Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 50
50
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
GARPQKA ]
þvær ull, kasmírull, nylon, gerviefni
og öll önnur viökvæm efni innan
þriggja mínútna í köldu vatni.
Gæti ekki verið auöveldara.
DREIFING: Edda Scheving
k SÍMI: 7 68 95
r
! 1 a&tt£3
3 spolur komnar.
Einkaréttur á íslandi.
Dreifíng
itoinorhf
Áskriftarshninn er 83033
HOLLANDSPISTILL /Eggert H. Kjartansson
ísland í
hollenskum
dagblöðum
Síðustu dagana hefur eitt og
annað verið birt viðkomandi Is-
landi í hollenskum dagblöðum.
Þannig var 11. mars greinilegt
að sú frétt Morgunblaðsins að
sendiráð Sovétríkjanna á Islandi
hefðu reynt að koma í veg fyrir
að kvikmyndir Andrei Tarkovskí
yrðu sýndar á kvikmyndahátíð í
Reykjavík, hafði vakið athygli
ritstjóra menningarsíðna dag-
blaðanna hér. Af þeim fáu til-
vitnunum sem voru birtar er
ljóst að ritstjórarnir voru hlið-
hollir okkur Islendingum.
Annað efni sem öllu meiri at-
hygli hollenskra hefur vakið og
töluvert hefur verið í fréttunum
hér er sú jákvæða afstaða sem
utanríkisráðuneyti Islands hefur
tekið til fyrirspurnar hollenskra
yfirvalda um möguleikann á að
fá aðstöðu á Keflavíkurflugvelli
fyrir eftirlits- og leitarflugvélar
af Orion gerð. Haft er eftir
formanni hagsmunafélags hol-
lenska sjóhersins að honum
finnst um mjög gott mál að
ræða. „Vegna þessa gefist kon-
unglega sjóhernum tækifæri til
að vinna með Orioninn við að-
stæður sem annars væru ekki
fyrir hendi."
Það þriðja sem vakti athygli
Hollendinganna þessa vikuna og
viðkom íslandi var skákmótið
sem var í febrúar í tilefni 60 ára
afmælis Skáksambands íslands.
I raun gefur það einnig góða
mynd af hollenskum áhuga fyrir
skákíþróttinni að það er hægt að
lesa nokkuð regluíega um helstu
skákatburðina heima í dagblöð-
um svo sem Volkskrant. I einni
greinni þar sem fjallað var um
Island koma vel í ljos þær hlýju
tilfinningar sem t.d. Gert Ligter-
ink ber til þessa áhuga okkar ís-
lendinga... „Ef Skáksamband
Islands hefði verð 61 árs hefðu
menn bara fundið aðra góða
ástæðu til þess að halda mót,
vegna þess að á íslandi er nú
skákin einu sinni þjóðar-
íþrótt... Allir þekkja skákregl-
urnar, allir vita hvaða einstakl-
ingar á íslandi eru sterkastir og
ef haldið er mót verður sigurveg-
arinn hetja. Það mun meira að
segja vera hægt að skiptast á
skoðunum við leigubílstjóra um
það hvernig staðan er I Tartak-
ower-afbrigðinu.“
Gert Ligterink hefur oftar en
einu sinni skrifað snyrtilega um
íslenska skákmenningu og oft á
tíðum í léttum dúr. Um landa
sinn Jhon van der Wiel sem varð
fjórði á mótinu í febrúar, en
hafði átt í töluverðum erfiðleik-
um skömmu fyrir Islandsferðina
á Hoogovens-mótinu, skrifaði
hann. „Van der Wiel endur-
heimti krafta sína í rólegu um-
hverfi íslands. Kaffihúsin loka
snemma, bjór er ekki hægt að
kaupa og verðið á öðrum áfeng-
um drykkjum býður ekki upp á
að njóta þeirra daglega. Hol-
landsmeistarinn okkar dró sig
m.a. vegna þessa í hlé á kvöldin
upp á hótelherbergi og tefldi
besta mót sitt síðustu mánuð-
ina.“
Kær kveðja,
EggerL
Úrslitin í hjólastóla-
ralli Sjálfsbjargar
HÉR fara á eftir úrslitin í hjólastóla-
ralli Sjálfsbjargar, sem fram fór í
Laugardalshöll 3. marz sl.
(Skýringar H Hjólastólanotandi, S Stjórn-
málamaóur, 1 Iþróttamaður).
Fyrirtcki Krppandi Tlmi
1. SlS (Jón Ragnaraaoa 1:45,90
2. Plantprent hf. HSigþrúóur Pálnd. 151,97
3. Kriatjáa 6 Skagfj. SÞorateinn Páhn. 2*757
4. HlnáberU. HGnðný Gnðnad. 2*8,14
5. Sparinj. Vélatjóra fjónan Trjggras. 215,15
( Veggfóórarinn hf SFriórik Soghaaa. 227,44
7. Sfld og fíakar H Baldrin iaaltaaon
8. B.M. VaJlá f Arni Óli Priórilu.
9. BDrangnr hf. H Arnór Pétnraaon
10. SláturféLSuóurl. f Guóm. Þorbjðrnaaon
11. Sápngcrðin Frigg S Karl Steinar Guónas.
12 Ford nmboóió S llalldór Aagrimaaon
12 Trrggingamióotoóin hf. örn Ömaraaon
14. Samrinnntrgggingar Baldur Guónaaon
12 Hreyfill Steindór Björnaaon
12 Toyota amboóió Kjartan Jóhannaaon
17. Fhgleiðir hf. Skáli Öakaraaon
12 Teikniatofan hf. Jónina Benediktad.
19. KRON Anna Geiredóttir
20. Heimilmtieki
21. Hagvaifir hf.
22. Kj. KjatrUnnoB hf.
23. (^rciimetHT.Iaodbá
24. SveinHbakarí
25. Fiskbádin Scbjörg
26. Eikin hf.
Viðnr Guðnnaon
Jóh. Vilhjálmanon
ögm. Krwtinflson
Hrafnh. Vnlbjtfrnfld.
Agúata Gvómnndad.
Bjarni Friórikaaon
Þorh. Aðalateinxaon
27. Bnnannnnlnn af. Gnórúa Agnandóttir
22 Daihalan umboóió Bjarni Feliuon
29. Lnngarneaagétek Arni Johnaen
30. Geir G. Gnnnlaugaaon Klaa Stefánadóttir
31. HjálparUekjabaakiaa Kriatia Kraraa
32 Nióurauóurerkam.ORA Srarar Gealanon
32 lngrnr Helgaon Hannn Þorlákadóttir
34. Smjhrlfki hf. Ingib. Sólrún Gialnd.
35. Þrottnhúaió Fðnn hf. Jón Páll Sigmnraaon
30. Ghiggamniójan Gaórún llelgadóttir
t frétt Sjálfsbjargar um úrslitin
segir að Guðný Guðnadóttir, sem
varð fjórða í úrslitakeppninni,
hafi í milliriðli náð beztum
brautartima allra keppenda,
1:44,47 að refsistigum meðtöldum.
Samband dýravemdunarfélaga:
Krefst rannsóknar á úti-
gangi búfjár á Vestfjörðum
SAMBAND dýraverndunarfélaga
hefnr farið fram i opinbera rann-
sókn i fjallskilum, fóðurgæzlu og
útigangi búfjár á Vestfjörðum.
Kannað verði hvort lög um dýra-
verndun og búfjárrækt hafi verið
brotin með því að láta búfénað
ganga úti á vetrum. f bréfi til ríkis-
saksóknara segja samtökin, að um
árabil hafi sambandið barist fyrir
því að fyrrgreindum lögum yrði
framfylgt
I vikunni sendu nokkrir bændur
á Vestfjörðum ríkissaksóknara
bréf með beiðni um rannsókn eftir
að skyttur úr Reykjavík skutu eft-
irlegukindur úr þyrlu. Um 20
kindur voru aflífaðar að beiðni
sýslumannsins í Barðastrandar-
sýslu, en þær urðu eftir þegar
smalað var í haust til niðurskurð-
ar vegna riðuveiki.