Morgunblaðið - 03.01.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985
39
eftir að hún varð forsætisráðherra
árið 1981.
Miðflokkarnir
Umræðurnar um kjarnorku-
vopn og afvopnun sem urðu vegna
NATO-áætlunarinnar sýndu að
Verkamannaflokkurinn vildi nálg-
ast vandamálin á nýjan hátt. í
fyrstu gætti nokkurrar tortryggni
hjá hægri mönnum og leiðtogum
miðflokkanna en smám saman
fengu hugmyndir Verkamanna-
flokksins hljómgrunn í miðflokk-
unum.
Sem dæmi má nefna að Kristi-
legi þjóðarflokkurinn lagðist gegn
endurskoðun á kenningu NATO
um notkun kjarnorkuvopna að
fyrra bragði þegar Verkamanna-
flokkurinn setti hugmyndina fram
í maí 1982. En þegar málið var
rætt á Stórþinginu í desember
1982 studdi Kristilegi þjóðarflokk-
urinn hugmyndina að vísu i örlítið
breyttri mynd. Svipaða sögu má
segja um frystingu kjarnorku-
vopna.
Hægri menn hafa talið mikil-
vægt að koma í veg fyrir einhliða
sveiflur í norskum stjórnmálum
og afstöðunni til samstarfsins inn-
an NATO. Þannig hafa hægri
menn talið tillögur Verkamanna-
atriðið í öryggismálum Norð-
manna. Nú hefur stjórnin lýst yfir
vilja sínum til að auka útgjöld til
varnar- og öryggismála um 3,5%
en Verkamannaflokkurinn telur
3,0% aukningu nægjanlega.
Ágreiningurinn um þetta getur
tæpast talist til stórmála.
Samþykkt utan-
ríkisnefndar
Til þess að ná sem mestri ein-
ingu um málið var því nauðsynlegt
að meta vægi þess rétt.
Álit utanríkisnefndar Stór-
þingsins frá því í maí í ár byggði á
greinargerð um afvopnunarmál
sem kynnt var á þingi árið 1982.
Hún var samin af stjórn hægri
manna. En af ástæðum sem ekki
verða raktar hér tók þennan tíma
að semja ályktun á grundvelli
greinargerðarinnar svo að unnt
væri að taka málið til afgreiðslu á
þingi.
Utanríkisnefndarmenn voru
sammála um tillöguna þó svo að
enn væri deilt um uppsetningu
eldflauganna í Vestur-Evrópu.
Álit nefndarinnar byggir að
verulegu leyti á þeim hugmyndum
sem Verkamannaflokkurinn setti
fram þegar deilt var um uppsetn-
ingu eldflauganna. Þó verður að
Þótt norskir stjórnmálamenn deili um afstöðuna til kjarnorkuvopna og
einstaka þætti f framkvæmd varnarstefnu Atlantshafsbandalagsins eru þeir
sammála um aðild að bandalaginu og nauðsyn þess að á vegum þess sé efnt
til sameiginlegra beræfinga í Noregi.
flokksins ganga í berhögg við
skyldurnar sem fylgja aðildinni að
NATO. Þá hafa þeir talið tillög-
urnar ógna aðild Noregs að Atl-
antshafsbandalaginu þar sem þær
feli í sér stefnu sem eingöngu mið-
ist við Noreg. Þeir hafa því reynt
að sporna gegn þessari þróun
mála. En á hinn bóginn hafa
hægri menn smátt og smátt sýnt
hugmyndum Verkamannaflokks-
ins meiri skilning. Til að halda
„valdaaðstöðu" sinni hafa hægri
menn neyðst til að taka tillit til
breyttra viðhorfa miðflokkanna,
en þeir hafa báðir samþykkt
ályktanir um afvopnunarmál.
Verkamannaflokkurinn hefur
reynt að höfða til miðflokkanna til
þess að þvinga fram stefnubreyt-
ingu hjá hægri mönnum.
Víðtæk eining
æskilegust
Stóru flokkarnir í norskum
stjórnmálum hafa talið deilur um
öryggismál neikvæðar í eðli sínu.
Flokkarnir hafa talið þjóðarein-
ingu um þennan málaflokk æski-
lega svo fremi sem allir geti sætt
sig við inntak þeirrar einingar. Nú
er það svo að Norðmenn geta lítil
áhrif haft á gang kjarnorkumála,
en ef til vill hefðu deilurnar um
þau á Stórþinginu getað spillt
samstöðu um þá þætti öryggis-
mála þjóðarinnar sem varða hana
mestu og hún hefur á valdi sínu.
Þótt hart hafi verið deilt um Evr-
ópueldflaugarnar voru deiluaðilar
alltaf sammála um aðildina að
NATO og það sem henni fylgir t.d.
reglulegar æfingar herafla banda-
lagsins á norsku landssvæði.
Þannig hafa deilurnar ekki sundr-
að samstöðunni um grundvallar-
geta þess að þar er kveðið á um að
viðleitni Norðmanna til að stuðla
að afvopnun og auknu öryggi skuli
grundvölluð á aðild þeirra að Atl-
antshafsbandalaginu. Hægri
menn hafa því komið til móts við
hugmyndir Verkamannaflokksins
en fengið í staðinn staðfesta yfir-
lýsingu um að aðildin að Atlants-
hafsbandalaginu sé grundvallar-
atriði í öryggismálum Norð-
manna. Hægri menn hafa sagt
þetta atriði mikilvægt því að nú
geti enginn vafi verið um afstöðu
Norðmanna. Hægri menn segja
þvi að hér sé um málamiðlun að
ræða.
Hins vegar vilja talsmenn
Verkamannaflokksins ekki fallast
á að afstaða flokksins gagnvart
aðildinni að NATO hafi nokkurn
tíma breyst og því sé ekki um
neina málamiðlun að ræða. Þeir
telja álit utanríkisnefndarinnar
fela i sér einingu um utanríkismál
þjóðarinnar og grundvöllur þess
sé aðildin að NATO. Utanríkis-
nefndin hafi því komið sér saman
um stefnu Verkamannaflokksins I
öryggismálum.
Geta má þess að flokkarnir
lengst til vinstri og hægri, Sósíal-
íski vinstriflokkurinn og Fram-
faraflokkurinn, áttu ekki aðild að
álitinu.
Breytt viðhorf
Norðmenn telja sig sem sé
dygga stuðningsmenn NATO og
telja að á ýmsum sviðum geti þeir
unnið að breyttum viðhorfum í
stjórnmálum Vesturlanda.
Vandinn er hins vegar sá að rík-
isstjórnir mikilvægustu aðildar-
ríkja Atlantshafsbandalagsins
virðast ekki hafa nein áform uppi
um að endurskoða stefnuna i af-
vopnunar- og kjarnorkumálum.
Þannig er vandséð hvernig norska
ríkisstjórnin telur sig eiga raun-
hæfan möguleika á að vinna að
breyttum viðhorfum.
Breytt viðhorf til öryggismála
hafa hins vegar komið fram í
Danmörku og Grikklandi og er
stefna Norðmanna mótuð í ljósi
þess. Þá er einnig athyglisvert að
stjórnarandstöðuflokkarnir i
Belgíu og Hollandi aðhyllast svip-
aða stefnu. Svonefnd Skandilux-
stefna Sósíaldemókrata er því
staðreynd. Mikilvægara er þó að
öryggismálastefna vestur-þýskra
sósíaldemókrata og stefna breska
Verkamannaflokksins er mjög
áþekk þessari stefnu. Fari svo að
þessir flokkar komist til valda i
viðkomandi löndum getur það haft
áhrif á stefnumörkun Atlants-
hafsbandalagsins. Þá má ekki
gleyma því að Demókratar i
Bandaríkjunum eru i mörgum
veigamiklum atriðum sammála
hugmyndunum um „sameiginlegt
öryggi“, frystingu og fækkun
kjarnorkuvopna á ákveðnum
svæðum í Mið-Evrópu. En eins og
málum er nú háttað eru það
íhaldssamar stjórnir sem sitja að
völdum.
Kjarnorkuvopna-
laust svæði
Að lokum skal tæpt á máli sem
oft hefur borið á góma en það er
hugmyndin um Norðurlönd sem
kjarnorkuvopnalaust svæði. Eng-
inn stóru flokkanna i norska Stór-
þinginu er hlynntur því að Norð-
urlöndin, ein og sér, verði lýst
kjarnorkuvopnalaust svæði. Raun-
ar er það aðeins Sósíaliski vinstri-
flokkurinn sem aðhyllist þá hug-
mynd. I áliti utanríkisnefndarinn-
ar er hins vegar sagt að leita skuli
leiða til að lýsa Norðurlönd kjarn-
orkuvopnalaust svæði, en jafn-
framt er tekið fram að það geti
einungis gerst sem liður i viðtæku
samkomulagi um afvopnun á milli
austurs og vesturs. Það er erfitt að
gera sér grein fyrir hvernig þessi
hugmynd á að geta orðið að veru-
leika, en óhjákvæmilega myndi
hún tengjast frystingu kjarnorku-
vopna og nýjum varnaráætlunum
Atlantshafsbandalagsins. Álit
utanríkisnefndarinnar hefur hins
vegar endurvakið áhuga manna á
hugmyndinni um kjarnorku-
vopnalaust svæði á Norðurlönd-
um. Verði hugmyndin tekin fyrir I
Stórþinginu mun umræðan vafa-
laust fara fram á raunhæfum
grundvelli með tilliti til öryggis-
mála þjóðarinnar.
Tæpast langvar-
andi samstaða
Sú eining sem nú ríkir um stefn-
una í öryggismálum mun tæpast
vara Iengi nema ríkisstjórnin sýni
nægilegt frumkvæði í þessum
málum. Stefna engrar þjóðar í ör-
yggismálum verður afgreidd í eitt
skipti fyrir öll og einmitt þess
vegna verður alltaf deilt um ein-
staka þætti hennar.
Á síðustu árum hafa umræður
um öryggismálastefnu Norð-
manna sveigst nokkuð til vinstri.
Það hefur verið talið nauðsynlegt
að stíga til vinstri í því skyni að
styrkja og skýra hina hefðbundnu
öryggismálastefnu Noregs. Þegar
Norðmenn gengust inn á að sam-
þykkja uppsetningu eldflauganna
í Vestur-Evrópu virtist stefna
þeirra í kjarnorkumálum hafa
orðið skarpari en áður, ef svo má
að orði komast. Nú vilja menn
milda þessa stefnu aftur og sýna
samstöðu að nýju. Hin tvíþætta
áætlun NATO um Evrópueld-
flaugarnar hefur kostað sitt. í
verðinu felst það meðal annars að
nú vilja menn í alvöru íhuga
breytingar á kjarnorkustefnunni,
nauðsyn afvopnunar og setja i þvi
sambandi kjarnorkuvopnalaus
svæði á dagskrá.
Arne Olar Hruadtland starfar að
rannsókaum i öryggis- og afropn-
unarmálum rid Norsku utanrík-
ismálastofnunina, bann er ritstjóri
tímaritsins Internasjonal Politikk,
dálkahöfundur um utanríkismiI og
situr i afropnunarnefnd norslcu
ríkisstjórnarinnar.
HAGVIRKI HF
VERKTAKAR
VERKHÖNNUN
býöur börnum starfsmanna sinna á
jólatrésskemmtun
í TESS, Trönuhrauni 8, sunnudaginn 6. janúar 1985
kl. 15.30—18.30.
Starfsmenn vinsamlegast nálgist miöa á skrifstof-
unni, aö Skútahrauni 2, eigi síöar en föstudaginn 4.
janúar.
|J HAGVIRKI HF
VEBKTAKAH
g^S VE RKHÖNNUN
55 55
*.
Skjalaskápar
NOB0
★ Norsk gæðavara
★ Ótal möguleikar
★ Vönduð hönnun
★ Ráðgjöf við
skipulagningu
E. TH. MATHIESEN H.F.
DALSHR AUN I 5 — HAFNARFIROI — SIMI 51888
Sigurður Halldórsson:
„Dansinn er skemmtun og íþrótt, styrkir bæði sál og líkama."
v ■*
Innritun daglega frá kl. 13-19