Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
45
Morgunbladid/Gudrinnur
Jón Ágúst Jónsson tekur fyrstu skóflustunguna að nýrri slökkvistöð í
Grindavfk.
Grindavík:
Skóflustunga tekin
að nýrri slökkvistöð
Grindavík í mars.
NÝLEGA var tekin fyrsta skóflustunga að nýrri slökkvistöð hér í Grindavík.
Það var Jón Ágúst Jónsson, fyrsti slökkviliðsstjóri í Grindavík, sem tók
skóflustunguna, en hann gegndi embætti slökkviliðsstjóra frá 1957 til 1972.
Jón Ágúst var um árabil einnig bæjarverkstjóri.
Slökkvistöðin verður í nýjum
miðbæjarkjarna ofan við nýtt
íþróttahús sem verður tekið í
notkun á þessu ári. Hönnuður að
slökkvistöðinni er Jón Sigurðsson
bæjartæknifræðingur, nú eru
hafnar framkvæmdir við bygging-
una. Núverandi slökkviliðsstjóri
frá 1972 er Magnús Ingólfsson og
varaslökkviliðsstjórar eru Guð-
mundur Jónsson og Jón Nikolai-
son. Slökkvilið Grindavíkur er
mjög vel búið tækjum og þrótt-
miklum slökkviliðsmönnum og vel
æfðum sem í frístundum hafa
unnið mikið starf við búnað
slökkvitækja. Þess má geta að i
Grindavík er enn til ein með
fyrstu handslökkvidælum á land-
inu á handvagni, sem mun verða
geymd á byggðasafni bæjarins
sem mun rísa á næstu árum.
Guðfinnur.
HÁÞRÝSTi-
VÖKVAKERFI
Sérhæfð þjónusta.
Aóstoóum vió val
og uppsetningu
hvers konar
háþrýstibúnaóar.
Vökvamótorar
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI. 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA
Fennei
Reimar og
reimskífur
Fenner Ástengi
Sýnd er meðferð handslökkvitækja í skóhim. Slökkvilið Hafnarfjarðar sér
um brunavarnarherferð í skólum í Hafnarfirði, Garðabæ og Bessastaða-
hreppi.
Slökkvilið Hafnarfjarð-
ar gengst fyrir bruna-
varnarviku í skólum
BRUNAVARNAHERFERÐ er nú í gangi í skólum Hafnarfjarðar, Garðabæj-
ar og Bessastaðahrepps á vegum slökkviliðs Hafnarfjarðar.
Helgi ívarsson, slökkviliðs- mynd sem nefnist „Flóttaáætlun
stjóri, sagði í samtali við blm.
Mbl. að þetta væri þriðja árið sem
fram færi herferð í skólum sem
þessi. Árið 1983 var haft samstarf
með JC-samtökunum, en síðustu
tvö ár hefur Slökkvilið Hafnar-
fjarðar staðið einungis að starf-
inu.
„I fyrra var farið í alla skólana
á svæðinu, sem eru níu talsins, og
fræðslan var fyrir öll grunnskóla-
börn. Nú, hinsvegar, bindum við
okkur eingöngu við yngstu börnin,
6, 7 og 8 ára. Þau eru móttæki-
legust fyrir þessu og eru einna lík-
legust til að setjast niður með
heimilisfólkinu og fá það til að
hugsa einnig um þessi mál,“ sagði
Helgi.
í skólunum verður sýnd kvik-
Andrésar Andar“. Einnig flytur
Sigurður Þórðarson, varaslökkvi-
liðsstjóri, fyrirlestur um bruna-
varnir. Utbúinn var bæklingur í
fyrra sem heitir „í eldi skipta sek-
úndur máli“ og er hann einskonar
neyðaráætlun fyrir fjölskylduna
ef eldur kemur upp á heimilinu.
Brunavarnaherferðin hófst á
mánudag og stendur í viku. „Á
laugardaginn verður síðan opið
hús hjá okkur í slökkviliðsstöðinni
í Hafnarfirði þar sem almenning-
ur getur komið og skoðað nýjan og
gamlan útbúnað.
Helgi sagði að nokkuð hefði ver-
ið gert af því að fara í stærri fyrir-
tækin í Hafnarfirði og fyrirlestrar
verið haldnir um brunavarnir og
sýnd notkun slökkvitækja.
Leguhús
Vald
Poulsen
Suöurlandsbraut 10,
•ími 86499.
SKÁKSAM BAIMD
Skákþing íslands
1985
hefst laugardaginn 30. mars nk. kl. 14.00.
Tefit veröur í landsliösflokki, áskorendaflokki og
opnum flokki. Áskorendaflokkur: 9 umferðir Monrad,
þátttökurétt eiga skákmenn með a.m.k. 1800 skák-
stig.
Opinn flokkur: 9 umferöir Monrad, þátttaka öllum
heimil.
Teflt verður í áskorenda- og opnum flokki í Skák-
heimili TR við Grensásveg 44, Rvík. Innritun á staðn-
um hefst klukkustund áöur en fyrsta umferö byrjar.
Þátttökugjald: 18 ára og eldri kr. 500,-.
15—17ára kr. 400,-.
14 ára og yngri kr. 300,-.
Keppni í landsliösflokki hefst á sama tíma og verður
teflt í Hagaskólanum í Reykjavík.
Allar nánari upplýsingar veittar í síma 27570, kl.
13—17.
Stjórn Skáksambands íslands.
TILBOÐ
BÓKAMARKADUR
FÉL. ÍSL.
BÓKAÚTGEFENDA
í VÖRUMARKAÐNUM EIÐISTORGI
LIKAMSRÆKT
MEÐJA5IE FONDA
Líkamsrækt - Jane Fonda
ásamt kassettu eöa plötu á aöeins
kr. 598,-
Opid kl. 9—21