Morgunblaðið - 28.03.1985, Síða 1

Morgunblaðið - 28.03.1985, Síða 1
80 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 73. tbl. 72. árg. _____________ _____________________FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Ottast að 5 menn hafi farizt með Bervík SH Báturinn sást síðast klukkan 20 skammt undan Rifi — Víðtæk leit á sjó og landi Hellnsaadi, 26. marz, frá Helga Bjarnasyni, blaóamanni Mbl. VÍÐTÆK leit stendur yfir á sjó og landi að fimm skip- verjum af vélbátnum Bervík SH 43 frá Ólafsvík, sem óttast er að hafi farizt ör- skammt út af Rifi á Snæ- fellsnesi í kvöld. Skipverjarn- ir sem er saknað eru allir frá Ólafsvík, sá yngsti um tvítugt en sá elzti um fimmtugt. Báturinn var á leið til heima- hafnar af dragnótaveiðum fyrir sunnan Jökul. Menn á hafnar- vigtinni á Rifi sáu bátinn sigla hjá skammt undan landi um kl. 20 í kvöld, en hann hafði boðað komu sína til hafnar í Ólafsvík kl. 20.30. Um kl. 21 sáu skipverj- ar á vélbátnum Hamrasvani SH brak og gúmmíbát Bervíkur skammt út af Rifi og eftir það hófst leitin. Þrjá merkta belgi og stíuborð af þilfari Bervíkur rak í kvöld á land sunnan við hafnargarðinn Brak úr Bervík SH, sem rak á fjörur í gaerkvöldi. á Rifi. Hátt í hundrað manns úr björgunarsveitum úr Ólafsvík, Hellissandi og Rifi ganga fjörur frá Ólafsvíkurenni að Brimnesi, vestan Hellissands, og allir Ólafsvíkur- og Rifsbátar, auk aðkomubáta, samtals 15—20 bátar, leita úti fyrir. Bræla er á leitarsvæðinu, norðaustan 9 vindstig (álandsvindur), og að- stæður hjá bátunum erfiðar til leitar svo skammt frá landi. Einnig voru aðstæður til leitar á landi erfiðar. Bervík er þrjátíu og sex lesta eikarbátur, smíðaður á ísafirði árið 1954. Bervíkin hefur verið mjög gott aflaskip og kom hann til dæmis með 30 tonn á land í gær, þriðjudag. Annar bátur, sem var á leið til lands í Breiðafirði, fékk á sig brotsjó, en hann komst klakk- laust til lands. Morgunblaöid/RAX LeiUrmenn að störfum við varnargarðinn á Rifi seint i gsrkvöldi. LeiUrskilyrði voru erfið vegna hvassviðris og mikils sjógangs og vegna þess hve steinar voru sleipir. Mannskæð eldflaugar- sprenging í Bagdad Stríðsaðilar gefa í skyn friðarvilja Bagbdad. 27. mare. AP. ÓGURLEG SPRENGING kvað við í Baghdad, höfuðborg Irak í dag og sögðust íranir hafa skotið iangdrægri eldflaug á borgina til að hefna fyrir lofUrásir íraka á nokkrar íranskar borgir. Sjónarvottar sögðu, að hvítt svepplaga ský hefði stigið hátt til himins yfir fjölbýlu íbúðarhverfi í yesturhluU borgarinnar. Fáum klukkustundum eftir að eldflaugin sprakk, voru herþotur íraka komnar í loftið og á leið til „sérsUkra skotmarka" í fran eins og Bagdadstjórnin komst að orði. Fylgdu svo í kjölfarið árásir á fimm íranskar borgir, þar á meðal höfuðborgina Teher- an. Hjálparsveitir, her og lögregla girtu af svæðið þar sem spreng- ingin varð og fengu engir aðgang sem þangað áttu ekki erindi. Fréttamenn fengu ekki aðgang og stjórnvöld sögðu ekkert um hve mannfallið var mikið. Hins vegar varð fólk vitni að því er sjúkrabifreiðir óku burt frá lok- aða svæðinu með opnum hurð- um, fullhlaðnir líkum. Talsmaður stjórnvalda í Bagdad sagði að Irakar væru með auknum loftárásum á borg- ir í íran, að knýja Khomeini erkiklerk til þess að taka mark á milligöngumönnum sem reynt hafa að koma á friði. frakar leggja áherslu á algeran frið, en íranir hafa til þessa virst fyrst og fremst hafa hug á að stöðva árásirnar á óbreytta borgara. Þó heyrðu menn í fréttaútvarpi IRNA í dag að íranir myndu „hætta hefndaraðgerðum ef fr- akar létu af árásum á borgir og olíuskip," eins og þar var komist að orði. í sömu andránni fylgdi sú hótun, að ef frakar héldu fast við iðju sína, myndu íranir skjóta svo öflugum eldflaugum á Bagdad, að „borgin legðist í eyði.“ Síðustu 13 daganna hafa frak- ar ráðist 8 sinnum á Teheran, en franir segjast á móti hafa skotið 6 langdrægum eldflaugum á „hjarta Baghdad".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.