Morgunblaðið - 03.01.1985, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JANUAR 1985
45
„Með mannúð til friðar“
eftir Björn
Friðfinnsson
Per humanitatem
ad pacem
„Per humanitatem ad pacem“
eöa „Með mannúð til friðar" var
yfirskrift þings, sem Rauða
kross-hreyfingin hélt á Álandseyj-
um og í Stokkhólmi dagana 2. og 7.
september sl.
Þátttakendur voru frá Rauða
kross- og rauða hálfmána félögum
rúmlega 100 ríkja, jafnt á Vestur-
löndum, í Austur-Evrópu og frá
löndum þriðja heimsins.
Rauða kross-félög Finnlands og
Svíþjóðar buðust til að halda þing-
ið, sem er annað í röðinni slíkra
þinga, en hið fyrsta var haldið í
Júgóslavíu árið 1975. Val Álands-
eyja sem aðalþingstaðar er tákn-
rænt fyrir þá sök, að eyjarnar
voru um árabil bitbein ríkja, — í
fyrstu Svía og Rússa og síðar Svía
og Finna. Þeim deilum lauk með
úrskurði Þjóðabandalagsins árið
1921, en þar var ákveðið að
Álandseyjar skyldu tilheyra Finn-
landi. Jafnframt skyldu íbúarnir
fá sjálfstjórn í tilteknum málum,
menning þeirra og tunga njóta
verndar og þar bannað að hafa her
eða vígbúnað.
Rauða kross-félög annarra
Norðurlanda hjálpuðu einnig til
við undirbúning þingsins og sáu til
þess með samræmdum tillögu-
flutningi og málflutningi á þing-
inu að hluti Norðurlandaþjóða á
því varð umtalsverður.
Fundarboðendur voru hins veg-
ar Alþjóðasamband RK-félaga og
Alþjóðaráð Rauða krossins í Genf.
Rauði krossinn
og friðarmál
Rauða kross-hreyfingin hefur
nú í rúmlega 120 ár barizt fyrir
friði með starfi sínu á vettvangi
vopnaðra átaka og með fyrir-
byggjandi starfi í neyðar- og
þróunarhjálp, á sviði heilbrigð-
ismála og fleira mætti nefna.
En aðstæður breytast og sjálft
friðarhugtakið hefur tekið breyt-
ingum. Á fyrsta friðarþingi
RK-hreyfingarinnar 1975 var
samþykkt ályktun um að Rauði
krossinn teldi frið ekki aðeins vera
„stund milli stríða, heldur sam-
starf allra þjóða og ríkja. Hann
byggist á friðsamlegri lausn deil-
umála, virðingu fyrir mann-
réttindum og réttlátri skiptingu
lifsgæða. Hann byggist á virðingu
fyrir alþjóðalögum og samvinnu
um að lina þjáningu og koma í veg
fyrir ofbeldi."
Friður er ekki sama og kyrr-
staða og friður er óhugsandi með-
an víða ríkir þjóðfélagslegt og
efnahagslegt misrétti, kynþátta-
mismunun og virðingarleysi fyrir
grundvallarmannréttindum.
Skeytingarleysi í umhverfismál-
um er líka ein af orsökum ófriðar.
Uppblástur lands er t.d. undirrót
rnikils flóttamannastraums og
þjóðflutninga í Afríku, sem aftur
hefur í för með sér neyðarástand,
deilur og átök.
Viö lifum ekki
á friðartímum
f huga margra Evrópubúa hafa i
stórum dráttum ríkt friðartímar á
plánetunni frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar, sem svo er
nefnd. En það var rifjað upp á
þinginu að frá 1945 er áætlað að
50 milljónir jarðarbúa hafi látið
lífið í um 150 vopnuðum átökum
ýmist milli ríkja eða innan þeirra.
Nú eru vopnin látin tala á a.m.k.
30 átakasvæðum.
Hinir upphaflegu Genfarsátt-
málar voru gerðir í því skyni að
vernda óbreytta borgara á styrj-
Ég kom til
að vera ein
Erlendar
bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Ingrid Bengis: Jeg er kommet
for at være alene.
Útg. Khodos 1984.
Björn Friðfinnsson
„Rauða kross-hreyfing-
in hefur nú í rúmlega
120 ár barist fyrir friði
með starfi sínu á vett-
vangi vopnaðra átaka og
með fyrirbyggjandi
starfi í neyðar- og
þróunarhjálp, á sviði
heilbrigðismála og
fleira mætti nefna.“
mannfalli af völdum kjarnorku-
styrjaldar eða þar sem efna- og
sýklavopnum er beitt.
Menn geta því spurt sig þeirrar
spurningar, hvort Rauði krossinn
hafi brugðist — hvort hann sé það
skjól fyrir mannkynið, sem háleit-
ar hugsjónir hans boða.
Ný stefnumótun
og viðbót við
Genfarsáttmálana
Rauða kross-hreyfingin hefur
beitt sér fyrir samningu viðbót-
arsáttmála við Genfarsáttmálana,
en enn sem komið er hafa tiltölu-
lega fá riki staðfest hann. Viðbót-
arsáttmála þessum, sem er frá ár-
inu 1977, er ætlað að tryggja enn
betur vernd almennra borgara í
ófriði. Þá er einnig að geta sátt-
mála, sem gerður var á vettvangi
Sameinuðu þjóðanna árið 1981,
sem fjallar um bann við notkun
tiltekinna ómannúðlegra vopna í
hernaði.
tsland er eitt þeirra ríkja, sem
ekki hafa fullgilt þessa sáttmála
og þótt okkur þyki það e.t.v. litlu
máli skipta, er á það að líta, að
gildi alþjóðlegra sáttmála byggist
á því að öll ríki viðurkenni þá.
Rauði krossinn mun beita sér
áfram fyrir gerð slíkra sáttmála
eða annarra alþjóðlegra mannúð-
arlaga og hann mun eftir megni
leitast við að tryggja framkvæmd
þeirra.
láL. Jkm
PER HUMANITATEM
AD PACEM
+c
eigingirnin, drottnunartilfinning-
in, eignarþörfin. Og síðan sam-
skipti þeirra eftir að hann kemur
til hennar í Bandaríkjunum og
loks er séð að framtíð eiga þau
ekki saman.
Og ekki verður eyjasælan höndl-
uð aftur. Það verður Lola að horf-
ast í augu við þó svo henni sé það
nánast óbærilegt.
Þetta er í senn undursamleg bók
og ákaflega skynsamleg. Holl
lesning og endurnærandi fyrir sál-
aldartímum og i þvi skyni að
vernda hermenn, sem verða úr
leik vegna sára eða fangavistar.
En með æ stórtækari vopnum
verður sú vernd minna virði, sem
slíkir sáttmálar veita. Talið er að í
fyrri heimsstyrjöldinni hafi um
5% látinna í styrjaldarátökunum
verið óbreyttir borgarar. í síðari
heimsstyrjöldinni var hluti
óbreyttra borgara um 48% og i
Víet-Nam-styrjöldinni, sem stöð-
ugt var háð innan um óbreytta
borgara er talið að þeir hafi verið
yfir 80% af þeim sem létu lífið.
Menn geta svo getið sér til um
hlutfall óbreyttra borgara í
Öllum er þó ljóst, að það eitt út
af fyrir sig er ófullnægjandi. Frið-
ur verður aldrei tryggður með
löggjöf einni saman og Rauða
kross-hreyfingin mun of litlu
áorka í átt til friðar, ef hún er
eingöngu í hlutverki hjúkrunar-
og hjálparliðs.
Þingið á Álandseyjum sam-
þykkti því nýja stefnuskrá Rauða
kross-hreyfingarinnar, sem ætlað
er að auka framlag hennar til frið-
ar án þess þó að stofna í hættu því
trausti, sem Rauði krossinn
hvarvetna nýtur m.a. vegna hlut-
leysis hans í átökum og án þess að
brjóta í bága við þær grundvall-
arreglur, sem markað hafa ramma
fyrir starf Rauða krossins frá
upphafi.
Meö mannúð til friðar
Af þeim atriðum sem nefna má
í stefnuskrá RK-hreyfingarinnar
er aukin útbreiðsla á þekkingu um
alþjóðiega mannúðarlöggjöf
þ.á m. meðal hermanna, aukið eft-
irlit með því að farið sé að settum
reglum i þeirri löggjöf og aukin
vernd óbreyttra borgara í vopnuð-
um átökum. Komið sé i veg fyrir
þátttöku barna í vopnaviðskiptum
og veitt sé fræðsla um friðarmál
og leiðir til lausnar deilumála með
friðsamlegum hætti.
Þá er lögð áherzla á fyrirbyggj-
andi aðgerðir gegn neyðarástandi
með þróunaraðstoð við þurfandi
þjóðir. Umhverfisvernd, sem miði
að því að draga úr hættu á þurrk-
um og flóðum og þar með hættu á
upplausn og mannfelli, verði mik-
ilvægur þáttur slíkrar aðstoðar,
svo og aðstoð við uppbyggingu
heilbrigðisþjónustu og við að hafa
hemil á of örri fólksfjölgun, þar
sem fólksfjölgun er meiri en mat-
vælaframleiðslan fær staðið und-
ir.
Rauða kross-hreyfingin leggur
mikla áherzlu á bræðralag og
samstöðu allra íbúa á plánetunni
um það að bægja frá hungri og
forða bjargarskorti, en með því er
um leið unnið að friði meðal jarð-
arbúa. Sama er að segja um út-
rýmingu misréttis og mannrétt-
indabrota, sem oft er orsök vopn-
aðra innanlandsátaka og styrjalda
milli ríkja.
Fridur byggist á
gagnkvæmu trausti
Afleiðingar styrjalda og þján-
ingar, sem þær hafa valdið virðast
fljótt gleymast og vígbúnaðar-
kapphlaupið er dýr og óörugg
trygging fyrir friði og farsæld
jarðarbúa. Reyndar mætti segja
með kaldhæðni, að ef nægum fjár-
munum sé eytt til gerðar gjöreyð-
ingarvopna þurfi enginn að deyja
úr hungri.
Gagnkvæmt traust leiðir til af-
vopnunar og afvopnun leiðir til
friðar. Friðarþingið á Álandseyj-
um var vissulega skref í þá átt að
byggja upp slíkt gagnkvæmt
traust og sameina þjóðir jarðar til
baráttu fyrir varanlegum friði —
friði, sem ekki er aðeins stund
milli stríða.
Björn Fridfínnsnon á sæti í stjórn
Rauða kross íslands.
Lola býr í litlu hvítu húsi á af-
skekktri grískri eyju. Hún hefur
snúið aftur til þess staðar, þar
sem hún lifði sitt mesta ham-
ingjutímabil nokkrum árum áður.
Hún er komin til að ver ein, til að
sjá aftur hafið, klettana og birt-
una og til að reyna að skilja hvað
fór úrskeiðis milli þeirra Stefáns
nokkrum árum áður.
Bókin er upprifjun og fer hægt
af stað. Bernskan með sínum erf-
iðleikum, móðirin hefur verið
skilningslaus og ekki sýnt henni
þá ástúð sem hún þurfti til að
þroskast tilfinningalega. Það er
sérstaklega áleitið efni í bókum
kvenna að hafa verið vanræktar af
móður sinni. Það er í þann veginn
að verða leiðigjarnt hér, en þá
snýst sagan að því þegar kynni
Lolu og Stefans hefjast. Og þá fer
höfundur verulega að ná sér á
strik. Kynni þeirra eru báðum erf-
ið og næsta þungbær, Lola er flók-
inn persónuleiki — vel á minnst,
flest má rekja til bernsku og upp-
vaxtar — en Stefan og hún laðast
hvort að öðru. Hjá því verður ekki
komist og reyna þó bæði að hafa
stjórn á tilfinningum sínum.
Verulega falleg og sannferðug lýs-
ing.
En eins og allt á sitt upphaf,
hlýtur ævintýrinu líka að ljúka.
Þau vilja ekki að því ljúki og Stef-
an ætlar að skilja við konu sina og
koma til Bandaríkjanna til henn-
ar. Þrátt fyrir allt og allt.
Höfundurinn dregur upp angist
Lolu svo að maður verður verulega
snortinn. Eftir að Stefan er farinn
einsemdin, kvíðinn, angistin,
Bolholt ® Suöurver
3 O EM O C O O ÞI*] O C [•!•]
S
EE O O ÞE OC [•!*] O O H0 PIO
Kennsla hefst 7. janúar
12 vikna — 6 vikna — 3ja vikna.
★ Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri. Morg-
un-, dag- og kvöldtímar. Tímar 2 eöa 4 sinnum í viku.
★ Lausir tímar (fyrir vaktavinnufólk). Byrjendaflokkar —
framhaldsflokkar. 60 mín. strangir tímar, megrunar-
flokkar eöa rólegir tímar. Allir finna flokk viö sitt hæfi
hja JSB.
★ Sturtur, sauna, Ijós. Fullkomin Ijósastofa í Bolholti.
Líkamsrækt
JSB
Innritun: stendur
yfir fram á laugardag frá kl. 9—20.
Símar 83730 Suöurveri — Sími 36645 Bolholti.
Kennarar: Suöurveri: Bára, Anna, Sigríöur, Agnes.
Bolholti: Bára, Anna, Sigríöur.
[•!•] PH [»E 1*13 C BQ O O BE
lmi