Morgunblaðið - 03.01.1985, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 03.01.1985, Qupperneq 56
OPID ALLA DAGA FRÁ KL. 11.45 - 23.30 AUSTURSTRÆTI 22 INNSTRÆTI. SÍMI 11633 bóling ei cyicuwi! FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1985 VERÐ í LAUSASÖLU 25 KR. Forsætisráðherra boðar stjómkerfisbreytingar: Viðskipta- og félagsmála- ráðuneyti lögð niður Flensan: Allt bólu- efni búið — von á meira bólu- efni í næstu viku FLENSAN sem geisað hefur í Osló síðustu daga og óttast hefur verið að bærist hingað til lands hefur enn ekki greinst hér. Að sögn Lúð- víks Ólafssonar setts borgarlæknis er bóluefni við flensu þessari svo til bóið en von er á meira bóluefni í næstu viku. Lúðvík sagðist hafa orðið var við ótta hjá fólki við þessa flensu og fólk mikið leitað til lækna. Sagði hann ekki ástæðu til að óttast þessa flensu neitt sér- staklega. Hún hefði hingað til ekki borist út fyrir Osló og taldi Lúðvik mestar líkur á hún yrði væg þegar og ef hún bærist hingað til lands. Engey seldi í Bremerhaven Fékk 39,30 kr. meðalverð ENGEY seldi í Bremerhaven í gær 188 tonn fyrir jafnvirði 7.388.800 króna, sem gerir 39,30 króna með- alverð á kílóið. I dag selur Arinbjörn í Cux- haven og Maí og Núpur í Eng- landi og á mánudaginn selur Vigri í Þýzkalandi og Júní i Englandi. Spánverjinn Romero er nær öruggur með sigur i mótinu. Hann var efstur með 9 'Æ vinning af 12 mögulegum fyrir siðustu umferð- ina og var búinn að tefla við alla sterkustu skákmennina. Hann vann Rasmussen frá Danmörku í 12. umferðinni sem tefld var í gær. Karl fékk að tefla skák sína i 12. umferð á nýársdag sem vera átti frídagur. Hann tefldi við Howell frá Englandi og hafði svart. Karl var kominn með yfirburðastöðu í skákinni en varð að semja um jafntefli til þess að ná lest frá Groeningen til Luxemborgar það- an sem hann flaug heim í gær. I ÁRAMÓTAÁV ARPI sínu vék Steingrímur Hermannsson, forsæt- Lsráðherra, að því að „í endurnýjuð- um stjórnarsáttmála" leggi stjórnar- Hellers frá Svíþjóð er í 2. sæti með 9 vinninga tn hann vann Horwath frá Ungverjalandi í gær. 011 frá Sovétríkjunum vann Norwood frá Englandi og er í 3. sæti með 8!4 vinning. Hollendingurinn De Wit tapaði fyrir Júgóslavanum Kozuc og deilir 4.-5. sætinu með Karli en þeir eru með 8 vinninga. I 9. umferð vann Karl Eureess frá Skotlandi en gerði jafntefli við Hollendinginn De Wit og Sovét- manninn Oll í 10. og 11. umferð. Karl hafnar að öllum líkindum í 8. eða 9. sæti mótsins við það að gefa skák sína í síðustu umferðinni. flokkarnir „rika áherslu á að hraða endurskoðun stjórnkerfisins". Með þessum orðum vísaði ráðherrann til hugmynda sem uppi eru um að breyta skipulagi á Stjórnarráði ís- lands á þann veg, að fækka ráðu- neytum úr 13 I 10 og að við hlið ráðherra starfi svonefndir ráðherra- ritarar, sem fari með yfirstjórn ráðu- neyta. Rfkisstjórnin skipaði í ágúst 1983 nefnd til að gera tillögur um, hvernig gera mætti stjórnkerfið virkara og bæta stjórnarhætti. Tillögur þessar kynnti forsætis- ráðherra á blaðamannafundi i desember 1983. Þá var lagt til að ráðuneytum yrði fækkað úr 13 í 8 og embætti ráðuneytisstjóra yrðu lögð niður með tilkomu ráðherra- ritara. Ríkisstjórnin hefur síðan haft málið til meðferðar. Nú er svo komið, að í frumvarpi um breytingar á stjórnarráðinu er gert ráð fyrir að ráðuneyti verði 10 og embætti ráðuneytisstjóra haldist og stjórni þeir öllum dag- legum rekstri ráðuneyta. Hins vegar breytist staða aðstoðar- manna ráðherra, þannig að þeir nefnast ráðherraritarar. Verður ráðherra skylt að hafa þá við hlið sér og verða ráðherraritarar æðstu yfirmenn ráðuneyta, næst ráðherra. Fækkun ráðuneyta á að fram- kvæma þannig samkvæmt frum- varpinu, að Hagstofu íslands verður breytt í sjálfstæða stofnun. Viðskiptaráðuneytið verði lagt niður. Utanríkisviðskipti flytjist til utanríkisráðuneytisins, banka- og gjaldeyrismál til fjármálaráðu- neytisins og verðlagsmál og mál- efni verslunarinnar sem atvinnu- greinar til iðnaðarráðuneytisins, sem nefnist framvegis iðnaðar- og verslunarráðuneyti. Félagsmála- ráðuneytið verði lagt niður. Fé- lagsmál, svo sem málefni aldraðra og fatlaðra, sameinist heilbrigðis- 08 tryggingamálum í einu ráðu- neyti, er nefnist framvegis félags- mála- og heilbrigðisráðuneyti. Sveitarstjórnarmál, húsnæðismál og umhverfismál verði felld undir eitt ráðuneyti, dómsmála- og SAMGÖNGUYFIRVÖLD New York hafa ákveðið að veita Flugleiðum undanþágu til aö nota DC-8 þotur félagsins í fiugi til New York að því er Leifur Magnússon framkvæmda- stjóri stjórnunarsviðs Flugleiða sagði í samtali við Mbl. í gærkvöldi, en þá var verið að leggja síðustu hönd á samninga um það hversu víð- tækar undanþágurnar verða. Leifur sagði að undanþága New York gilti til loka nóvembermán- aðar þessa árs, eins og undanþága innanríkisráðuneyti. Kirkjumál flytjist til menntamálaráðuneytis- ins, er nefnist eftir það mennta- og kirkjumálaráðuneyti. Fallið hefur verið frá hugmynd- um um að sameina sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti í eitt ráðuneyti og að fella samgöngu- mál og iðnaðarmál saman í eitt ráðuneyti. Frumvarp þetta hefur verið kynnt í þingflokkum stjórn- arliða en ekki hlotið endanlega af- greiðslu. í desember 1983 lét Steingrímur Hermannsson í ljós von um að frumvarpið hlyti af- greiðslu á því þingi sem þá sat. bandarískra flugmálayfirvalda. Flugleiðir hafa tekið á leigu þotu af gerðinni DC-8 71, sem fullnægir takmörkunum bandarískra yfir- valda um hávaða, en hún hefur ekki eins mikla burðargetu og þær þotur, sem Flugleiðir eiga. Leifur sagði það því mikið hagsmunamál fyrir Flugleiðir, að sem stærstur kvóti fengist fyrir burðarmeiri þoturnar og sagðist hann vona, að samningagerð þar um lyki í nótt að íslenzkum tíma eða í dag. Evrópumeistaramót unglinga í skák: Karl gaf síð- ustu skákina FYRIR síðustu umferð Evrópumóts unglinga í skák sem fram fer í Groening- en í Hollandi er Karl Þorsteins í 4.-5. sæti. Síðasta umferðin verður tefld í dag en Karl hefur gefið skák sína og er kominn heim til að vera við útfor vinar síns og fyrrum aðstoðarmanns, Þórs Sandholt, sem lézt í sjúkrahúsi í Englandi eftir að hafa gengizt þar undir lifrarígræðslu. Flugleiðir: Fá undanþágur fyrir þotur sínar í New York Víða reykt þrátt fyrir reykingabann Þrátt fyrir ný lög um tóbaksvarnir sem m.a. fela það í sér að bannað er að reykja í opinberum stofnunum og fyrirtækjum, þar sem almenningur leitar eftir þjónustu, var enn í gær reykt á mörgum þessara staða og lítið virtist þar komið í framkvæmd til að vekja athygli fólks á lögunum. Meðal annars ber veitinga- og skemmtistöðura skylda til að hafa af- markaðan fjölda veitingaborða, sem ekki má reykja við, en af þeim stöðum sem Morgunblaðið hafði samband við í gær hafði aðeins veit- ingahúsið Torfan virt þessi ákvæði laganna og þar tók Rax þessa mynd í gærkvöldi. Sjá frásögn á bls. 3.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.