Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
Hvíldar- og hressingarheimiliö
að Varmalandi Borgarfirði
veröur starfrækt 1985 frá 22. júní — 17. ágúst.
Upplýsingar í síma 96-24274. Tekiö veröur á móti
pöntunum 24. — 31. mars.
Jón Sigurgeirsson,
Klapparstíg 1, Akureyri.
Beggja hagur
Innflutningsfyrirtæki getur vegna breyttra aö-
stæðna tekið að sér aö annast innflutning og
fjármögnun á hvaða vöru sem er gegn eðlilegri
heildsöluálagningu.
Þetta gæti e.t.v. hentað fyrir verzlanir, stofnanir
og fyrirtæki.
Þeir sem áhuga hafa vinsamlega sendið línu á
augl.deild blaösins merkt: „Beggja hagur —
3295“.
Skrifstofa Félags
fasteignasala
Laufásvegi 46 er opin þriðjudaga
og föstudaga kl. 13.30—15.30.
Sími 25570.
Félag fasteignasala.
Betri fasteignaviðskipti.
Vökvaknúnir
fallhamrar
Margar stæröir.
Einnig fyrirliggjandi loft- og
vökvaknúnir borar. Höfum
vökvaknúnar tennur til aö
festa á gröfur. Óskum einn-
ig eftir sölumanni á íslandi.
)
SCHJERVEN & KONGSGAAPOEN
stre Aker vei 203,
J75 Oslo 9, sími (02) 25 93 10,
oregi.
Enska eða danska/
norska/sænska
— eftir Björn
S. Stefánsson
Eftirfarandi grein mína sendi t8
hinn 22. febrúar til birtingar í
fréttabréfi íslenzkrar málnefnd-
ar. Þar sem mál það, sem ég bar
þar fyrir brjósti, hefur komið til
almennrar umræðu síðustu daga,
vildi ég biðja Morgunblaðið að
taka hana til birtingr, enda mun
næsta fréttabréf ekki koma út
fyrr en í vor og kemur fyrir fárra
»ugu- BSt.
í 2. tbl. fréttabréfsins 1984 eru
hugleiðingar ritstjóra að lokinni
Færeyjaför. Þar sem fjallað er um
stjórnarfund norrænnar mál-
stóðvar, segir um hlutskipti ís-
lendinga í því samstarfi (s. 8):
„Þeir hafa meiri ástæðu að spyrja,
hvaða erindi þeir eiga inn í sam-
starf, sem hefir það aðalmarkmið
að efla dönsku, norsku og sænsku
um öll Norðurlönd, þ. á m. á fs-
landi.“
fslendingar þurfa margt að
sækja til annarra þjóða, en annað
kemur óbeðið og þarf samt ekki að
spilla, ef samskiptin eru ekki ein-
hliða, heldur fjölbreytt. Meðan
áhrifavald Dana var mikið hér á
landi, var þjóðinni hagur að sem
mestum samskiptum við aðrar
þjóðir en Dani, enda áttu Jón Sig-
urðsson og samherjar hans nyt-
samleg samskipti við Englendinga
um verzlunarmál og við Norð-
menn um fiskveiðar. Þannig
styrktu íslendingar stóðu sína
gagnvart Dönum og stækkuðu
heim sinn.
Enn er það svo, að okkur fslend-
ingum líkar misvel það sem kemur
frá Norðurlöndum, og ekkert er
eðlilegra en menn finni að því sem
illa líkar. Engin rök eru samt fyrir
því, að þar gæti áhrifa sem þjóðin
geti ekki staðizt. Öðru máli gegnir
um hin þjóðlausu menningaráhrif
sem hingað koma á ensku máli.
Þau áhrif sýnast ætla að verða
eins rík á mál almennings og
dönsk áhrif voru á mál heldra
fólks á 18. öld. Lítil vísbending um
það er, að unglingar tjá helzt til-
finningar sínar á ensku i óska-
lagaþáttum útvarpsins og í kroti á
biðskýlum, hæ og bæ eru að verða
algengustu samskiptatákn fslend-
inga og ók-ei helzta ályktunarorð-
ið.
Ekkert þótti mér brýnna sagt
um síðastliðin áramót en orð síð-
asta Reykjavíkurbréfs Morgun-
blaðsins (30. desember), sem blað-
ið setti sérstaklega með stóru
letri: „Holskefla engilsaxneskra
menningaráhirfa hefur riðið yfir
okkur eins og aðrar þjóðir í okkar
heimshluta í krafti nútímafjöl-
miðlunar og á þessari stundu get-
ur enginn sagt með nokkurri
vissu, hvort við, sem þjóð, stönd-
um af okkur þessa holskeflu. Þetta
er mesta vandamál þjóðar okkar
um þessar mundir."
Með þetta í huga eiga fslend-
ingar brýnt erindi „inn í samstarf,
sem hefir það aðalmarkmið að
efla dönsku, norsku og sænsku um
öll Norðurlönd, þ. á m. á fslandi",
eins og vitnað var til hér að fram-
an. Með því að hafa tök á þessum
þremur þjóðtungum draga fslend-
ingar úr þörf sinni á að leita þekk-
ingar og samskipta erlendis á
ensku. Eins og nú standa sakir
getur efling þessara þjóðtungna
ekki orðið svo mikil að íslenzk
tunga spillist af. Orð Reykjavík-
urbréfs minna á, að afstaða
manna til þessara mála er góðu
heilli óháð afstöðu þeirra til sam-
starfs við erlend ríki.
En ef saltiö
dofnar, með hverju á
þá aÖ selta það?
Enn vitna ég til hugleiðinga rit-
stjórans, þar sem hann segir í
kafla um Færeyjar og ísland (s. 9):
„Unglingar, sem alast upp á ís-
landi, eiga bágt með að skilja,
hvers vegna þeir eru látnir læra
dönsku i skólum, enda nota þeir
ensku í samskiptum við Dani (og
Norðmenn og Svía) eins og aðra
útlendinga, sem hingað koma.“ En
það er ekki aðeins danska sem vík-
ur fyrir ensku í samskiptum við
útlendinga, heldur einnig íslenzka.
fslendingar, jafnt fullorðnir sem
ungmenni, tala helzt ekki íslenzku
við útlendinga, þótt þeir séu hér
langdvölum og ætli að læra ís-
lenzku, heldur tala ensku. Þykir
mörgum útlendingi illt við að una.
Nýleg athugun á viðhorfum ís-
lendinga leiddi m.a. i ljós að þeir
þykjast allstoltir af því hlutskipti
sínu að vera fslendingar. Samt
sýna þeir ekki það stolt eða
sjálfsvirðingu i samskiptum við
útlendinga að þeir kynni íslenzka
menningu eins og auðveldast er,
nefnilega með því að tala við þá
íslenzku, þegar kostur er. Margir
fslendingar nota ekki heldur tæki-
færið, þegar það býðst, til þess að
þjálfa sig í dönsku/norsku/-
sænsku, þeim tungumálum sem
eru skyldust móðurmáli þeirra.
Vanmetakennd
Norðmenn, Svíar og Danir sýna
eigin þjóðtungum ræktarleysi ekki
síður en fslendingar. Það kemur
m.a. fram í því, aö þeir grípa til
ensku að óþörfu. Þegar ég kynnt-
ist Norðmönnum fyrst fyrir ald-
arfjórðungi, var það oft, þegar
norskir stúdentar voru við skál, að
þeir slógu um sig með ensku, en
það gerðu íslenzkir stúdentar ekki
þá. Stundum talar Svíi heldur
ensku en sænsku við fslending af
ímyndaðri tillitssemi. Svíar eru
margir hallir undir bandaríska
menningu og sænskir mennta-
menn dýrka margir bandarískt
þjóðfélag eða vissa þætti þess. í
haust voru fluttir viðtalspistlar
fréttamanns útvarpsins við ýmsa
forystumenn í Svíþjóð og Noregi.
Að mestu voru þeir endursögn
fréttamannsins, en stundum mátti
heyra sýnishorn af máli viðmæl-
anda. í viðtali við formann sænska
alþýðuflokksins (Folkpartiet) tal-
aði Svíinn ensku. Áður hafði kom-
ið fram, að fréttamaðurinn var
fær um að eiga viðtal á skandinav-
ísku. Ég spurði hann hvers vegna
Svíinn hefði talað ensku. Hann
skýrði það svo, að þannig þóttust
þeir standa jafnt að vígi.
íslendingar geta ekki vænzt
þess af öðrum en Færeyingum að
verða skildir á eigin máli. Alltaf
tapast eitthvað við þýðingu,
hversu fær sem maður er í málinu.
Hálfu meira brenglast, þegar báð-
ir þýða úr móðurmáli sínu, eins og
gerist, þegar norrænir menn tala
saman á ensku.
Reynsla mín er sú að ekki tekst
að fjalla um íslenzk þjóðfélagsmál
á ensku, þótt leitað sé aðstoðar
færra enskumanna. Hin ýmsu
blæbrigði málsins og hugtök varð-
andi stjórnskipun, félagsskap og
hugmyndaheim fslendinga eru að
svo miklu leyti komin frá Dönum
og Norðmönnum og enskt mál nær
þeim illa. Sem dæmi um það má
nefna, að á sínum tíma fékk
menntamálaráðuneytið Jóhann S.
Ferðamálasamtök Vesturlands:
Vesturlandskvöld á Akranesi
og Stykkishólmi um helgina
Bornrnesi, 25. m»r».
STJÓRN Feröamálasamtaka Vesturlands hefur ákveöið að halda Vestur-
landskvöld á nokkrum stööum, innan og utan starfssvæöisins í vetur. Þar
veröa kynntir þeir fjölmörgu möguleikar sem Vesturland býður ferðafólki
upp á. Fyrsta Vesturlandskvöldiö verður á Hótel Akranesi nk. föstudag, 29.
mars.
Síðan verða Vesturlandskvöldin
haldin á eftirtöldum stöðum: Hót-
el Stykkishólmur 30/3, Hótel
Borgarnes 13/4, Sjallinn, Akur-
eyri 10/5, Hótel Húsavík 11/5 og
Broadway Reykjavik 12/5.
Tvö síðastliðin sumur hafa
Ferðamálasamtökin gengist fyrir
sérstókum afsláttarkjörum fyrir
ferðafólk, undir heitinu „vildar-
kjör á Vesturlandi", við vaxandi
vinsældir. „Vildarkjörin“ verða nú
til boða frá 1. maí til 1. júní og frá
11. ágúst til 9. september.
Sigurður Skúli Bárðarson, hót-
elstjóri í Stykkishólmi, var endur-
kosinn formaður samtakanna á
aðalfundi þeirra sem haldinn var
fyrir nokkru. Aðrir í stjórn eru:
Jóhannes Ellertsson, Georg Her-
mannsson, Jóhannes Finnur Hall-
dórsson, Kristleifur Þorsteinsson,
óskar Baldursson og Guðjón Ingvi
Stefánsson. Stjórnin hefur ráðið
óla J. ólason ferðamálafulltrúa
fram til vors „og ef til vill að ein-
hverju leyti lengur ef fjárhagur
samtakanna leyfir", eins og segir í
fréttabréfi samtakanna.
Á fundinum kom fram, að
slæmt ástand vega á Vesturlandi
væri stærsti þröskuldurinn í upp-
byggingu ferðamála í landshlut-
anum, eftir því sem segir í frétta-
bréfinu. Samþykkt var ályktun til
samgönguráðherra, vegamála-
stjóra og þingmanna kjördæmis-
ins, þar sem átalið er „hið bága
ástand þjóðvega á Vesturlandi" og
bent á „að víða eru þjóðvegir nær
óbreyttir frá því að vegagerð fyrir
bifreiðir hófst fyrir 50 árum.“ Að
lokum er skorað á Alþingi að sjá
til þess að Vesturland dragist ekki
aftur úr við gerð varanlegra vega
á íslandi.
— HBj.
Framsóknarfélag
Reykjavíkur:
Halldór E. ráð-
inn starfsmaður
HALLDÓR E. Sigurösson, fyrrum
ráöberra, hefur verið ráðinn starfs-
maöur Framsóknarfélags Reykjavfk-
ur. Halldór hefur aösetur á skrif-
stofu félagsins á Rauðarárstíg 18.