Morgunblaðið - 28.03.1985, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 28.03.1985, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 28. MARZ 1985 23 tetrahýdrókannabínóls í rannsök- uðum sýnum að meðaltali mun meiri en áður hafði verið. Verður og ekki annað séð en sama þróun haldi áfram árið 1984. Á árinu 1983 varð ennfremur vart við mun skipulagðara og stórtækara smygl á kannabis til landsins en áður hefur verið. Að öllu samanlögðu verður því að telja, að á árinu 1983 hafi neysla á kannabis á íslandi sömuleiðis farið út fyrir fyrri mörk. Aukið framboð á kannabissam- setningum með mikilli styrkt tetra- hýdrókannabínóls er að dómi höf- undar örugg vísbending þess, að hér sé kominn hópur manna, sem neytir kannabis reglulega á félagslegu stigi eða ávanastigi. — Þetta lá ekki ljóst fyrir, þegar kafli XIII var rit- aður. Enda þótt kannabisneysla verði ekki að öllu jöfnu sett á bekk með neyslu kókaíns eða amfetamins og fíkn í kannabis sé sjaldgæf (a.m.k. á Vesturlöndum), ber þess fast- lega að minnast, hve lítið er enn í raun vitað um skaðsemi þess. Af þessum sökum ber að spyrna við kannabisneyslu svo sem við verður komið. Allt hjal um að lögleiða kannabisnotkun er þvi hreinlega óráðshjal. Með tilliti til þeirra breyttu að- stæðna, er að framan greinir, var í árslok 1983 hafist handa í Rann- sóknastofu í lyfjafræði um ákvarðanir á kannabínóíðum í blóðsýnum og þvagsýnum frá spit- ölum, hliðstæðum stofnunum og heilsugæslustöðvum. Til þessa hafa nokkrir tugir sýna verið rannsakaðir og voru kannabínóíð- ar í talsverðum hluta þeirra. Styrkir þetta enn framangreindar ályktanir um kannabisneyslu. Lýsergíd (LSD). — Dauðsföll af völdum lýsergíðs eru að öllum lík- indum óþekkt. Lýsergíð er annað tveggja sárlega lítið eða alls ekki notað hér á landi, þegar þetta er ritað. Sama gildir enn fremur um fencýklídín. Nikótín (tóbak). — Nikótin verð- ur ekki með réttu talið vimugjafi. Það er hins vegar kröftuglega vanabindandi og mætti því kalla hið dæmigerða ávanaefni. Tóbaks- reykingar eru og venjulega stund- aðar fremur á ávanastigi en fé- lagslegu stigi (sbr. mynd 20). Menn hafa þvi hér á landi sem viðar leitast við að setja skorður við tóbaksreykingum engu síður en notkun vímugjafa. Tóbaksreyk- ingar hafa enn fremur þá sér- stöðu, að þær geta beinlinis skað- að aðra en þá, sem sjálfir reykja, en eru vinnu sinnar vegna eða af öðrum sökum óhjákvæmilega samvistum við reykingamenn. Verulegt skref til tóbaksvarna eru lög að þessu lútandi, sem sett voru á síðasta þingi. Koffein (kaffi o.fl). — Koffein verður að teljast ávanaefni, enda þótt skaðsemi þess sé vafalaust lítil. Á það var þó bent að mikil koffeinneysla (kaffidrykkja) kunni að vera viðurhlutamilýð mál fyrir þungaðar konur. Þessu þyrfti að halda mun meira á loft og koma betur til skila en gert hefur verið hingað til. Friðarhreyfing Þingeyinga: Skipst á skeytum við George Shultz ÞEGAR George Shultz, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom hingað til lands 14. mars síðastliðinn fékk hann eftirfarandi skeyti frá Húsavík: „Við viljum vekja athygli yðar á því að íslenska þjóðin kærir sig ekki um kjarnorkuvopn á sínu landi né neinn vígbúnað sem teng- ist slíkum striðsrekstri. Fyrir hönd Friðarhreyfingar Þingey- inga, Sveinn Rúnar Hauksson, formaður." Utanríkisráðherrann svaraði orðsendingunni degi síðar með svohljóðandi skeyti: „Þakka yður fyrir skeyti yðar, þar sem þér lýsið skoðunum yðar varðandi kjarnorkuvopn á íslandi. Ekkert okkar vill kjarnorkuvopn nokkurs staðar. Að ná því ánægju- lega takmarki er, hins vegar, vandamál okkar allra. Bestu kveðjur, George Schultz." 10. umferð: Sævar — Tisdall 0—1 Helgi — Helmers 'k — \k Pálmi — Zuckerman 0—1 Lein — Lombardy ‘k — ‘k Karl - Jón 0-1 Áskeil — Guðmundur 'k — ‘k 11. umferð: Guðmundur — Sævar 'k — 'k Tisdall — Helgi ‘k — ‘k Helmers — Pálmi 1—0 Zuckerman — Lein ‘k — ‘k Lombardy — Karl ‘k — ‘k Jón — Áskell ‘k — 'k Tíunda umferðin var æsi- spennandi, en í þeirri síðustu virtist svo sem keppendur hefðu sætt sig við orðinn hlut. í 10. umferðinni beindust augu allra að viðureign þeirra Karls og Jóns, en báðir þurftu sárlega á vinningi að halda. Skákin ein- kenndist lika af vinningsvilja beggja, Karl blés til sóknar full- snemma, Jóni tókst að stöðva at- löguna og ná síðan gagnsókn. Karl reyndi mannsfórn til að blíðka goðin, en allt kom fyrir ekki. I síðustu umferðinni tryggði Jón síðan sigurinn og áfangann með jafntefli við Ás- kel. Hvítt: Karl Þorsteins Svart: Jón L Árnason Sikileyjarvörn 1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3. d4 — cxd4, 4. Rxd4 — Rf6, 5. Rc3 — a6, 6. Be3 — Dc7, 7. Dd2 — e6, 8. f3 - b5, 9. g4 Þessi peðaframrás er hálfgert vindhögg, því svartur hefur ekki veikt peðastöðu sína á kóngs- væng með g6 eða h6. 9. — Bb7, 10. 0-0-0 — Rfd7, 11. Kbl — Re5, 12. Bd3 — Rbd7, 13. Df2 — Be7. 14. g5 — b4, 15. Rce2 - Rc5, 16. h4 — d5! Svartur hefur náð frumkvæð- inu. 17. Bf4 — 00 17. — dxe4, 18. fxe4 — Rxe4?, 19. De3 var auðvitað ótímabært. 18. Dg3 — Bd6, 19. exd5 — Bxd5 20. h5 — Rcxd3, 21. Hxd3 — Had8, 22. H3dl — Rc4, 23. Bxd6 - Hxd6, 24. Hhgl — Hc8, 25. f4 - Hb6, 26. (5? Hvíta staðan var ekki glæsi- leg, en þetta gerir illt verra. 26. Dd3 var sennilega skást. 26. — e5, 27. g6 — fxg6, 28. hxg6 - h6! Það var ástæðulaust að taka riddarann, því eftir t.d. 28. — exd4, 29. Dxc7 — Hxc7, 30. Hxd4 hefur hvítur dágóð færi fyrir manninn. 29. Rb3 — Be4, 30. Red4 Þetta ber keim örvæntingar, en svartur var að ná óstöðvandi sókn, auk þess sem hann hótaði 30. - Bxf5. 30. — exd4, 31. Dxc7 — Hxc7, 32. Hxd4 — Rd6, 33. Hel — Bxc2+, 34. Kal - Kf8!, 35. He6 - Bxb3, 36. axb3 — Hcl+, 37. Ka2 — Hb5 og hvítur gafst upp. Vorlitir mcð hækkandi KARNABÆR BARNA- OG UNGLINGADEILD — AUSTURSTRÆTI22. Sími frá skiptiborði 45800.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.