Morgunblaðið - 16.03.1985, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. MARZ1985
29
Geimv ar nar ker f i
gegn kjarnorkuárás
eftir ZBIGNIEW BRZEZINSKI SFJNNI
ROBERT JASTROW ^T T T
MAX KAMPELMAN HL U 11
Kftir rétta viku, hinn 23. mars næstkomandi, verda liðin rétt tvö ár síðan
Ronald Reagan, Bandaríkjaforseti, kynnti hugmyndir sínar um nýtt varnar-
kerfi í geimnum (Strategic Defence Initiative — SDI). Þessar hugmyndir
hafa í almennu fjölmiðlatali verið kenndar við „stjörnustríð" og voru strax I
upphafi taldar óraunhefar með öllu af mörgum sem létu álit sitt í Ijós.
Ronald Reagan hefur hins vegar haldið sínu striki í málinu. 26 milljörðum
Bandaríkjadollara er nú ctlunin að verja til að rannsaka hagkvæmni þessa
kerfls.
Pólitískar deilur halda áfram um málið í Bandaríkjunum, innan Atlants-
hafsbandalagsins og milli Bandaríkjamanna og Sovétmanna. Morgunblaðið
birtir í dag grein þriggja bandarískra sérfræðinga um hermál, og heims-
stjórnmál er lýsa stuðningi við stefnu Reagans og ræða röksemdir með og á
móti henni.
Bngri þýðingarmikilli stefnu er
unnt að framfylgja í lýðræðislandi
án þess að hún sé rædd gaumgæfi-
lega og á hana sé fallist af al-
menningi. Bkki er þess heldur að
vænta að áhugasamur almenning-
ur geti leyst úr deilum milli sér-
fræðinga um tæknileg vandamál.
Umræðurnar um tillögur Reag-
ans, forseta, um varnarkerfi gegn
kjarnorkuárás bera þess merki, að
vísindamenn eru ekki á einu máli.
Það er þvi nauðsynlegt að skýra
alla þætti málsins.
Við getum hafið smíði tvöfalds
varnarkerfis sem myndi vernda
stjórnstöðvar eldflauga okkar og
skotbyrgi og þannig draga úr hug-
renningum sovéskra herforingja
um að frumárás skilaði þeim
ávinningi. Ýmsir vísindamenn
gera lítið úr þessari tæknilegu
getu og leggja þess í stað áherslu á
þá skoðun, að það sé vísindalega
ómögulegt nú á tímum að búa til
varnarkerfi sem verndi banda-
riskar borgir. Það er rétt að slík
kerfi til varnar almenningi eru
ekki til um þessar mundir. Bn við
ættum að hafa í huga, hve hratt
mannkyni hefur miðað í tækni og
visindum á 20. öldinni.
Framfarir
Við ættum að nota orðið
„ómögulegt" með mikilli gát. Það
er heimskulegt að ætla sér að
tímasetja tilfinningar. Við erum
sannfærðir um að i lögmálum eðl-
isfræðinnar er ekki að finna nein
rök fyrir þvi, að ekki sé tæknilega
unnt að búa til varnarhjúp, sem
myndi vernda bæði almenning og
vopn. Slikur varnarhjúpur hlýtur
að vera lokamarkmið okkar. Við
megum ekki láta neitt tækifæri
ónotað til að rannsaka varnarkerfi
sem eru skref á þeirri leið, ekki
sist þegar þau kerfi, sem við höf-
um rætt hér að framan, myndu
draga úr hættunni á frumárás.
Varnir gegn langdrægum eld-
flaugum geta þjónað tilgangi sin-
um án þess að vera „fullkomnar“
og tæknilega eru þær á næsta
leiti.
Þá er ástæðulaust að horfa fram
hjá þeirri staðreynd að frá upp-
hafi visindaaldar hafa menn sem
sinna vísindum með skipulögðum
hætti ekki reynst vera sérstaklega
framsýnir i spám um visindalegar
framfarir, sem ekki voru á allra
vitorði á liðandi stund. Breski vis-
indamaðurinn A.W. Bickerton
sagði t.d. 1926, að það væri vís-
indalega óframkvæmanlegt að
senda eldflaug til tungslins. Willi-
am Leahy, bandariskur flotafor-
ingi, sagði við Harry S. Truman,
Bandarikjaforseta, 1945: „Þessi
(kjarnorku) sprengja mun aldrei
springa, og ég tala hér sem
sprengj usérf ræðingur.” Og dr.
Vannevar Bush sem stjórnaði vis-
indarannsóknum bandarísku rík-
isstjórnarinnar i síðari heims-
styrjöldinni sagði eftir styrjöld-
ina, að hann vildi ekki heyra neitt
um „eldflaugar sem skjóta mætti
þrjú þúsund mílna vegalengd frá
einni heimsálfu til annarrar með
kjarnorkusprengju innanborðs
... við getum alveg hætt að hugsa
um slíka hluti." Og það er ekki
lengra síðan en 1965 að Robert S.
McNamara, hinn hæfi varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna,
skrifaði: „Það er ekkert sem bend-
ir til þess að Sovétmenn séu að
reyna að koma sér upp langdræg-
um kjarnorkuherafla sem sé sam-
bærilegur við slíkan herafla
okkar.“
Aögerðir Sovétmanna
Við megum ekki gleyma því í
umræðunum heima fyrir hvað
Sovétmenn eru að gera i geimnum,
en þeir hafa jafnan skilið mikil-
vægi öflugra varna. Þeir hafa var-
ið meira fjármagni til þess að efla
varnir gegn kjarnorkuárás frá þvi
að ABM-samningurinn var gerður
1972 en til að koma upp langdræ-
gum kjarnorkuárásarherafla.
Fyrir nær tveimur áratugum hófu
þeir að smiða vopn gegn gervihn-
öttum. Innan sovéska hersins er
nú unnið ákaft að því að koma á
fót eldflaugavarnarkerfi sem nær
til alls landsins. Svo virðist sem
Sovétmenn séu nú tilbúnir með
kerfi sem nota má til að vernda
land þeirra, ekki aðeins gegn
flugvélum heldur einnig gegn
mörgum gerðum af langdrægum
eldflaugum. Sovétmenn hafa unn-
ið að þessum verkefnum án tillits
til þess sem sagt er i ABM-
samkomulaginu. Risastór ratsjá
þeirra i Mið-Siberiu brýtur greini-
lega i bága við þennan samning.
Engu að siður hljóta þeir að hafa
byrjað undirbúning að smiði stöð-
varinnar fyrir mörgum árum.
Líta verður að fund Shultz og
Gromyko í Genf i byrjun janúar
sem beina afleiðingu þess, að
Reagan, forseti, lýsti því yfir í
mars 1983, að Bandarikjamenn
ætluðu að þróa varnarkerfi gegn
kjarnorkuárás. Lyndon B. John-
son, forseti, lagði það til við Alexei
N. Kosygin, forsætisráðherra, að
varnarkerfi gegn eldflaugum yrðu
bönnuð en þeirri tillögu var sam-
stundis hafnað. 1969 lagði Richard
Nixon, forseti, til við þingið, að
Bandaríkjamenn hæfu smiði varn-
arkerfis gegn eldflaugum vegna
þess að Sovétmenn sýndu lítinn
áhuga á að banna slik varnarkerfi.
Skömmu eftir að þingið sam-
þykkti þessa tillögu féllust Sov-
étmenn á hugmyndina um ABM-
samkomulagið. Hefði Bandarikj-
astjórn undir forystu Reagans
ekki tilkynnt áform sin um varn-
arkerfi gegn kjarnorkuárás kynn-
um við enn að mæta kuldalegu
viðmóti Sovétmanna, eftir að þeir
riftu Genfarviðræðunum undir
árslok 1983.
Nýjar leiðir
Menn hafa sagt að umræðurnar
um takmörkun vígbúnaðar væru
komnar út í ógöngur. Með sanni
má segja, að þar hafi skort hug-
myndaflug og nýjar tillögur. Sú
stefna, sem nú er fylgt, krefst þess
bæði af Bandarikjamönnum og
Zbigniew Brzezinski
Sovétmönnum, að þeir treysti á
kenninguna um gagnkvæma gjör-
eyðingu, er byggist á jafnvægi i
langdrægum árásarvopnum.
Bandarikjamenn hafa til þessa að-
eins treyst á fælingarmáttinn en
látið hjá líða að gera ráðstafanir
til að verja sig gegn árásarvopn-
um Sovétmanna, en Sovétmenn
hafa hinsvegar sýnt með gerðum
sinum, að þeir ætla að verjast
bandariskum eldflaugum. Hvað
sem þessu liður er ljóst að mann-
kynið verður að finna leiðir til að
losa sig undan oki ógnarjafnvæg-
isins. Gagnkvæm gjöreyðing verð-
ur að vikja fyrir gagnkvæmri
tryggingu um að mannkynið lifi.
Öryggi okkar getur ekki byggst á
þvi, að við ráðum ekki yfir neinu
varnarkerfi gegn eldflaugum. Rík-
isstjórnin hefur því hlutverki að
gegna að verja land og þjóð gegn
árás en ekki aðeins að svara árás-
araðilanum i sömu mynt. Það er
furðulegt, að forseti sem leitar
leiða til að vernda okkur gegn ógn
og hörmung skuli sæta ámæli
fyrir það.
Jafnvel þótt ekki takist að
smiða varnarkerfi sem verndar
allan almenning — enginn okkar
veit hvort það tekst eða ekki — er
það skylda rikisstjórnar Banda-
ríkjanna að leita leiða sem gera
óvinum okkar erfitt fyrir. Takist
að rugla þá i riminu er óliklegra
að þeir ráðist á okkur. Líklega er
ekki unnt að eyðileggja langdræg-
ar eldflaugar i heiminum, en ef við
getum breytt gildi þeirra þannig
aö þær sé aðeins unnt að nota til
að endurgjalda árás en ekki til að
hefja hana, þá hefur okkur tekist
að finna leið, sem miðar að þvi að
fækka þessum eldflaugum og
minnka þannig stríðsógnina.
Afstaða bandamanna
Því hefur verið haldið fram, að
tillögur forsetans um varnarkerfi
í geimnum séu skaðvænlegar af
stjórnmálaástæðum, þar sem
bandamenn okkar innan Atlants-
hafsbandalagsins hafi ekki sýnt
Bandaríkin
Ronald Reagan.
tillögunum neinn áhuga. Það er
eðlilegt að þeir sýni varúð í fyrstu.
Þess er að gæta, að það kom þeim
á óvart í mars 1983 þegar forset-
inn lagði tillögur sínar um geim-
varnir fram. Stundum eru leyni-
legar viðræður nauðsynlegar. Við
skulum ekki efast um að banda-
menn okkar sýni skilning í réttu
hlutfalli við það samráð sem við
þá er haft. Evrópskir stjórnmála-
menn eru einnig undir miklum
þrýstingi frá friðarhreyfingum
sem leggja höfuðkapp á hefö-
bundnar viðræður um takmörkun
vígbúnaðar og telja þær aðalat-
riði. Þess vegna efast menn um
gildi nýrra aðferða, sem Sovét-
menn gagnrýna og telja sér óvin-
samlegar.
Kjarninn f varnarstefnu Atl-
antshafsbandalagsins er sá, að ör-
yggi Bandaríkjamanna og banda-
manna þeirra sé samtvinnað. Evr-
ópskir bandamenn okkar lita á
hverja tilraun til að skera á þessi
tengsl sem hættulega. Allar
hugmyndir um skipan öryggis-
mála meta vestur-evrópskir
stjórnmálamenn frá þessum sjón-
arhóli. Takist Bandarikjamönnum
að koma sér upp varnarkerfi gegn
eldflaugum velta Evrópumenn þvi
fyrir sér, hvort öryggi þeirra yrði
ekki minna en áður, þar sem þeir
standa frammi fyrir yfirburðum
Sovétmanna i venjulegum herafla.
Þessar áhyggjur geta verið
skiljanlegar en þær munu minnka
eftir þvf sem timar liða og málin
verða rædd. í fyrsta lagi þá varð
tillaga Reagans, forseta, um varn-
ir gegn kjarnorkuárás til þess að
Sovétmenn samþykktu að koma
aftur til afvopnunarviðræðna. Þá
mun það skýrast enn frekar þegar
fram liða stundir og menn hætta
að einblina á flókin tæknileg
vandamál, að geta Bandaríkja-
manna til að vernda eigin eld-
flaugar styrkir afl okkar til þess
að halda óvininum í skefjum og
kemur þannig bandamönnum okk-
ar einnig til góða. Raunar er við
þvi búist, að þetta varnarkerfi
verði a.m.k. jafn áhrifaríkt gegn
Sovétríkin
SS-20-eldfIaugunum, sem miðað
er á Vestur-Evrópu, eins og gegn
langdrægu land-eldflaugunum. Og
loks er til þess að lita, að sérhvert
skref undan kjarnorkuógninni
stuðlar að því að viðunandi and-
rúmsloft myndist fyrir samninga-
viðræður og samkomulag, sem eru
óhjákvæmilegar forsendur friðar.
Tvíþætt niðurstaða
í ljósi þess sem hér hefur verið
sagt höfum við komist að tvf-
þættri grundvallarniðurstöðu:
1. Það er æskilegt og stuðlar að
stöðugleika að þróa takmarkaö
tvíþætt varnarkerfi gegn kjarn-
orkuárás og það er nauðsynlegt
vegna þeirra breytinga á kjarn-
orkuheraflanum sem fyrirsjáan-
legar eru. Slfkt kerfi myndi leiða
til góðs bæði í hermálum og
stjórnmálum. Það er hæfilegt
andsvar gegn þeirri óvissu, sem nú
setur svip á þróunina f stjórnmál-
um og vígbúnaðarmálum. Þetta
tviþætta kerfi, sem hér hefur ver-
ið lýst, má taka til notkunar i
byrjun næsta áratugar. Banda-
ríkjamönnum verður rórra þegar
þessar takmörkuðu varnir hafa
komið til sögunnar. Vegna þeirra
er mjög óliklegt að Sovétmenn
geri frum-kjarnorkuárás.
2. Þrí- eða fjórþætt varnarkerfi,
sem byggir á háþróaðri tækni eins
og leysigeislum, sem nú eru til at-
hugunar, kann að verða raunhæf-
ur kostur i lok þessarar aldar.
Leiði rannsóknir það i ljós að há-
þróuð kerfi af þessu tagi dugi,
kann notkun þeirra að efla svo
varnir okkar, að þær nálgist full-
komnun og marki þannig endalok
langdrægra kjarnorkueldflauga.
Vinna verður að rannsóknum sem
leitt geta til jafn mikilvægrar
niðurstöðu fyrir öryggi okkar, þótt
ógerlegt sé að segja fyrir um
árangurinn á þessu stigi.
Þær umræður sem nú fara fram
eru nauðsynlegar. Vandamálin
sem við er að glima eru mörg. Þau
eru bæði tæknileg og pólitísk. Til
þess að umræðurnar beri ávöxt
verðum við að forðast að heyja
þær á flokkspólitiskum forsend-
um. Markmiðið hlýtur að vera að
finna leið út úr völundarhúsi sem
er ógnvænlegt fyrir allt mannkyn.
Frumkvæði Ronalds Reagan, for-
seta, í leitinni að þeirri leið er
mikilvægt framlag til takmörkun-
ar á vígbúnaði og stöðugleika.
Markmiðið er að gera kjarnorku-
vopn óvirk og ónothæf. Við hljót-
um að hvetja til þess að þvi verði
náð en ekki letja.
Vm bofundtna: Zbigniew Brxei-
inxki er prófessor í stjóm YÍsindum
við ( 'olumbit-hiskól* og riðunMul-
ur hernaðtr- og nlþjóóastofnunnr-
innar rið Georgetown-kískóla. í
foraetatíð Jimmrs Carter rar bann
öryggisriðgjafi foraetans. Robert
Jastrow er eðlisfræðingvr og pró-
fessor I raunrísindum rið Dart-
mouth-hískóla. Hann rar stofn-
andi Goddard-stofnunarinnar í
geimraannsóknum. Max M. Kamp-
elman er lögfræðingur f Washing-
ton. Hann hefur rerið skipaður
formaður bandarísku sendinefnd-
arinnar sem i að ræða rið Sorót-
menn um takmörkun rígbúnaðar
með sérstöku tílliti til geimropna.
Hrer höfundanna ritaði sinn kafla
greinarinnar og skerttu þi s/ðan
(Greinin birtist upphaflega í
The New York Times
Magazine 27. janúar 1985.)
Viórmóur ns»v*KJ»nr>a snuast aó vmutagu layti um langdræg kjamorkuvopn sem þau betna hvorl gegn öórv
ur mörg þusund kikvnetra fiarlægö
Langdræg burðartæki
■m n 1 U8A 80VtT
KJARNOflKU- ELDFLAUGAR A LANOt KJARNOIUtU- ELOfLAUCAR ) KAFBATUM LANGDRCGAR SPRENGJU- VELAR