Morgunblaðið - 28.03.1985, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985
5
Nálægð flugvélanna við Keflavíkurflugvöll:
„Lítum þetta mjög
alvarlegum augum“
— segir Sigurður Helgason forstjóri
ATVIK þad sem greint er frá á baksíðu Morgunbladsins í gær, þar sem
Dagfinnur Stefánsson lýsir aðflugi sínu að Keflavík á þotu Flugleiða sl.
föstudag, þegar lítil flugvél flaug þvert á stefnu þotunnar aðeins fyrir neðan
hana, er þriðja vafasama atvikið sem átt hefur sér stað á tiltölulega skömm-
um tíma í nágrenni Keflavíkurflugvallar. Eins og fram hefur komið flugu vél
Arnarflugs og þota frá varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli mjög nálægt hvor
annarri um miðjan marsmánuð 1983. Síðan gerðist það aftur síðastliðið haust
að tvær farþegavélar Flugleiða nánast snertust, og var talið í báðum tilvikum
að við árekstri hefði legið.
Blaðamaður Morgunblaðsins
snéri sér til Péturs Einarssonar
flugmálastjóra í gær og spurði hann
hvort hann væri ekki uggandi yfir
tíðni þessara vafasömu atvika: „Við
erum í sjálfu sér ekki uggandi, því
að þegar við berum okkur saman við
aðrar þjóðir, þá er útkoman góð.
Hins vegar þá getum við verið betri,
og eigum að vera betri," sagði Pétur,
„enda erum við að endurskipuleggja
flugumferðarþjónustuna í landinu
þessa dagana. Markmiðið er að flug-
umferðarstjórar verði betur þjálf-
aðir og að flugumferðarþjónustan
verði öruggari."
Pétur sagði að starfandi væri á
vegum samgönguráðuneytisins
þriggja manna nefnd, þar sem hann
gegndi formennsku, en með honum í
nefndinni væru þeir Agnar Frið-
riksson framkvæmdastjóri Arnar-
flugs og Erling Aspelund fram-
kvæmdastjóri flugrekstrarsviðs
Flugleiða. Þessi nefnd væri að vinna
að tillögum um það hvernig bæta
mætti þátt flugliðanna í þessu máli.
Blaðamaður snéri sér einnig til
Sigurðar Helgasonar forstjóra
Flugleiða í gær, og spurði hann álits
á þeim atburði sem greint var frá í
Morgunblaðinu í gær: „Að sjálf-
sögðu lítum við þetta mjög alvarleg-
um augurn," sagði Sigurður. „Við
höfum vakið athygli á þessu máli
við samgönguráðuneytið, við gerð-
um það strax eftir það atvik sem
átti sér stað sl. haust. Við höfum
óskað eftir skýringum á því að
svona lagað skuli geta gerst, og við
höfum óskað eftir því að sérstök at-
hugun fari fram á þessum málum.“
Kommúnista-
samtökin
lögð niður
Kommúnistasamtökin voru lögð
niður samkvæmt samþykkt með
meirihluta atkvæða á aðalfundi
þeirra 9. mars sl. Kommúnistasam-
tökin voru stofnuð 1980 við samein-
ingu Einingarsamtaka kommúnista
og Kommúnistaflokks íslands. Síð-
an hefur félögum fækkað og starf
dregist saman, samkvæmt fréttatil-
kynningu sem Ómar Harðarson
undirritar fyrir hönd samtakanna.
í fréttatilkynningunni segir
ennfremur m.a., að það hafi verið
mat þess meirihluta sem ákvað að
slíta samtökunum, að þau gætu
ekki sem slík fylgt verkefnum sín-
um eftir. Þá var ákveðið, að eigur
samtakanna skyldu vera stofnfé
sjóðs, sem hefði það hlutverk að
styrkja þá pólitísku starfsemi sem
telst sósíalísk eða tengist baráttu
alþýðu á íslandi.
Iðnlánavextir hækka 15. aprfl:
Byggingarlán í 8 %
og vélalán í 7,5 %
VEXTIR iðnlána úr Iðnlánasjóði
hækka 15. aprfl nk. Byggingarlána-
vextir hækka úr 6% í 8% og véla-
lánavextir úr 5,5% í 7,5%.
Að sögn Jóns Magnússonar
formanns stjórnar Iðnlánasjóðs er
hækkanaheimild notuð til fulls.
Um ástæður hækkananna sagði
hann: „Sjóðurinn var rekinn með
halla árið 1982, örlitlum hagnaði
árið 1983 og hann sveiflaðist illa
niður á við undir áramótin 1984.
Það eru mjög háir vextir á þeim
lánsfjármarkaði sem við höfum úr
að spila og miðað við greiðslustöðu
er þetta nauðsynleg ráðstöfun til
þess að ekki verði gengið á höfuð-
stól sjóðsins."
Sáttafundur í dag
SÁTTAFUNDUR í kjaradeilu sjó-
manna og útvegsmanna á Vestfjörð-
um verður haldinn eftir hádegi í dag.
Lítið hefur miðað í samkomulagsátt
að sögn Guðlaugs Þorvaldssonar
ríkissáttasemjara. Verkfall sjó-
manna á landróðrabátum á ísaflrði
hefur verið boðað 1. aprfl nk.
Sjómenn í Alþýðusambandi
Vestfjarða, þ.e. sjómenn utan ísa-
fjarðar, hafa ekki boðað til verk-
falla. Sjómenn á skuttogurum og á
úthafsrækjubátum í Sjómannafé-
lagi fsafjarðar hafa verið í verk-
falli frá 21. marz, en sjómenn á
landróðrabátum hafa boðað verk-
fall frá nk. sunnudegi 1. apríl.
Kísiliðjan við Mývatn:
Átta sóttu um stöðu
framkvæmdastjóra
Mývatnssveit, 27. marz.
EFTIRTALDIR átta menn sóttu um framkvæmdastjórastarf við Kísiliðjuna
h.f. í Mývatnssveit, en umsóknarfrestur rann út 18. marz. Hákon Björnsson,
scm verið hefur framkvæmdastjóri við Kísiliðjuna undanfarin ár, hefur verið
ráðinn forstjóri Áburðarverksmiðju ríkisins í Gufunesi.
Þeir eru: Einar Haraldsson,
Furulundi 15b, Akureyri; Gunnar
Gunnarsson, Langholtsvegi 14,
Reykjavík; Ingvar Ásgeirsson,
Miðleiti 10, Reykjavík; Jón Illuga-
son, Helluhrauni 15, Reykjahlíð;
Ólaífur Sverrisson, Lynghrauni 4,
Reykjahlíð, Reynir Z. Santos,
Austurvegi 14, ísafirði, Róbert
Birgir Agnarsson, Lynghrauni 3,
Reykjahlíð, Stefán G. Jónsson,
Kringlumýri 4, Akureyri.
Fréttaritari
Frá tölvubankanum við Vörumarkaðinn.
Fyrsti tölvubankinn utan
afgreiðslna og útibúa
FYR.STI tölvubankinn, sem staðsettur er utan af-
greiðslna banka, var tekinn í notkun við Vörumarkað-
inn við Eiðistorg í fyrradag. Er þarna um að ræða
sjötta tölvubanka Iðnaðarbankans en hinir flmm eru
allir staðsettir við afgreiðslur bankans.
Bankaeftirlitið bað forráðamenn Iðnaðarbank-
ans fyrir um þremur vikum að bíða með uppsetn-
ingu þessa banka þar til viðskiptaráðuneytið hefði
kannað málið og sagt álit sitt. Afgreiðsla málsins
lá ekki fyrir, þegar tölvubankinn var settur upp við
Vörumarkaðinn. Valur Valsson bankastjóri Iðnað-
arbankans sagði aðspurður, að bankaeftirlitið og
viðskiptaráðuneytið hefðu haft rúman tíma til að
athuga málið og að forráðamenn Iðnaðarbankans
teldu að sú athugun myndi ekki leiða annað í ljós
en að þessi staðsetning væri í lagi.
Hin stórkostlega skemmtun meö hin-
um frábæru félögum í RÍÓ ásamt
stórhljómsveit Gunnars Þóröarsonar
veröur í Broadway 3. apríl, skírdag 4.
apríl og II í páskum.
Páskaskemmtun í Broadway er kjör-
in skemmtun fyrir alla. Ljúffengur
þríréttaður kvöldveröur framreiddur
og dansað aö lokinni skemmtun.
Ath.: skírdag veröur húsiö opnaö kl.
18.00 fyrir matargesti. Tryggid ykk-
ur miöa og borö tímanlega í síma
77500 daglega því síöustu páska
seldíst upp.
Stórhljómsveit Gunnars ásamt
Björgvin, Sverri og Þuríöi leika fyrir
dansi.
Ein allra besta danshljómsveit sem
fram hefur komiö í mörg ár.
Veriö velkomin vel klædd í