Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
Lánsfjáráætlun frá fjárhags- og viðskiptanefnd:
Erlendar lán-
tökur verða 6,9
milljarðar á árinu
Voru í upphaflega frumvarpinu 7,3 milljarðar
ERLENDAR lántökur snmkvæmt frumvarpi til lánsfjárlaga eftir niðurskurA
ríkisstjórnar of fjárhags- og viðskiptanefndar efri deildar Alþingis fyrir árið í
ár standa nú í rúmum 6,9 milljörðum króna, samkvæmt áreiðanlegum heimild-
um Morgunblaðsins. Frumvarpið sem lagt var fram í haust, gerði ráð fyrir 7,3
milljörðum króna i erlendar lántökur, og við afgreiðslu fjárlaga hækkaði
lánsfjárþörfin um rúmar 300 milljónir króna, en ríkisstjórnin gerði síðan
tillögur um Uekkun svo og fjárhags- og
A-hluti ríkissjóðs er skorinn
niður um 750 milljónir króna,
Landsvirkjun um rúmar 300 millj-
ónir og atvinnufyrirtæki um 336
milljónir króna. Varðandi skuld-
breytingar hjá Hitaveitu Akureyr-
ar eru teknar inn 150 milljónir
króna, og verður hluti þeirrar fjár-
hæðar nýttur til framkvæmda. Þá
fær Sjóefnavinnslan á Reykjanesi
50 milljónir króna, eins og greint er
frá á öðrum stað í blaðinu. Lántök-
ur vegna Steinullarverksmiðjunnar
á Sauöárkróki hækka um 15 millj-
ónir, vegna breyttra gengisfor-
senda, fara úr 60 milljónum í 75
milljónir. Þá er tekið lán fyrir
grænfóðurverksmiðju i Skagafirði
upp á 12 milljónir.
Erlendar lántökur vegna hús-
næðislána eru hækkaðar um 403
milljónir, en samkvæmt fjárlaga-
frumvarpinu var aðeins gert ráð
fyrir 150 milljónum erlendis frá til
húsnæðislána. Það sem mun hafa
gerst þarna, er að boginn mun hafa
þótt of hátt spenntur, varðandi
áætlun um innlenda fjáröflun.
Heildarlántökur vegna húsbygg-
ingarsjóðanna hækka því úr áætl-
uðum 1558 milljónum króna í 1786
milljónir, þannig að aukningin
nemur 228 milljónum króna.
Páskalömbin komin
PÁSKALÖMBIN frá Sigurði Pálmasyni hf. eru komin
í verslanir Víðis í Reykjavík. Kom flutningabfll frá
Hvammstanga með 60 skrokka af nýslátruðu í gær og
verða þau seld í öllum verslunum Víðis núna fyrir
páskana.
Kjötið er selt 10% dýrara en frosið kjöt frá síðustu
sláturtíð. Júlíus Ijósmyndari Mbl. tók þessa mynd af
Sigurði Jóhannessyni kjötiðnaðarmanni hjá Víði í
Mjóddinni með vænt páskalamb. Sigurður sagði að
mikil eftirspurn væri eftir kjötinu og virtust margir
kunna að meta þessa nýbreytni.
Kópavogun
Bfll í lækinn
hestur á bfla
BIFREIÐ lenti ofan í Kópavogs-
lækinn milli brúnna í gærkvöldi
og gjöreyðilagðist Taldi lögregl-
an í Kópavogi, þegar rætt var við
hana i gærkvöldi, að bílstjórinn
hafl sloppið a.m.k. lítið meiddur,
því hann var horflnn, þegar lög-
reglan mætti á staðnum.
En þar með er sagan ekki öll
sögð, því á meðan lögreglan
kannaði vettvang og aðstæður
þar sem bíllinn fór út af kom
hestur, með beizli og hnakk,
skeiðandi aö brúnni, en knap-
ann hafði hann losað sig við.
Hesturinn hljóp utan í tvær
bifreiðar skammt frá lögreglu-
þjónunum og skemmdi þær lít-
ilsháttar. Hann virtist þó sjálf-
ur hafa sloppið með skrekkinn
því eftir að knapinn náði á
slysstað og hafði gengið frá
formsatriðum, fóru þeir fetið
en hjálparlaust á brott.
Manneldisráð:
Auglýsing Mjólkurdags-
nefndar úrskurðuð ólögleg
MANNELDISRAÐ hefur úrskurðað að auglýsingar Mjólkurdagsnefndar
brjóti í bága við reglugerð sem kveður á um blekkingar gagnvart neytendum.
Manneldisráð fjallaði um málið að beiðni Hollustuverndar ríkisins, þar sem
talið var að ákveðin atriði í umræddum auglýsingum orkuðu tvímælis og
væru umdeild meðal sérfræðinga.
Dr. Jón Óttar Ragnarsson, sem
sæti á í Manneldisráði, sagði í sam-
tali við blm. Morgunblaðsins að
ráðið hefði komist að þeirri niður-
stöðu að auglýsingarnar brytu í
bága við reglugerð númer 250 frá
1976, sem fjallar um sölu og dreif-
ingu á matvælum, og þó einkum 7.
grein þeirrar reglugerðar, þar sem
kveðið er á um blekkingar gagnvart
neytendum.
Gunnar Steinn Pálsson fram-
kvæmdastjóri Auglýsingaþjónust-
unnar, sem gerði umræddar auglýs-
ingar, sagði í samtali við Morgun-
blaðið að auglýsingastofunni hefði
borist beiðni frá Verðlagsstofnun
um að stöðva auglýsingarnar á
meðan málið væri i athugun þar eð
deildar meiningar væru um nokkur
atriði sem þar kæmu fram. „Við
lögðum mikla vinnu i þessar aug-
lýsingar og þar koma fram miklar
og merkilegar upplýsingar sem við
sóttum í rit og bæklinga sérfræð-
inga, bæði innlenda og erlenda. 1
auglýsingunum lögðum við megin-
áherslu á mikilvægi kalks fyrir bein
og tennur. Við fengum íslenska sér-
fræðinga til að lesa yfir þessa texta
áður en þeir fóru i birtingu. Hins
vegar kom siðar í ljós, því miður, að
deildar meiningar eru um ýmislegt
sem þarna kemur fram og sérfræð-
inga hér innanlands greinir á um
einhver atriði. Við höfum því
ákveðið að stoppa birtingar á þess-
um auglýsingum, þangað til einhver
niðurstaða liggur fyrir. Ég vil hins
vegar leggja áherslu á að hér er
ekki um að ræða beinar rangfærsl-
ur af okkar hálfu heldur kynnum
við niðurstöður rannsókna og kenn-
ingar, sem sumar hafa ekki verið
sannaðar. Við hjá Auglýsingaþjón-
ustunni erum auðvitað afskaplega
leiðir yfir því ef við höfum verið að
senda frá okkur eitthvað sem orkar
tvímælis og verðum fyrstir manna
til að lagfæra slíkt ef þurfa þykir,"
sagði Gunnar Steinn.
Eftir því sem Morgunblaðið
kemst næst hefur ekki verið tekin
ákvörðun um það hjá Hollustu-
vernd ríkisins, hvort lögð verður
fram kæra hjá Verðlagsstofnun
vegna umræddra auglýsinga eða
hvort einungis verður farið fram á
breytingar. Ekki náðist í Þórhall
Halldórsson, hjá Hollustuvernd
ríkisins, í gærkvöldi eftir að niður-
staöa Manneldisráös lá fyrir.
Eyjólfur Konráð segir Alþingi
ráða framtíð Sjóefnavinnslunnar
Sverrir segir: „Ég fer með yfirstjórn þessa fyrirtækis. Ég er ekki
bundinn af ákvörðunum fyrirrennara míns, nema síður sé“
í FRUMVARPI til lánsfjárlaga, sem verður rætt og afgreitt frá efri deild Alþingis nk. mánudag, er gert ráð fyrir
50 milljón krónum til Sjóefnavinnslunnar á Reykjanesi á þessu ári, og þar af fara 36,4 milljónir í afborganir af
lánum og vaxtagreiðslur. 7 til 8 milljónir eru síðan ráðgerðar til þess að greiða laun, lausaskuldir, og kostnað við
eftirlit og umhirðu. Samkomulag hefur síðan tekist með meirihluta fjárhags- og viðskiptanefndar efri deildar
Alþingis, samkvæmt upplýsingum formanns nefndarinnar, Eyjólfs Konráðs Jónssonar, að bæta við þessa
fjárhæð, þannig að samtals verði hér um 50 milljónir að ræða, og segir Eyjólfur Konráð að þessi ákvörðun sé
tekin til þess að gefa Alþingi svigrúm til þess að taka ákvarðanir um framtíð verksmiðjunnar.
„Bættum við 6
milljónum“
„Það varð að samkomulagi hjá
meirihluta nefndarinnar að
bæta við 6 milljónum, þannig að
Sjóefnavinnslan yrði ekki stöðv-
uð núna, heldur yrði hún rekin
til hausts,” sagði Eyjólfur Kon-
ráð í samtali við blm. Mbl. í gær.
„Hún verður því rekin áfram
a.m.k. til hausts að Alþingi kem-
ur saman á nýjan leik, og hefur
svigrúm til þess að taka ákvarð-
anir um framtíðarstefnu máls-
ins.“
Eyjólfur Konráð sagði að
meiningin væri að í sumar færi
fram heildarúttekt á öllum
rekstri Sjóefnavinnslunnar. Eyj-
ólfur Konráð sagði að enginn í
nefndinni hefði hreyft andmæl-
um við þessum hugmyndum, og
að báðir ráðherrarnir, þeir Al-
bert og Sverrir, væru sammála
þessari tilhögun.
„Á enga aðild að
þeim ákvörðunum“
„Mér var kunnugt um þessa
ráðagerð milli fjármálaráðherra
og formanns fjárhags- og við-
skiptanefndar efri deildar að
ætla 50 milljónir króna í ráðstöf-
un vegna Sjóefnavinnslunnar, en
ég á enga aðild að þeim ákvörð-
unum,“ sagði Sverrir Her-
mannsson iðnaðarráðherra í
samtali við Mbl. í gær. Sverrir
sagðist ekkert hafa á móti þvi að
til væri fjármagn til þess að
grípa til fyrir Sjóefnavinnsluna.
Það þyrfti fjármagn til þess að
stöðva fyrirtækið, og til þess að
gæta eignanna þegar þar að
kæmi.
Sverrir sagði jafnframt: „Ég
fer með yfirstjórn þessa fyrir-
tækis og það heyrir undir iðnað-
arráðuneytið. Ég minni á að um
þetta fyrirtæki gilda heimildar-
lög, eins og kom fram í Morgun-
blaðinu i dag. Heimildarlög til
handa framkvæmdavaldinu að
notfæra sér, ef því svo sýnist.
Ákvörðun um að nota þessa
heimild tók fyrirrennari minn.
Ég er auðvitað ekki bundinn af
þeirri ákvörðun hans, nema síð-
ur sé. Mér ber skylda til þess aö
hverfa frá því að notfæra mér
þessa heimild um að byggja og
reka 8 þús. tonna saltverksmiðju
sem ég hef sannfærst um að er
hrein ósvinna. Það held ég fast
við og allar bollaleggingar um
rekstur fram á haust og síðan
ákvarðanir Alþingis um framtið
verksmiðjunnar kannast ég ekk-
ert við og er sú ráðagerð uppi
einhvers staðar ofan og utan við
minn vettvang.“
„Töpum milljón
á mánuði“
„Það hefur lengi verið álit
okkar, að það beri að hætta þess-
ari saltframleiðslu," sagði Guð-
mundur Malmquist, stjórnarfor-
maður Sjóefnavinnslunnar, í
samtali við blm. Mbl. í gær. „Við
teljum að það borgi sig ekki að
ljúka framkvæmdum til þess að
fara í 8 þúsund tonna fram-
leiðslu, sem kostar um 40 millj-
ónir. Við erum með taprekstur
upp á milljón á mánuði, og ekk-
ert sem bendir til að þar eigi
eftir að verða breyting á. Þetta
er skoðun iðnaðarráðherra og
hluta stjórnar, þ.e. mfn og Ingj-
alds Hannibalssonar, en fulltrúi
fjármálaráðuneytisins, Árni
Kolbeinsson, og fulltrúar heima-
aðila eru því mótfallnir að
rekstrinum verði hætt.“
Guðmundur var spurður hvert
framhald þessa máls yrði að
hans mati: „Þetta verður nátt-
úrlega að takast fyrir í ríkis-
stjórn. Það er verið að gera það
vitlausasta sem hægt er að gera
núna, þ.e. að halda áfram
óbreyttum rekstri, þar sem um
milljón á mánuði tapast. öll
stjórnin er sammála um að slíkt
gangi ekki lengur."