Morgunblaðið - 03.01.1985, Qupperneq 46

Morgunblaðið - 03.01.1985, Qupperneq 46
I MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUÐAGUR 3. JANÚAR 1986 ÚR SKEMMTANA- LÍFINU Furðufata- samkvæmi í heimahúsi Það þótti skemmtileg tilbreyting í annars fremur fastmótuðu skemmtanalífi Reykjavík- urbúa er þau Elfa Gísla- dóttir leikkona og Jón Óttar Ragnarsson mat- vælafræðingur buðu til furðufatasamkvæmis á heimili sínu fyrir skömmu. Reyndar tóku þau það fram við gestina að það væri engin skylda að koma í ein- hverjum undraklæðum enda létu sumir gestanna sér nægja að koma með grímu fyrir andlitinu. En það voru nokkrir sem mættu í mjög skemmtileg- um búningum eins og parið sem birtist í barnslíki, en er líða tók á samkvæmið voru þau komin í gervi gamals fólks. Þó að flestir ættu að þekkjast í sam- kvæminu þá kom það fyrir að menn áttuðu sig alls ekki hver á öðrum. Hér eru nokkrar svipmyndir úr samkvæminu. er líka þekktur fyrir að klæða sig æði skrautlega. ffclk í fréttum i I ! BIRGIR GUÐJÓNSSON „Maður verður að standa sig“ að er ekki einkennilegt, mið- að við gróskuna i veitinga- húsarekstri, að minnsta kosti hér á höfuðborgarsvæðinu, að ungt fólk hyggi á nám í sambandi við þessa atvinnugrein. Einn þeirra, sem að undanförnu hafa lagt stund á slíkt, er Birgir Guðjóns- son, ungur maður, sem er að læra í Bandaríkjunum. Blm. langaði að forvitnast um þessa menntabraut og náði tali af Birgi sem er heima í jólaleyfi sem stendur. Hvaöa skóla stundar þú nám við? — Hann heitir Johnson & Wal- es College og er á Rhode Island. Þetta er lítill einkaskóli og með strangari skólum í Bandaríkjun- um. Til að útskrifast þarftu að ná á þriggja mánaða fresti 75% námsárangri þannig að maður verður að standa sig. Skólinn er mjög viðurkenndur hótel- og veit- ingaskóli þar í landi. Hvernig byggist þetta nám upp? — Það má eiginlega segja að maður fari í gegnum allt sem snertir hótel og veitingahús og maður sé látinn kynnast því frá gólfi til lofts. Fyrir utan bóklegt Bírgir Guðjónsson nám í viðskiptafræði, stjórnun, lögfræði, hótelstjóm, hótelverk- fræði, rekstrarhagfræði og fleira. Þá vinnur maður um tíma á hótel- um, þ.e.a.s. stendur við hlið starfs- fólksins og fylgist með. Til þess að ætla sér að stjórna heilu hóteli þarftu að vita hvað gerist á öllum sviðum þess, en ekki einungis i skrifstofunni þinni. Þegar maður hefur kynnt sér allt sem viðkemur veitingarekstri þá setur maður á stofn slíkan rekstur á blaði frá byrjun, þ.e.a.s. gerir kannanir, og út frá því „reisir maður hótel með öllu" þar sem þeir þættir eru teknir inn í dæmið að sýna þarf fram á að hótelið geti borið sig með hagnaði. Maður vinnur þá sigur áður en lagt er í bardagann! Þetta gerir maður með 1000 bls. vélritaðri ritgerð. Námið er síðan allt í þessu samræmi. Eru margir sem hafa stundað þetta nám hérlendis? — Nei, það eru mjög fáir, þó í dag sé þetta nokkuð að aukast. En það eru ekki margir hótelstjórar í dag menntaðir sem slíkir. Hefurðu unnið við hótelstörf? — Já, ég vann á Valhöll nokk- ur sumur og fór í gegnum flesta þætti hótelsins þar. Ég hef einnig unnið nokkuð við veitingahús sem þjónn. Hvernig kom til að þú fórst í þetta nám? — Þetta er tiltölulega ný grein hérlendis og í dag hefur hún hvað mesta atvinnumöguleika upp á að bjóða í heiminum. Þetta námsefni er mjög spennandi og kemur inn á ólíklegustu þætti sem hugsast get- ur. Hótel- og veitingahúsarekstur er mjög heillandi og það er margt framundan í þeim málum á ís- landi og möguleikarnir ótæmandi. Finnst þér það vera eitthvað sérstakt sem betur mætti fara hér í hótelrekstri? — Það er auðvitað ýmislegt sem ég gæti tínt til, en vitaskuld á að leggja metnað i gæðin og ekki skera þar við nögl. Það þarf að kaupa rétta vöru á réttum tíma og herða eftirlit með öllu. í Banda- rikjunum varð tap sl. ár á rekstri sökum starfsfólks um 80 billjónir dollara, eða 75% þess taps er varð á hótelrekstri og það er há tala. Fólkið þar virðist því stela, fara illa með hluti og vanrækja störf sín. Þar er sífellt að aukast eftirlit með hlutunum, jafnvel allt að tvisvar á dag, og allar vörur taldar jafnóðum. Þetta getur átt við að

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.