meistarar sýndu listir sínar og
kunnir kappreiðavekringar voru
sýndir. Allt er þetta á spólunni og
ýmislegt fleira.
Eflaust má að ýmsu finna við
gerð þessarar spólu frá tækni-
legum sjónarhóli en fyrir margra
hluta sakir er hér á ferðinni stór-
merkileg heimild um einstæðan at-
burð sem aldrei verður endurtek-
inn. Er þá sérstaklega átt við sýn-
ingu á toppgæðingum síðustu
lands- og fjórðungsmóta. Flestir
þessara hesta eru hættir keppni og
aldurinn fer að færast yfir þá og
svo líka hitt að ótrúlegt er að þeir
eigi eftir að koma fram allir sam-
tímis.
Fyrir þá sem misstu af þessum
viðburði er spólan hvalreki og vitað
er að Hestadagar hafa vakið mikla
athygli erlendis og má benda á að
Evrópumeistarinn Hans Georg
Gundlach, sem var staddur hér-
lendis þegar Hestadagar stóðu yfir
og var þátttakandi í einu atriðinu,
sagði í blaðaviðtali að hann teldi
þessa sýningu þá áhrifamestu sem
hann hafi séð og segir það sína
sögu.
Nokkur ár eru síðan hestamenn
fóru að nýta sér myndbandatækn-
ina og hefur manni oft verið hugs-
að til fyrri ára og leitt hugann að
því hversu ómetanlegt hefði verið
að eiga upptökur frá fyrri tíma
mótum. Með því að leiða hugann að
slíku gerir maður sér betur grein
fyrir hinu mikla heimildagildi sem
spóla eins og Hestadagar í Garða-
bæ hefur. En hér er líka á ferðinni
skemmtiefni fyrir þá sem kunna að
njóta þess að horfa á glæsta gæð-
inga í fallegum senum á tölti og
skeiði.
KRAMHUSIÐ
BERGSTAÐASTRÆTI 9B (BAKHUS)
Ný námskeiö
hefjast
9. janúar
Leiklistar-
námskeið
fyrir 17 ára og eldri
Innritun í síma 15103,
Sáifræóistöóin
Námskeið
Sjálfsþekking - Sjálfsöryggi
Vitað er að andleg líðan og sjálfsöryggi er mikilvægt
fyrir einstaklinginn í starfi og einkalífi. Tilgangur
námskeiðsins er að leiðbeina einstaklingum að meta
stöðu sína og kenna árangursríkar aðferðir í
samskiptum.
Á námskeiöinu kynnast þátttakendur:
• Hvaða persónulegan stíl þeir hafa í samskiptum
• Hvernig sérstæð reynsla einstaklingsins mótar
hann.
• Hverjir eru helstu áhrifaþættir í samskiptum
• Hvernig má greina og skilja fjölskyldutengsl
• Hvernig ráða má við gagnrýni
• Hvernig finna má lausnir í árekstrum
• Hvernig læra má samskipti sem auka sjálfsöryggi
Leiðbeinendur
eru
sálfræðingarnir
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma Sálfrœðistöðvarinnar:
687075 milli kl. 10 og 12.
Árshátíð
Skipstjórafélags íslands, Stýrimannafélags ís-
lands og Kvenfélagsins Hrannar veröur haldin í
káetunni Borgartúni 18, laugardaginn 12. janú-
ar kl. 18.30. Fjölmennið.
Blaóburðarfólk
óskast!
Austurbær
Sjafnargata
Bragagata
Lindargata 40—63
Miðbær I
Laugarásvegur
32—77
Langholtsvegur
71 — 108
Vesturbær
Austurströnd
Úthverfi
Síöumúli
Seiðarkvísl
Bergstaöastræti
1—57
Hverfisgata 63—120
L